Þjóðviljinn - 03.08.1990, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Qupperneq 18
Langvarandi þurrkar, skortur á drykkjarvatni, óbærileg molla og loftmengun í stórborgum eru þau vandamál sem brenna einna heitast á stórum hluta megin- landsbúa Evrópu í dag. Hitarnir sem leikið hafa um vestan- og sunnaverða álfuna að undan- förnu hafa leikið margan mann- inn grátt og það sem verra er, lítil von er til að úr rætist á næstunni. Víða hefur daglegt líf manna gengið úr skorðum sökum þessa og valdið mönnum þungum bú- sifjum. Vegna hitanna hafa járn- brautasamgöngur meira og minna gengið úr skorðum vegna þess að brautarteinar hafa orpist í hitunum. í síðustu viku fór lest, þéttsetin marókönskum túristum á leið heim úr fríi, út af teinunum nálægt Zaragossa á Spáni, með þeim afleiðingum að 25 manns slösuðust. í Frakklandi varð að loka tíma- bundið kjarnorkuveri þar sem áin Garonne hitnaði um of og nýttist ekki lengur til að kæla nið- ur kjarnaofna orkuversins. Að sögn talsmanns umhverfis- verndarsamtakanna „Vinir jarð- arinnar" (Friends of the Earth) er hitabylgjan þess valdandi að eitr- aður lofthjúpur liggur yfir flest- um stórborgum Evrópu. í Aþenu þar sem loftleysið er hvað verst, gaf gríska blaðið Elfterotypia les- endum sínum það hollráð að forðast eftir fremsta megni að draga ekki að sér andann. A fimmtudaginn í sl. viku steig hitinn í Aþenuborg upp í 40' gráður á selsíus. Útvarpsstöðvar í borginni útvörpuðu tilkynning- um til borgarbúa um að þeim væri ráðlegast að halda sig innandyra. Pað er reyndar ekki nýtt vanda- mál í Aþenuborg að íbúarnir líði fyrir loftleysi - hvergi er loftmengun af völdum útblásturs bifreiða meira vandamál en þar. „Forðistað draga andann“ Langvarandi hitar og þurrkar í Evrópu valda erfiðleikum víða um álfuna en sólardýrkendur og vínræktendur kvarta ekki Víða hefur komið til þess að orðið hefur að skammta mönnum drykkjavatn s.s. eins og í Frakk- landi, á Spáni og Ítalíu. f París hefur kveðið svo rammt að vatns- skortinum að hárgreiðslumeist- arar þar í borg geta ekki lengur þvegið viðskiptavinum sínum um hárið. Samkvæmt upplýsingum ít- ölsku Veðurfræðistofnunarinnar má rekja vatnsskortinn þar í landi til óvenju lítillar úrkomu þar í langa tíð. Frá því í desember sl. og fram til febrúarloka rigndi helmingi minna þar en í meðalári og enn helst hann þurr. - Ástandið er orðið óbærilegt, er haft eftir forstöðumanni ít- ölsku stofnunarinnar, sem segir ástæður lítillar ofankomu vera háþrýsting yfir vestanverðu Miðjarðarhafi. - Svona veður höfum við ekki fengið á Ítalíu síð- an á fimmta áratugnum. Hitarnir og þurrkarnir að und- anförnu valda því að víða er gróður orðin illa þurr og skræln- aður. Skógareldar hafa víða kviknað og valdið miklum skemmdum á gróðurlendi. Ekki bætir úr skák að vatnsskorturinn gerir það að verkum að sumsstað- ar hefur verið nær óvinnandi veg- ur fyrir slökkvilið að ráða niður- lögum eldanna. Þeir eru þó til sem gleðjast yfir veðurfarinu og óska þess að það vari sem lengst. Þar í flokki eru sólardýrkendur sem undanfarið hafa getað bakað kroppinn aldrei sem fyrr og vínræktendur sem eygja óvenjugóða vínuppskeru í ár. Þann skugga ber þó á að sólin hefur verið of heit fyrir suma sólardýrkendur. Jafn norð- arlega og í London þurfti fjöldi manna sem sleikti sólina í Batt- erseagarðinum um síðustu helgi að leita læknishjálpar þar sem þeir voru lémagna sökum hitans. Heilbrigðisyfirvöld í Lundúnum hafa beint þeim tilmælum til las- burða fólks og gamalmenna að halda sig sem mest í forsælu. Veðurfræðingar á megin- landinu eru almennt sammála um að reikna megi með svipuðu veðri einhverja daga enn. -rk/The European Línur teknar ad skýrast Sveit Verðbréfamarkaðarins sigraði sveit Eyþórs Jónssonar, Sandgerði, í 1. umferð Bikar- keppni BSÍ, í leik sem spilaður var sl. miðvikudag. Þarmeð lauk 1. umferð keppninnar. í 2. umferð er lokið þessum leikjum: Sveit Delta Hafnarfirði sigraði sveit Einars Vals Kristjánssonar frá ísafirði. Sveit Estherar Jakobsdóttur Reykjavík sigraði sveit Sigmund- ar Stefánssonar Reykjavík. Sveit Sigurðar Sigurjónssonar Kópavogi sigraði sveit Ragnars Magnússonar Reykjavík. (jlokið er eftirtöldum leikjum í 2. umferð: Guðlaugur Sveinsson Reykja- vík mætir titilhöfunum í sveit Tryggingamiðstöðvarinnar. Karl Karlsson Sandgerði mætir Fjólu Magnúsdóttur Reykjavík (áður Modern Iceland-sveitin. Grettir Frímannsson Akureyri mætir Samvinnuferðum Reykja- vík. Ásgrímur Sigurbjörnsson Sig- lufirði mætir Sveini R. Eiríkssyni