Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 9

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 9
„íslendingar eiga ekki alltaf auðvelt með að starfa í alþjóðlegum sam- tökum. Það sýna síendurteknar hótanir okkar manna um að segja sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu. Þarræðurhin frumstæða eiginhagsmunastefna: Ef mínir hagsmunir eru ekki settir ofar hagsmunum heildarinnar þá klýf ég samstöðuna. “ Fátt er okkur íslendingum hugleiknara umræðuefni en við sjálf. Endalaust getum við notið þess að tala um ísland og þessa óvenjulega bráðgáfuðu þjóð sem í landinu býr. Lengst af höfum við getað ástundað þessa iðju í talsverðri fjarlægð frá öðrum þjóðum en nú er engu líkara en komið sé að kaflaskiptum. Sú þjóðernisvitund sem Fjöln- ismenn vöktu með þjóðinni snemma á síðustu öld er enn við bestu heilsu. Pað væri gott og blessað væri hún ekki orðin löngu úrelt. Stikkorðin fyrir nútíma- samfélag eru býsna mörg: Evr- ópa 1992 - alþjóðlegar stofnanir, samstarf og samtök á mörgum sviðum: aukinn ferðamanna- straumur, samgöngur, samskipti, fax, sími, sjónvarp. Þau benda öll í eina átt: minnkandi þjóðernis- hyggja vaxandi „alþjóðahyggja“. Þjóðernishyggja í anda nítjándu aldarinnar er víðast hvar í endur- skoðun í nágrannalöndunum; sumir segja daga hennar talda. Þetta eigum við íslendingar býsna erfitt með að skilja. Það leynir sér ekki. Nefna má tvö dæmi. Þátttaka okkar í Alþjóða hvalveiðiráðinu er fyrra dæmið. Verði ekki farið að okkar óskum þá segjum við okkur einfaldlega úr ráðinu. Hagsmunir heildarinn- ar verða að víkja fyrir okkar sér- stöku „hagsmunum". Annað dæmi er notkun freons við útbún- að skautasvells í Reykjavík. Þarna geta íslendingar auðvitað farið eigin leiðir, í það minnsta smæðar sinnar vegna. Ozonlagið kemur okkur ekki beint við. Bar- átta fólks á alþjóðlegum vett- vangi er svo sem góð og gild en þurfum við nokkuð að leggja af mörkum? Af einhverri ástæðu finnst okk- ur þægilegra að lifa í blekkingu um okkur sjáif og umheiminn en að horfast í augu við staðreyndir og læra - eins og Fjölnismenn á sínum tíma - að þekkja tímanna tákn. Okkur finnst það ágætt þegar leiðtogar þjóðarinnar gefa jafnvel í skyn á hátíðastundum að við séum öðrum þjóðum merki- legri. En hvað segðu menn ef slíkt hrykki upp úr forseta Þýska- lands eða kanslara þess lands? Hvers eðlis er þjóðernishyggja okkar íslendinga, hversu ekta er hún, hversu skynsamleg er hún? Syngjum við ekki enn Ó, fögur er vor fósturjörð þótt augljóst sé- fyrir löngu að landið er að blása upp; syngjum við ekki Ég vil elska mitt land - en ættum að syngja ég vil elska mitt uppblásna land og Ó fögur er vor örfoka fósturjörð? Sjálfsblekkingar okkar um land og þjóð geta gengið úr hófi, kröftunum mætti beita miklu betur - og vissulega er það gert í stórum stfl, sem bet- ur fer. Lýsingar á þjóðinni og á þjóð- hátíðardeginum eru orðnar margar og margvíslegar í tímans rás. Þær veita fróðlegar upplýs- ingar um þjóðernisvitund landans. Sumar lýsingarnar eru býsna háttstemmdar, aðrar ekki. Ein slík er í hinni frægu bók Guð- bergs Bergssonar, Astum sam- lyndra hjóna. Sú bók gæti reyndar verið eins konar dæmi- saga um samband íslensku þjóð- arinnar og hersins. Það er hinn samlyndi hjúskapur sem höfund- ur, sem er úr Grindavík, gerir skil á kaldhæðnislegan hátt í þessari fágætu bók sinni. Og einn þáttur- inn fjallar um fjölskyldu í Kefla- vík sem tekur sér far með rútunni 17. júní og ætlar að taka þátt í hátíðarhöldunum í Reykjavík. Það byrjaði með því að veðurspá- in stóðst ekki og 1 staðinn fyrir sól og blíðu var ausandi rigning og kuldi allan daginn. Hjónin og börn þeirra og vinir voru auðvit- að öll léttklædd. Og fyrr en varði var þeim pllum orðið heldur kalt í höfuðborginni. Og í mannþröng- og sál. Þannig fyrnist tilefni há- tíðarinnar þegar frá líður. Það sem gildir um þjóðhátíð gildir líka á svipaðan hátt um þjóðern- isvitund. - Raunar er þjóðinni