Þjóðviljinn - 21.03.1990, Blaðsíða 12
■SPURNINGIN-
Óttastu jarðskjálfta?
Jana Thorarensen
nemi:
Nei, þaö geri ég ekki. Það er eng-
in ástæða til að óttast þó að einn
og einn sjálfti komi annað slagið
sem er nú ekki oft.
Sigursveinn Agnarsson
trésmiður:
Nei, alls ekki. Ég sé enga ástæðu
til þess þar sem ég bý í traustu og
sterkbyggðu húsi.
Haraidur Bjarnason
greiðabílstjóri:
Nei, það er engin ástæða til að
óttast. Það er allt svo traust og vel
byggt hérlendis að okkur er tjáð.
Kolbrún Guðmundsdóttir
barnfóstra:
Nei, það geri ég ekki. Þessir kipp-
ir sem hafa komið eru þess eðlis
að það er engin ástæða til að
óttast.
Auður Magnúsdóttir
nemi:
Nei, alls ekki. Hérna koma ekki
það stórir og kröftugir skjálftar að
það sé ástæða til óttast eitt né
neitt.
þlÓÐVIUINN
Miðvikudagur 21. mars 1990. 55. tölublað 55. árgangur
SiMI 681333
SÍMFAX
681935
Listafélag Menntaskólans við Hamrahlíð gekkst fyrir tónleikum með
bresku hljómsveitinni Happy Mondays í samvinnu við hljómplötuút-
gáfuna Geisla. íslenska súpergrúppan Risaeðlan hitaði upp
áheyrendur í Hátíðarsal MH og fengu aðdáendur sveitarinnar loksins
að heyra nýtt efni frá eðlunni sem verður á væntanlegri breiðskífu sem
hljómsveitin sendir frá sér þann 23. apríl. Nýju lögin voru öll hin
forvitnilegustu og samleikur þeirra Möggu og Dóru hefur tekið út
mikinn og góðan þroska. Þær stöllur eru tvímælalaust eitt það fersk-
asta sem er að gerast í rokkinu í dag og þær eru vel studdar af
strákunum í bandinu sem eiga líka skildar rósir í sín hnappagöt. Happy
Mondays sýndi góðan leik en sviðsframkoman var ekki jafn fjörug og
hjá Risaeðlunni ef frá eru talin látalæti dansara hljómsveitarinnar hans
Bez. Bretarnir tóku flest sinna bestu laga við góðar undirtektir tónleika-
gesta sem voru á bilinu 6-700. Hátíðarsalur MH er ágætur tónleika-
staður en undirrituðum þótti alger óþarfi að leita á fullorðnum tónl-
eikagestum að áfengi, eins og um unglinga í félagsmiðstöð væri að
ræða. En eins og meistari Megas sagði í þessum sama sal fyrir allt of
mörgum árum: „Þetta er skóli, þið vitið það“. Á þessari mynd sem
Kristinn, útsendari Þjóðviljans, tók á tónleikunum, sést Bez í miðri
sveiflu. -hmp
Geimfréttir
Gölluð geimstöð
Starfsmenn bandarísku geim-
rannsóknastofnunarinnar
NASA hafa komist að því ati al-
varlegir gallar eru á hönnun
geimstöðvarinnar Frelsis sem
Bandaríkjamenn hyggjast byggja
Bandaríkjamenn senda á loft í
næsta mánuði öflugasta og
fullkomnasta geimsjónauka sem
jarðarbúar hafa smíðað. Með
honum ætla þcir að skoða fjar-
lægar stjörnur í von um að flnna
merki um upphaf heimsins og
njósna um líf á öðrum hnöttum.
Sjónaukanum verður skotið á
loft 12. apríl með bandarísku
geimferjunni Discovery frá Can-
averalhöfða í Florída. Hann er 13
metra langur og tíu tonn á þyngd.
Smíði hans, sem hófst fyrir
þrettán árum, er árangur sam-
starfs bandarískra og evrópskra
geimvísindamanna.
Byrjað verður að taka við
myndum og upplýsingum frá
sjónaukanum þremur mánuðum
síðar. Þá líta menn væntanlega
fyrsta sinn augum ótal stjarn-
fræðileg fyrirbæri í allt að tíu milj-
arða ijósára fjarlægð frá jörðinni
að sögn sérfræðinga.
