Þjóðviljinn - 03.08.1990, Síða 24

Þjóðviljinn - 03.08.1990, Síða 24
Þessir andskotans Stuðmenn.. - Hve glöð er vor æska? - Sjálfsagt misjafnlega, og æskufjörið endist fólki mislengi fram eftir aldri, en alltaf tekst þessum Stuðmönnum okkar að halda sinni íslenzku og þjóðlegu ungæðislegu gleði til haga á plötum sínum þótt liðsmenn séu komnir til vits og meira en þrjátíu ára. Reyndar þykir sumum alvar- legum rokkaðdáendum meira en nóg um grínið, eða eins og einn slíkur sagði við mig á gleðihátíð í sambandi við útkomu nýjustu Stuðmannaplötunnar, Hve glöð er vor æska: Það er óþolandi að þetta flinka tónlistarfólk skuli lifa á því að gera grín að rokkinu, þegar það er fært um að semja og spila tónlist í alvöru... Eitthvað á þessum nótum var samtalið milli mín og þessa ágæta og góða rokkaðdáanda, og það lá við að ég skammaðist mín þegar ég þrem korterum síðar var farin að dansa eins og vitlaus mann- eskja, svo að bogaði af mér svit- inn, við lifandi leik þessara óá- byrgu tónlistarmanna. En ég af- saka þetta léttlyndi mitt með því, að þessir andskotar eru svo próf- essjónal - miklir fagmenn, og gefa auk þess af sér persónulega í flutningnum, að það verður bara að segjast eins og er að við höfum aldrei átt svona alhliða listamenn í dægurtónlist. Stuðmenn eru nefnilega ekki bara einhver venjuleg danshljómsveit, þótt varla nokkur matur geti verið ódansandi í návist við þá spilandi (eins og Ólafur Ragnar hefur komist að við að reyna að afla íslenzka ríkinu tekna). Stuðmenn eru revía, lifandi söngleikur, þar sem allir hafa sína rullu og hreyf- ingar á hreinu. Þess vegna er það líka að af fáum tónlistarmönnum, og það á alþjóðamælikvarða, eru Stuðmenn jafnvel betri á hljóm- leikum (eða böllum, eins og er þjóðhagslega hagkvæmt að kalla það) heldur en á plötum sínum, sem þó eru ekkert slor. Söngvararnir í Stuðmönnum, þau Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir, fara létt með að skila sólósöng og flóknum bakröddum í kórréttri tóntegund meðfram hoppi og híi á sviðinu - svona rétt eins og á plötunum. Og hljóð- færaleikararnir eru jafnpottþéttir „læf“ - nema hvað mér finnst hljóðfæraleikur Stuðmanna hljóma betur á hljómleikum en á plötu, því að ef ég á að finna að einhverju hjá þessu liði, þá er það að mér finnst örla á því, á Æskunni sem er hve glöð, að um ofhlæði sé að ræða í hljóðfæra- leiknum þannig að úr verður of þykkur hljómveggur sem hvert hljóðfæri sekkur í. Annars er ég svo mikill auli í tæknibelli- brögðum að ég treysti mér ekki til að skrifa lærðar setningar um þetta. En til að skýra mál mitt með einu dæmi, þá finnst mér hinn góði gítarleikur Þórðar Árnasonar ekki vera nógu nálægt manni - ekki eins og hann komi beint af skeppnunni - í Kol- beinsvöku t.d.. Hins vegar finnst mér söngurinn vera á hárréttum stað, svona framarlega, enda hafa Stuðmenn ekkert að fela í þeim efnum, hvorki tónlistar- né textalega. Efnislega eru textarnir á Hve glöð er vor æska í grínstílnum (fyrir utan Grýlulegt Víetnam- lagið hennar Ragnhildar, sem margur áttar sig þó kannski ekki á að er alvarlegs eðlis), og líklega er íslenzk fvndni, sem er frekari útfærsla á atriði í Stuðmanna- myndinni Með allt á hreinu, snið- ugasti textinn, ásamt framand- legri lýsingu á Sumri í Reykjavík. Auk þess eru bæði lögin mjög góð í kringum textana (Fyndni eftir Egil, Sumar eftir Jakob - sem er reyndar meiri melódía en Fyndnin), og íslensk fyndni alveg yndislega skemmtilega flutt. Svo