Þjóðviljinn - 10.03.1990, Blaðsíða 3
Framfœrslan
Verðbólgan
hægir á sér
Vísitala framfærlsukostnaðar
miðað við marsbyrjun er 0,8%
hærri en í febrúar. Vísitalan hefur
þá hækkað um 21,6% undan-
farna 12 mánuði en undanfarna
þrjá mánuði hefur hún hækkað
um 3% sem jafngildir 12,4%
verðbólgu á ári. -Sáf
FRETTIR
Bankaeftirlit
Greip of seint inn í
Jón Sigurðsson: Umsögn umboðsmanns Alþingis um afskipti bankæftirlitsins af Ávöxtunar -
málinuverður skoðuð vandlega. Opnunpeningamarkaðar krefst annars konar bankaeftirlits
mboðsmaður Alþingis hcfur
skilað skýrslu um starf
bankaeftirlitsins varðandi. mál
Q ármögnunarfy rirtækisins
Sveit Norðurlanda tefldi í gær við Sovétmenn. Jóhann tefldi á 5. borði við Mikhaíl Gúrevitsj. Jón L. Árnason
er á milli þeirra en andstæðingur hans var Sergei Dolmatov.
Stórveldaskák
Sterkasta skákmót hér
Ef við náum að verða nokkurn
veginn jafnfætis Englending-
um og Bandaríkjamönnum verð-
ur það að teljast mjög góður ár-
angur. Við getum jafnvel sætt
okkur við fjórða sætið. Það er
með Sovétmennina í þessu eins og
í handboltanum, það þýðir ekk-
ert að hugsa um þá, sagði Friðrik
Ólafsson stórmeistari.
Friðrik er liðsstjóri og fyrsti
varamaður í sveit Norðurlanda
sem etur kappi við sveitir Eng-
lands, Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna á móti sem hófst í gær.
Tíu skákmeistarar eru í hverju
liði og verða tefldar tvær umferð-
ir. Sovétmenn eru með lang stiga-
hæsta liðið á mótinu, en Norður-
landabúar hafa fæst Elo-stig.
kepptu við Sovét- ar
Norðurlönd
menn í gær.
Norðmaðurinn Simen Agde-
stein hefur flest Elo-stig skák-
mannanna í Norðurlanda-
sveitinni, en Helgi Ólafsson kem-
ur næstur. Sex íslenskir skák-
menn eru í sveit Norðurlanda.
-gg
Ávöxtunar sem fór á hausinn
1988 og er bankaeftirlitið
gagnrýnt fyrir að hafa gripið allt
að 18 mánuðum of seint í
taumana. Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra segir umsögn um-
boðsmannsins vera umfangs-
mikla og hann eigi eftir að kynna
sér hana til hlítar. I umsögn um-
boðsmannsins sé þó bent á margt
sem vert sé að athuga og hann hafí
beðið sína starfsmenn að skoða
það vandlega.
Viðskiptaráðherra sagði að
bankaeftirlitið sjálft myndi
kynna sér skýrslu umboðsmanns-
ins. „Ég bendi á að frá því Ávöx-
tunarslysið varð, ég leyfi mér að
kalla það slys þegar þetta fyrir-
tæki hrundi og fólk missti sitt
sparifé, hafa verið sett ný og
miklu ítarlegri lög um verðbréfa-
viðskipti og verðbréfafyrirtæki,
um upplýsingaskyldu þeirra við
bankaeftirlit og viðskiptavini,"
sagði Jón.
1 nýju lögunum er strangari
krafa um eiginfjárstöðu fjár-
mögnunarfyrirtækja og kveðið er
á um bann við svo kölluðum inn-
herjaviðskiptum, að sögn Jóns.
