Þjóðviljinn - 14.06.1990, Blaðsíða 9
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Húsnæði í Osló
Okkur vantar þá þriðju í íbúðina! Stórt
rúmgott herþergi til leigu á besta stað
í bænum (bak við höllina). Laust frá
og með 15. júlí. Uppl. í síma 641472
eða hjá Bryndísi og Vallý í síma 47-2-
440774.
Ódýr bíll til sölu
VW Derby, árg. 79, ekinn 114 þús.
km. Sparneytinn og með dráttarkrók.
Traustur bíll. Uppl.í símum 16484
(vinnusími) og 626203 (heimasími).
Einstaklingsíbúð óskast
Helst eitt herbergi, eldhús og bað eða
lítil tveggja herbergja íbúð. Uppl. í
síma 678028.
Tjald til sölu
Fimm manna fellitjald til sölu. Upplýs-
ingar í síma 642012 eftir kl. 17.00.
Týnd kisa
Svartur, hálfstálpaður köttur, með eitt
hvítt veiðihár tapaðist frá Melgerði 31
sl. sunnudagsmorgun. Líklegt er að
hann sé lokaður inni einhversstaðar.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
32506.
Góð gisting í herbergjum
eða íbúð fyrir landsbyggðarfólk í ná-
grenni Reykjavíkur. Hestaleiga á
staðnum. Upplýsingar í síma 666096.
Kalkhoff krakkareiðhjól
fyrir 11-14 ára, til sölu. Uppl. í síma
42454.
Sumarfrí í Barcelona
íslensk-spænsk fjölskylda býður íbúð
í Barcelona í skiptum fyrir íbúð í mið-
eða vesturbæ Reykjavíkuríjúlí. Uppl.
í síma 23927 á kvöldin og um helgar.
Toppgrind
Vantartoppgrind á Lödu 1200. Uppl. í
síma 79396.
Barnabílstóll
Vantar barnabílstól á hjól. Sími
622186 eða 621826.
Vantar reiðhjól
Óskum eftir ódýrum notuðum
reiðhjólum. Öli og Óli í síma 27117.
ísskápur
eldhúsborð og sófasett til sölu ódýrt.
Nánari uppl. í síma 673101 eða
672630.
Sjónvarpstæki óskast
Öryrki óskar eftir notuðu litsjónvarps-
tæki, ódýrt eða helst gefins. Uppl. í
síma 25916.
Óskast til kaups
Maxi cosy barnastóll og skiptiborð,
helst sem ódýast. Uppl. í síma
666841 e.h. og 681333 f.h. Bára.
Barnavagn óskast
Við óskum eftir að kaupa léttan
barnavagn (trillu). Þeir sem hafa
áhuga vinsaml. hringið í síma 19356
fyrir kl. 18.
Litsjónvarpstæki
Til sölu er 20 tommu litsjónvarpstæki
með fjarstýringu. Átta mánaða ga-
malt og mjög vel með farið. Uppl. í
síma 25916.
Meðleigjanda vantar
Okkur vantar einhverja til að leigja
með okkur gamalt hús í Bergstaða-
stræti. Nánari uppl. í síma 673023.
Halldóra.
íbúð óskast
Vantar íbúð, er ein með eitt barn.
Reglusemi heitið. Uppl. í síma
681333 eftir kl. 12.30. Þorgerður.
Ég er 13 ára stelpa
í Fellahverfi, sem óska eftir að passa
börn á aldrinum 0-4 ára. Uppl. í síma
71232.
Til sölu
Hvítt rimlarúm, skatthol, Club 8 rúm
m. tveim skúffum, skrifborð, hillur og
Casio SK 100 skemmtari. Vantar 2
stk. mótora í Transskraper gler plötu-
spilara. Uppl. í s. 73042.
Tek að mér þrif
í heimahúsum. Sími 32101.
íbúðaskipti
Reykjavík - Kaupmannahöfn
Okkur vantar íbúð í Kaupmannahöfn
frá 1.-23. ágúst ‘90 í skiptum fyrir
skemmtilega íbúð í gömlu timburhúsi
vestast í vesturbænum. Uppl. í síma
91-10339. Guðmundur og Ásta.
Óska eftir
að fá svart/hvítt sjónvarp gefins. Má
vera í ólagi. Sími 79267.
