Þjóðviljinn - 03.08.1990, Qupperneq 25
FIM-salurinn, Garðastræti 6, Inga
Þórey Jóhannsdóttir, málverk, opið
alla daga kl. 14-18, til 7.8. Ath. síð-
asta sýningarhelgi.
Gallerí 11, Skólavörðustíg 4a. Þór-
unn Hjartardóttir opnaði í gær mál-
verkasýningu, opin kl. 14-18 dag-
lega, til 16.8.
MYNDLISTIN
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
mákl. 10-18. Prentminjasýning íMið-
húsi, kaffi í Dillonshúsi, Krambúð, og
stríðasárasýningin: „Og svo kom
blessað stríðið.
Ásmundarsalur, Helgi Valgeirsson
sýnir teikningar og málverk. Opið
daglega kl. 14-22, til 6.8. Ath. síðasta
sýningarhelgi.
Eden, Hveragerði. SteingrímurSt.
Th. Sigurðsson heldur sína 70. sýn-
ingu, henni lýkur á má. Á su kl. 21
syngur Guðbjört Kiven íslensk og ít-
ölsk lög við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar.
Ferstikluskáli Hvalfirði, RúnaGísla-
dóttir sýnir vatnslita-, akryl-, og klippi-
myndir. Opið fram til kl. 23 dag hvern.
Sigrún Ólafsdóttir opnar sýningu á
sjö skúlptúrum í Nýlistasafninu á
morgun kl. 16. Einkasýning Níelsar
Hafstein og sýningu á verkum úr eigu
safnsins hefur verið framlengd til 19.
þessa mánaðar. Á myndinni má sjá
einn af skúlptúrum Sigrúnar, sem út-
skrifaðist úr myndhöggvaradeild
Myndlista- og handíðarskóla Islands í
fyrra.
Gallerí 8, Austurstræti 8, sýnd og
seld verk e/um 60 listamenn, olíu-,
vatnslita-, og grafíkmyndir, teikning-
ar, keramík, glerverk, vefnaður, silf-
urskartgripirog bækurum íslenska
myndlist. Opið virka daga og lau kl.
10-18 og su 14-18.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opið lau 10-14.
Gallerí Nýhöfn, Alcopley, málverk
og teikningar. Sýningin er opin virka
daga nema má kl. 10-18, og kl. 14-18
umhelgar.
Haf narborg, nýr sýningarsalur;
Sverrissalur: sýning á verkum úr
listaverkasafni hjónanna Sverris
Magnússonar og Ingibjargar Sigur-
jónsdóttur, sem þau gáfu safninu.
Opiðalladaganemaþri kl. 14-19,til
27.8.
Kjarvalsstaðir, árleg sumarsýning á
verkum Kjarvals, nú undir yfirskrift-
inni Land og fólk. Vestursalur: Nína
Gautadóttir, málverk. Opið daglega
frákl. 11-18.
Listasafn Einars Jónssonaropið
alla daga nema má 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-17.
Llstasafn fslands, sumarsýning á
Hin voðaliga
eldsins eimyrja
Snögg þrýstingslækkun verður
þegar kvika stígur úr djúpunum
upp í sprungu eða gíg á yfirborði
jarðar; einkum á síðustu hundrað
metrunum eða svo. Gosgufur
sem byrgðar eru í bráðinni losna
með mismiklu afli þannig að hluti
kvikunnar verður að frauði sem
kastast frá eldrásinni. Stærstu
einingarnar falla næst eldstöðinni
en þær smærri feykjast með vind-
um á braut.-
Lengi var lausi hluti gosefn-
anna nefndur gosmöl en síðar
innleiddi Sigurður Þórarinsson
hugtakið gjóska sem safnheiti.
Gjósku má svo skipta í ýmsar
gerðir eftir meðalstærð eining-
anna (kornastærð) og útliti og að
nokkru uppruna. Heiti eins og
aska, vikur, gjall o.fl. eru höfð
um gerðirnar, óháð bergtegund.
Því er t.d. talað um basaltvikur
og líparítvikur.
Það eru bæði ytri aðstæður eða
efnasamsetning kviku (bergteg-
undin sem til verður við storknun
hennar) sem ráða hve stór hluti
kviku í gosi verður að gjósku og
með hverjum hætti hún gýs úr
eldstöðinni. Seig kvika, eins og
t.d. súr líparítkvika, hefur til-
hneigingu til að tapa gosgufunum
(afgasast) með látum en mjög
þunnfljótandi basaltkvika skilar
lítilli sem engri gjósku við afgös-
unina. En löng goshlé (og/eða
hár þrýstingur í kvikugeymi),
fyrirstaða í eða ofan við gosrás og
síðast en ekki síst jarðvatn, fersk-
vatn, sjór eða leysingavatn jöku-
líss verka venjulega til aukinnar
gjóskuframleiðslu og skiptir þá
kvikutegundin ekki meginmáli.
