Þjóðviljinn - 10.03.1990, Blaðsíða 11
LESENDABREF
I DAG
Tónlist
Það verður djassað
og blúsað
Borgarbúar geta valið á milli Súldarinnar íDuus húsi ogJúpiters og
Vina Dóra á Hótel Borg. Sunnudagurinn dagur sveiflurnar
Tónlistarlífið í Reykjavík hagar
sér í samræmi við annað í
landinu, það er í sveiflum. Heilu
vikurnar og mánuðina er lítið
sem ekkert að gerast og tónlistar-
unnendur sem vilja fara út úr húsi
verða að láta sér nægja misbaga-
lega skífuþeytara sem flestir eru
meira í því að skemmta sjálfum
sér en öðrum. En svo kemur
uppsveifla og menn eiga í vand-
ræðum með að velja.
Annað kvöld verða tvennir
tónleikar sem ættu að draga að
sér fólk. í Duus húsi kemur
hljómsveitin Súld fram í fyrsta
skipti síðan á tónleikum í Mont-
real árið 1988. Frá þeim tíma hafa
orðið miklar breytingar á hljóm-
sveitinni.
„Ég er einn eftir af uppruna-
legum meðlimum," sagði
Steingrímur Guðmundsson
trommuleikari Súldarinnar í
stuttu samtali við Þjóðviljann.
En þeir Zymon Kuran og Stefán
Ingólfsson hafa yfirgefið skútuna
og í þeirra stað eru mættir til leiks
Páll Pálsson á bassa, Tryggvi
Húbner á gítar og Lárus Gríms-
son á hljómborð. Gestur á tónl-
eikunum annað kvöld verður
slagverksleikarinn Maarten van
der Valk.
En hafa mannabreytingarnar
haft í för með sér breytingar á
tónlist Súldarinnar? Steingrímur
sagði erfitt að skilgreina það en
vissulega hefðu átt sér stað
breytingar. „Það má segja að
rokkáhrifin séu meira áberandi
nú en áður og að vissu leyti meiri
kraftur í tónlistinni,“ sagði
Steingrímur. Annars segðu rokk-
tónlistarmenn að Súldin spilaði
djass en djassarar segðu Súldina
spila fúsjón.
Allt efni Súldarinnar á tónleik-
unum er frumsamið, mest eftir
Lárus Grímsson. Steingrímur
sagði að nokkur lög yrðu þó tekin
eftir aðra höfunda, til að mynda
Það verður Súld í Duus húsi annað kvöld og gleðigrúppan Júpiters og
Vinir Dóra kynda hjörtun á Hótel Borg. Sveifluelskendur hafa því í
nógu að snúast.
Charles Mingus. Hann sagði
mjög spennandi að hefja störf
aftur með Súldinni og
lífsnauðsynlegt. „Ef maður væri
ekki í tónlist sem þessari tæki því
ekki að vera í tónlist," sagði
Steingrímur. Súldin stefnir að því
með vorinu að gefa út plötu efni
sem hljómsveitin hefur verið að
æfa í um hálft ár.
Á Hótel Borg verða einnig tón-
leikar á sunnudag. Þar munu
stilla saman lúðra sína og gítara
hljómsveitirnar Júpiters og Vinir
Dóra. Júpiters hefur unnið hylli
stórs hóps fyrir stórskemmtilega
tónlist í „biggbandstílnum“, þar
sem sveiflan er allsráðandi og
gleðin því aldrei langt undan. Á
haustmánuðum tilkynnti hljóm-
sveitin andlát sitt en birtist svo
aftur upprisin á tónleikum í
Norðurkjallara Menntaskólans
við Hamrahlíð fyrir skömmu,
áhangendum sínum til ómældrar
gleði.
Vinir Dóra er eins og Júpíters
hljómsveit sem ekki er alltaf
skipuð nákvæmlega sama fólk-
inu. Hljómsveitin spilar rafmagn-
aðan blús sem nýtur vaxandi hylli
hér á landi sem tónleikafyrirbæri
vegna þrautseigju þeirra örfáu
sem haldið hafa á lofti merki
þessarar tónlistartegundar um
nokkurra ára skeið.
Af öllum meðlimum Vina
Dóra ólöstuðum fer ekki á milli
mála í mínum huga að Andrea
Gylfadóttir söngkona er besti
Vinurinn. Hún hefur sýnt á
hljómplötum Grafíkur og Tod-
mobile að hún er frumlegur og
umfram allt góður söngvari en
með Vinum Dóra sýnir Andrea á
sér aðra og spennandi hlið. Hún
syngur blúsinn að innlifun og ger-
ir það léttilega, rétt eins og að
drekka smjör.
í stað þess að fara á hefðbundið
kráarölt er því hægt að fara á
sveiflurölt á sunnudagskvöldið.
