Þjóðviljinn - 16.08.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Kvikmyndir
Ævintýri
Pappírs Pésa
Ný íslensk barna- ogfjölskyldumynd
verðurfrumsýndþann 1. september
M
argir krakkar kannast við
Pappírs Pésa, nú hefur Hrif
h/f nýlokið við kvikmynd í fullri
lengd um ævintýri hans, og verð-
ur hún frumsýnd 1. september
næstkomandi.
Hugmyndina að Pappírs Pésa
átti Herdís Egilsdóttir, en hand-
ritið að myndinni skrifaði Ari
Kristinsson, og er hann jafnframt
leikstjóri myndarinnar. Fram-
leiðandi er Vilhjálmur Ragnars-
son. Kvikmyndatöku önnuðust
Tony Forsberg og Jón Karl
Helgason, aðalleikmyndahönn-
uður myndarinnar er Geir Ótt-
arr, en tónlistina samdi Valgeir
Guðjónsson.
Pappírs Pési er teikning sem
Armannsfell
Almennt útboð
hlutabréfa
Ármannsfell hf hefur falið
Verðbréfamarkaði Islandsbanka
að annast fyrir sig almennt útboð
hlutabréfa að nafnvirði 31 miljón
króna á genginu 2,25. Útboðið er
opið og hafa hluthafar fallið frá
forkaupsrétti.
Gert er ráð fyrir að umsvif
Ármannsfells tvöfaldist á árun-
um 1990-1991 og hafa verksamn-
ingar fyrir um einn miljarð króna
verið undirritaðir vegna bygging-
aframkvæmda á næstu 18 mánuð-
um. Þeirra á meðal eru flokkun-
arstöð fyrir Sorpeyðingarstöð
höfuðborgarsvæðisins í Gufu-
nesi, fjölbýlishús með 42 íbúðum
fyrir Samtökin Réttarholt og fjöl-
býlishús með 54 íbúðum fyrir
Samtök aldraðra.
Velta Ármannsfells á síðásta
ári var 533 miljónir króna, hagn-
aður 16 miljónir og eigið fé 117
miljónir króna. _gáf
T
lifnar við, eins og þeir sem lesið
hafa söguna og sáu stuttmyndim-
ar, sem Hrif hefur þegar framleitt
um Pésa þennan, vita. í myndinni
segir frá nýjum ævintýrum og
uppátækjum krakkanna og fé-
laga þeirra úr pappír. Þau lenda í
útistöðum við geðstirða ná-
granna og hrekkjusvínagengið,
fremja alls kyns prakkarastrik,
taka þátt í hörkuspennandi kass-
abflaralli, og meira að segja dul-
arfullt geimskip kemur og við
sögu svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er fyrsta kvikmyndin í
fullri lengd sem Hrif h/f framleið-
ir og fyrsta íslenska barnamyndin
í tæpan áratug.
Pappírs Pési kostaði tæpar 50
miljónir, og styrkti Kvikmynda-
sjóður íslands framleiðslu henn-
Atriöi úr myndinni Ævintýri Pappírs Pésa sem frumsýnd verður bráðlega. Krakkarnir hressu eru aðalleikar-
ar myndarinnar og heita; Rannveig Jónsdóttir, Ingóltur Guðvarðarson, Kristmann Óskarsson og Högni
Snær Hauksson.
Kvikmyndin um ævintýri Pésa
og krakkana er tekin upp í Hafn-
arfirði sumrin 1989 og 1990, og
eru flestir leikaranna börn. Með
aðalhlutverk fara þau Kristmann
Óskarsson 10 ára, Högni Snær
Hauksson 9 ára, Rannveig Jóns-
dóttir 11 ára, Ingólfur Guð-
varðarson 12 ára og Rajeev Muru
Kesvan 9 ára, auk þess er gaman-
leikarinn Magnús Ólafsson í
stóru hlutverki í myndinni.
Ætlunin var að frumsýna
myndina fyrr en raun ber vitni en
að sögn Vilhjálms Ragnarssonar
áttu þeir Hrifs-menn við tækni-
lega örðugleika að stríða, en þar
kom einnig til að margir þeirra,
m.a. Ari Kristinsson, hafa verið
önnum kafnir við undirbúning og
fyrstu tökur á mynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar Börnum náttúr-
unnar eins og frá var greint í
Þjóðviljanum í gær.