En innherjaviðskipti er það þeg-
eigendur fjármögnunarfyrir-
tækja lána fyrirtækjum sem þeir
eiga í fjármagn. Þetta mun hafa
gerst í Ávöxtunarmálinu að sögn
Jóns. Auðvitað yrði þó aldrei
hægt að girða fyrir áhættu af við-
skiptum sem þessum, menn væru
ekki að kaupa ríkisskuldabréf
þegar þeir keyptu ávöxtunarbréf
verðbréfasjóða, nema ríkis-
skuldabréf væru þar að baki eins
og stundum væri.
Peningamarkaðurinn hefur
verið að opnast á undanförnum
árum á íslandi og viðskiptaráð-
herra hefur verið talsmaður þess.
Krefst þessi opnun ekki annars
konar eftirlits með markaðnum
en verið hefur? „t*að krefst öðru-
vísi stofnana og öðruvísi athygli
en í eðli sínu er þetta það sama,“
sagði Jón. Nýju lögin tækju til að
mynda mið af þeim reglum sem
mælt væri með innan hins sam-
eiginlega markaðar hjá Evrópu-
bandalaginu. íslendingar væru
því fyrirfram búnir að ganga
þannig frá hnútum að tengslin
yrðu auðveldari.
-hmp
Loftþrýstingur
Aldrei lægri
Frá því byrjað var að mæla
loftþrýsting hér á landi árið 1822
hefur hann aldrei mælst að með-
altali lægri en í síðastliðnum fe-
brúar eða 976,3 millibör.
Að sögn Þórönnu Pálsdóttur
veðurfræðings á Veðurstofu ís-
lands hafði loftþrýstingur þar á
undan mælst að meðaltali lægstur
í janúarmánuði árið 1974 eða
977,7 millibör. Ástæðu þessa lága
loftþrýstings í febrúar sagði Þór-
anna vera öflugar staðbundnar
lægðir við ísland.
-grh
án þess að það komi fram hvaða
hindranir það fólk sem vinnur
þessi verk á við að stríða hafi sýn-
ingin ekki gildi.
Með þessari sýningu minnum
við á það sem hægt er að gera í
gegnum myndmenntina. Fólk
virðist oft svo heilbrigt þegar
myndir þess eru skoðaðar og ég
trúi því að innst inni sé maðurinn
heill þótt á ytra borðinu virðist
hann skertur. Myndirnar hjálpa
fólki til að tjá þann persónuleika,
sem býr að baki fötluninni og
geta oft hjálpað því til að brjótast
út úr þeirri einangrun sem hún
hefur í för með sér.
í tengslum við sýninguna verða
bæði fyrirlestrar og Ijóðadag-
skrár: Leikarar úr Félagi ís-
lenskra leikara flytja ljóð og
söngva, bæði sem tengjast sýn-
ingunni og eru úr heimsbók-
menntunum, á morgun, sunnu-
dag, og hefst dagskráin kl. 15.
Laugardaginn 17. mars mun hóp-
ur fatlaðra, sem hefur æft í rúman
mánuð undir stjórn Kjuregej Al-
exöndru flytja dagskrá með
ljóðalestri, söng og harmoníku-
leik.
Fyrsti fyrirlesturinn verður
haldinn í Listasafninu næstkom-
andi þriðjudag kl. 20. Þá flytur
Sigrún Proppé myndmeðferðar-
fræðingur fyrirlestur um mynd-
meðferð og sállækningar og Ásta
Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, formaður Landssamtak-
anna Þroskahjálpar ræðir um við-
horftil fötlunar. Þriðjudaginn 20.
mars mun Vilhjálmur Arnason
heimspekingur ræða um siðfræði
og umönnun, en aðrir fyrirlestrar
verða tilkynntir síðar.
Úr hugarheimi verður í Lista-
safni ASI til 25. mars og verður
opin kl. 16-20 virka daga og kl.
14-20 um helgar. Aðgangur er
ókeypis.