Ýmsar eldstöðvar eru kunnar
að gjóskuframleiðslu, t.d. Hekla
(m.a. vegna seigrar kviku), Katla
(m.a.vegna jökulsins) og Veiði-
vötn (m.a. líklega vegna mikils
jarðvatns grunnt í berggrunnin-
um). Gjóskudreifar misgamalla
gosa í þessum eldstöðvum og
mörgum öðrum hafa verið kort-
lagðar og gjóskan efnagreind og
er oftast einhver munur á sam-
setningu þeirra, eins þótt þær séu
úr sömu eldstöð. Sigurður Þórar-
insson var drjúgur við þessa iðju
og raunar aðrir jarðfræðingar, en
hann og Hákon Bjarnason (lengi
skógræktarstjóri) hófu að nota
gjóskulög í jarðvegi til þess að
aldursgreina hann og athuga m.a.
hve hratt hann hefði þykknað.
Smám saman voru lögin notuð til
að aldursetja ýmis fyrirbæri svo
sem hraun undir eða yfir gjósku-
íslenskum verkum í eigu safnsins.
Opiðdaglegakl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau og su kl. 14-18, má, þri, mi
og fi kl. 20-22. T ónleikar á þriðju-
dagskvöldum kl.20:30.
Menntamálaráðuneytið, Húbert Nói
og Þorvaldur Þorsteinsson. Út þenn-
an mánuð.
Minjasafn Akureyrar, Landnám í
Eyjafirði heitirsýning áfornminjum.
Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9.1
Laxdalshúsi Ijósmyndasýningin Ak-
ureyri, opið daglega kl. 15-17.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar, húsi
safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16.
Norræna húsið, kjallari: Snorri Arin-
bjarnar, málverk. Opin 14-19 dag-
lega, til 26.8.
Nýlistasafnið Vatnsstíg 3b, þrjár
sýningar: Forsalur/gryfja: Sigrún Ól-
afsdóttir oþnar sýningu á morgun kl.
16,7 skúlþtúrar. Miðhæð: Níels Haf-
stein. SÚM-salur:ÁstaÓlafsdóttir,
(varValgarðsson, RúnaÁ. Þorkels-
dóttirog ÞórVigfússon. Oþið kl. 14-
18
Reykholt, M-hátíð í Borgarfirði, sýn-
ing borgfirskra myndlistarmanna.
Samsýning 19 listamanna. Oþið dag-
legakl. 13-18, til 6.8. Ath.síðasta
sýningarhelgi.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, sumarsýning á olíu-
myndum og vatnslitamyndum. Oþið
alla daga nema má kl. 13:30-16.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið alla daga nema má kl. 14-
18.
Skálholtsskóli, Gunnar Örn Gunn-
arsson, sýningin Sumar í Skálholti,
opin júlí-ágúst kl. 13-17.
Þjóðminjasafnið, opið 15.5-15.9
alladaganemamákl. 11-16.Boga-
salur: Frá Englum og Keltum.
TÓNLISTIN
Friðþjófssaga flutt af Finnsku kam-
meróperunni Helsinki í Valhöll á lau
kl. 15 og 20:30, í Norræna húsinu su
kl. 16. Sagan er eftir Esaias Tegnér,
en tónlistin eftir Bernhard Crusell.
Verkið er flutt á sænsku. Leikstjóri er
Lisbeth Landefort, söngvarareru:
Tuula-MarjaTuomela, Matti Pasan-
en, Risto Hirvonen og Petri Lindroos.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju,
þriðja helgi: lau kl. 15 Árstíðirnar eftir
ÚR RÍKI
NÁTTÚRUNNAR
inu í kringum 900 (aðeins dæmi
frá sögulegum tíma). Gjóskulög
eru líka mikið notuð til þess að
endursegja gossögu einstakra
eldstöðva, ásamt með athugun á
fyrri tíma heimildum, hraunum
(hafi þau runnið) o.fl.
Þegar gjóskulög eru notuð til
aldursgreiningar þarf gosárið
(áratugurinn eða öldin ef ekki vill
betur) að vera þekkt með vissu,
einnig þarf að rannsaka eins vel
og unnt er afstöðu þess sem
aldurssetja á til gjóskunnar og
þar kemur oft við sögu jarðvegs-
þykknunin; þ.e. hve hratt heftir
jarðvegur þykknað ef jarðvegs-
lag er undir eða ofan á gjóskunni,
milli hennar og fyrirbærisins.
