Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 5

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 5
Vestfjarðargöng Vegarslóði inn í Tungudal Þessir einbeittu kappar voru við veiðar í Elliðaánum í gær. Veiðin í sumar hefur verið nokkuð góð og hata fengist þetta 20-25 laxar að meðaltali á dag. Laxarnir hafa flestir verið þokkalega vænir miðað við það sem gerist í Elliðaánum eða 4 til 5 pund. Mynd: Jim Smart. - ViS erum þessa dagana að vinna við að leggja rúmlega tveggja kflómetra langan vegar- slóða að væntanlegum jarð- Utanríkisráðuneytið Áras íraka fordæmd Utanríkisráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, fordæmt harðlega árás íraka á Kuwait. í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að árásin sé skýlaust brot á sáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Skorað er á stjórnvöld í Bagdad að draga herlið sitt þegar og skil- yrðislaust til baka og greiða þannig fyrir friðsamlegri lausn á deilu ríkjanna. cl gangamunna inni f Tungudal, sagði Gfsli Eiríksson umdæmi- sverkfræðingur Vegagerðarinn- ar á Vestfjörðum þegar hann var spurður hvernig undirbúnings- vinnu fyrir jarðgangagerð á Vest- ufjörðum miðaði. Vegarslóði þessi er lagður til þess að hægt sé koma tækjum að þeim stað þar sem gert er ráð fyrir að munninn verði. Slóðinn er lagður þar sem væntanlegt vegar- stæði verður. Gísli sagði að í ár hefði verið veitt 60 miljónum króna til rannsókna og annarrar undirbún- ingsvinnu vegna jarðganganna. Þegar hafa verið boraðar holur í Súgandafirði og tekin jarð- vegssýni. Gísli sagði að sýnatöku á stöðunum þremur þar sem gert væri ráð fyrir að gangamunnan- rnir verði, yrði lokið fyrir haust- ið. NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 BHMR-deilan BHMR sveigt inn á þjóðarsáttina Ríkisstjórnin setti bráðabirgðalög í gœr semfresta gildistöku 4,5% hækkunar BHMRfram yfirþjóðarsátt. Ráðherrar telja lögin tryggja framgang efnahagsstefnunnar Eftir tæplega fimm klukku- stunda fund ríkisstjórnarinn- ar í gær, var ákveðið að setja bráðabirgðalög sem fresta gildis- töku 4,5% launahækkunar Bandalags háskólamanna frá 1. september og fram yfir gildistíma þjóðarsáttarinnar. BHMR- félagar fá sömu launahækkanir og félagsmenn Alþýðusambands- ins, 2% 1. desember, 2,5% 1. mars og 2% 1. júní. Með bráða- birgðalögunum er einnig sett á tímabundin verðstöðvun og víxl- verkunaráhrif 15. greinar samn- ings BHMR eru tekin úr sam- bandi. Lögin ná ekki til þeirra fé- laga sem eiga eftir að semja á vinnumarkaðnum og var með þeim hætti komið til móts við kröfur Alþýðubandalagsins. Geir Gunnarsson og Hjörleifur Gutt- ormsson greiddu atkvæði á móti setningu bráðabirgðalaganna á þingflokksfundi í gær. Þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherra um annað, voru flestir sammála um að ríkisstjómin hefði farið frá ef ekki hefði orðið að lagasetn- ingu í gær. Að loknum ríkis- stjórnarfundi sem stóð frá klukk- an 14 til klukkan 19.30, fóm ráð- herrar í að kynna aðilum vinnu- markaðar og stjómarandstöðu innihald laganna. Lögin verða ekki kynnt almenningi með form- legum hætti fyrr en í dag. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði að loknum fundi, að ríkisstjórnin teldi laga- setninguna tryggja framgang efnahags- og launastefnunar. Hver sem afstaða aðila vinnu- markaðarins kann að verða, verður ekki snúið aftur með lög- in, að sögn Steingríms. Forsætisráðherra sagði alltaf erfitt að setja bráðabirgðalög. En það hefði orðið miklu meira áfall ef efnaha^smarkmið og gildandi Jarðboranir ÖxaHjörður á borðinu Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra segir að verið sé að leita eftir aukafjárveitingu til jarðbor- ana í Öxarfirði. Um 20 miljónir þarf til verksins, en heimamenn munu leggja til 10 miljónir á móti ríkinu. Jón segist hafa rætt þetta mál við forsætisráðherra, Byggðastofnun og fleiri aðila. „Þetta er mjög áhugavert mál að mínum dómi. Það er áhuga- vert að finna rætur og skýringar þess jarðgass sem fundist hefur og einnig að kanna þetta háhita- svæði. Ég á hins vegar ekki von á að botn fáist í þetta mál alveg á næstunni, en vonast til að það verði sem fyrst,“ sagði Jón. Eins og fram hefur komið í Þjóðviljanum