Þjóðviljinn - 16.08.1990, Blaðsíða 9
Samtök rússneskra
aðalsmanna endurreist
í Sovétríkjunum
Allt hefur nú annan róm en
áður í Sovétríkjunum. Ekki er
langt síðan að rússneski aðallinn
var talinn einhver aumasta stétt
sögunnar, og hefði honum verið
það rétt mátulegt að hann var
flæmdur frá eigum sínum og
löndum stórum í byltingunni. En
nú er það aftur orðið íínt að vera
af gömlum aðalsættum þar í
landi.
Maðurinn sem stendur til
hægri á þessari mynd er listamað-
ur og heitir Andrej Golitsin.
Hann er af frægri furstaætt. Og
hann er nýkjörinn oddviti aðals-
ins rússneska, sem er gamalt virð-
ingarheiti.
Undarleg
endurkoma
Blaðið Ízvestíja segir frá þessu
með mikilli velþóknun. Blaðið
segir á þá leið að furstinn veiti
forystu félagsskap sem nefnist
„Bandalag afkomenda rússneska
aðalsins“. Ætlun félagsins sé að
safna saman þeim brotum sem
eftir eru enn af stétt sem „var
menningarlagið í rússneskum
þjóðarjarðvegi“ eins og blaðið
segir. Ér nú hætt við því að marg-
ir mætir Rússar snúi sér við í
gröfum sínum. Að sjálfsögðu var
aðallinn rússneski um leið
Pravda ræðst á and-semítisma
Um 100.000 gyðingar fluttu
burtu frá Sovétríkjunum á síð-
asta ári, og horfur eru á að tvöfalt
eða þrefalt fleiri flytji á brott á
þessu ári. Og orðrómur um að
yfirvofandi séu fjöldaofsóknir á
helstu borgir gyðinga, sýnir að
málefni gyðinga eru orðin að
vandamáli í sovésku samfélagi,
segir í Prövdu 22. júlí.
Það er kominn tími til að við
höfum það hugrekki að við
reynum að skilgreina hvar þetta
vandamál liggur, og hvernig við
getum tekið á því, segir greinar-
höfundur.
Jafnframt því sem menning
gyðinga blómstrar, koma upp
ýmsir öfgahópar sem hafa and-
semítisma á stefnuskrá sinni.
Pamjat og systurfélög þess
standa fyrir æsingum gegn gyð-
ingum til að koma höggi á perest-
rojku.
„Réttarríki verður að vernda
öll sín þjóðerni,“ segir greinar-
höfundur, og hvetur til lagalegra
aðgerða gegn þeim sem breiða út
áróður gegn gyðingum.
Nokkur tímarit og dagblöð
hafa opinberlega prédikað fjand-
skap gegn gyðingum nú á síðustu
mánuðum. í fyrsta sinni í sögu
þessa lands hefur „gyðingafælni"
orðið vinsæl meðal sumra
menntamanna.
Hér er meðal annars að ræða
um tilraun til að koma í veg fyrir
að þjóðin sameinist um perest-
rojku, og hér er reynt að etja
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Ýmislegt
Flugmiðar tll sölu
Flugmiðar til Danmerkur þann 23. ág-
úst, heimkoma þann 28.sama mán-
aðar. Seljast ódýrt. Uppl. í síma
45794.
n.k. og 21. og 23. ágúst. Kennari
Eiríkur Jensson, líffræðingur. Skrán-
ing og upplýsingar í síma 40122.
Óska eftir
að kaupa notað Barbie- eða Sindy-
hús og húsgögn. Uppl. í síma 46289.
Til sölu
Tvö stk. 26“ gíralaus reiðhjól, annað
blátt karlmannshjól og hitt rautt kven-
manns. Einnig Casio SK 2100 hljóm-
borð, 5 áttundir. Dúkkuvagga úr tré,
hvítmáluð. Hvítt barnarimlarúm með
tveimur hæðastillingum á botni.tvö
pör hvítir skautar nr. 38 og 40 og Nor-
dica skíðaskór nr. 29. Uppl. í síma
73042 eftir kl. 14.00.
