Þjóðviljinn - 22.08.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.08.1990, Blaðsíða 5
Sovésk friðarsendinefnd Formaður Sovésku friðar- nefndarinnar, Genrikh Boro- vikh, á nú sæti á þingi, kjörinn af okkur - og eins og menn vita hef- ur Æðsta ráðið nú miklu öflugri stöðu gagnvart ríkisstjórninni en áður. Annars ætlum við að halda ráðstefnu í haust um okkar fram- tíðarverkefni og starfshætti og áframhaldandi breytingar á þeim. Á alþjóðasviði reynum við að efla til funda og kynna sem kenna má við almenningsdiplómatí. Eins og þegar við efndum til friðargöngu frá Stokkhólmi og Helsinki og norður til Kirkjuness í Noregi og þaðan yfir vígbúnað- arsvæðið mikla á Kólaskaga til Múrmansk, þar sem haldin var ráðstefna, sem tengdist hug- myndum um samstarf á norður- slóðum, er Gorbatsjov forseti hafði hreyft í ræðu sinni í Múrm- Umhverfismál og þjoðasambúö Spurt var: Áður var Sovéska friðarnefndin hálfopinber stofn- un sem fylgdi opinberri sovéskri utanríkisstefnu eftir á alþjóða- vettvangi. Hvað hefur breyst í starfi samtakanna á perestrojku- tímum? Sovéska friðarnefndin, sögðu nefndarmenn, var með þeim fyrstu sem brást við breytinga- skeiðinu. Petta hefur ekki síst komið fram í því, að við tökum virka afstöðu til ýmissa mála í okkar eigin landi. Við höfum ekki síst látið að okkar kveða í umhverfisverndarbaráttu - t.d. fyrir verndun Bækalvatns. Okkar menn voru viðstaddir þegar fyrsta sovéska eldflaugin var eyðilögð í þeirri afvopnunarlotu sem nú er hafin, og segir sig sjálft að fyrir skemmstu hefði okkur ekki verið hleypt nálægt slíkum hernaðarleyndarmálum. (Við gáfum svo gestum á friðarráð- stefnu í Moskvu stykki úr eld - flauginni tii minja.) Við höfum skapað vettvang fyrir umræður þar sem leitað er að sameiginlegri niðurstöðu um ágreiningsmál - eins og t.d. sambúðarmál þjóða í Sovétríkjunum, lagasetningu um mannréttindi og fleira. Pá höfum við ekki reynt að þröngva upp á aðra okkar skoðun, heldur reynt að samræma sjónarmið t.d. hinna ýmsu pólitískra samtaka sem nú verða til. Og norskir Natóvinir! Bandarískar sjónvarpsstöðvar hafa að undanförnu fylgst með vaxandi áhuga með deilum og átökum um rauðviðarskógana miklu á vesturströnd Bandaríkj- anna. En þar hafa náttúruvernd- arsamtök sem nefna sig ,Jörðin hefur forgang“ haft sig mjög í frammi gegn mikilli rányrkju fornra skóga, sem lengi hafa verið stolt Kaliforníu. Hér er um að ræða þær merku risafurur sem geta orðið meira en hundrað metrar á hæð og vaxa öldum sam- an. Skógarhöggsmenn sveia og skyrpa og gera sitt besta til að hrekja á brott náttúruverndar- menn sem reyna að tefja fyrir timburflutningabílum og trufla skógarhögg. Þessir dópuðu hipp- ar úr stórborgununum, segja skógarhöggsmenn, eru á rómant- ísku flippi. Þeir hugsa ekki um það að hundrað þúsund störf Skógarhögg í Washingtonfylki: Margir spá þvi, að eftir 20 ár verði ekkert eftir. okkar eru í húfi. Talsmenn samtakanna „Jörðin hefur forgang" segja að það sé gróf lygi að setja dæmið upp á þennan veg. Smám saman, segja þeir, fækkar atvinnutækifærum við skógarhögg vegna þess að vinnan er æ rækilegar vélvædd - og svo vegna þess að það eru alltaf færri tré til að höggva. Talsmenn timburiðnaðarins bera það fyrir sig að allt