Þjóðviljinn - 29.03.1990, Page 7

Þjóðviljinn - 29.03.1990, Page 7
íGAR 1.000. Gjöfin 20-142.000 Jæja, þá er búið að sjá fyrir fötum á barnið, kaffihlaðborði og hentugu húsnæði, þá er ekkert eftir nema fermingargjöfin. Það er sjálfsagt ærið misjafnt hvað gefið er og misdýrt en þeir krakk- ar sem rætt var við nefndu flest eitthvert húsgagn. Flest bjuggust við að fá annað hvort rúm eða skrifborð. Meðalskrifborðið kostar svo meðalforeldrana um 20.000,00 kr. Meðalrúmið er hins vegar heldur dýrara en það kost- ar um 30.000,00 kr. Margir fá líka skíði en þau kosta um 22.000,00 kr. með nauðsynlegum útbúnaði. Sum töldu sig geta búist við úri en þau kosta um 10.000,00 kr . Nokkur nefndu utanlandsferð og þá svokallaðar skólaferðir en þá er farið í sumarbúðir og dvalið þar í 3 vikur á meðan tungumál viðkomandi lands er numið. Pessar ferðir kosta að meðaltali 66.000,00 kr. og nú er hætt við að meðal foreldrunum fari að blöskra. Það er þó ekki víst því þó nokkrir krakkar töldu öruggt að þau fengju hljómtæki, en meðal- verð þeirra er um 50.000,00 kr. Þau voru líka fáein sem sögðust fá tölvu en þá fer meðalforeldrið sennilega að svitna og spyrna við fótum því meðaltölva kostar 142.000,00 kr. Af þessu má svo sjá að vissu- lega eru möguleikarnir margir og hver ferming ólík annarri, en af ! þessu er þó óhætt að slá því föstu að meðalferming kosti meðalfor- eldra um 80.000,00 kr. Þá er óta- linn ýmiss aukakostnaður svo sem blóma- og borðskreytingar, ljósmyndari eða vídeóupptöku- maður o.s.frv. Það er kannski eftir allt saman ekki með öllu óraunhæft að líkja fermingu við blótveislur Mammons. Hitt er þó og verður að telja satt að það er erfitt undan að víkjast. Meðalfor- eldrið verður víst bara að bíta á jaxlinn í ár eins og undanfarin ár og reyna að ná sér í meiri yfir- vinnu. yrði ekki hallærislegur, nóg að vera minnsti fermingar- drengurinn þótt ofan á bættist ekki einhver bjánaskapur. Einu- sinni hafði hann fengið úr páska- eggi málsháttinn: „Ekki er píka nema punti sig.“ Nú var röðin komin að honum og það er alltaf jafn ógnvekjandi að taka sig út úr hóp. Hann kraup og roðnaði fyrir augliti Guðs og allt rann út í rauða móðu... Fermingarveislan var fyrsta til- efni fjölskyldunnar til að koma saman síðan eftir skilnaðinn. Frændur og frænkur aftan úr ætt- um. Auðvitað var erfitt að finna umræðuefni fyrir svo ósamstæð- an hóp. Þrátt fyrir allt er svo fátt sem má tala um. Menn reyndu að búa til umræðuefni úr atvinnulífi viðmælandans: Eruð þið að fá hann? Hvað ertu á stórum bát? 60 metra? ^riis4Pfvo;n SAMSTÆÐAN VERÐ: 58,500 stgr. VERÐ: án geislaspilara 41,800 stgr. • 16 aðgerða þráðlaus fjar- stýring • Magnari: 2x60W með 5 banda tónjafnara • Útvarp: FM/AM/LW, 24 stöðva minni og sjálfvirkur stöðvaleitari • Segulband: tvöfalt með hraðupptöku, Dolby B og samtengdri spilun • Plötuspilari: reimdrifinn, hálfsjálfvirkur • Geislaspilari: með tvö- faldri „digital/analog“ yfir- færslu, 16 minni, lagaleit ofl. • Heyrnartæki • Hátalarar: 70W þrískiptir JAPÖNSK GÆÐI Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780 . ..kjörin leið til sparnaðar er Kj örbók Landsbankans Betri. einfaldari og öruggari leiö til ávöxtunar sparifjár er vand- fundin. Háir grunnvoxtir og verötryggingctrákvæöi tryggia góöa ávöxtun. Aö auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 16 og 24 mánuöi. Samt er innstæöa Kjörbókar alltal laus L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.