Þjóðviljinn - 16.08.1990, Blaðsíða 11
I DAG
Viðskipti
Urgur í greiðslukortaheiminum
Búðargluggi í New York: og samt eru margir sem vilja reiðufé og ekkert
plast.
Engin nýmæli í viðskiptum hafa
breiðst út með þvílíkum hraða
sem notkun plastpeninga - með
öðrum orðum greiðslukorta.
Enda segir það sig sjálft að þæg-
indi fylgja þeim veruleg, ekki síst
á ferðalögum. En nú ber á því i
vaxandi mæli, að notendur
greiðslukorta verða fyrir óþæg-
indum: notkun þeirra reynist
ekki eins auðveld og greiðsiukort-
afyrirtækin vildu vera láta. Ein af
ástæðunum er blátt áfram hin
mikla velta í þessum viðskiptum -
önnur er hörð samkeppni milli
fyrirtækjanna sem um þessi við-
skipti keppa.
Þýska vikublaðið Spiegel rekur
í samantekt á dögunum ýmis
dæmi um það, að ferðalangar
verða fyrir því að það er valt að
treysta á greiðslukort: þeim er
neitað um að taka reiðufé út á
þau, þau eru allt í einu lýst ógild,
fleiri hótel og verslanir neita að
taka við plastgreiðslunum en
nokkurn óraði fyrir. Og þykir
þeim þetta sem vonlegt er stinga
mjög í stúf við auglýsingar
greiðslukortafyrirtækjanna um
að „með okkur ertu öruggur við
alla kassa heimsins" eða að „þú
ert múraður á nótt sem degi“ eða
eitthvað í þá veru.
Allmargir hafna
kortum
Sem fyrr segir: vitanlega fylgj a
greiðslukortum mörg þægindi,
ekki síst nú á tímum þegar menn
vilja ekki bera mikið reiðufé á sér
á ferðalögum af ótta við þjófa og
óhöpp. Og að sjálfsögðu gengur
firnamikið af viðskiptum með
plastpeninga snurðulaust. En
það eru ýmsar blikur á lofti. Spi-
egel telur þá erfiðleika sem t.d.
þýskir kortanotendur verða fyrir
hér og þar í heiminum, sem tengj-
ast feiknalega grimmri samkepp-
ni milli greiðslukortafyrirtækj-
anna um viðskiptavini. Þau reyni
að ná til sín viðskiptavinum með
öllum hugsanlegum ráðum - og
þá einnig með loforðum sem ekki
er hægt að standa við.
Til dæmis vilja þau sem fæst af
því vita að um öll lönd er tölvert
af hótelum, veitingahúsum og
verslunum, sem vísa frá sér
greiðslukortum. Greiðslukorta-
fyrirtækin taka allt að sex prósent
þóknun í sinn hlut, svo að það er
ekki nema eðlilegt að margir
reyni að koma sér hjá því að
greiða þann aukakostnað.
Misjafn sauður
En svo er annað. Greiðslukort-
in falla í áliti blátt áfram vegna
þess hve geysilega útbreidd þau
eru orðin. Því stærri sem sá hópur
er sem kortafyrirtækin veita í
rauninni allt að því ótakmarkað
lánstraust, þeim mun hraðar
fjölgar þeim notendum sem ann-
aðhvort ekki vilja eða geta ekki
kunnað fótum sínum forráð á því
freistingasvelli. Þeir fara á svindl-
túr eða innkaupafyllirí og timbur-
menn eru erfiðir og dýrkeyptir.
Þetta þýðir að fyrirtækin verða
að koma sér upp varúðarráð-
stöfunum gegn svikahröppum -
og þær geta nátturlega skollið
með óþægilegum hætti á tiltölu-
lega heiðarlegum viðskiptavin-
um. Þetta er ekki síst orðið áber-
andi í heimalandi plastpening-
anna, Bandaríkjununm. En þar
er orðið sérstaklega erfitt að taka
reiðufé út á greiðslukort (og á
reiðufé þurfa menn enn að halda,
hvort þeim líkar betur eða verr) -
eru í þeirri grein sem hér er vitn-
að til raktar harmatölur af
mönnum, sem stóðu uppi aura-
lausir í sólarhring eða meir með-
an skeyti gengu fram og aftur um
áreiðanleika þeirra greiðsluk-
orts.
