Þjóðviljinn - 03.03.1990, Page 3
FRETTIR
Margrét Thatcher
Skattleggur íslenska námsmenn
Nýr og óvinsœll nefskattur íBretlandi leggst á íslenska námsmenn sem greiða um hálfa milljón ínámsgjöld en hafa engar
tekjur ílandinu. Lánasjóðurinn mun sennilega lána fyrir skattinum
Nýr og umdeildur nefskattur
sem taka á gildi þann 1. aprfl í
Bretlandi verður lagður á ís-
lenska námsmenn. Islenskir
námsmenn greiða að öllu jöfnu
mjög há námsgjöld í Bretlandi
eða á bilinu 3-500 þúsund og þyk-
ir mögrum súrt að vera skatt-
lagðir í ofanálag. Hólmfríður
Garðarsdóttir starfsmaður Sam-
bands íslenskra námsmanna er-
Mér fínnst lítt skiljanlegt að
ríkisstjórnir Norðurlanda
skuli ekki nota þetta tækifæri og
mótmæla skýrt ákvörðun Breta
um að byggja endurvinnslustöð-
ina í Dounreay. Ég vil að Norður-
lönd bregðist mun harkalegar við
ákvörðun Bretanna, sagði Hjör-
leifur Guttormsson við Þjóðvilj-
ann í gær, en hann lagði fram fyr-
irspurn á þingi Norðurlandaráðs
um viðbrögð norrænu ríkis-
stjórnanna við stöðinni í Dounre-
ay.
Ekkert kom fram um það í
svarinu hvort ríkisstjórnirnar
hyggðust mótmæla, en bent á að
norræna ráðherranefndin hefur
lendis, segir fjölda námsmanna
hafa sett sig í samband við SÍNE
vegna þessa máls. Að sögn Þórðar
Gunnars Valdimarssonar upplýs-
ingafulltrúa Lánasjóðsins, mun
sjóðurinn að öllum líkindum lána
fyrir skattinum.
Þessi skattur sem kallaður er
„Community Charge“ af bresk-
um stjórnvöldum en „Poll Tax“
af stjórnarandstöðunni, er mjög
sent bresku ríkisstjórninni mót-
mælabréf.
í svarinu er tekið undir að stöð-
in í Dounreay er möguleg ógnun
við fiskveiðar, heilsu og öryggi á
svæðum í nálægð við stöðina.
„Það eru greinilega mismun-
andi skoðanir á þessu innan ríkis-
stjórnanna og ég hef staðfestan
grun um að Svíar og Finnar dragi
lappirnar í þessu máli, enda f ram-
leiða þeir sjálfir orku í kjarnorku-
verum.
Svíar eru sjálfir í erfiðleikum
með að koma frá sér úrgangi frá
Forsmark kjarnorkuverinu,"
sagði Hjörleifur.
„Ég held að menn hafi ekki átt-
umdeildur í Bretlandi þar sem
hann leggst jafnt á efnaða ein-
staklinga sem minna efnaða og
fasteign viðkomandi skiptir engu
máli. Hver og einn einstaklingur
eldri en 18 ára á að greiða um 37
þúsund krónur á ári en íslenskir
námsmenn eiga að greiða 20%
skattsins séu þeir í fullu námi en
allan skattinn séu þeir í tíma-
bundnu eða hlutanámi. Makar
að sig almennilega á hve alvarleg
ákvörðun bresku stjórnarinnar
er. Það hefur verið ákveðið að
stöðin í Dounreay skuli byggð.“
Norski umhverfisráðherrann,
Kristin Hille Valla, svaraði fyrir-
spurn Hjörleifs og fyrirspurn
Atla Dam. Dam spurði hvort
Norðurlönd myndu leggja til á
Norðursjávarráðstefnu í mars og
ársþingi Parísarnefndarinnar að
bann yrði lagt við byggingu
stöðva eins og í Dounreay.
„Þetta mál hlýtur að verða
tekið upp á Norðursjávarráð-
stefnunni í næstu viku,“ sagði
Hjörleifur í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær. -gg
námsmanna sem ekki eru í námi
eiga að greiða fullan skatt en geta
sótt um lækkun og verður þá
tekið tillit til tekna þeirra. Þeir
sem ekki greiða skattinn geta
fengið 5 þúsund króna sekt og átt
yfir höfði sér að vera reknir úr
landi.
Hólmfríður Garðarsdóttir
sagði fulltrúa SÍNE í stjórn LÍN
ætla að leggja fram tillögu í stjórn
LÍN um að sjóðurinn láni fyrir
skattinum. f samtali við Þjóðvilj-
ann sagði Þórður Gunnar Vald-
imarsson að það væri í samræmi
við vinnureglur sjóðsins að
greiða aukakostnað sem þennan
og nemendur yrðu fyrir.