LG
Norrœna húsið
Listin blómstrar
TorAge Bringsvœrd gestur norskrar bóka-
kynningar. Aldarafmœlis Everts Taubes
minnst. Sýning um William Heinesen opnuð
Morsk bókakynning og tón-
leikar í tilefni þess að öld er
liðin frá fæðingu sænska vísna-
skáldsins Everts Taube verða í
Norræna húsinu um helgina. Auk
þess verður opnuð sýning á
teikningum eftir William Heine-
sen og á Ijósmyndum úr lífi hans
opnuð í anddyri hússins.
Kynningar á nýútkomnum
bókum á Norðurlöndum eru
orðnar árviss viðburður í Nor-
ræna húsinu og verður ekki
brugðið út af vananum í þetta
sinn. Norsk bókakynning er sú
fyrsta í röðinni og hefst kl. 16 í
dag. Þá ræðir Oskar Vistdal send-
ikennari um norskar bækur, sem
út komu á síðasta ári og gestur
kynningarinnar, Tor Age Brings-
værd segir frá ritstörfum sínum
og les úr nýjustu bók sinni.
Tor Age Bringsværd er einn af-
kastamesti rithöfundur Noregs;
hefur samið eða ritstýrt 99
bókum undanfarin 25 ár. Hann
fæddist á Þelamörk árið 1939 og
hefur fengist við margs konar
skáldskap, einkum skáldsögur,
smásögur, leikrit, barnabækur og
fræðibækur. Hann hefur auk þess
gefið út ritröð um norræna goða-
fræði handa börnum og kom ein
þeirra, Þrumugoðinn Þór, út í ís-
lenskri þýðingu Þorsteins frá
Hamri á síðastliðnu ári.
Tvær skemmtanir með vísum
og lögum eftir Evert Taube verða
í Norræna húsinu í tilefni af aldar-
afmæli Taubes, sem var fæddur
12. mars. Duo Vi frá Gautaborg,
þeir Thomas Utbult og Bert-Ove
Lundqvist, sem leika á gítar og
harmoníku auk annarra hljóð-
færa þegar tækifæri býðst,
skemmta í kvöld kl. 20:30 og á
morgun kl. 16. Annað kvöld
bregða þeir félagar sér til Borgar-
ness og halda þar skemmtun kl.
20:30.
Sýning um færeyska rithöfund-
inn og myndlistarmanninn Wil-
liam Heinesen verður opnuð í
anddyri Norræna hússins í dag kl.
15. Sýndar verða teikningar eftir
Heinesen og ljósmyndir úr lífi
hans, en sýningin kemur frá List-
askálanum í Þórshöfn og var sett
upp í tilefni af níræðisafmæli
Heinesens þann 15. janúar síð-
astliðinn.
Heinesen hefur teiknað og
málað frá unga aldri og kemur
víða við, hefur fengist við
skrautritun og bókalýsingar, gert
andlitsmyndir og skopteikningar,
málað leiktjöld og veggskreyting-
ar. Hann hefur haft mikil áhrif á
þróun færeyskrar myndlistar og
hefur stutt unga færeyska mynd-
listarmenn með ráðum og dáð.
Sýningin verður opin sunnudaga
kl. 12-19, aðra daga vikunnar kl.
9-19 og stendur til 1. apríl.
Fyrirlestur Bárðar Jákups-
sonar um myndlist Heinesens,
sem í Nýju Helgarblaði í gær var
sagður vera á morgun, er ekki á
dagskrá fyrr en eftir hálfan mán-
uð, eða sunnudaginn 25. mars og
er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
LG
Laugardagur 10. mars 1990 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3
HELGARRÚNTURINN
VEÐURGUÐIRNIR mæla með útivist þessa helgi, að fólk dusti rykið
af skíðunum og haldi á vit náttúrunnar, rétt er þó að minna fólk á að
búast vel því töluvert frost verður um allt land. Þeir sem ekki treysta
sér út undir bert loft ættu þó að geta fundið eitthvað við hæfi innan-
dyra. Tónlistaunnendur hafa úr ýmsu að velja. Áhugafólk um vísna-
tónlist ætti að koma við í Norræna húsinu í dag og á morgun, því þá
skemmtir sænski dúettinn DUO VI með vísum og lögum Everts Taube.