Þá kvarta menn yfir því að þeg-
ar gert er upp fyrir notkun bíla-
leigubfla, þá komi inn á greiðslu-
kortareikninga kostnaður sem
mjög erfitt er að leiðrétta eftir á.
Sömuleiðis er það talið koma
óeðlilega oft fyrir að misreiknað
er gengi á gjaldmiðli þeirra landa
þar sem viðskipti fóru fram - og
þá jafnan handhafa greiðslukorts
í óhag. Hverjum svo sem um er
að kenna, segir Spiegel af kurt-
eisi.
Árbœjarsafn
Búskapar- og heimilisiðnaðardagur
Sérstakur búskapar- og heimil-
isiðnaðardagur verður hald-
inn í Árbæjarsafni á sunnudag.
Þar verða sýndar í fyrsta skipti á
safninu ýmsar tegundir af vefnaði
ásamt aðferðinni við að lita ull,
spinna úr hrosshári og sauma
upphlut.
Sýndur verður svokallaður sal-
únsvefnaður í „dönskum vefstól"
og einnig hvernig bönd voru ofin
og brugðin með ýmsum aðferð-
um, spjaldofin, fótofin eða kríl-
uð.
Frá fornu fari hafa íslendingar
klæðst mest fötum í sauðalitun-
um. Þó er saga jurtalitunar
jafngömul þjóðinni og sömu
grösin notuð til litunar þá og nú,
svo sem sortulyng, beitilyng,
fjalldrapi og litunarskóf.
Á baðstofuloftinu í Árbæ verð-
ur tóvinna í fullum gangi, ullin
kembd, spunnin og prjónuð.
Sýnt verður hvernig hrosshár er
spunnið og upphlutsbolur saum-
aður. Til að auka á stemmning-
una mæta félagar úr Kvæða-
mannafélaginu Iðunni og kveða
rímur.
í eldhúsinu verður sýnt hvernig
rjóminn er skilinn frá mjólkinni í
skilvindu og síðan strokkaður í
smjör. Gestir fá að smakka ný-
strokkað smjör og flatbrauð. Þá
verða grautarlummur bakaðar og
sýnt hvernig kaffi var brennt og
malað.
Jón fisksali mætir með fisk-
vagninn sinn og selur harðfisk og
annað ljúfmeti. Krambúðin verð-
ur opin og í Dillonshúsi verður
hægt að kaupa veitingar.
Á laugardag eru gítartónleikar
í Dillonshúsi. Gítarleikararnir
Olle Olson og Þórólfur Stefáns-
son leika tónlist eftir Bach, Bell-
mann, De Falla og fleiri. Tón-
leikarnir hefjast kl. 16 og þeim
lýkur kl. 17. Á sunnudag
skemmtir hinsvegar Karl Jóna-
tansson gestum Dillonshúss með
harmonikkuleik.
í aldamótaprentsmiðjunni
verður vinnsla á fullu og kannski
verða einhverjar smábækur til.
Um helgina heimsækja húsdýr-
in úr Húsdýragarðinum einnig
safnið.
ÞJOÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Loftvamir í Reykjavík hafa
kostað 37 þúsund krónur.
Meirihluti bæjarstjómar neitar
að loka áfengisútsölunum.
Allsherjarsókn Þjóðverja gegn
Bretum talin yfirvofandi. Mr.
Eden og Amery Indlandsmála-
ráðherra lofa öllu fögrn ef Bret-
ar sigri. Churchill viðurkennir
undanhald brezka hersins í
Austur-Affíku.
16. ágúst
fimmtudagur. 228. dagur árs-
ins. 18. vika sumars byrjar.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
5.21 -sólariag kl. 21.41.
Viðburðir
Kommúnistaflokkur Þýska-
lands bannaður í Vestur-
Þýskalandi árið 1956.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 10. til 16. ágúst er I Lyfja-
bergi og Ingólfs Apóteki.
Fyrmemda apótekiö er opið um helgar
og annast naeturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á firidögum). Síöamefnda apó-
tekið er opið álvoldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum Id. 9 til 22 sam-
hliða hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavlk....
