Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 2
FRETTIR Stúdentar Skerðing lána verði bætt Menntamálaráðherra segir tillögu að lausn koma fyrir mánaðamótin Svavar Gestsson menntamála- ráðherra skýrði frá því á fjöl- mennum fundi með stúdentum við Háskóla íslands um lánamálin í gær, að fyrir lok þessa mánaðar yrði lögð fram tillaga um hvernig staðið skuli við loforð um að bæta námsmönnum þá skerðingu á námslánum sem varð í tíð Sverris Hermannssonar í menntamála- ráðuneytinu. Námsmönnum var lofað í fyrra að skerðingin skyldi bætt í þrem- ur áföngum. Síðasta hækkun lán- anna átti að koma til fram- kvæmda í janúar, en af því varð ekki vegna fjárhagsvandræða Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Nefnd sem menntamálaráðherra skipaði komst að þeirri niður- stöðu að þriðja áfangahækkunin skyldi koma til i'ramkvæmda svo fljótt sem auðið væri. Stúdentar viðhöfðu þung orð í garð menntamálaráðherra og sökuðu hann um að standa ekki við samkomulagið sem gert var við þá. Svavar svaraði því m.a. til að hann hefði talið að menn vildu taka tillit til aðstæðna. Lánasjóð- urinn væri ekki einn í heiminum, heldur væri hann hluti af efna- hagslegum veruleika í landinu. Hann sagði að óráðsían í góðær- inu í tíð fyrri ríkisstjórnar væri að koma niður á stúdentum og nú þyrftu allir að sameinast um að halda merki LÍN á lofti. -gb Heilsurœkt Ufshatt- unum breytt Hér er ekki verið að stofna enn eina líkamsræktina, sagði Grím-, ur Sæmundsen læknir og stjórnarmaður í nýstofnuðu hlutafélagi sem opnar í dag al- hliða forvarnar- og endurhæf- ingarstöð að Faxafeni 14 í Reykjavík. Meðal hluthafa í stöð- inni eru stéttarfélög, lífeyris- og sjúkrasjóðir og fyrirtæki í Reykjavík. Framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, sem hlotið hefur nafnið Mátt- ur hf., er Hilmar Björnsson íþróttakennari. Hann sagði að í starfsliði stöðvarinnar væru lækn- ar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, næringar- fræðingar og íþróttakennarar. Fyrirkomulag rekstrarins er með því sniði að allir sem leita til stöðvarinnar eru beðnir að svara spurningum um heilsufar sitt og lífshætti. Á grundvelli svaranna er fólki svo veitt ráðgjöf um hvað það þarf. „Ætlunin er að hafa áhrif á lífs- hætti fólks til lengri tíma,“ sögðu þeir Grímur og Hilmar. „Það er staðreynd að helming allra sjúk- dóma sem fullorðnir fá má rekja til lífsháttanna. „Pað eru hins vegar mörg sorgleg dæmi um fólk sem byrjar að þjálfa sig en hættir fljótlega vegna þess að það vant- ar stuðning. Við viljum reyna að stýra þessu. Við byrjumáað setja fólk í þoipróf og mælum blóð- þrýstinginn, blóðfituna og húðfit- una. Á grundvelli þessara prófa veitum við svo ráðgjöf um þjálf- un og breytta lífshætti.