Þjóðviljinn - 29.03.1990, Qupperneq 2
FERMINGAR
Gjafirnar oft
hlægilega stórar
Hvert er viðhorf fermingarbarnanna
til fermingarinnar? Þjóðviljinn leitaði
álits nokkurra barna, sem eiga að
fermast í vor á athöfninni sem er fram-
undan. Bæði var rætt við börn sem
ætluðu að fermast í kirkju og eins þau
sem ætla að fermast borgaralega. Öll
höfðu þau ákveðnar skoðanir á ferm-
ingunni og flest voru þegar farin að
undirbúa stóra daginn.
Kristin ferming
Hrafnkell
Pálmason
Hvers vegna ætlar þú að ferm-
ast?
Það er staðfesting á skírninni.
Svo er þetta líka ákveðin hefð.
Ertu trúaður?
Svona já og nei. Ég trúi að guð
sé til en ég er ekki mikið fyrir að
fara í kirkju eða slíkt.
Er ferming eða skyld athöfn
nauðsynleg?
Já, þetta er nauðsynleg stað-
festing á trúnni. Svo er þetta viss
fullorðnun. Maður kemst j ú í tölu
fullorðinna eftir fermingu.
Hvað finnst þér um undirbún-
ing fermingarihnar?
Undirbúningurinn fer bara
eftir því hvar maður fermist. Það
er t.d. öðruvísi að fermast í Garð-
abæ en í Reykjavík. Þó farið sé
yfir sama efni eru prestarnir alltaf
ólíkir. Hér er þetta líka einn
bekkur og krakkamir þekkjast
öll vel.
Nú er til borgaraleg ferming,
hefur þú eitthvað hugsað um
hana?
Nei, ég er skírður og þá tel ég
hana nokkuð sem ég ætti ekki að
hugsa um.
Nú fer fram margvísleg frœðsla
fyrir borgaralega fermingu, til að
mynda frœðsla um mannleg sam-
skipti, kynlíf vímuefni, rétt barna
og unglinga og fleira, finnst þér
þetta vanta í fermingarundirbún-
inginn þinn?
Nei, því ég veit ekki betur en
að þetta sé f skólum.
Hlakkar þú til?
Já, mjög mikið og við erum
þegar byrjuð að undirbúa dag-
inn.
Guðrún
Gunnarsdóttir
Hvers vegna viltu fermast?
Þetta er ákveðinn siður. Svo vil
ég líka játa mína trú með ferm-
ingunni. Ég vil sýna fram á að ég
vilji tilheyra guði.
Ertu trúuð?
Nei, ekkert sérstaklega trúuð
en mér þykir þetta gaman. Þetta
er viss áfangi í lífi mínu. Áfangi
sem ég tel ástæðu til að fagna.
Hvaðfinnst þér um allt tilstand-
ið í kringum ferminguna?
Mér finnst það ekki neikvætt.
Það er samt of mikið af auglýsing-
um. Það eru ýmsir sem ætla sér að
græða á þessu.
Nú er til borgaraleg ferming,
hefur þú hugsað eitthvað um
hana?
Nei, því ég trúi á guð.
Hlakkar þú til?
Já, ég hlakka mikið til.
Er nauðsynlegt að hafa athöfn
eins og fermingu?
Kannski ekki nauðsynlegt en
þetta er visst skref. Þetta er viss
áfangi sem er kannsi nauðsynlegt
að merkja.
Hefðirðu óskað eftir einhvern
veginn öðruvísi undirbúningi
fyrir ferminguna?
Nei, ég er búin að vera í
kristnifræðitímum einu sinni í
viku í allan vetur. Þar höfum við
reynt að gera okkur grein fyrir
hvers vegna við viljum fermast.
Finnst þér œskilegt að víðfeðm-
ari frœðsla væri í kringum ferm-
inguna. T.d. fræðsla um mannleg
samskipti, lífið og dauðann, kyn-
líf, vímuefni o.fl. ?
Jú, mér fyndist að það mætti
vera meiri fræðsla en skólinn ætti
að koma þar inn í. Skólinn ætti að
koma meira til móts við kirkjuna
varðandi fermingarundirbúning-
inn.