Leonard Fisk vísindamaður
á næstu árum í samvinnu við aðr-
ar vestrænar þjóðir.
Dagblaðið New York Times
hefur eftir embættismönnum að
verði geimstöðin byggð eftir nú-
verandi teikningum megi búast
hjá NASA geimvísindastofnun
Bandaríkjanna segir að með til-
komu þessa nýja sjónauka opnist
bókstaflega nýtt tímabil í stjarn-
fræðirannsóknum.
William Jefferys stjarnfræð-
ingur við Texasháskóla, sem hef-
ur unnið að þessu verkefni, segir
að rannsóknir á myndum frá
sjónaukanum geti varpað ljósi á
tilveru reikistjarna í öðrum sól-
kerfum og hvort þar séu lífsskil-
yrði.
Sjónaukinn gengur undir nafn-
inu Hubble í höfuðið á frægum
bandarískum stjarnfræðingi
Edwin Hubble sem setti fram
kenninguna um stöðuga útþenslu
alheimsins frá upphafi hans í
stórahvelli.
Áætlað er að smíði sjónaukans
kosti samtals um 1,5 miljarða
dollara þegar upp verður staðið.
Rekstrarkostnaður við hann er
áætlaður um 200 miljónir dollara
á ári þau fimmtán ár sem búist er
við að hann haldist á braut.
við að hún fari að liðast í sundur
áður en smíði hennar lýkur.
Geimstöðin Frelsi kemur til
með að verða 150 metrar á lengd
og 290 tonn að þyngd. Heildar-
kostnaður við smíði hennar er
áætlaður um 30 miljarðar dollara
(tæpir tvö þúsund miljarðar
króna).
Starfsmenn NASA komust að
því með útreikningum í ársbyrjun
að endurnýjun og viðgerðir á
stöðinni yrðu að hefjast strax og
lokið hefur verið við 60 til 70
prósent smíðinnar.
Hönnunarkostnaður geim-
stöðvarinnar er nú þegar kominn
upp í 3,9 miljarða dollara. Á fjár-
lögum Bandaríkjanna fyrir þetta
ár er 1,8 miljörðum dollara ráð-
stafað til undirbúningsvinnu fyrir
Japanar urðu þriðja þjóð jarð-
arkringlunnar til að senda
geimfar í kringum tunglið á
mánudag þegar geimfarið Hagor-
omo fór umhverfls það í 16 þús-
und kflómetra fjarlægð.
Hagoromo dregur nafn af fjað-
urham japanskrar þjóðsagna-
veru. Það var sent á sporbaug
umhverfis tunglið á sunnudags-
kvöld frá móðurfari sem er á
braut um jörðu.
Markmið tunglferðarinnar er
að rannsaka hvernig hægt er að
stöðina og Bandaríkjastjórn hef-
ur beðið um 2,5 miljarða dollara
fjárveitingu til hennar á næsta
ári.
Sérfræðingar NASA segja að
ef ekki verði gerðar breytingar á
stöðinni megi búast við að
geimfarar verði að vinna um
2.200 klukkustundir úti undir
berum geimi við viðhald. Banda-
rískir geimfarar hafa hingað til
aðeins gengið um 400 klukku-
stundir samtals úti í geimnum.
Geimförum er sögð stafa mikil
hætta af geimgeislum, loftsteina-
regni og fljúgandi geimbraki.
Endurskoðun á byggingu
geimstöðvarinnar lýkur í júní og
má þá búast við tillögum um
breytingar á hönnun hennar.
Reuter/rb
nota aðdráttarsvið tunglsins til að
landa geimförum á tunglinu eða
sveifla þeim af stað til annarra
reikistjarna.
Einungis Bandaríkjamenn og
Sovétmenn hafa sent geimför í
kringum tunglið. Jarðarbúar
sendu síðast far til tunglsins í ág-
úst 1974 þegar ómannað sovéskt
geimfar, Luna 24, lenti þar.
Bandaríkjamenn urðu fyrstir til
að senda geimfar framhjá tungl-
inu 3. mars 1959.
Reuter/rb
Magnað geimauga
Japanar fara tunglhring