Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 12

Þjóðviljinn - 03.03.1990, Side 12
Thelma Sigurðsdóttir leiðbeinandi Já, ætli það ekki. Með því að lifa heilbrigðu lífi nú sem endranær. SPURNINGIN Ætlarðu að taka þátt í þjóðarátaki gegn krabba- meini? Arnar Ottesen sölumaður Já ég er mjög jákvæður fyrir því. Með því að halda áfram að á- stunda heilbrigt líferni eins og kostur er. Kristján S. Kristjánsson rafvirki Já, ætli það ekki og þá með því að hætta að reykja. Dagrún Þórðardóttir viðskiptafræðingur Já, trúlega geri ég það. Með því að borða hollan mat og ástunda heilbrigt líferni. Kristín Þorsteinsdóttir húsmóðir Já, það geri ég örugglega. Und- anfarin tvö ár hef ég greitt mán- aðarlega til Krabbameinsfélags- ins, auk þess sem ég kappkosta að neyta hollrar fæðu og ástunda heilbrigt líferni. ÞlÓÐVIUINN I ni innrHnm ir 3 mnrc 1 OOfl *Ali iKlnA A«; . Lauoardagur 3. mars 1990 43. tölublað 55. örganour. Stuðbylgjan SÍMI 681333 SÍMFAX 681935 Ný útvaipsstöð í Kópavogi 9. bekkingar í Snœlandsskóla reka útvarpsstöð fram til miðnœttis annað kvöld. Þorgeir Magnússon: Þetta verður mesta stuðbylgjanþar sem rokkið fœr að njóta sín. Safnað fyrir ferð um ísland Klukkan 17 í gær hóf ný út- varpsstöð starfsemi sína. Stöðin kallast Stuðbylgjan og sendir út á FM 88,6 allan sólar- hringinn fram að miðnætti á morgun. Fyrsti þátturinn sem fór í loftið kallaðist „Hestamaðurinn Binni er útr...“ og eftir að Guð- mundur Sigfinnsson hafði rakið í stuttu máii þær raunir og þá erf- iðleika sem þeir sem undirbjuggu sendingar stöðvarinnar þurftu að líða og stuðningsmönnum höfðu verið færðar þakkir, sagðist út- varpssnúðurinn ungi vonast til að áheyrendur nytu helgarinnar með Stuðbylgjunni og setti af stað fyrsta lagið: „Sultans Of Swing“, með Dire Strait, - aukin sam- keppni á öldum ljósvakans var staðreynd. Þorgeir Magnússon sagði í samtali við Þjóðviljann nokkrum mínútum fyrir fyrstu útsendingu að 9. bekkur ætlaði sér að safna peningum með rekstri útvarps- stöðvarinnar, til að greiða niður ferðalag bekkjarins í maímánuði um ísland. En meiningin er að kynnast náttúru landsins með ferðalaginu. Fjáröflunin færi þannig fram að fyrirtæki og ein- staklingar gætu hringt inn auglýs- ingar í síma 44911. Stuðbylgjan býður að öllum líkindum upp á ódýrustu auglýs- ingarnar í fjölmiðlaheiminum um þessar mundir. Fyrir 2,500 krón- ur fást þrjár birtingar, sem verður að teljast vel sloppið. Þorgeir sagði fyrirtæki í Kópavogi yfir- leitt hafa tekið auglýsingasnáp- um stöðvarinnar vel, en fyrirtæki í Reykjavík hefðu verið tregari í taumi. Dagskrá Stðbylgjunnar verður aðallega tónlist. Þorgeir sagði fjölbreytta tónlist verða leikna á FM 88,6, sem höfðaði sennilega meira til ungs fólks en sú tónlist sem leikin er á hinum stöðvun- um. „Dagskráin verður blönduð ýmis konar nýbylgjutónlist, rokki og spjalli“, sagði Þorgeir. En hvert dagskrárgerðargengi verð- ur með þriggja og hálfs klukku- stundar þátt. Það er útvarpsstöð í hvíld, út- varp Rót, sem er Stuðbylgjunni innan handar um tækjabúnað og kunna Snælendingar þeim þakkir fyrir. Hugmyndin að rekstri útvarps- stöðvar í fjáröflunarskyni er ekki alveg ný af nálinni í Snælands- skóla. Ungur maður að nafni Guðlaugur G. Ólafsson treysti blaðamanni fyrir því að hann hefði átt þessa hugmynd fyrstur manna þegar útvarpsstöð var sett á laggirnar í skólanum í fyrra. Reksturinn þótti takast vel og menn fóru því af stað reynslunni ríkari í ár og ætla að gera enn þá betur. Utvarsstöðin Stuðbylgjan fór í loftið klukkan 17 í gær og verður í loftinu fram á miðnætti annað kvöld. Þjóðviljinn var á staðnum þegar stöðin hóf starfsemi sína. Mynd: Jim Smart. Reyndar fullyrtu þeir Þorgeir og Gulli, eins og Guðlaugur vill kalla sig, að þeir væru reyndustu dagskrárgerðarmenn stöðvarinn- ar. Þeir sögðust hlusta á allar teg- undir rokktónlistar nema helst ekki þungarokk, og gáfu í skyn að smekkur þeirra myndi hertaka öldur ljósvakans þegar þeir væru við stjórnvölin. Af íslenskum hljómsveitum eru Síðan skein sól og Sálin hans Jóns míns í mestu uppáhaldi og af erlendum hljóm- sveituoi AC/DC, The Beatles og Led Zeppilin. -hmp Þjóðleik- húsi lokað Rúrik Haraldsson og Herdís Þorvaldsdóttir í hlutverkum sín- um í einþáttungnum Góð til að giftast eftir Ionesco í sýningunni Stefnumót, en önnur sýning á Stefnumóti verður í Þjóðleikhús- inu annað kvöld. Sú sýning verð- ur jafnframt síðasta sýning í Þjóðleikhúsinu fyrir lokun vegna viðgerða, en stóra salnum verður lokað á mánudaginn. Hefjast þá miklir flutningar því aðstaða fyrir tæknifólk hefur auk geymslu ver- ið útbúin í skemmu í Sundagörð- um en sýningum á Stefnumóti verður haldið áfram í Iðnó og á Endurbyggingu í einum af nýju sölunum í Háskólabíói. Þar verð- ur einnig frumsýning á nýrri revíu eftir leikara Spaugstofunnar í apríl. Mynd - Kristinn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.