Reykjavík. S. Ármann Magnússon Reykjavík mætir Verðbréfunum Reykjavík. Áð þessum leikjum loknum standa eftir 8 sveitir. Búast má við að dregið verði í 3. umferð um miðjan ágúst-mánuð. Útför Alflreðs G. Alfreðsson- ar fv. forseta Bridgesambands ís- lands 1979-1980 var gerð frá Njarðvíkurkirkju sl. föstudag. Með Alfreð er genginn góður maður, sem innti af hendi mikið starf fyrir Bridgehreyfinguna í landinu. Fjölskyldu hans er vott- uð innileg samúð. Þorfinnur Karlsson lést fimmtudaginn 26. júlí, eftir lang- varandi veikindi. Þorfinnur var mikill áhugamaður um framgang Bridge hér á landi og mikill keppnismaður á árum áður. Hann var bróðursonur okkar frægasta bridgespilara, Einars Þorfinnssonar. Kynni okkar Þorfinns hófust um 1970 hjá Ásum í Kópavogi og allar götur síðan höfum við verið góðir vinir. Fjölskyldu hans votta ég mína innilegustu samúð. Útför hans verður gerð frá Langholt- skirkju í dag. Helgi Jóhannsson forseti Bridgesambandsins efndi til fundar sl. laugardag með áhuga- mönnum um framgang landsliðs- mála hér á landi. Fundinn sóttu um 13-14 manns. Ýmis málefni voru tekin fyrir á þessum fundi er varða framtíðarskipan landsliðs- mála. Er ástæða til að nefna þetta framtak hjá Helga sérstaklega í þessum þætti. Umræða er til alls fyrst. Nokkuð stöðug og góð þátt- taka (42-44 pör) er þessa dagana í Sumarbridge í Reykjavík. Spilað er alla þriðjudaga og fimmtudaga og hefst spilamennska í 1. riðli kl. 17, en í þeim síðasta um kl. 18.30. Spilarar geta staðfest þátttöku sína með því að hringja í Bridge- sambandið í s. 689360. Til athugunar er fyrir bridgefé- lögin í landinu, hvort ekki sé tímabært að hefja spilamennsku í vetur kl. 19 í stað 19.30, eins og tíðkast í flestum félögum. Bæði kvennapörin okkar á Norðurlandamótinu voru ofar- lega í Butler-útreikningi mótsins (þarsem báðir flokkarnir voru lagðir saman og útkoman reiknuð út í pörum). Esther oig Valgerður voru í 2. sæti í kvenna- flokki og Anna Þóra og Hjördís í 3. sæti. í heildina voru pörin í 4. -5. sæti (jöfn). Stórglæsileg frammistaða, sérstaklega ef tekið er mið af því að þær voru aðeins fjórar, án varamanna. Líklegt er að um 20 manna hópur spilara héðan taki þátt í heimsmeistaramótinu í Sviss. Mótið hefst um næstu mánaða- mót og lýkur um miðjan sept- ember. Ein 5 aðalmót verða í gangi, auk sárabótakeppni fyrir þá sem ekki komast í úrslit. Mótið er opið öllum spilurum, en það er í fyrsta skipti sem slíkt fyrirkomulag er viðhaft. Punktatalning sú sem flestir bridgespilarar notast við í dag, 4- 3-2-1 (ás-kóngur-drottning-gosi), er kennd við McCampell-talning- una frá 1915, kynnt og útgefin af Milton Work um 1923. Vínar- kerfið frá Austurríki, sem er nokkuð yngra, byggðist hins veg- ar á 705-3-1 og Litaskil Guð- mundar Hansen (biðsagnakerf- ið) á 3-2-1. myndast eins konar „lottó“- stemmning þegar hlutirnir taka óvænta stefnu og lega spilanna (sumir nefna spilaguðinn, sem ég kann nú ekki deili á, því miður) ræður úrslitum. Lítum á eitt óbirt spil frá ís- landsmóti í sveitakeppni fyrir nokkrum árum. Engin nöfn þarf að nefna í þessu sambandi: S: Dd65 H:------ T: Á 762 L: ÁK10952 S: KG109874 S: 2 H: K43 H: Á987 T: K T: 10854 L: 74 L: DG86 H: EM310652 T: DG93 L: 3 Vestur hóf sagnir með 4 spöðum. Norður vildi vera með í leiknum og gaf 5 lauf. Austur þóttist kominn í trúnaðarsam- band við Norður og doblaði (ekki óánægður á svip, meðan hann raulaði Hamraborgina) og þar við sat. Allir pass. Útspil spaða- tveir. Norður leit yfir blindan og leist ekki alls kostar á. Hefði hann doblað 4 spaða í stað þess að segja 5 lauf, væri hann í heldur betri málum. En sjáum hvað gerðist. Tekið á spaðaás, laufaás og kóngur tekinn og síðan lagður niður tígulás. Kóngurinn kom fljúgandi... augnablik, ekki lesa lengra. Ástæðan fyrir birtingu þessa spils er hvað norður gerði í 2. slag. Eftir að hafa tekið á spað- aás, spilaði Norður hjarta og trompaði heima. Þá komu laufaás og kóingur, síðan tígulás (kóngurinn í) og eftirleikurinn var auðveldur fyrir meistarann í Norður. Inn á tígulníu, hjarta trompað, inn á tígulgosa og enn hjarta trompað, inn á tíguldrottn- ingu og 11. slagurinn kom á laufatíuna. (1 á spaða, 4 á tígul og 6 á lauf). Þegar fyrrnefndur spilaguð (sem enginn veit þó nánari deili á) og meistarinn í Norður taka saman höndum, er eins gott að við hin látum okkur nægja að vera áhorfendur. ^m Olafur Lárusson Af og til við græna borðið 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 3. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.