Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 12

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Page 12
Hann ráfar um bæinn þegar aðrir sofa Á meðan flestir Reykvíkingar sofa, ráfar Siggi um götur borgarinnar í leit að náttstað. Hann finnur alltaf eitthvað, en oft ekki fyrr en undir morgun. Stundum hallar hann höfði í hálfkláraðri byggingu, einhvers staðar þar sem hann finnur opnar dyr. Hann er sautján ára götubarn og á að baki margra ára óreglu- og afbrotaferil. En hann er ekkert einsdæmi. Fjöldi unglinga er utangarðs í Reykjavík án þess að kerfið hafi megnað að koma í veg fyrir það. „Ég hef ekki pælt í af hverju þetta er svona. Þetta bara er svona. Það er alltaf hægt að finna sér einhverja afsökun, en ég hef ekki pælt í þessu. Mér finnst ég vera frjáls svona og það fær mig enginn ofan af þessu. Ekki eins og er. En þetta gengur auðvitað ekki endalaust, einhvern tímann verður maður að hætta. Ég stefni að því að leigja mér herbergi í haust og fá mér vinnu. Jafnvel að fara í skóla," segir hann. Hann segist vera frjáls, en maður á bágt með að taka hann trúan- legan. Tveir kunningjar hans hafa framið sjálfsmorð. Brotnar tennur Hann ber merki þess lífernis sem hann hefur stundað á undan- förnum árum. Að minnsta kosti þrjár framtennur eru brotnar eftir hnefahögg, hann er veiklu- legur að sjá. Fötin sem hann gengur í fara greinilega ekki reglulega í þvottavél, en hann segist ekki eiga önnur. Jakkann hefur hann fengið að láni hjá vin- konu sinni. Framtíðarvonir Sigga eru ekki háleitar, enda er fortíð hans ekki glæsileg. Hann stefnir að því að leigja sér herbergi í haust, áður en vetur gengur í garð. Það er erfitt að vera húsnæðislaus í Reykjavík, sérstaklega á vet- urna. Siggi er ekki hans rétta nafn, en hann kærir sig ekki um að segja sögu sína þannig að hægt verði að bera kennsl á hann. Hann á að baki margra ára ó- reglu, hefur verið á flestum ung- lingastofnunum sem völ er á, og á yfir höfði sér dóma fyrir ýmis konar afbrot. Hann er einn af þeim sem koma daglega til þess að ræða við starfsmenn útideildar unglinga. Þar líður honum vel, en að öðru leyti hefur hann ekki fagra sögu að segja af hjálpark- erfí hins opinbera. „Meðferð er bara heilaþvott- ur,“ segir hann. í spírann hjá pabba Siggi fæddist í Reykjavík, en ólst upp í sjávarplássi á Suður- landi. Foreldrar hans voru báðir sjúklingar. Mamma hans var langdvölum á sjúkrahúsum, veik- indi drógu pabba hans til dauða þegar Siggi var 14 ára. Siggi komst fyrst í vímu þegar hann var tíu ára. Þá stalst hann í spírann hjá pabba sínum og drakk sig fullan. Á næstu árum Sautján ára götubarn í Reykjavík segir frá jókst drykkjan hröðum skrefum og auk þess fór hann að stelast í lyf foreldra sinna. Hann át svefnpillur, dísur og annað. Af- brotaferill hans hófst snemma og fyrr en varði lauk skólagöngu hans. Barnaverndaryfirvöld og skólayfirvöld komu sér saman um að hann ætti ekki framtíð fyrir sér í plássinu og sendu hann á Unglingaheimili ríkisins. Þá var hann þrettán ára og á unglinga- heimilinu komst hann í kynni við fólk sem komið var mun lengra út á óreglubrautina en hann sjálfur. Nær dauða en lífi „Þá fyrst byrjaði þetta fyrir al- vöru. Það var auðvelt að smygla vímugjöfum inn á heimilið og maður át töflur, sniffaði kveikjaragas, allt sem gat komið mér í vímu. Ég kynntist þarna krökkum sem voru komnir lengra en ég í þessu og sumir þeirra eru ágætir vinir mínir núna,“ segir hann. Eftir tveggja mánaða dvöl á heimilinu í Kópavogi fór hann aftur austur, en ekki til frambúð- ar. Pabbi hans dó þegar Siggi var fjórtán ára og í kjölfarið flutti fjölskyldan til Kópavogs. Síðan hefur Siggi þvælst á milli stofn- ana. Þar til hann varð sextán ára fór hann margsinnis á unglinga- heimilið, án árangurs. Þrisvar sinnum lenti hann á unglingageð- deildinni við Dalbraut og þar var Unglingana þyrstir í tengsl við fu Mikill fjöldi unglinga finnur sér athvarf hjá starfsmönnum útideildar unglinga viö T ryggvagötu. Sumir eru í sambandi við deildina í áraraðir, sumir koma daglega. Enda segir Bergljót Sigurbjörnsdóttir, forstöðu- maður útideildar, að unglinga þyrsti í tengsl við fullorðið fólk. Útideildin er ekki mikið bákn og starfsmenn hennar eru ekki margir. En þeir eru í reglulegu sambandi við hundruð unglinga og sumir unglinganna koma dag- lega til þess að spjalla við starfs- menn. Útideildin