-hmp
Blessun blankheitanna
Mikil er blessun blankheitanna fyrir þjóðfélagið,
að ekki sé talað um einstaklingana og þó einkum og
sérílagi einstaklinginn mig. Ég hef ekki efni á neinu
°g ÞV1 gerl ég ekki neitt og sé ég spurður, hvers-
vegna liggur þú í leti í stað þess að mála loftið í
stofunni þá svara ég einfaldlega: ég hef ekki efni á
því, það verður að bíða nýrra þenslutíma.
Konan eignaðist gönguskíði í fyrra. Þá voru
blankheitin ekki eins bölvanleg og nú. Samt var
farið að sverfa það mikið að, að heimilisbókhaldið
sligaðist af skíðaútbúnaði konunnar. En það kemur
vetur eftir þessi harðindi, sagði konan í fyrra. Og
viti menn það kom vetur aftur og svo kom snjór úr
lofti, jörð varð alhvít og konan og börnin fóru niður
í kjallara að taka fram skíðaútbúnaðinn. Jæja, á
morgun skreppum við upp í Mússík og sport og
kaupum gönguskíði handa þér, sagði konan áður en
hún hvarf niður kjallaratröppurnar. Ég gluggaði í
heftið og viti menn ég átti upp í útborgun.
Nú voru góð ráð dýr. Ég flýtti mér að grauta í
gluggapóstinum og tíndi til nokkra ógreidda
reikninga, vissi þó að það myndi lítt gagnast, þeir
yrðu afgreiddir á hinn hefðbundna hátt: Þeir hafa
beðið það lengi að nokkrar vikur til eða frá skipta
ekki máli. Það má því segja að ég hafi verið kominn
í þrot og við blasti hörmuleg framtíðarsýn á skíðum
um helgar ef æðri máttarvöld gripu ekki í taumana
með því að læða lægðum inn yfir landið þegar hvíld-
ardagurinn nálgaðist.
En það voru ekki æðri máttarvöld sem gripu í
taumana heldur náttúrulögmálið. Nú er illt í efni,
sagði konan þegar hún kom upp úr kjallaranum.
Stelpan er vaxin upp úr skíðunum og þarf því nýjan
útbúnað.
Hjartað í mér tók kipp og öll óveðursskýin sem
hrannast höfðu upp við helgarnar leystust uppi og
framundan voru bjartar helgar upp í sófa á meðan
mæðgurnar brytust í gegnum skafla úti í óbyggðum.
Já, mikil er blessun blankheitanna. Mér leiðast
leikhús. Hef aldrei skilið tilganginn í því að borga
fyrir það að sitja aðgerðalaus í sal og horfa á sæmi-
lega skynugt fólk gera sig að fíflum. Mér finnst það
hálf pínlegt. Að ég tali ekki um nútímalegar upp-
færslur þegar reynt er að gera áhorfendur að þátt-
takendum í leiknum. Af hverju fá þeir þá ekki
borgað fyrir framlag sitt einsog leikararnir? Ég lenti
í því fyrir nokkrum árum að sitja á fremsta bekk á
svona frumlegri uppsetningu. Allir höfðu dásamað
leikinn. Og viti menn. Ég veit ekki fyrri til en aðal-
leikkonan vindur sér að mér, tekur um hnakkann á
mér og þrýstir vitum mínum inn á milli bústinna
brjósta sinna. Það munaði mjóu að ég kafnaði. Og
þetta gerðist á opinberum vettvangi og eiginkonan
við hliðina á mér og það sem mér þótti verst, fyrir
þessa háðung hafði maður greitt stórfé.
Slíkir fjármunir eru sem betur fer ekki fyrir hendi
núna og þegar konan, sem er haldin þessari undar-
legu áráttu landans, að elska leikhús, spyr hvort við
eigum ekki að skreppa í leikhús um helgina, eftir að
hún er búin að þjóta yfir hvíta snæbreiðu á skíðum
með dótturinni, þá bendi ég henni einfaldlega á að
heimilisbókhaldið þoli ekki slík útgjöld, hinsvegar
getum við kannski önglað saman í einn miða með
því að gleyma símareikningnum í tvær vikur til við-
bótar. Hún geti örugglega talið einhverja vinkonu
sína á að skreppa með sér. Sem hún sættist á að dáist
að fórnfýsi minni.
Já, mikil er blessun blankheitanna. Og hámarki
sælunnar náð þegar síminn lokar.
-Sáf
þlOÐVILIINN
FYRIR50ÁRUM
Svíþjóð og Noregur búast til
varnargegn innrás Banda-
manna. Stjórnarbylting í Fiskifé-
laginu. „Hringurinn" gefurríkinu
hressingarhælið í Kópavogi.
V. M. Molotoff fimmtugur.
10. mars
laugardagur. 69. dagurársins.