margt betur til lista lagt en að halda hátíð yfirleitt. En það er önnur saga. arútgáfu af ómerkilegri heims- menningu sem er eins konar sam- ræmd meðalmennska, sprottin úr yfirborðslegum tilhlaupum aug- lýsingafjölmiðla sem finna enga lykt nema af peningum. Úr þess- um hrærigraut hefur orðið til al- þjóðleg gerviþjóð í öllum álfum elskandi það út af lífinu. Kannski eru aðrir farnir að elska þetta land meira en við sjálf. Hverjir eiga ísland var spurt ekki alls fyrir löngu. Þjóðsöngurinn svarar þeirri spurningu óbeint: Guð á Island! Við erum hér aðeins á ferðalagi eins og aðrir, að vísu getum við litið svo á að okkur sé falið þetta blessaða land til varð- veislu, nytja og skemmtunar. Á tímum sterkrar alþjóða- hyggju þar sem landamæri munu brátt heyra til liðinni tíð víða, þá er spurt um þjóðríkin smáu. Hvað er sjálfstæði á okkar tím- um, hvers virði er sjálfstæði, er tími þess liðinn, er komið að kaflaskiptum í mannkynssög- unni? Kaflaskiptum þar sem lyk- ilhugtakið er ekki sjálfstæði eða þjóðerni heldur samstaða um að eíska þessa jörð og það líf sem á henni þrífst, líka menningararf þjóða eins og okkar. Kannski hefur nútíminn ekki áhuga á neinu sem skipti máli í vitund þeirrar kynslóðar sem skundaði á Þihgvöll 1930 eða 1944, kannski hefur nútíminn að- eins áhuga á afþreyfingu, fleiri spennuþáttum, eurovision Þjóð og gerviþjóð inni týndu þau fljótlega hvert öðru. Karlarnir fundu sér næga brjóstbirtu til að gleðja sig við, ein eiginkonan drakk þrisvar kaffi á Hressingarskálanum fyrir hádegi og fékk sér alltaf rjóma- tertu með. í mannþrönginni og bleytunni steig einhver ofan á fót- inn á henni, reif sokkinn og skemmdi skóna. Einn krakkinn fékk pylsu í augað, þyrla frá varn- arliðinu varpaði brjóstsykri yfir mannfjöldann, konur og börn keyptu sér kúrekahatta, blöðrur og ís. Við illan leik kemst svo fólkið allt til síns heima í Keflavík og nær þar háttum undir morgun. Þannig var þeirra þjóðhátíð. Sem sagt ömurleg lýsing á þjóðhátíð í Reykjavík. Bók þessi kom út fyrir rúmum tveim ára- tugum og vakti sterk viðbrögð eins og vænta mátti og vafalaust hefur vakað fyrir höfundi. Þegar litið er á bréf séra Matt- híasar Jochumssonar sem samdi sjálfan þjóðsönginn í tilefni af þjóðhátíðinni 1874 þá virðist eins og hann skynji þá hátíð líka blendnum huga (konungskoman: „allt hennar skvaldur tildur fór eins og framh j á mér“ segir hann). Þar voru þó atburðir að gerast sem breyttu íslandssögunni. Þess ber þó að minnast að séra Matthí- as hafði þá liðið miklar þjáningar sorgarinnar sem lágu þungt á honum að ekki sé meira sagt. Samt orti hann við þær aðstæður þjóðsönginn sem fyrst var fluttur í Dómkirkjunni, en einnig við þá athöfn var þjóðskáldið hálfpart- inn úti á þekju af fyrrgreindum ástæðum. Það er ekkert undarlegt að þjóðhátíð eigi sér ekki sama sess í vitund manna alla tíð. Yngsta kynslóðin hlýtur að spyrja hvers vegna verið sé að halda hátíð 17. júní. Svörin eru söguleg eðlis: verið er að minnast atburða sem þóttu merkilegir áður fyrr. En slíkar upplýsingar nægja ekki sem tilefni til að halda hátíð af lífi Þjóðernishyggja er tvíeggjuð og sjaldan af hinu góða. Styrjald- ir eru til vitnis um að ekkert er eins auðvelt að afskræma og þjóðernisvitund. Ættjarðarást og umhyggja fyrir eigin söguarfi er hins vegar af hinu góða. Þjóðern- isvitund hlýtur að breytast með tímanum og setja arf sögunnar og ættjarðarástina í samhengi við líðandi stund innanlands og utan. Fjölnismenn og Jón Sigurðsson voru menn síns tíma. Lítum þar á fáein atriði sem skipta máli nú. Okkar tímar eru tímar aukinn- ar fólksfjölgunar í heiminum, mannfjöldasprengingarinnar. Tímar skelfingar mengunar, gróðureyðingar um allan heim, útrýmingar dýrategunda. Tímar þegar þörfin fyrir samstarf á al- þjóðlegum vettvangi er brýnni en nokkru sinni fyrr. Tímar þegar allar þjóðir verða að starfa sam- an, láta eitthvað af sínu eigin stolti lönd og leið. Enginn hefur leyfi til að lifa