“ í stöðinni verður boðið upp á sex vikna námskeið þar sem sam- an fer líkamleg þjálfun og fræðsla, td. um mataræði, reykingar, slökun gegn streitu, líkamsbeitingar, vinnuaðstöðu og um það hvað felst í hreyfingu Hilmar Björnsson framkvæmdastjóri tekur púlsinn á stjórnarformanni Máttar hf„ Pétri A. Maack. Til vinstri er Magnús L. Sveinsson formaður VR og til hægri Lýður Friðjónsson, forstjóri Vífilfells. Mynd: Jim Smart. og heilbrigði. Grunnverð þessara námskeiða er 12.000 krónur en þeir sem aðild eiga að stéttarfé- lagi og/eða vinna hjá fyrirtæki sem á aðild að Mætti hf. fá veru- legan afslátt, allt að 80%. Auk þess verður boðið upp á ýmiss konar styttri námskeið og reglu- lega líkamsþjálfun. Meðal eigenda Máttar hf. eru Verslunarmannafélag Reykja- víkur og Lífeyrissjóður versl- unarmanna, Iðja, Dagsbrún, Lö- greglufélagið, Trésmiðafélagið og fyrirtæki á borð við Vífilfell, Hampiðjuna, Sjóvá/Almennar, Flugleiðir, Áburðarverksmiðj- una og Odda, svo nokkur séu nefnd. -ÞH Peningar Raunvextir hafa ekki lækkað Ögmundur Jónasson: Raunvextir ekki háðir náttúrulögmálum ■ ■ Ogmundur Jónasson, formað- ur BSRB, telur þá umræðu sem nú fer fram um vaxtamálin vera bæði ruglandi og afvega- leiðandi. „Það sem máli skiptir eru raun- vextirnir, þær vaxtabyrðar sem hvfla á almenningi. Þessir raun- vextir hafa ekki lækkað og það er ekkert sem bendir til að þeir muni gera það, annað en vilji og kröfur almennings um það,“ sagði Ögmundur í samtali við Þjóðviljann. Hann sagði að sér sýndist vera ótrúleg tregða hjá bankakerfinu, sem birtist í því að forvextir lækk- uðu ekki í takt við aðra vexti. „Maður spyr sjálfan sig hvort bankakerfið og fjármagnskerfið hafi svo mikilla hagsmuna að gæta í að halda verðbólgunni hárri, til að geta áfram stundað blekkingarleik gagnvart almenn- ingi, að þeir séu að reyna að koma í veg fyrir að við náum verðbólgunni niður," sagði Ög- mundur. Hann sagði að BSRB myndi áfram ítreka kröfur sínar um að raunvextir yrðu færðir niður. „Raunvextir eru ekki háðir nátt- úrulögmálum. Þeireruháðir vilja og það sem við munum gera er að ýta á þann vilja,“ sagði Ógmund- ur Jónasson, formaður BSRB. -gb Hafnarborg Söngleikir og Nonaginta Fimm listamenn opna sýningu íHafnarborg ídag. Lög úr kunnum söngleikjum flutt á sunnudagstónleikum Skák Tvö stóimót á næstunni Fimm listamenn opna samsýn- ingu undir yfirskriftinni Non- aginta í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar í dag. Á morgun verða síðan aðrir tónleikarnir í tónleikaröð Hafn- arborgar og Tónlistarskóla Hafn- arfjarðar, en stefnt er að því að stuttir tónleikar fyrsta sunnudag hvers mánaðar verði fastur liður í starfsemi Hafnarborgar. Nonaginta er sýning þeirra Björns Roth, Daða Guðbjörns- sonar, Eiríks Smith, Kjartans Guðjónssonar og Ómars Stefáns- sonar. Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu að þó þeir séu ólíkir um margt eigi þeir þó ýmislegt sameiginlegt, eins og til dæmis það að mála og því sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir sýni saman. A tónleiknum munu tveir tveir kennarar við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Ester Helga Guð- mundsdóttir sópransöngkona og Guðni Þ. Guðmundsdóttir pí- anóleikari flytja nokkur lög úr kunnum söngleikjum, svo sem Porgy og Bess, Showboat, Sound of Music og Cats. Ester Helga stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík og við Háskólann í Indiana í Bandaríkj- unum, auk þess sem hún hefur sótt fjölda námskeiða. Hún hefur haldið fjölda tónleika bæði hér á landi og erlendis. Guðni lauk