Tónlist
Góð aðsókn í þunga rokkið
Óvíst hvort SVR geti staðið við loforð um að koma tónleikagestum
Whitesnake af tónleikununum
Pað lítur út fyrir að verða góð
aðsókn á tónleika þunga-
rokkssveitarinnar Whitesnake,
sem verða í Reiðhöllinni 7. og 8.
september. Samkvæmt upplýs-
ingum Þórdísar Unu Gunnars-
dóttur í miðasölu tónleikanna, er
svo gott sem uppselt á uppákomu
Whitesnake og upphitunarhljóm-
sveitarinnar Quireboys fyrra
kvöldið.
Þórdís Una sagði alla miða á
tónleika Whitesnake föstudaginn
7. september vera upp uma hjá
aðalmiðasölu tónleikanna.
Eitthvað væri þó eftir af miðum
hjá hljómplötuverslunum í
Reykjavík og úti um land. í fyrstu
var ætlunin að selja 5,500 miða á
hvora tónleika en Þórdís Una
sagði að líklega yrðu þeir ekki
nema 5,000. Þetta ylti á sam-
þykkt lögreglu og slökkviliðs.
Aðstandendur tónleikanna
hafa skriflegt loforð í höndunum
frá Strætisvögnum Reykjavíkur
um að keyra tónleikagesti af tón-
leikunum. Eftir átök strætis-
vagnabflstjóra við unglinga í
Breiðholti, hafa bflstjórar SVR
hins vegar neitað að keyra ung-
linga af tónleikum, þar sem ætla
má að áfengi hafi verið haft um
hönd. Þórdís Una sagði að þetta
myndi ekki hafa áhrif á tón-
leikana. Ef SVR stæði ekki við
sitt loforð myndu tónleikahaldar-
ar útvega rútur í þennan akstur.
Þórdís Una sagði mikinn áhuga
á tónleikum Whitesnake hjá fólki
á öllum aldri, þó aðallega væru
það unglingar sem keypt hefðu
miða. Áhugi landsbyggðarfólks
væri einnig mikill miðað við þær
fyrirspurnir sem borist hefðu.
Whitesnake hefur verið á tón-
leikaferðalagi um Evrópu að
undar.förnu, ma. í fylgd með öðr-
um þungarokkssveitum undir
slagorðinu „Monsters of Rock“,
eða Rokkskrímslin. Hljóm-
sveitin mun koma fram á þungar-
okkshátíð í Donnington í Eng-
landi um næstu helgi, þar sem
tvær íslenskar stúlkur verða á
meðal tónleikagesta. Stúlkurnar,
Stefanía Sif Wiliamsdóttir frá
Garðabæ og Fjóla Víðisdóttir frá
Bolungarvík, unnu ferð á tón-
Ieikana með því að taka þátt í
aðgöngumiðahappdrætti tónleik-
anna í Reiðhöllinni.
Hörður Gíslason skrifstofu-
stjóri hjá SVR sagðist ekki geta
svarað því h'/ort SVR komi til
með að standa við loforð sitt um
akstur af tónleikunum. Það lægi
Ijóst fyrir að bflstjórar fyrirtækis-
ins neituðu að keyra unglinga af
samkomu sem þessari. Hörður
sagði að SVR muni ekki draga
aðstandendur tónleikanna lengi á
svari en það væri verið að leita
leiða til að standa við loforðið.
-hmp
Þjóðlög í Opnu húsi
Helga Jóhannsdóttir þjóðlaga-
safnari talar um íslensk þjóðlög
fyrr og nú og leikur tóndæmi af
snældu á næst síðasta Opna húsi
þessa sumars í Norræna húsinu.
Helga hefur gegnum árin ferðast
um Island og safnað lögum sem
annars var hætta á að fallið hefðu
í gleymsku. Hún flytur mál sitt á
sænsku, en dagskráin er einkum
ætluð ferðamönnum frá Norður-
löndum. Eftir hlé syngur ung
söngkona, Sigríður Jónsdóttir,
nokkur íslensk þjóðlög. Sigríður
stundaði söngnám við Söng-
skólann í Reykjavík. Hún fór í
framhaldsnám í tónlist með söng •
sem aðalgrein í Bandaríkjunum
og lauk BA-prófi frá háskólanum
í Illinois 1989.