Á Kjarvalsstöðum halda þeir Jón Aðalsteinn Þorgeirsson klarinett-
leikari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari tónleika á sunnudag
kl. 20.30 og flytja tónlist frá rómantíska tímabilinu. Listvinafélag
Hallgrímskirkju stendur fyrir tónleikum í dag kl. 17 þar sem gítaleikar-
inn UweG. Eschner flytur ýmis tilbrigði. Jassáhugafólk ætti aðgeta
svalað sér í Duus húsi við undirleik Súldar á sunnudagskvöld. Sama
kvöld leika Vinir Dóra og Júpiters á tónleikum á vegum Röskvu á
Hótel Borg.
ÚRHUGARHEIMI nefnist sýning sem verður opnuð í dag í Listasafni
ASÍ, en á sýningunni eru verk fatlaðra. Á Gallerí Einn Einn við
Skólavörðustíg 4a má virða fyrir sér skúlptúrlíkön og pappírssamfellur
eftir Jóhann Eyfells. Á Kjarvalsstöðum eru sýningar á verkum Svavars
Guðnasonar og Guðjóns Bjarnasonar. Ungir norrænir listamenn eru
með samsýningu í kjallara Norræna hússins og í dag verður opnuð
sýning á teikningum William Heinesen og ljósmyndum úr lífi hans í
anddyri Norræna hússins. í Nýhöfn verður opnuð í dag sýningá
verkum Karólínu Lárusdóttur. Suðrí Hafnarfirði er svo samsýningin
Nonaginta, en að henni standa Eiríkur Smith, Daði Guðbjörnsson,
Björn Roth, Kjartan Guðjónsson og Ómar Stefánsson.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ er nú lokað vegna endurbyggingar og því verður
Endurbygging færð í Háskólabíó og Stefnumót í Iðnó síðar í mánuðin-
um. Höll sumarlandsins er hætt í Borgarleikhúsinu en Ljós heimsins
gengur ennþá. Auk þess verða Kjöt og barnaleikritið Töfrasprotinn
sýnd um helgina. Nemendaleikhúsið sýnir Óþelió í Lindarbæ á sunnu-
dag. Þá ættu ópureuunnendur alls ekki að missa af Carmina Burana og
Pagliacci í íslensku óperunni og vert er að benda ellilífeyrisþegum,
námsmönnum og öryrkjum á að þeir fá 50% afslátt kaupi þeir miða
klukkustund fyrir sýningu. Og kvikmyndaáhugamenn ættu að fjöl-
menna í kvikmy ndaklúbbinn í Regnboganum á laugardag og sjá
meistaraverk Renoir, Konan á ströndinni.
JÓLABÓKAFLÓÐIÐ er fjarað út en í Hafnarfirði geta fagurkerar
notið upplesturs á Sonnettum Shakespeares í Hafnarborg á sunnudag.
Arnar Jónsson les þýðingu Daníels Á. Daníelssonar og Oliver Kentish
les frumtextann, upplesturinn er svo skrey ttur tónlist frá endurreisnar-
tímabilinu. í Norræna húsinu verður í dag norsk bókakynning og er
norski rithöfundurinn Tor Age Bringsværd gestur kynningarinnar.
HÁSKÓLIÍSLANDS opnar í dag gáttir sínar fyrir öllum sem hafa
áhugá á að kynnast hinni fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í skólanum
og í Þjóðarbókhlöðunni fer fram viðamesta námskynning sem haldin
hefur verið á landinu.
í TÉKKÓ leikur landsliðið í handbolta um níunda sætið í
heimsmeistarakeppninni kl. 8 árdegis í dag og er víst að margur sem
vanur er að sofa fram eftir á laugardögum skríður að skjánum nú í
morgunsárið. Ogí Félagsheimili taflfélagsins í Faxafeni fer fram stór-
veldaslagur í skák.