Þjóðviljinn - 03.08.1990, Side 28
r
rétti tíminn til að reyna sig!
Sjálfspilandi píanó
komin aftur
Maöur ýtir á hnapp og píanóið í
stofunni fer að spila rétt eins og
draugur væri að verki. Það er
reyndar langt síðan að slíkur
galdur var upp fundinn. Aðferðin
var sú að skrá lagið sem leika átti
með götum á pappírslengjur sem
voru látnar renna yfir appírat sem
ýtti á réttar nótur (réttri röð.
Sjálfspilandi píanó af þessu
tagi voru algeng um það bil sem
grammófónninn fæddist og þau
héldu velli fram eftir hljóðritun-
aröld - m.a. vegna þess, hve
hljóðin sem úr trektum grammó-
fónsins bárust voru óf-
ullnægjandi. Gallinn varhinsveg-
ar sá, að með þessari aðferð var
ekki hægt að skrá til endurflutn-
ings mikið meira en nóturnar
sjálfar og tímasetningus ásláttar.
Sjálfspilandi píanóum var því
hent þegar hljóðritanir fóru að
batna - að þeim fáu undan
skildum sem lentu á söfnum.
Með öllum
blæbrigðum
En nú er búið að gifta hana
Möngu upp á nýtt - með öðrum
orðum leiða saman í hjúskap
þessa gömlu hugmynd og nýjustu
möguleika rafeindaaldar. Af-
kvæmið er smíðað í Japan eins og
vænta mátti, hjá Yamaha, og
heitir Disklavier.
Munurinn á Disklavier og
sjálfspilandi píanóunum gömlu
er mikill. Sem fyrr segir gerðu
þau gömlu ekki mikið meira en
að „halda lagi“ ef svo mætti að
orði kveða. En Disklavier getur
skráð og flutt píanóverk með allri
þeirri nákvæmni á blæbrigði í leik
sem kröfuharðir nútímamenn
gera. Með því að breyta öllum
sérkennum einmitt þess flutnings
sem tekinn er upp - og þá lika
feilnótum og hraðavillum - í raf-
eindaboð sem fara inn á ósköp
venjulega diskhettu.
Nákvæmir
draugar
Nákvæmnin fæst með því að
við hverja hinna 88 nótna á pían-
ói eru tengdir þrír skynjarar í
formi ljósgeisla og móttakara
fyrir geislann. Og geta þeir skilað
til tölvunnar sem upptökuna ann-
ast nákvæmum skilaboðum um
það, hve fast eða létt er á hverja
nótu slegið og hve lengi henni er
haldið niðri.
Draugurinn sem spilar svo
verkið er rafsegulbúnaður sem
festur er við innri hluta hverrar
nótu. Heitir hann solenoid. Þeg-
ar spilað er, segir tölvan hverjum
solenoid að bregðast við með því
afli sem listamaðurinn gaf henni.
Eins og
heitar lummur
Sérfræðingar heyra engan mun
á „lifandi" leik og flutningi Dis-
klaviers og appíratið nýtur mik-
illa vinsælda. Yamaha hefur þeg-
ar gefið út meira en hundrað dis-
klinga fyrir þessi píanó og mun
þeim fjölga fljótt.
Disklavier var fyrst ætlað at-
vinnutónlistarmönnum sem vildu
stúdera sem innvirðulegast sinn
leik og annarra (það er náttúrlega
hægt að spila aftur og aftur sömu
kafla verksins til dæmis). En um
helmingur þeirra tækja sem fram-
leidd hafa verið hafa verið keypt
af fólki sem ekki spilar á píanó,
en vill hafa þennan tæknigaldur
sér til skemmtunar. Verðið er um
hálf miljón króna fyrir venjulegt
píanó en tæpar tvær fyrir sjálf-
spilandi flygil. Það fylgir sögunni
einnig að Yamaha hafi ekki við
að framleiða upp í pantanir og
hafi þegar myndast margra ára
biðlisti.
áb byggði á IHT.