Eitthvað sem þú vilt segja að
lokum?
Já, ég óska öllum krökkum
sem eiga að fermast í vor til ham-
ingju með daginn.
Steinar Örn
Sigurðsson
Hvers vegna viltu fermast?
Vegna þess að ég er kristinn.
Ég trúi að guð sé til.
Nú er til borgaraleg ferming,
hefur þú hugsað um hana?
Nei, ég hef ekki hugsað um
hana. Ég vildi ekki fermast svo-
leiðis.
Er ferming nauðsynleg?
Nei, hún er ekkert nauðsynleg.
Hvaðfinnst þér um allt tilstand-
ið í kringum ferminguna?
Mér finnst þetta voða mikið til-
stand. Maður þarf að hafa mikið
fyrir þessu öllu, en þetta er ekk-
ert of mikið. Þetta er bara eins og
með jólin, allt tilstandið og undir-
búningurinn er hluti af spenn-
unni. Það hjálpar manni að
hlakka til og gleðjast.
Finnst þér undirbúningur ferm-
ingarinnar nægur?
Mér finnst undirbúningurinn
alveg nægur eins og hann er.
Kirkjan á ekki að gera þetta neitt
öðruvísi. Kannski jú, fjalla að-
eins meira um lífið almennt.
Skólinn ætti hins vegar að koma
mun meira þama inn í og fjalla
um hluti eins og vímuefni, kynlíf
og mannleg samskipti.
Veistu hvað þúfærð íferming-
argjöf?
Nei, ekki nema ég held ég fái
orðabók frá frænku minni.
Eruð þið byrjuð að undirbúa
daginn?
I kirkjutímunum er auðvitað
alltaf verið að undirbúa daginn.
Bráðum verður svo æfingatími
þar sem við æfum gönguna upp
að altarinu og það sem við eigum
að segja og svoleiðis. Þau heima
eru svo löngu byrjuð að undirbúa
allt. Ég hlakka mikið til.
Áslaug
Jónsdóttir
Hvers vegna vilt þú fermast?
Fyrst og fremst til að játa trú
mína á guð. Líka vegna þess að
þetta er gaman og mér finnst það
tilheyra.
Ertu trúuð?
Já, annars væri ég ekki að
fermast.
Nú er til borgaraleg ferming,
hefur þú eitthvað hugsað um
hana?
Nei, hún er ekkert fyrir mig.
Hvað finnst þér um undirbún-
ing fermingarinnar?
Mér finnst hann alveg nægur.
Hjá mér byrjaði hann í skólanum
fyrir jól. Hann hefur ekki ein-
göngu verið kristin fræði því við
fómm saman í ferðalag, heim-
sóttum Skálholt. Það gaf okkur
krökkunum sem eigum að ferm-
ast saman gott tækifæri til að
kynnast.
Nú fer fram ýmis frœðsla fyrir
borgaralega fermingu, finnst þér
eitthvað slíkt vanta í þinn undir-
búning?
Já, svoleiðis fræðsla mætti al-
veg koma þarna inn í.
Er ferming nauðsynleg?
Já það finnst mér.
Veistu hvað þú færð í ferming-
argjöf?
Nei, mamma og pabbi eru
marg búin að spyrja mig hvað ég
vilji en ég get bara ekki ákveðið
mig.
Hlakkar þú til?
Já, ég hlakka mikið til og hér er
allt komið á fullt í að undirbúa
daginn.
Borgaraleg ferming
Baldur
Björnsson
Hvers vegna vilt þú fermast?
Vegna þess að það er gaman.
Betra en að gera ekki neitt. Fyrir
mig væri það eins og að ljúga að
prestinum að ætla að fermast í
kirkju. Auðvitað er gaman að
halda veislu og fá gjafir og ég vil
gjarnan gera það líka.
Er ferming nauðsynleg?
Nei, ég gæti alveg verið án
fermingar. Ef ekki væri borgarleg
ferming hefði ég ekki fermst.
hefði ekki farið að fermast í kir-
kju en ferming er svo sem engin
nauðsyn.