Kettlingur fæst gefins
10 vikna gömul læða óskar eftir góðu
heimili. Er vel vanin, blíð og fjörug.
Uppl. í síma 11605.
Harmonikuhurð og borð
Óska eftir harmonikuhurð, ekki
breiðri og litlu borði undir saumavél.
Uppl. í síma 83792 og 92-12883.
Hjólabretti
Hjólabrettaplötur til sölu. Caballero,
Carilee, Maniac o.fl. Uppl. í sima 92-
12883.
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
yUMFERÐAR
RÁÐ
Útgerðarmenn og eigendur
smábáta minni en 10 brl.
Athugið!
í samræmi viö nýsett lög nr. 38, 15. maí 1990
um stjórn fiskveiða, er koma til framkvæmda
um næstu áramót, vinnur sjávarútvegsráðu-
neytið nú að undirbúningi að úthlutun veiði-
heimilda til báta minni en 10 brl. í því sambandi
vill ráðuneytið vekja athygli á eftirfarandi:
1. Skráning báta
Samkvæmt nýju lögunum þurfa nú eigendur
allra báta 10 brl. og minni sem sækja um
leyfi til veiða í atvinnuskyni að vera skráðir á
skipaskrá eða sérstaka skrá Siglingamál-
astofnunar ríkisins fyrir báta styttri en 6 m. Þá
þurfa eigendur þeirra báta sem ekki hafa
veiðileyfi frá ráðuneytinu samkvæmt núgild-
andi lögum um stjórn fiskveiða (nr. 3 1988)
eða eru ekki á skrá Siglingamálastofnunar
að óska eftir skráningu báta sinna hjá Sigl-
ingamálastofnun fyrir 18. júní 1990. Beiðni
um skráningu þarf að fylgja eignarheimild,
smíðalýsing og teikningar af viðkomandi bát.
2. Nýir bátar í smíðum
Eigendur ófullgerðra báta sem smíði hefur
verið hafin á (skipsbolur uppbyggður) fyrir
gildistöku laganna 18. maí 1990 þurfa að
óska eftir skráningu þeirra hjá Siglingamála-
stofnun fyrir 18. júní 1990. Þessir bátar þurfa
að vera fullbúnir og öðlast fullgilt haffæra-
skírteini fyrir 18. ágúst 1990 til að koma til
greina við úthlutun veiðiheimilda. Eigendur
báta sem eru í smíðum erlendis þurfa að
framvísa vottorði frá þartilbærum yfirvöldum
um að smíði báta þeirra hafi verið hafin
(skipsbolur uppbyggður) fyrir 18. maí 1990.
3. Upplýsingar og forsaga báta 1
Eigendur og útgerðarmenn þeirra báta sem
ekki hafa fengið sérstakt eyðublað sjávarút-
vegsráðuneytisins til útfyllingar um forsögu
báta sinna þurfa að verða sér úti um slík
eyðublöð hjá ráðuneytinu eða Landssamb-
andi smábátaeigenda, fylla þau út og senda
sjávarútvegsráðuneytinu, Skúlagötu 4, 150
Reykjavík, við fyrsta tækifæri.
Nánari upplýsingar um ofangreint fást hjá sjáv-
arútvegsráðuneytinu og veiðieftirlitsmönnum
þess.
Sjávarútvegsráðuneytið,
18. maí 1990
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Þinghóli mánudaginn 18. júní kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Urslit sveitarstjórnarkosninganna.
2. Undirbúningur miðstjórnarfundar í júní.
Fundur miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
haldinn á Egilsstöðum dagana 29. júní til 1.
júlí næstkomandi
Föstudagur 29. júní kl. 20.30
1. Fundurinn settur í húsakynnum Menntaskólans á Egilsstöðum
2. Stjórnmálaumræður
2.1. Störf ríkisstjórnarinnar / Árangur i efnahagsmálum.
2.2. Úrslit sveitarstjórnarkosninga / Stjórnmálaástandið staða
flokksins.
Laugardagur 30. júnf kl. 9.00
Framhald stjórnmálaumræðna.
3. Flokksstarfið - Undirbúningur Alþingiskosninga.
4. Sjávarútvegsmál.
5. Landbúnaðarmál.
6. Önnur mál.