Þykknunarhraðinn er mismun-
andi eftir landshlutum og tímum,
því fljótlega eftir landnám
þykknaði jarðvegur í byggð mun
hraðar'en áður. Sum átöl (eða
árabil) gosa eru enn í umræðu og
fyrir kemur að vísindamenn eru
ekki sammála um hve langan
tíma jarðvegslög milli gjósku og
fyrirbæris spanna. En það sann-
ast með gjósku og gjóskulaga-
tímatal að án umræðu, rökstuðn-
ings og rannsókna staðna vísind-
in.
lagi, fornminjar og jökulgarða.
Allmörg gjóskulög eru bæði
fremur auðþekkjanleg á lit og af-
stöðu til annarra laga og einnig
nokkuð útbreidd. Þau hafa hent-
að sem eins konar leiðarlög í því
Dreifing og
þykkt gjóskuúr
Öræfajökulgosinu
1362 samkvæmt
athugunumSig-
urðar Þórarins-
sonar. Ádekksta
svæðinu er
gjóskuþykktin yfir
20 sentimetrar,
þarnæst milli 10
og 20 sentimetrar,
þá 5-10senti-
metrar, þá 2-5
sentimetrar, síðan
1 -2 sentimetrar
ogloks 0,1-1
sentimetri. Geysi-
mikiðtjónvarðí
byggð næsteld-
fjallinu.
(Tekiðeftir AraG.
Guðmundssyni
fslandseldar,
1986)
sem nefnt er gjóskutímatalsfræði
(tefra(gjósku)-krónó(tíma)-
lógía (fræði) er alþjóðlega fræði-
heitið). Þar má nefna lög úr Hek-
lugosi 1104, Öræfajökulsgosi
1362 og innan af Veiðivatnasvæð-
Hvað á að gera um helgina?
Silja Aðalsteinsdóttir
Bókmenntafræðingur og rithöfundur
Ég varð nú grasekkja í gær, svo ég má kannski ekki segjast ætla að
gera neitt! En aðallega ætla ég að vinna, sitja við tölvuna og spjalla við
hana um Bubba Morthens. Svo vona ég að timi gefist til að hitta
vjnkonur mínar og spjalla við þær.
Vivaldi, flytjendur eru Bachsveitin í
Skálholti og Ann Wallström leikur ein-
leik á fiðlu. Kl. 17: Helga Ingólfsdóttir,
einleikurásembalverk eftir J.S.
Bach og Leif Þórarinsson. Tónleik-
arnir eru alltaf á lau kl. 15 og 17, og á
su kl 17 að þessu sinni og á má kl. 15.
Sumartónleikar á Norðausturlandi,
Sönghópurinn Hljómeyki, stj. Hjálm-
ar R. Ragnarsson. I kvöld í Reykja-
hlíðarkirkju kl. 20:30, á lau í Húsavík-
urkirkju kl. 20:30, su í Akureyrarkirkju
kl. 17
LEIKLISTIN
Ferðaleikhúsið, Tjarnarbíói Tjarn-
argötu 10E, Light Nights, í kvöld, lau
og su kl. 21.
HITT OG ÞETTA
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni á morgun lau, lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum mola-
kaffi. Púttvöllurinn á Rútstúni öllum
opinn.
Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar
hittast á morgun lau kl. 10 að Nóatúni
17. Goðheimar lokaðir
Útivist, sunnudagur: Kl. 10:30:
Prestagígar, verðkr. 1000. Kl. 13:
Tóastígur- Rauðasel. Mánudagur:
Kl. 08 Básar í Goðalandi kr. 1500.
Kaupstaðarferð; kl. 08 Fljótshólar-
Eyrarbakki, kl. 13 Þuríðarbúð - Eyrar-
bakki.kl. 13Flóinn,skoðunarferðí
rútu. Brottför frá BSl-bensínsölu, Ár-
bæjarsafni og Fossanesti á Selfossi
klst. síðar en fráBSÍ.
Ferðaféiag íslands, fimm helgar-
ferðir, brottför í kvöld kl. 20: Þórsmörk
- Langidalur, Þórsmörk -
Fimmvörðuháls, Lakagígar- Fjalla-
baksleið syðri, Nýidalur - T rölla-
dyngja, Landmannalaugar- Eldgjá.
Nánari uppl. og farmiðar á skrifst.
Sunnudagur kl. 08 Þórsmörk (dags-
ferð). Kl. 13 Fóelluvötn - Lyklafell.
Mánudagur: 08 Þórsmörk (dagsferð),
kl. 13 Gullkistugjá - Helgafell.
Föstudagur 3. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25