Sigurbjörn Þorbjörnsson sér
um alþjóðlega samninga varð-
andi skattamál fyrir utanríkis-
ráðuneytið. Hann sagði þau drög
að samningi sem nú lægju fyrir
um skattamál á milli fslands og
Bretlands ekki ná til nefsskatts
eins og Poll-skattsins. Samning-
urinn næði einungis tii tekju-
skatta. Bresk stjórnvöld væru
þess vegna í fullum lagalegum
rétti þegar þau skattlegðu er-
lenda námsmenn með þessum
hætti.
Skatturinn kemur í stað sér-
staks eignaskatts og hefur orðið
svo óvinsæll að hreyfing hefur
myndast gegn honum í Bretlandi
og skorað er á fólk að greiða ekki
skattinn. Skuggaráðuneyti
Verkamannaflokksins hefur
einnig dregið í efa að ríkisstjórnin
hafi 'pólitískt umboð kjósenda til
að leggja skattinn á, þar sem hans
hafi ekki verið getið í kosninga-
stefnuskrá íhaldsflokksins. -hmp
Fríhöfnin
Bjór
seldur
Sex mánaða bjór-
bindindi lokið
Flugfarþegar til og frá landinu
hafa tekið eftir því að nú er hægt
að kaupa bjór á ný i Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli. Því geta þeir
komufarþcgar sem vilja keypt sér
einn kassa af bjór og haft með sér
heim.
Þar með er lokið sex mánaða
bjórbindindi sem hófst þann
l.september þegar ákveðið var
að hætta að selja þessar veigar í
Fríhöfninni nema auðvitað á
barnum í sjálfri Flugstöðinni.
Að sögn Harðar Bjamasonar
hjá Varnarmáladeild utanríkis-
ráðuneytisins eru tvær ástæður
fyrir því að ákveðið var að hefja
sölu bjórs á ný í Fríhöfninni. í
fyrsta lagi vegna óska innlendra
bjórframleiðenda þar um og í
öðru lagi vegna þess að sam-
kvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir
tekjuaukningu frá Fríhöfninni í
ríkissjóð. —grh
Dounreay
Svíar og Finnar draga lappimar
Hjörleifur Guttormsson: Ríkisstjórnir Norðurlanda verða að mótmœla stöðinni í
Dounreay harkalega
Fjórir listamannanna fimm, sem opna sýningu í Hafnarborg í dag: Björn Roth, Ómar Stefánsson, Eiríkur Smith og Daði
Guðbjörnsson. Kjartan Guðjónsson gat ekki verið við myndatökuna og því hafa þeir Eiríkur og Daði eitt málverka hans á
milli sín. Mynd - Kristinn.
Listasafn Sigurjóns
Landamæri skáldskapar og sagnfræði
órunn Valdimarsdóttir mun
ræða aðferðir við ævisagna-
ritun á bókmenntadagskrá, sem
verður haldin í Listasafni Sigur-
Tónlistarfélagið
Ljóðatónleikar í Óperunni
Rannveig Fríða Bragadóttir og
Jónas Ingimundarson halda
Ijóðatónleika á vegum Tónlistar-
félagsins í íslensku óperunni
næstkomandi mánudagskvöld. Á
efnisskrá tónleikanna eru gamlar
ítalskar aríur, þýsk þjóðlög í út-
setningu Brahms og lög eftir
Schubert, Schönberg,
Samstarf þeirra Rannveigar og
Jónasar hófst í nóvember 1988
þegar þau héldu tónleika í ljóðat-
ónleikaröð Gerðubergs. Rann-
veig Fríða er nú hér í stuttri heim-
sókn, en hún er fastráðin við
Ríkisóperuna í Vínarborg. í
heimsókninni mun hún enn frem-
ur taka þátt í flutningi á annarri
Sinfóníu Mahlers á afmælistón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands þann 9. mars næstkomandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30
og stendur miðasala nú yfir í ís-
lensku óperunni. lq
jóns Ólafssonar á sunnudaginn,
svo sem venja er fyrsta sunnudag
hvers mánaðar.
Mun Þórunn einkum beina at-
hyglinni að því sem hún kallar
landamærin milli skáldskapar og
sagnfræði og nota í því sambandi
dæmi úr ævisögu sinni um séra
Snorra á Húsafelli. Þórunni til
aðstoðar verða leikararnir
Guðný Ragnarsdóttir og Karl
Guðmundsson, sem lesa óbirtan
kafla úr ævisögu séra Snorra, en
bókin kom út fyrir síðustu jól. í
lok dagskrárinnar gefst áheyr-
endum kostur á að beina spurn-
ingum til Þórunnar.