Kópavogur.....
Seltjamames.
Hafnarfjörður.
Garðabær.....
Akureyri.....
..»1 11 66
.»412 00
.» 1 84 55
.» 5 11 66
.« 5 11 66
.»2 32 22
Slökkvilið
Reykjavlk......
Kópavogur......
Seltjamames....
Haínarfjörður..
Garðabær.......
Akuæyri........
og sjukrabílar
...........«1 11 oo
...........» 1 11 00
...........» 1 11 00
...........» 5 11 00
...........» 5 11 00
...........«22222
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð
Reykjavlkur alla virka daga firá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiönir, símaráðlegg-
ingar og tfmapantanir I« 21230. Uppíýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
gefnar I slmsvara 18888. Borgarspítal-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadelld
Borgarspltalans er opin allan sólarhring-
inn,« 696600.
Hafnarfjorður: DagvakL Heilsugæslan,
» 53722. Næturvakt lækna, « 51100.
Garöabær Heilsugæslan GarðaflöL
« 656066, upplýsingar um vaktlækna,
«51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstööinni,« 22311, hjá Akureyrar
Apóteki,» 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis frá kl 17 lil 8 985-23221
(farslmi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
«14000.
Vestmannaeyjar Neyðarvakt lækna,
«11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar. Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
sprtalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspitalans: Alla
daga Id. 15 til 16, feöratími kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarhelmili Reykjavikur
v/Eiriksgötu: Almennurtlmi kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldrunaríækningadeild Land-
spítalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar ki. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stööin við Barónsstíg: Alla daga Id. 15 til
16 og 18:30 tii 19:30. Landakotsspitali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra Id. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs-
spítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga Id. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavfk: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fýrir
unglinga, Tjamargötu 35,» 91-622266,
opíð allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsingæ og
ráðgjafarsíma félags lesbla og nomma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðrum tímum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf i sálfraeðilegum
efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoö Orators, félags
laganema, erveitt (sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17, «91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbamelnssjúkiinga
og aðstandendur þeirra I Skógarhllð 8 á
fimmtudögum Id. 17 tJ 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra í« 91-22400 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: » 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf:» 91-
21205, húsasWól og aöstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fýrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 H 15:30 og kl. 20 til
22,» 91-21500, sfmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyn'rsifiaspellum:« 91-21500, símsvari.
Vinnuhópur um sifiaspellsmál:
« 91-21260 alla virkadaga Id. 13 til 17.
StígamóL miðstöð fyrir konur og böm
sem oröið hafa fýrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3,» 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
» 27311. Rafmagnsvelta: Böanavakt f
» 686230.
Rafveita Hafnarfiarðar BilanavakL
» 652936.
GENGIÐ
14. ágúst 1990 Sala
Bandarikjadollar.............57,18000
Steriingspund................107,81300
Kanadadollar.................49,85000
Dönsk króna....................9,49910
Norsk króna....................9,36230
Sænsk króna....................9,86710
Finnskt mark..................15,38540
Franskur franki...............10,79780
Belgískur ffanki...............1,76160
Svissneskur ffanki............43,44980
Hollenskt gyflini.............32,18600
Vesturþýskt mark..............36,25760
Itölskllra.....................0,04937
Austumskur sch.................5,15530
Portúgalskur escudo.......... 0,41150
Spánskur peseti................0,59060
Japansktjen....................0,38214
(rsktpund.....................97,30000
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 hrap4hólf6
espi 7 grind 9 gras 12
kötturinn14fataefni15
nart 16 spil 19 veiöi 20
hræddist21 viðburður
Lóðrétt: 2 leiði 3
gauragangur 4 erfiða 5
afkomanda7úldnar8
fleygja 10 efni 11 spjót
13dreifi18eyði
Lausnásfðustu
krossgátu
Lárétt: 1 kyndill 4 fold 6
pár 7 tápi 9 Ásta 12 ilm-
an14nón15ætt16
kænur19reið20niða
21 lasiö
Lóðrétt:2ljáa3spil4
fráa 5 lát 7 tendra 8
pinkil lOsnærið 11 aftr-
ar13mön17æða18
uni
Flmmtudagur 16. ágúst 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 11