Sænsk tónlistar-
kona heiðruð
Sænska fiðluleikaranum Ann
Wallström voru veitt fyrstu verð-
laun úr verðlauna- og styrktar-
sjóði sem nokkrir velunnarar
Sumartónleika Skálholtskirkju
hafa stofnað til að efla iðkun bar-
okktónlistar. Wallström voru
veitt verðlaunin að loknum tón-
leikum í Skálholti um verslun-
armannahelgina. Á vegum
HI
Halldóra Emilsdóttir.
Dinglað milli veruleika
Nú stendur yfir í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9, myndlistarsýn-
ing Halldóru Emilsdóttur. Halldóra stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands, málaradeild, 1982-1987 og við Gerrit Rietveld
Academie Amsterdam 1987-1989. Hún hefur haldið tvær einkasýning-
ar og tekið þátt í nokkrum samsýningum. í fréttatilkynningu um
sýninguna segir að myndirnar hafi orðið til á árunum 1988-1990. „Þær
hafa ekki hátt, en vilja fá að dingla milli veruleika eins og þær koma
fyrir, án frekari útfærslu." Myndirnar eru unnar með Gvasslitum á
pappír og eru án titils. Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin á
verslunartíma frá 9-18.
Sumartónleika í Skálholti starfar
Bachsveitin í Skálholti. Þetta er
lítil strengjasveit sem leggur sig
fram við túlkun barokktónlistar.
Leiðsögn og forysta Bachsveitar-
innar hefur frá upphafi verið í
höndum Ann Wallström, sem
hefur sérhæft sig í leik á strok-
hljóðfæri frá barokktímanum.
Wallström hefur komið í Skálholt
á hverju sumri í sex ár til hljóð-
færaleiks og þjálfunar Bachsveit-
arinnar. Verðlaunaveitingin fór
fram í Skálholti að loknum flutn-
ingi Árstíðanna eftir Vivaldi.
Ætlunin er að veitt verði úr fyrr-
greindum sjóði á hverju sumri,
ýmist í heiðursskyni eða til þess
að styrkja hljóðfæraleikara til að
afla sér aukinnar þekkingar í
túlkun barokktónlistar.
Fyrirlestur um
umhverfismenntun
William Andrews prófessor í um-
hverfisfræði við Háskólann í Tor-
onto í Kanada heldur opinn fyrir-
lestur í Kennaraháskóla íslands
föstudaginn 17. ágúst kl. 15.
Fyrirlesturinn er á ensku og ber
yfirskriftina „Environmental
Education for the Future“. And-
rews mun ræða um mestu um-
hverfisvandamál jarðar, hverju
við þurfum að breyta til að jörðin
verði áfram byggileg og hvað
kennarar geti gert í því sambandi.
Andrews er staddur hér á landi til
að kenna á námskeiði fyrir kenn-
ara, sem haldið verður í Alviðru í
Ölfusi á vegum Samtaka líffræð-
ikennara og endurmenntunar
Kennaraháskólans og Háskóla
íslands. Hann er efnafræðingur
en hefur sl. 20 ár sérhæft sig í að
mennta kanadíska kennara í um-
hverfisfræði. Einnig hefur hann
samið námsefni á því sviði fyrir
unglinga- og framhaldsskólastig.
Danskur kór
í heimsókn
Danski kammerkórinn Corda
Vocale heldur tónleika í Laugar-
neskirkjuíkvöld kl. 20.30. Efnis-
skráin samanstendur af fjöl-
breyttu úrvali kirkjulegrar tón-
listar, frá mótettum Schults og
Brahms, Pater Noster eftir Verdi
og til norrænnar kirkjutónlistar
frá þessari öld. Annaðkvöld
verður svo kórinn með tónleika í
Norræna húsinu kl. 20.30. Á efn-
isskrá verður dönsk veraldleg
tónlist frá ýmsum tímum. Áður
en kórinn kom til Reykjavfkur
dvaldi hann þrjá daga í Færeyjum
og hélt tónleika á Seyðisfirði.
Meðlimir kórsins eru 23 en hann
var stofnaður árið 1985 og er
þetta fyrsta utanlandsferð hans.
Kórinn kemur frá Árhus.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 16. ágúst 1990