er það náttúrulega smellur sumarsins Ofboðslega frægur (eða Komdu sæll og blessaður eins og vor glaða æska kvað kalla það þegar hún pantar lagið á út- varpsstöðvum). Fólk hefur mikið velt fyrir sér hver sé söguhetjan, og stungið upp á mönnum eins og Megasi og Valgeiri, en líklega er þetta blanda af persónum, sem Stuðmenn setja svo í sinn sérs- taka spéspegil. Lagið er virkilega grípandi, og textinn líka - hvers- dagsleg orð og sagan er svo sem lítil, bara þessi forvitnilega mynd af Valgasi, eða Megeiri eða Gas- geiri... Egill á mest í þessum söng, en fær aðstoð frá Þórði og Jakobi við textasmíðina. (Ég held að Vigdís forseti ætti að gerast verndari þessa lags, í framhaldi af þeirri viðleitni sinni að kenna börnum að heilsa öðruvísi en með hæ). Egill á svo einn Bröttubrekku, mjög gott lag og líka skemmti- legur texti - það vill nú reyndar þannig til að mér finnast lög Egils á þessari glaðlegu æskuplötu vera best, með Sumarið hans Jakobs á hælunum. Svo eru samvinnu- verkefni sveitarinnar ekki slök, Ilingað og ekki lengra og síðar en ekki síður Auga fyrir auga, þar sem sungið er í óperusöngstíl - og Ragnhildur fer á kostum sem ten- ór, nú mega þeir skagfirsku fara að vara sig. Ragnhildur á tvö lög á plöt- unni, áðurnefnt Víetnam, sem setur skemmtilegan vinkil á Stuð- menn - aðra vídd sem Ragga óneitanlega færði í bandið - bæði hljóðrænt og sjónrænt. Hitt er Ég verð að prófa þetta aftur, ágætt rokklag með vafasömum texta í stíl - um unga stúlku sem veit ekki hvers konar „vítamín" gæ- inn er að gefa henni sem hún verður svo hress af að hún verður að prófa aftur. En ég verð að segja um það lag eins og Kol- beinsvöku, og Berum út dívan- ana og Það er enginn vafi að hann er orðinn afi (Um hvern skyldi það annars vera?), að þau lög finnast mér heldur ofhlaðin af undirspili - eru miklu skemmti- legri „læf“. Það er í raun og veru bara eitt leiðinlegt lag á plötunni - Færið mér aspirín, en Stuðmenn hafa auðvitað ráð gegn því- eða Þórð- ur. í textanum segir nefnilega söguhetjan, misheppnaður og grútþunnur maður: „Mér finnst þetta afleitur texti og hundleiðin- legt lag...“ - þannig að hvað get- ur maður gert nema fflað leiðind- in í botn með söngvaranum (Agli), sem lifir sig gjörsamlega inn í líf þessa manns sem vaknar upp við það í hrikalegri þynnku að konan og hundurinn eru farin frá honum...? Þá eru ónefndir á nafn tveir Stuðmanna, sem sjá um kjölfest- una: Tómas er alltaf fastur fyrir og setur auk þess virkilega góða og fallega bassapunkta í lögin - og Ásgeir trommari - maður fer bara hjá sér við að vera að setja einhverja mælistiku á þessa menn. Þeir eru bara óaðfinnan- legir og meira en það! Það er nefnilega opinbert leynivopn Stuðmanna sem þeir slugsa aldrei við að nota - að vera óaðfinnan- legir og oftast svo miklumeira en það. Þeir halda nefnilega aldeilis vel um sköftin, og láta hug fylgja máli. Og það er staðreynd að þessi skífa hefur þegar glatt ís- lenska æsku til anda og fóta. A TJALDIÐ Háskólabíó Leitin að Rauða október (The hunt for Red Oktober)** John McTieman, sá sem gerði Die Hard, er nú komin ai fimmtugustu hæð og niður á fimmhundruð metra dýpi. Sean Connery í hlutverki rússnesks kafbátaforingja ákveð- ur að flýja til Bandaríkjanna með kafbátinn. Fyrsta nostalgíumyndin um kalda stríðið en alveg örugglega ekki sú síðasta. — SIF Miami Blues* Er þetta ástarsaga með ofbeldisívafi eða öfugt? Ég veit það ekki og mér er ekki Ijóst hvort George