Til sölu
Lítið hljómborð (CASIO), ýmis
leikföng, straumbreytar, pússluspil
og fleira. Júdóbúningur og ferming-
arföt til sölu á vægu verði, sumt lítið
sem ekkert notað. Uppl. f síma
22137.
Þrif
Tek að mér þrif í heimahúsum. Uppl. í
síma 32101 eftir kl. 20.00
Tinsla matsveppa
Námskeið fyrir byrjendur í greiningu
matsveppa dagana 20. og 22. ágúst
Handfræsari
Makita 1500 watta handfræsari,
ásamt carbitfræsitönnum til sölu. Svo
til ónotaður. Uppl. í síma 36424.
Husnæði
Ibúð óskast
Einstaklingsíbúð óskast, helst 1 her-
bergi, eldhús og bað eða lítil 2ja her-
bergja íbúð. Uppl. í síma 678028.
íbúð óskast
Vantar ykkur aðstoð við þrifin eða
barnagæsluna? Okkur vantar hús-
næði. Erum reyklaus og reglusöm,
stundum nám í HÍ. Uppl. í síma
11218.
(búð i París
ibúð í latínuhverfi Parisarborgar er
laus til leigu frá 23. ágúst til 10. sept-
ember næstkomandi. Ath. mjög ódýr.
Uppl. í símum 678512 á kvöldin og
22722 á daginn.
Innilegar þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför
Kristjáns Inga Karlssonar
Lækjarvegi 6
Þórshöfn
Kristín Jónsdóttir
Jón Elvar Hafsteinsson Jóhanna Ósk Eiríksdóttir
Kristín Inga Jónsdóttir
Vilborg Kristjánsdóttir Karl Haukur Kjartansson
Arnþór Karlsson
Ragnhildur Karlsdóttir Guðmundur Hólm
og börn
hverjum þjóðahópi gegn öðrum.
Allt stuðlar þetta að brottflutn-
ingi gyðinga. Óttinn við ofsóknir
er orðinn að æsingi, segir greinar-
höfundur.
„En þetta vandamál verður
ekki leyst með fjöldaflutningum
gyðinga til útlanda. Það verður
að leysa það á lýðræðislegan hátt
innan Sovétríkjannaa. Það má þó
ekki trufla eðlilega aðlögun, eða
hindra það að gyðingar geti farið
úr landi ef þeir vilja. Mestu máli
skiptir að menningarstofnanir
gyðinga fái að þróast á frjálsan og
lýðræðislegan hátt, og að
fullnægt sé öllum þjóðerniskröf-
um sovéskra gyðinga.
(Ur Soviet News)
íbúð í boði
Þriggja herbergja íbúð í vesturbæ til
leigu frá 1. september í að minnsta
kosti eitt og hálft ár. Vil hvorki gælu-
dýr né tóbaksneytendur. Uppl. í síma
27117 á tímabilinu kl. 18.00 til 20.00.
íbúð óskast
Hjúkrunarfræðing með tvö börn vant-
ar þriggja herbergja íbúð sem fyrst
eða áður en skólar hefjast. Má vera á
höfuðborgarsvæðinu. Skilvísi og
reglusemi. Uppl. í síma 673023.
Herbergi
ásamt eldunaraðstöðu óskasttil leigu
í nokkra mánuði. Uppl. í síma 32558
eftir kl. 18.00.
Húsgögn
Til sölu
Antik rúm og antik skápur og barna-
göngugrind til sölu. Uppl. í síma
28832 eða 17702.
Óskast ódýrt
furusófasett og furuhilla. Hafið sam-
band við Bryndisi í síma 12419.
Heimilistæki
Sjónvarp
Auglýsi eftir ódýru sjónvarpi, helst lit-
asjónvarpi. Uppl. í síma 77646 á
kvöldin.
Gæludýr
Kettlingur
8 vikna, svartur og hvítur, kassavanur
kettlingur fæst gefins. Uppl. í síma
14988 eftir kl. 17.00.
Fyrir börn
Til sölu
Britax ungbarnastóll til sölu, lítið not-
aður, selst ódýrt. Uppl. í síma
657137.
Til sölu
Blár Emmaljunga barnavagn, mjög
vel með farinn til sölu. Einnig nær
ónotuð hoppróla. Uppl. í síma 13373.
Kerruvagn óskast
Uppl. í síma 27117.
