Þjóðviljinn - 14.06.1990, Síða 12

Þjóðviljinn - 14.06.1990, Síða 12
—SPURNINGIN Færðu hausverk? Þorgrímur Skjaldarson matreiðslumeistari Nei sem betur fer þekki ég ekki þennan kvilla. Til að koma í veg fyrir hausverk tel ég best að lifa heilsusamlegu lífi og hvílast vel. Sigurður Stefánsson verslunarstjóri Það er sárasjaldan og þá smá verk. Þá hugsa ég um eitthvað annað en verkinn og þá hverfur hann eins og dögg fyrir sólu. Sigrún Benediktsdóttir skrifstofukona Ég fæ stundum hausverk þegar ég er þreytt og spennt. Þá hvíli ég mig og það dugar til að losna við hann. Hrefna Guðmundsdóttir læknir Ég fæ stundum hausverk þegar ég er þreytt. Til að losna við hann hvíli ég mig vel og það hrífur. Lára Ólafsson húsmóðir Nei ég fæ aldrei hausverk. Ef ég hinsvegar fengi verk mundi ég neyta meira af ávöxtum, græn- meti og annarri hollri fæðu en ég geri, og þó borða ég mikið af henm. þlÓÐVIUIN Fimmtudagur 14. júní 1990 108. tólublað 55. órgangur SIMI 681333 SÍMFAX 681935 Gerðuberg Sæskrímsli og hafmeyjar Börn í listasmiðjunni Gagn oggaman ogfullorðnir á leiðbeinendanámskeiði starfa saman einn dag uppi í Breiðholti Pað var einu sinni fiskur í sjón- að þessu sinni liður í Listahátíð. um skreyttur demöntum, Leiðbeinandanámskeiðið var hins vegar liður í átaki mennta- málaráðuneytisins til að auka barnamenningu um allt land. Barnamenningarnefnd ráðu- neytisins vonast til þess að leiðbeinendanámskeiðið verði að var einu sinni fískur í sjón- um skreyttur demöntum, segir í ljóði sem krakkarnir í list- asmiðjunni Gagn og gaman sömdu við stefið haf. Þegar blað- amann ber að er líf og fjör uppi í Gerðubergi. Þar eru saman komnir tuttugu leiðbeinendur og jafnmörg börn niðursokkin í að teikna, mála og föndra sæ- skrímsli, hafmeyjur, haftröll, stjörnuskrímsli og fleiri verur sem lifa í hafínu umhverfís landið. Óskar 6 ára sýnir blaðamanni Sjóbatman, í sögunni um þann ofurkappa segir Óskar: „Hann notar ekki vopn. Hann á Bat- manleyndarmál. Hann og Robin eiga það saman. Þetta er ekki venjulegur Batman, þetta er Sjó- batman.“ Alls staðar eru hafmeyjar skreyttar skeljum og bleiku glimmeri, ein heitir Sædís, önnur Sólrún og hafmeyjan hennar Ásu 7 ára er kölluð Bleika gullmeyjan, hún á heima í gullb- leikri höll. Tinna 7 ára bjó til Sól- rúnu, sem skoðar skeljar og eltir fiska. Síðastliðinn mánudag var tveimur námskeiðum slegið sam- an, annars vegar listasmiðjunni Gagn og gaman, sem hefur verið starfrækt undanfarin sumur, og hins vegar leiðbeinendanám- skeiði fyrir kennara, áhuga- leikara og annað áhugasamt fólk utan af landsbyggðinni, sem lagði land undir fót til þess að kynna sér starfsemi listasmiðjunnar og hvernig það gæti síðan stuðlað að skapandi starfi meðal barna í sinni heimabyggð. Bæði námskeiðin eru skipu- lögð og haldin af menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Á veg- um menntamálaráðuneytisins ér starfandi nefnd um barnamenn- ingu og hafði hún frumkvæði að leiðbeinendanámskeiðinu, sem haldið var um síðustu helgi. Gagn og gaman listasmiðjan er sem flestum hvatning til að skipu- leggja listasmiðjur eins og Gagn og gaman úti á landi. Harpa Arn- ardóttir leikkona og Sigurjón B. Sigurðsson skáld sáu um leiðbeinendanámskeiðið, en þau voru meðal skipuleggjenda list- asmiðjunnar í upphafi. Bára L. Magnúsdóttir leik- kona og leiðbeinandi á Gagn og gaman námskeiðinu segir þau að þessu sinni hafa valið hafið sem stef í smiðjunni. Þau fóru niður á höfn, á Faxamarkaðinn, dorguðu og skoðuðu fiskibát. Síðan mál- uðu þau myndir af hafinu. Á námskeiðinu kynnast börnin tónlist, myndlist, leiklist, og ljóð- list. Börnunum er skipt niður í litla hópa sem ferðast milli leiðbeinenda í hverri listgrein, og spreyttu sig á þeim öllum. Við fórum líka í fjöruferð og átum kræklinga, segir Bára, á eftir vinnum við úr því sem við höfum séð. Við reynum ekki að kenna börnum neitt, eða segja þeim hvemig þau eigi að gera hlutina, heldur reynum við að víkka sjóndeildarhring þeirra og virkja ímyndunaraflið. Annars lærir maður kannski mest sjálfur, segir Bára. Sara R. Valdimarsdóttir tók þátt í leiðbeinendanámskeiðinu, hún er komin alla leið norðan úr Skagafirði þar sem hún starfar sem kennari. Hún segir ekki víst að hún geti notfært sér hugmynd- ina að listasmiðjunni í heild sinni, heldur muni hún fremur leitast við að flétta hugmyndum hennar inn í kennsluna, og í félagsstarfið í skólanum. Nú hefur kennslu- stundum 6 ára barna verið fjölg- að og það eru tilmæli frá mennta- Unnið úr hugmyndum og reynslu af ferð niður í fjöru, dorgi og heim- sókn í fiskibát í listasmiðjunni Gagn og gaman. málaráðuneytinu að reyna að nýta þessar viðbótarstundir sem mest í listir, mynd- og hand- mennt. Úti á landsbyggðinni vantar oft mynd- og hand- menntakennara, segir Sara, og því er nauðsynlegt að gera al- menna kennara færari í að kenna börnum listir og listsköpun. í litl- um skólum úti á landi eru ekki kennarar í hverju fagi og því sér einn kennari um alla kennslu bekkjanna, einnig myndlist, það ætti því að vera hægt að flétta saman listsköpun og almennri kennslu. Mikilvægt er að vinna með börnunum en ekki leiða þau, þau verða að fá að ráða sér sjálf, segir Sara. Þau eru svo frjó, og þau stoppar ekki neitt. ímynd- unarafli þeirra eru engin takmörk sett. Námskeiðið er því leyti frá- brugðið því Sem kennarar fást við í skólanum að ekki þarf að ganga út frá ákveðnu námsefni, en það ætti að vera hægt að kenna náms- efni á sama hátt og þemavinnan er í listasmiðjunni, segir Sara að lokum. Áhugi á listasmiðjunni og leiðbeinendanárriskeiðinu er mikill, og verða tvær listasmiðjur til viðbótar í sumar, og einnig er fýrirhugað að halda annað leiðbeinendanámskeið því færri komust að en vildu. Þegar list- asmiðjunni lýkur verður haldin sýning á verkum bamanna. Sýn- ingin verður opnuð í Gerðubergi með leiksýningu á laugardaginn kl. 14. BE Stolt listakona við Haftröllið ógurlega. Eftir að vinnu við hafmeyjar og aðrar hafskepnur var lokið settust börn og leiðbeinendur niður og skrifuðu sögur. MyndiriKristinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.