er opin frá níu til fjögur alla virka daga, og hægt er að hafa samband við starfs- menn í símum 20365, 621611. Útideildin hóf starfsemi sína árið 1977, í kjölfar óróleika með- al unglinga í Breiðholti. Úti- deildin heyrir undir unglinga- deild félagsmálastofnunar borg- arinnar, en hefur að mörgu leyti sérstöðu innan kerfisins. Bergljót bendir á að annars staðar þar sem unglingar koma til kasta kerfisins, hafa þeir yfirleitt verið sendir af einhverjum aðila. Við það verða valdahlutföllin mjög starfsmanni kerfisins í hag. Hjá útideildinni er þessu öðru vísi farið. Starfsmenn hennar verða sjálfir að fara út og komast í kynni við krakkana, á heima- velli þeirra. Hypjið ykkur! „Það er fullt af krökkum úti í þjóðfélaginu sem eru í vand- ræðum en sem hjálparkerfið nær ekki til. Okkar hlutverk er að ná tengslum við þessa krakka og komast að því hvort þau þurfa á hjálp að halda. Við þurfum því að fara út á götuna og virða leikregl- ur krakkanna. Það sem við lítum á sem vanda- mál er það ekki endilega frá sjón- arhóli krakkanna. Við þurfum því að læða inn hjá þeim efa- semdum um það sem þau eru að gera. Samskipti okkar við krakk- ana verða að gerast á jafnréttisgrundvelli, þau geta þegið aðstoð okkar eða hafnað henni. Það kemur vissulega fyrir að samskipti byrja þannig að það er hlegið að okkur og okkur er sagt að hypja okkur. Sumir hafna okkur með öllu. En yfirleitt tekst okkur að vinna trúnað þeirra. Ég er eiginlega alveg hissa á hvað þau taka okkur vel,“ segir Bergl- jót. Fyrirbyggjandi leitarstarf Starf útideildar er nokkurs konar fyrirbyggjandi leitarstarf. Starfsmenn deildarinnar hitta krakkana þar sem þeir halda til, á götum úti, í leiktækjasölum, í fé- lagsmiðstöðvum, í sjoppum og víðar. Nokkuð er einnig um að krakkarnir leiti sjálfír til deildar- innar. Helstu samkomustaðir krakkanna eru hreyfanlegir og starfsmenn verða sífellt að vera með þreifara sína úti. En það er ekki nóg að hitta ungling sem hugsanlega á í vand- ræðum eða tilheyrir áhættuhópi. Til þess að eiga von um að geta hjálpað verður starfsmaður úti- deildar að vinna trúnaðartraust unglingsins og það getur að sögn Bergljótar tekið langan tíma. „Grundvöllurinn fyrir sam- bandi okkar við krakkana byggist á að þeir geti treyst okkur,“ segir Bergljót. Hún segir þorra unglinga vera edrú um helgar og taka síðasta strætó heim á kvöldin. En margir falla ekki í það mynstur. Skjól- stæðingar útideildar eru á aldrin- um 12-20 ára og vandamál þeirra eru ýmiss konar. Ákveðinn hóp- ur er bara venjulegir krakkar sem þurfa að geta talað við fullorðið fólk, en fá þeirri þörf sinni ef til vill ekki fullnægt á heimilinu. Sinnuleysi foreldra Bergljót nefnir einnig áhættu- hóp, sem á í vandamálum í skóla, í vinnu eða heima fyrir. Krakkar í þessum hópi geta verið veikir fyrir neyslu vímugjafa. Enn annar hópur á við veruleg vandamál að stríða. Krakkar í þeim hópi eru gjarna heimilis- lausir, atvinnulausir, þeir neyta Bergljót Sigurbjörnsdóttir: Sinnu- leysi foreldra gagnvart ung- lingum er áberandi vandamál. vímuefna og eiga afbrotaferil að baki. „Við bjóðum þessum krökkum upp á tengsl, tilfínningatengsl, við fullorðna. Við aðstoðum þá við að leysa ýmis vandamál heima, í skólanum og í vinnu. Við stöndum hér fyrir ýmiss konar hópstarfi sem við teljum að geti hjálpað. Þessir hópar verða til eftir þörfum. Og ef þau vilja það sjálf vísum við þeim til ann- arra stofnana, meðal annars meðferðarstofnana. Orsakirnar fyrir vandamálum þessara krakka eru í sjálfu sér jafn margar og krakkarnir eru. En mér finnst sinnuleysi foreldra gagnvart unglingum áberandi. En þá má spyrja við hvaða skil- yrði foreldrar búa. Þeir búa margir við mikið vinnuálag og hér erum við farin að tala um pó- litík, launapólitík og atvinnu- leysi. Hvað sem því líður er þetta sinnuleysi alvarlegt vandamál. Foreldrar hafa lítinn tíma fyrir krakkana, ræða lítið eða ekki við þá um þeirra áhugamál, drauma og hugsanir, Afskipti foreldra af unglingunum er oft meira í formi nöldurs.“ Vonbrigði og vonleysi „Það er svo mikilvægt að for- eldrar og börn nái að byggja upp trúnaðarsamband áður en hinn viðkvæmi unglingsaldur gengur í garð. Ef ekki ríkir trúnaður á milli þeirra áður, getur verið erf- itt að vinna hann upp síðar. 12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 3. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.