Til sölu
ódýr (ung)barnafatnaður (0-3 ára).
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Golitsin, oddviti aðalsmanna (til hægri) með frænda sínum O. Volkov
rithöfundi.
menntastétt landsins á nítjándu
öld - enda komust varla aðrir í
skóla en þeirra synir, nema þá
prestasynir, sem flestir voru
sendir í hina fátækari presta-
skóla. En um leið var það eitt
höfuðviðfangsefni t.d. rússn-
eskra bókmennta á nítjándu öld
að afhjúpa obbann af aðlinum
sem óþarfa stétt, sem lifði sníkju-
lífi á dugandi mönnum og náttúr-
lega bændum öllum.
En hvað sem því líður: vafa-
laust getur hinn nýi félagsskapur
unnið þarft verk með því að safna
saman ýmsum sögulegum
gögnum, sem varðveist hafa hjá
einstaklingum og þeir varla þor-
að að láta vita af á fyrri áratugum
sovéskrar sögu. En þetta segir íz-
vestíja í frétt um málið að sé til-
gangur samtakanna öðru fremur.
Ættfræðinefnd
starfar
Það fylgir og sögunni að um
það bil þrjú hundruð einstak-
lingar hafi þegar sótt um inntöku
í Aðalsmannabandalagið. Og
eins og að líkum lætur hefur verið
skipuð ættfræðinefnd sem á að
skoða tilkall hvers og eins til að
teljast af bláu blóði í Sovétríkjun-
um.
Þess skal getið að rússneski að-
allinn hefur helst haldið velli í
París. Þar kemur fólk af aðalsætt-
um saman reglulega og ávarpar
hvert annað með öllum þeim titl-
um sem barónum, greifum, furst-
um og stórfurstum ber og svo ynj-
um þeirra: yðar göfgi, yðar tign,
yðar hávelborinheit, yðar
birta.... áb tók saman.
Kommóða, nýlegur vel með farinn
Silvercross barnavagn, barnastóll og
fleira. Uppl. í síma 20803.
Til sölu
Emmaljunga kerruvagn með burðar-
rúmi til sölu. Uppl. i síma 621398.
Bílar og varahlutir
Til sölu
Trabant árgerð 84 með bilaða vél
fæst fyrir lítið. Uppl. í síma 667490
eða 666290.
Til sölu
Wolkswagen Golf árgerð 81 til sölu.
Lítur mjög vel út, er algerlega óryðg-
aður og vélin er í góðu standi. Sjón er
sögu ríkari. Uppl. í síma 53560.
Til sölu
Fjórar felgur, sem nýjar 13“. Felgurn-
ar eru undir Mazda 323 og seljast á
hálfvirði. Uppl. í síma 41373 eftir kl.
17.00.
Til sölu
Lada 1200, árgerð 1988, ekinn
18.000 km. selst á góðu verði. Uppl. í
síma 681693 eftir kl. 17.00.
Tll sölu
Citroén braggi árgerð 1980. Tilbúinn
til samsetningar. Uppl. í síma 77646.
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ
105 REYKJAVÍK
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Skólastarf á haustönn hefst mánudaginn 27.
ágúst. Þá eru nýir kennarar boðaðir til fundar í
skólanum kl. 9.00.
Miðvikudaginn 29. ágúst hefst kennarafundur
kl. 10.00. Skólinn verður settur fimmtudaginn
30. ágúst kl. 13.00. Nýnemar eru boðaðir í
skólann samadag kl. 10.00. Stundatöflurverða
afhentar að lokinni skólasetningu gegn 3500
króna gjaldi.
Kennsla hefst í dagskóla og öldungadeild skv.
stundaskrá mánudaginn 3. september.
Stöðupróf verða haldin í skólanum sem hér
segir:
í þýsku mánudaginn 20. ágúst kl. 18.00;
í ensku þriðjudaginn 21. ágúst kl. 18.00;
í dönsku, norsku, sænsku og stærðfræði mið-
vikudaginn 22. ágúst kl. 18.00;
í spænsku og frönsku fimmtudaginn 23. áq-
úst kl. 18.00.
Skráning í öll stöðupróf er í síma 685140 eða
685155 á skrifstofutíma. Rektor