tónmennta- kennaraprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík og var við org- elnám við Konservatoríið í Kaup- mannahöfn. Hann er organ- leikari Bústaðakirkju og hefur komið fram sem kórstjóri og ein- leikari á fjölmörgum tónleikum hér á landi og erlendis. Tónleikarnir hefjast kl. 15:30 á sunnudag og er aðgangur ókeypis. Hafnarborg er opin kl. 14-19 alla daga nema þriðjudaga og Nonaginta stendur til 18. mars. LG íslenskir skákáhugamenn hafa ærnar ástæður til að kætast þessa dagana, því á næstu vikum verða haldin hér á landi tvö öflug al- þjóðleg skákmót. Fyrra mótið er svokallaður stórveldaslagur, þar sem landslið Bandaríkjanna, Sovétríkjanna, Bretlands og úrvalslið frá Norðurlöndunum leiða saman hesta sína. Stórveldaslagurinn hefst 9. mars og lýkur þann 15. Síðara mótið er Búnaðarbanka- mótið, eða Reykjavíkurskák- mótið, sem stendur dagana 17.- 30. mars. í stórveldaslagnum verður tefld tvöföld umferð á tíu borðum og meðal þátttakenda eru fremstu skákmenn þjóðanna sem í hlut eiga. Þar má nefna Yusup- ov, Ivanchuk og Sokolov frá Sovétríkjunum. íliði Bandaríkj- anna eru menn á borð við Gulko, Seirawan og deFirmian. Bretar tefla fram Short, Speelman, Nunn og fleiri. í liði Norðurland- anna eru alls sex íslendingar, þeir Helgi Ólafsson, Margeir Péturs- son, Jón L. Árnason, Jóhann Hjartarson, Friðrik Ólafsson, sem jafnframt er liðsstjóri, og Karl Þorsteins. Þeir tveir síðar- nefndu eru varamenn. Af öðrum í okkar liði má nefna Agdestein, Hellers og Schússler. Tæplega 90 skákmenn taka þátt í Búnaðarbankamótinu og þar á meðal verða margir þátttak- endanna í stórveldaslagnum. Reykjavíkurskákmótið er hið fjórtánda í röðinni og að þessu sinni er það haldið í tengslum við 60 ára afmæli Búnaðarbankans á þessu ári. Kostnaður við mótið verður 6-7 miljónir króna. í verð- laun verða greiddir 30 þúsund dollarar. Skákmótin tvö fara fram í nýj- um húsakynnum Skáksambands íslands og Taflfélags Reykjavík- ur að Faxafeni 12. -gb Myndlist Hugamyndir við Hafnarstræti Birgitta Jónsdóttir opnar sýningu í dag Birgitta Jónsdóttir listmálari og Ijóðskáld opnar sína fyrstu einkasýningu hér á landi í Lista- mannahúsinu, Hafnarstræti 4 kl. 16 í dag. Við opnunina stendur Birgitta ásamt tímaritinu Rómi fyrir dagskrá með tónlist, upp- lestri, skyggnumyndasýningu og fleiru. Birgitta, sem áður hefur sýnt í Kaupmannahöfn, Osló og Lundi, mun í þetta sinn aðallega sýna þurrpastelmyndir og olíumál- verk, en auk þess verða til sýnis punktamyndir úr ljóðabók henn- ar Frostdinglum. Við opnunina framkallar Sigurður Sigurðsson munnhörpuleikari hugamyndir ásamt Birgittu og Steinunn Asm- undsdóttir, Sigurgeir Orri, Char- les Egill Hirt og Margrét Hugrún lesa úr eigin verkum. Helga Inga- dóttir syngur, Gunnar Grímsson flytur tónaflóð og Sigurður Ing- ólfsson, Charles Egill og Baltasar Samper kynna tímaritið Róm. Enn fremur má búast við óvænt- um uppákomum. Kynnir verður Geir Hlöðversson. Sýning Birgittu stendur til 1. aprfl og verður opin á verslunart- íma nema annað sé auglýst., LG Bírgitta Jónsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu hér á landi í dag 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.