Armitage, sem bæði semur handrit og leikstýrir, er það Ijóst heldur. Baldwin og Leigh leika glæpamenn og gleðikonu, sem bæði eiga auðvitað sínar góðu hliðar. Það er Fred Ward sem á stjörnu skilið fyrir að leika eina óvenjuleg- ustu löggu sem ég hef séð lengi. - SIF Vinstri fóturinn (My left foot)**** Algjörlega yndisleg mynd sem maður get- ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar óðurtil líkamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni í hlutverki Christy Brown að vinstri fótur er allt sem maður þarf til að vera sjarmerandi og sexy. /SIF Shirley Valentine*** Pauline Collins fer á kostum sem Shirley Valentine! (Þetta er klisja en það er alveg satt. Shirley er kona sem talar við eldhús- vegginn sinn, afþvi allir aðrir í kringum hana eru svo leiðinlegir. Svo talar hún líka við stein en hann skilur hana ekki afþví hann er grískur. Þetta er skemmtileg mynd um konu sem er dálitið galin og skammast sin ekkert fyrir það. - SIF Cinema Paradiso (Paradísarbíóið) * ★ ★ ★ Það er í rauninni fáránlegt að vera að gefa svona mynd stjörnur, því hún er langt yfir alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er að- eins gerð einu sinni og þessvegna má eng- inn sem hefur hið minnsta gaman af kvik- myndum missa af henni. - SIF Siðanefnd lögreglunnar (Internal affairs)*1/? Það eru aðalleikararnir Gere og Garcia sem fá þessar stjörnur, þeir eru báðir góðir, allt of góðir fyrir þetta lólega handrit sem er mengað af kvenfyrirlitningu. - SIF Horft um öxl (Látum það flakka) 0 Þetta er ein leiðinlegasta mynd sem ég hef séð lengi. Hún er svo fyrirsjáanleg að mað- ur getur farið heim eftir fimm mínútur og samt vitað endinn. Ég skil bara ekki hvað afburðaleikarar á borð við Hopper og Sutherland eru að gera þarna. - SIF Stjörnubíó Stálblóm (Steel magnolias)*** Þetta er ekki „skemmtilegasta gaman- mynd allra tírna" eins og stóndur i auglýs- ingunni. Þetta er reglulega skemmtileg mynd um líf sex vinkvenna í smábæ. En lífið er ekki alltaf tóm skemmtun svo að þið skulið taka einn vasaklút með. - SIF Fjölskyldumól**1/2 Mynd um þetta eilifa vandamál hverjir geta eignast börn og hverjir ekki og hversvegna það passar ekki að þeir sem geti það vilji það. Söguþráðurinn er ósköp einfaldur en leikurinn stórgóður, sérstaklega hjá hinni ungu Mary Stewart Masterson. — SIF Laugarásbíó Unglingagengin (Cry baby)*** Dans og söngvamynd a la John Waters. Töffara strákur verður hrifinn af prúðri stelpu og gagnkvæmt. Síðan syngja þau I gegnum alla erfiðleikana. Ef ykkur finnst að þið kannist við söguþráðinn þá skuluð þið samt fara því útfærslan er alveg splunkuný. - SIF Bíóborgin Fullkominn hugur (Total Recall)** Schwarzenegger er i súperformi og hegg- ur mann og annan. Skýtur þá, lemur þá og stingur þá. Öll þessi dráp eru tæknilega mjög vel gerð og fólk sem hefur gaman af svoleiðis ætti að vera ánægt. En sögu- þráðurinn drukknar í blóði og maður bjóst svo sem við meiru frá manninum sem gerði framtíðarþrillerinn Robocop. - SIF Regnboginn l slæmum félagsskap (Bad Influence)*** Stórgóður tryllir með Rob Lowe og James Spader í aðalhlutverkum. Þeir sem líta hornauga á Lowe fyrirallar lélegu myndirn- ar sem hann hefur leikið í ættu að gefa honum sjens því hér sýnir hann að hann getur meira en brosað fallega. Djöfullinn er ennþá á lífi og býr í Los Angeles. - SIF 24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 3. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.