Dagskráin hefst kl. 15 og
stendur í um það bil klukku-
stund. LG
Laugardagur 3. mars 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
HELGARRÚNTURINN
FROSTHÖRKUNUM virðist vera að linna og ef ekki verður þeim mun
meiri asahláka í boðuðum hlýindum ætti að vera hægt að hafa það
bærilegt á galeiðunni þessa helgina. Þar ber að sjálfsögðu hæst heim-
sókn kúbönsku salsasveitarinnar Los Novels og söngkonunnar Leonor
Zayaz en hún gefur að sögn ekkert eftir bestu dægurlagasöngkonum
nútímans. Kúbanina má berja augum og eyrum í skóla FÍH í dag, á
Hótel Borg í kvöld og á árshátíð Kúbuvina á sunnudagskvöldið. í
íþróttahúsi Mosfellsbæjar verður haldið upp á 15 ára afmæli Karla-
kórasambands Suðurlands í dag kl. 15 og tekur Sinfónían þátt í gleð-
skapnum. f kvöld verða Tómas R. og félagar á Hótel íslandi en kl.
15.30 syngur Ester Helga Guðmundsdóttir sópran lög úr söngleikjum
við undirleik Guðna Þ. Guðmundssonar í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Kl. 17 á morgun verða tónleikar til stuðnings Amncsty í Bústaðakirkju
þar sem kórar og hljómsveitir kenndar við heilagan Kristófer og
heilaga Katrínu koma fram ásamt fleirum. Um kvöldið verður leikið á
klarinett og píanó að Kjarvalsstöðum og í Heita pottinum í Duus-húsi
mætir Ólafur Stephensen með tríóið sitt og sveiflar sér...
NORRÆN MENNING er mjög á dagskrá þessa dagana enda bærinn
fullur af Skandinövum. í Listasafni íslands verður opnuð sýningin
Uppþot og árekstrar í norrænni list á árunum 1960-72 og í Norræna
húsinu er meira af norrænni kúnst. Jóhann Eyfells sýnir verk sín í
Gallerí einum á Skólavörðustíg 4a, Sigurjón Jóhannsson sýnir myndir
af síldarævintýrinu í Gamla Lundi á Akureyri, Birgitta Jónsdóttir
opnar sýningu á þurrpastelmyndum í Listamannahúsinu í Hafnarstræti
og í Hafnarborg í Hafnarfirðí sýna fimm listmálarar málverk. Allt í
norrænum bræðralagsanda...
FJÖLBREYTNIN er allsráðandi á leiklistarsviðinu. í gærkvöldi var
frumsýnt Stefnumót í Þjóðleikhúsinu og það verður sýnt aftur annað
kvöld en í kvöld er Endurbygging Havels á dagskrá. í Skeifunni 3c
sýnir leikhópurinn Fantasía Vagnadans annað kvöld, í Óperunni er
verið að sýna Carmina Burana og Pagliacci í kvöld og suður í Hafnar-
firði er Hrói höttur sýndur þrívegis í dag og á morgun. í Borgarleikhús-
inu er allt við það sama, Ljósvíkingurinn á báðum sviðum, Kjötið hans
Ólafs Hauks sýnt í kvöld og Töfrasprotinn báða dagana kl. 14. Norður
á Akureyri er verið að sýna þorskinn hennar Guðrúnar Ásmunds.
Síðast en ekki síst ber að nefna söngleikinn Líf og frið sem sýndur
verður í Langholtskirkju annað kvöld kl. 20.30 en þar er dvalið á
skipsfjöl Arkarinnar hans Nóa...
BÓKMENNTIRNAR eru á dagskrá í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
kl. 15 á morgun en þar verður bókin um Snorra á Húsafelli lesin og
krufin af höfundi og fleirum...
UNNENDUR FUNDA og fyrirlestra fá sinn skammt um helgina. í
Glym sem áður hét Broadway verður ráðstefna um starfsemi félags-
miðstöðva á vegum samtaka sem nefna sig Samfés og stendur hún frá
kl. 10-16 í dag. Klukkan 13 í dag heldur Ingibjörg Hafstað erindi um
konur í íslensku samfélagi á norsku í Norræna húsinu en á rnorgun kl.
14.30 flytur dr. Alex Berzin fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um
heimspeki í Lögbergi en hann ber yfirskriftina Hver er munurinn á
búddískum hugleiðanda sem ímyndar sér að hann sé Búdda sjálfur og
brjálæðingi sem heldur að hann sé Mikki mús?...