Hvað finnst þér um undirbún-
ing fermingarinnar?
Undirbúningurinn er mjög
skemmtilegur og fræðandi. Sumt
er auðvitað skemmtilegra en ann-
að, en allt er þetta mjög gott og á
eftir að nýtast mér vel. Skólinn
gerir alltof lítið af þessu. Þar ætti
að fara fram meiri kynfræðsla en
hún er nánast engin i dag. Kenn-
ararnir eru oft feimnir að tala um
þetta en á fyrirlestrinum gátum
við spurt að hverju sem var og við
fengum svör. Svo fannst mér
mjög fræðandi að heyra um rétt
barna í samfélaginu en það var
nokkuð sem ég vissi mjög lítið
um.
Ertu byrjaður að undirbúa dag-
inn?
Nei, ég er ekki byrjaður að
undirbúa daginn. Veislan verður
fámenn svo það er ekki nauðsyn-
legt að byrja að undirbúa hana
mánuði fyrir tímann.
Hvaðfinnst þér um allt tilstand-
ið í kringum ferminguna?
Þetta tilstand allt saman er
asnalegt. Tökum t.d. þessar gjaf-
ir sem verið er að auglýsa, vídeo-
tökuvélar og gervihnattamótt-
ökudiskar, til fermingargjafa.
Það er allt í lagi að gefa eitthvað
en það þarf ekki að vera eins og
maður sé að flytja burt.
Hlakkar þú til?
Já, ég hlakka til.
Brynja
Baldursdóttir
Hvers vegna fermist þú?
Það fermast allir aðrir. Svo er
þetta viss staðfesting á að maður
er orðinn fullorðinn og ekki
lengur barn. Nú, svo er auðvitað
veislan og allt það.
Hvað finnstþér um allt tilstand-
ið í kringum ferminguna?
Mér finnst það soldið mikið
stundum en oftast allt í lagi. Þetta
eru viss tímamót sem sjálfsagt er
að halda upp á.
Hvað finnst þér um undirbún-
ing fermingarinnar?
Hann mætti vera meiri, en
maður lærir mikið. Það er heldur
lítið um hvert efni, en það sem er
vekur áhuga á að leita sér meiri
upplýsinga. Maður fær innsýn í
efnið.
Finnst þérferming nauðsynleg?
Ferming er ekki nauðsynleg en
það er gaman að þessu og allt í
lagi að hafa hana.
Ertu byrjuð að undirbúa dag-
inn?
Nei, ekki enn. Ég er bara svona
að hugsa um þetta allt enn.
Hefðirðu fermst ef borgaraleg
ferming vœri ekki til?
Já, ég hugsa að ég hefði fermst í
kirkju ef þetta hefði ekki komið
til. En kirkjutímarnir voru bara
óheppilegir fyrir mig. Svo finnst
mér þetta sniðugt.
Aðalsteinn
Jörundsson
Hvers vegna fermist þú?
Vegna þess að mig langar að fá
gjafir og halda veislu. Ég trúi
ekki á guð. Mér er ekkert um allt
þetta trúarrugl gefið sem hefur
oft komið af stað stríði í heimin-
um. En ég hugsa að ég hefði
fermst í kirkju ef ekki hefði verið
til borgaraleg ferming. Hún er
fyrir þá sem vilja gott val.
Hvernig finnst þér undirbún-
ingurinn hafa verið?
Ég hef lært heilmikið á þessu.
Skólinn ætti að gera meira af því
að bjóða upp á svona efni. Kyn-
fræðslan í skólanum var t.d. alls
ekki nóg. Þarna gátum við spurt
beint og við fengum svör við öllu.
Þetta á örugglega eftir að nýtast
mér. Það nýtist manni alltaf allt
sem maður lærir.
Ertu byrjaður að undirbúa dag-
inn?
Já, það verður rosa veisla og
við erum byrjuð að undirbúa það
allt. Ég hlakka mikið til. Mér
finnst að þeir krakkar sem ekki
trúa ættu að fara í þessa borgara-
legu fermingu.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Mynd: Kristinn Mynd: Kristinn