Um kl. 16 á laugardag verður gert hlé á fundarstörfum og farið í
heimsókn til Neskaupstaðar. Þar verður staðurínn skoðaður og
kvöldinu síðan eytt í boði heimamanna.
Sunnudagur 1. júlí kl. 10.00
Framhald umræðna
Afgreiðsla mála.
Fundi lýkur eigi síðar en kl. 15.00.
Að loknum fundi á sunnudag býðst fundarmönnum að fara í
skoðunarferð um nágrennið.
Allar nánari upplýsingar verða sendar miðstjórnarmönnum með
bréfi.
Steingrímur J. Sigfússon
formaður miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið í Kjósarsýslu
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 14. júní nk. kl. 20.30 í
Félagsheimilinu Urðarholti 4, Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Sveitarstjórnarkosningarnar.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
Félagsfundur í Þinghóli mánudaginn 18. júní kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Staðan eftir bæjarstjórnarkosningarnar.
2. Undirbúningur miðstjórnarfundar í júní.
3. önnur mál.
Stjórnin
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 16. júní kl. 14, Hverfis-
götu 105.
Dagskrá:
1. Skýrsla uppstillingarnefndar.
2. Lagabreytingar og tillögur.
3. Umræður.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnur mál.
Uppstillingarnefnd
Úr einni sumarferð AB á Austurlandi. (Ljósm. H.G.)
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Sumarferð laugardaginn 7. júlí 1990
um Reyðarfjarðarhrepp hinn forna
Búðareyrl - Hólmanes - Esklfjörður - Breiðavfk - Vöðlavík
Rútur leggja af stað sem hér segir: ’i
★ Frá Egilsstöðum (Söluskála KHB) kl. 09.00.
★ Frá Neskaupstað (Söluskála Skeljungs) kl. 08.30.
★ Frá Breiðdalsvík (Hótel Bláfelli) kl. 08.00.
Safnast verður saman undir Grænafelli innst í Reyðarfirði kl.09.30
á laugardagsmorgni. Skoðaðar minjar um herstöðvar á Reyðar-
firði, gengið um friðland á Hólmanesi, litið á sjóminjar á Eskifirði,
silfurbergsnámu við Helgustaði, heimsóttur einokunarkaupstaður
á Útstekk við Breiðuvík og ekið um Víkurheiði til Vöðlavíkur.
Ferðalok um kl. 19.
Staðkunnugir leiðsögumenn (Helgi Seljan, Hilmar Bjarnason
o.fl.) lýsa söguslóðum og náttúru.
Fararstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Þátttakendur skrái sig sem fyrst hjá Ferðamlðstöð Austur-
Jands, Egilsstöðum, sími 12000.
Hafið meðferðis nesti og gönguskó.
Allir velkomnir. Kjördæmisráð AB
Jónsmessu-sumarferð Alþyðubanda-
lagsins í Reykjavík um Snæfellsnes
dagana 23. og 24. júní:
Lagt verður upp í ferðina frá Hverfisgötu 105 kl. 10.00 laugardag-
inn 23. júní. Ekið áleiðis að Staðarstað, þar sem séra Rögnvaldur
Finnbogason tekur á móti ferðalöngum. Þaðan ekið fyrir Jökul í
fylgd Skúla Alexanderssonar, og ýmsir merkisstaðir skoðaðir í
leiðinni. Kvöldvaka og gistina á Hellissandi.
Á sunnudag verða félagar í Olafsvík og Grundarfirði heimsóttir.
Áætlað verð með svefnpokaplássi kr. 2.800,- fyrir manninn.
Hægt verður að útvega gistingu í sérherbergjum með morgunmat
gegn aukagreiðslu.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti!
Munið eftir nesti og söngbókinni.
Tekið verður á móti pöntunum t ferðina á skrifstofu AB, síma
17500, einnig á kvöldin og um helgina hjá Guðrúnu, síma
25549 og Ragnari, síma 16675.
Ferðatilhögun nánar auglýst síðar.
Ferðanefnd ABR
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði og bæjarmálaráð ABH boða til
almenns félagsfundar í Skálanum,
Strandgötu 41, mánudaginn
18. júní kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Niðurstaða kosninganna:
Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi.
2. Starfið'framundan.
3. Önnur mál.
Allir félagsmenn og aðrir stuðningsmenn
eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn ABH og bæjarmálaráðs
Fimmtudagur 14. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9