í þessum heimi eins og aðrir komi honum ekki við. Þjóðernisvitund án vitundar um knýjandi þörf fyrir alþjóðlegt samstarf er tímaskekkja og hættuleg. íslendingar eiga ekki alltaf auðvelt með að starfa í alþjóð- legum samtökum. Það sýna sí- endurteknar hótanir okkar manna um að segja sig úr Al- þjóða hvalveiðiráðinu. Þar ræður hin frumstæða eiginhagsmuna- stefna: Ef mínir hagsmunir eru ekki settir ofar hagsmunum heildarinnar þá klýf ég samstöðu- na. En sem betur fer er slíkur hugsunarháttur, sem er tíma- skekkja í alþjóðlegum sam- skiptum, á undanhaldi. Þessir erfiðleikar gætu stafað af sjálfs- blekkingu, óeðlilegu mati á sjálf- um sér, eigin þjóðerni í þessu til- viki. Matthías Johannessen skáld segir í bókinni Stríð og söngur: „(Erlend áhrif) eru á góðri leið með að breyta íslandi í vasabók- heims með döllösum og hjáguð- um þeirra. Einkennalaus íslensk þjóð er flökkulýður án ættjarðar (90)... ég fæ ekki séð að við get- um haldið áfram að lifa sams kon- ar gervilífi og við höfum gert frá lýðveldistöku. Við mælum jafnvel lífshamingju í peningum. Það hlýtur að koma að því að önnur mælistika verði fundin. (97).“ Þótt þessi orð skáldsins beri keim af ákveðinni svartsýni á al- þjóðahyggju nútímans (a.m.k. ákveðna tegund hennar), þá hljótum við að spyrja um íslenska menningu nú um stundir á þenn- an veg. Sem sagt: hver eru ein- kenni íslenskrar menningar, hvernig reiðir henni af í A) „ó- merkilegri“ heimsmenningu og B) í þeim straumum sem krefja hana um ábyrga þátttöku á al- þjóðlegum vettvangi? Þar vaknar ný spurning: Hvers virði er ís- lensk menning í slíkri alvöruþátt- töku á alþjóðlegum vettvangi, hvert er framlag hennar? Nú er að sýna hvað í henni býr. Þegar horft er um öxl, til þeirrar sterku þjóðarvitundar sem hefur einkennt íslendinga lengst af þessari öld þá er ekki að undra að margur spyrji hvort ungt fólk hafi nokkurn áhuga á þessu landi núna. Það skreppur í skólaferðalag til Mið-Ameríku, liggur þrjár vikur eftir stúdents- próf á portúgölskum sandi eða borðar ameríska hamborgara all- an júnímánuð hjá spænskum matseljurum í staðinn fyrir að skoða landið sitt, í staðinn fyrir að gróðursetja eina örsmáa trjá- plöntu í uppblásinn mel á landinu fagra. Efnalitlir foreldrar gráta sig í svefn og reyna að verða sér úti um aukavinnu til þess að börn þeirra komist með og verði ekki fyrir aðkasti í skólanum. En í staðinn fyrir íslensk ung- menni eru það Þjóðverjar og Frakkar auk annarra sem hjóla og ganga og aka um þetta land keppni, heimsmseistarakeppni í fótbolta, sem er ein af stórhátíð- um samtímans og enn tiltölulega óspillt af verslunarmengun eins og sumar stórhátíðir kirkjunnar. {slíkum heimi eru hugsjónamenn og umhverfisverndarsinnar til trafala. En sem betur fer er heimurinn ekki þannig. Sem bet- ur fer - það er í það minnsta mín sannfæring- benda tímanna tákn til þess að vilji manna til aukins samstarfs á alþjóðlegum vett- vangi fari vaxandi. Spurning dagsins er sem fyrr spurning um lífsgildi, um inni- hald. Hvaða hugsandi maður skynjar ekki vanda samtímans, í það minnsta óljóst, tómleika hans þrátt fyrir óendanlega kraft- mikla bfla, ótrúlega þægilegar ferðir fyrir skólafólk til karabíska hafsins - eða var það Kyrrahafs- ins - ótrúlega miklu af öllu? En þeir skynja um leið ólýsanlega fá- tækt hið innra, ólýsanlegan kvíða og ótta venjulegs fólks, óhugnan- lega sterka dauðahvöt, fíkn í eiturlyf, grimmd, ofbeldi, hraðari og hraðari akstur, burt frá náttúrunni. Hrærigrautur þar sem engin lykt er önnur eftir en af peningum. Er það okkar heimur? Eru þetta örlögin sem blasa, við íslenskri menningu í heimi nútím- ans? Menning sem er ekki skap- andi er dauðadæmd, en menning- arlíf sem lifir í tímanum, þver- skallast ekki við kröfu samtím- ans, er það lífvænlegasta af öllu þessum heimi. SéraGunnar Kristjánsson doktorersókn- arprestur á Reynivöllum í Kjós. Föstudagur 3. ógúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.