21. vika vetrar byrjar. Sólarupp-
rás í Fteykjavík kl. 8.05-sólarlag
kl. 19.13.
Viðburðir
Togaranum Reykjaborgsökkt
árið 1941. Alexandra Kolantais
látinárið 1952.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 9. tll 15. mars er I
Apóteki Austurbæj-
ar og Breiðholts Apóteki.
Fyrmef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22 til 9
(til 10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18 til 22 virk daga og á
laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur sími 4 12 00
Seltjarnarnes simi 1 84 55
Hafnarfjörður sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltjarnarnes sími 1 11 00
Hafnarfjörður simi 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
L4EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes, og Kópavog er I Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17
til kl. 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma-
ráðleggingar og tímapantanir í sima
21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja-
þjónustu eru gefnar í símsvara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl.
8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
iækni eða ná ekki til hans. Landspital-
inn: Göngudeildin eropin kl. 20 til 21.
Slysadeild Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt
sími65666, upplýsingar um vaktiækna
sími51100.
Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni sími: 23222, hjá slökkvilið-
inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki
sími 22445. Farsími vaktlæknis 985-
23221.
Keflavík: Dagvakt. Uppjýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna
sími1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar. Landspitalinn: Alla
daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspítal-
inn: Virka daga 18:30 til 19:30, um helg-
ar 15 til 18ogeftirsamkomulagi.Fæð-
Ingardeild Landspítalans: 15 til 16.
Feðratimi 19.30 til 20.30. Öldrunar-
lækningadeild Landspitalans Hátúni 10
B. Alla daga 14 til 20 og eftirsamkomu
lagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka
daga 16 til 19, helgar 14 til 19.30.
Heilsuverndarstöðin við Barónsstlg
opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30.
Landakotsspitali: Alla daga 15 til 16 og
18.30 til 19. Barndeild: Heimsóknirann-
arra en foreidra kl. 16 til 17 daglega.
St.Jósefsspftali Hafnarfirði: Alladaga
15 til 16og 19til 19.30. Kleppsspítal-
Inn: Alladaga15til 16og 18.30 til 19.
Vestmannaeyjum: Alla virka daga 15 til
16og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra-
ness: Alla daga 15.30 til 16 og 19til
19.30. Sjúkrahúsið Húsavfk: Alladaga
15 til 16 og 19.30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKI: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35. Sími:622266,
opið allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræði-
legum efnum. Sími: 687075.
MS-fólagið, Álandi 13. Opið virka daga
frá kl. 8 til 17. Síminner 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vest-
urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20til
22, simi 21500, símsvari.
Sjálfshjáiparhópar þeirra, sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, sími 21500, sím-
svari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúlrunarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf, simi
21205. Húsaskjól og aðstoð fyrirkonur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða
orðiðfyrirnauðgun.
Samtökin 78. Svarað er í upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
tímum. Síminn er 91 -28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: sími:
27311. Rafmagnsveita bilanavakt sími:
686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
sími: 652936.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi
21260allavirkadagakl. 13 til 17.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt i síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús“ fyrir alla
krabbamelnssjúklinga og aðstandendur
þeirra á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmls-
vandann sem vilja styðja smitaðaog
sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið i
sima 91 -2240 alla virka daga.
GENGIÐ
9. mars 1990
Bandaríkjadollar............. 61,14000
Sterlingspund................ 99,87200
Kanadadollar................. 51,79800
Dönsk króna................... 9,39170
Norsk króna................... 9,30740
Sænsk króna................... 9,92370
Finnskt mark................. 15,25640
Franskur franki.............. 10,64600
Belgískur franki.............. 1,73190
Svissneskur franki........... 40,63130
Hollenskt gyllini............ 31,97200
Vesturþýskt mark............. 35,99960
Itölsk líra................... 0,04873
Austurrískur sch.............. 5,11630
Portúg. escudo................ 0,40790
Sþánskur þeseti............... 0,55990
Japanskt jen.................. 0,40457
frskt pund................... 95,85200
KROSSGATA
Lárétt: 1 gráða 4 tryllta
6 upptök 7 hvetja 9 feiti
12 ílát 14 hljóö 15 hross
16 fýll 19 rola 20 fyrrum
21 staura
Lóðrótt: 1 hreinn 3
gróður 4 eyktarmark5
tunga7visst8hlýr10
glundroði 11 blaðra 1j3
fálm 17 vökva 18 glö6
Lausn á síðustu
krossgátu
Lrótt: 1 labb 4 föst 6 afl
7fikt9ómak 12linna
14 púa 15 kál 16 messa
19sepi20áðan21 ’
ángri
Lóðrrótt: 2 asi 3 bati 4
flón5sía7fipast8
klampa10makaði11
kæling 13nes 17ein18
sár
Laugardagur 10. mars 1990 WÓÐVILJINN - SÍÐA 11