bíða heimamenn í Öxarfirði eftir fjárveitingu til að bora 1 kílómetra djúpa tilrauna- holu á austurbakka Jökulsár á Fjöllum. Talið er að jarðgas leynist þar í jörðu, en að sögn Björns Benediktssonar oddvita er ekki spurning um hvort olía sé þar, heldur hvort hún sé nýtan- leg. Einnig er talið að þarna sé nokkuð stórt háhitasvæði sem nýtanlegt væri fyrir annaðhvort Landsvirkjun eða Rafmagns- veitu ríkisins. Mikilvægt er fyrir heimamenn að fá svar frá stjórnvöldum hið fyrsta, því bor sem þeir hafa til umráða nú, verður fluttur burt innan skamms. Að sögn Jóns hefur hann einn- ig rætt þetta mál við Steingrím J. Sigfússon samgönguráðherra og Guðmund Bjarnason heilbrigðis- ráðherra, en þeir eru þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra. „Þeir hafa eðlilega áhuga á þessu máli, og við munum reyna að nota þann tíma sem borinn er á svæðinu til að leysa þetta mál,“ sagði Jón Sigurðsson. ns kjarasamningar ASÍ og VSÍ hefðu runnið út í sandinn. Þegar Steingrímur var spurður hvort hann hefði viljað ganga lengra með setningu bráðabirgðalaga, sagðist hann frekar vilja orða hlutina þannig, að hann hefði ekki viljað ganga skemmra en gert er. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði bráðabirgða- lögin í samræmi við niðurstöðu þingflokks Alþýðubandalagsins. Samningsréttur þeirra sem eru með lausa samninga væri ekki takmarkaður og almenn lýðrétt- indi væru ekki skert. Það væri þó ljóst að tveir þingmenn væru með aðra afstöðu, en afstaða meiri- hluta þingflokksins væri engu að síður skýr. Með setningu bráða- birgðalaganna væri tryggt að sá árangur sem náðst hefur í efna- hagsmálum héldist. Tvær tillögur gegn lagasetn- ingu voru bornar upp á sameigin- legum fundi framkvæmdastjóm- ar og þingflokks Alþýðubanda- lagsins í gær. Birna Þórðardóttir og Stefanía Traustadóttir báru fram tillögu þar sem öllum laga- setningum var hafnað, og Amór Pétursson bar fram tillögu um að 4,5% yrðu látin ganga til BHMR og annarra samtaka og tíminn til 1. september notaður til að ná samkomulagi. Báðum tillögun- um var vísað frá með naumum meirihluta, átta atkvæðum gegn sex. Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur lýst yfir andstöðu sinni við hvers kyns lagasetningu. En í gær sendi stjórn Birtingar frá sér á- lyktun þar sem skorað er á ríkis- stjórnina að fara að augljósum meirihlutavilja þjóðarinnar og tryggja framhald stöðugleika, jafnvægis og bættra lífskjara með þeim ráðum sem henni em tiltæk, eins og það er orðað. „Aðgerðir nú verða að taka mið af hagsmun- um yfirgnæfandi meirihluta launamanna en ekki af stundar- hag einstakra samtaka í stfl gam- aldags verðbólgusamfélags," segir í ályktunni. Samtök kvenna á vinnumark- aði sendu síðan frá sér tilkynn- ingu í gær, þar sem lagasetning sem ógildi gerða kjarasamninga er harðlega fordæmd. Skora sam- tökin á öll samtök launafólks að fordæma setningu bráðabirgða- laga. -hmp Aætiaðá Nærri helmingur fyrirtækja í landinu virðist ekki hafa skilað skattarskýslum til skattstjóra í ár, eða að gögn þeirra hafa ekki þótt fullnægjandi. Við álagningu skatta í ár er áætlaður skattur á 45% lögaðila í landinu sam- kvæmt greinargerð sem fjármál- aráðuneytið sendi frá sér um álagningu skatta. - Það er ekki til nein einhlít skýring á þessu. Það er mikið um að fyrirtæki séu á skrá, þótt þau séu löngu hætt að starfa, einnig er hugsanlegt að sá frestur sem fyr- irtæki fá til að gera upp ársreiknga sína sé of stuttur, sagði Steinþór Haraldsson hjá ríkisskattstjóra. Alls hefur þeim fyrirtækum sem áætlað er á, fjölgað frá því 1988 um 15%, en það ár var áætl- að á 30% fyrirtækja. í fyrra var áætlað á 40% þeirra. Álagning á fyrirtæki í ár nemur 3.800 miljónum króna, það er 100 miljón króna hækkun frá í fyrra í krónutölu, en að raungildi hefur skattur á fyrirtæki lækkað um 10-5%. Það er minni lækkun en gert var ráð fyrir í tekjuáætlun fjárlaga. Þær tölur sem fjármála- ráðuneytið sendir frá sér um skatta fyrirtækja miðast við áætl- un, gert er ráð fyrir að þegar endanleg álagning liggur fyrir borgi fyrirtækin í ár allt að fimmtungi minna í opinber gjöld en þau gerðu árið sem leið. -sg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.