fari fram eftir opinberum reglugerðum og lögum. En ef svo er, þá eru þau lög mjög ófullnægjandi. Banda- rískir sérfræðingar hafa reiknað það út, að með sama áframhaldi verði rauðviðarskógarnir í Norður-Kaliforníu og allt upp til Washingtonfylkis búnir að vera. Nú þegar hafa sagirnar skilið eftir stór auð svæði, sem fljótlega breytast í mýrarfláka. Skógariðn- aðurinn reynir að blekkja ferða- fólki sem á leið um þessi svæði með því að skilja eftir þunn og ósnert trjábelti meðfram vegum, en á bak við er sviðin jörð. Ástandið hefur versnað eftir að yfirtökustríð byrjaði í timbur- iðnaðinum: þeir sem kaupa upp fyrirtæki í timburiðnaði vilja fá peningana sem fýrst aftur með gróða og láta nú höggva sem aldrei fyrr. Nánar um þetta mál í leiðara blaðsins í dag. áb tók saman. Á síðari árum hefur starf So- vésku friðarnefndarinnar breyst mikið og snýst nú ekki síst um að setja niður deilur innanlands, um náttúruvernd og um að byggja upp traust milli þjóða með al- menningsdiplómatíu svonefndri Svo sögðu fulltrúar Sovésku friðarnefndarinnar í samtali við Þjv. í gær. Þau eru Alexandr Florenskij tónskáld, varaforseti Friðarnefndarinnar, Alexandr Kantsarin. starfsmaður alþjóða- deildar hennar, Ljúdmila Múm- ikhtihak, kennslukona af Ínúíta- þjóð á Tsjúkotku og Aksel Karlsen, sem starfar við stofnun um verklýðssögu. Sendinefndin kemur í boði ís- lensku friðarnefndarinnar og hef- ur hér hitt að máli Steingrím Her- mannsson forsætisráðherra, Svavar Gestsson menntamála- ráðherra, fulltrúa Kvennalistans og ýmissa almannasamtaka. Sovéska sendinefndin: Ljúdmila Múmikhtihak og Alexandr Florenskíj sitja, Alexandr Kantsarin og Aksel Karlsen standa. Ljósmynd: Kristinn. ansk. Hér blandast saman friðar- starf, menningartengsl, samstarf um náttúruvernd og fleira. Við vorum nýverið á fundi um Eystrasaltsmál á Borgundar- hólmi - og þar sem annarsstaðar tökum við þátt í að finna leiðir til að reisa það sameiginlega Evróp- uhús sem við öll viljum búa í. Við höfum meira að segja tekið ný- lega á móti fulltrúum norska Nat- óvinafélagsins „Folk og Forsvar“ - og hefði það þótt saga til næsta bæjar fyrir skömmu ef að þeir menn hefðu sótt Sovésku friðar- nefndina heim með vinsemd! Til Nuuk Ljúdmfla Múmikhitkak hugði gott til að koma til Nuuk á Græn- landi, en þangað var nefndin að fara. Sovéskir Eskimóar (sem eru aðeins 1300 eftir) hafa gerst aðil- ar að ICC, Alþjóðasamtökum Ínúíta. Margt fróðlegt er að ger- ast í réttindamálum tæplega 30 smárra þjóða sovéska norðurhjar- ans sem nýlega hafa stofnað með sér samtök til að verja réttindi sín og sérstæða menningu. Hvað um Persaflóa? Að lokum voru nefndarmenn spurðir að því, hvernig þeir teldu skynsamlegt að fara með mál eins og þau sem nú rísa út af hernámi Kúvæts. Við erum, sögðu þau, að byggja upp réttarríki og leggjum því áherslu á að alþjóðaréttur sé virtur: allt sem rýfur þann rétt á að fordæma hvað sem allri hug- myndafræði líður. Því höfum við eindregið fordæmt innrás íraks í Kúvæt. Viðskiptabann er eitt ráð til að vinna gegn slíkum brotum, en hafa ber í huga, að í refsiað- gerðum verður að fara með gát svo að griðrof stjórnvalda bitni ekki á saklausum almenningi í löndum sem þau ráða yfir. áb skráði. Skógastríð í Kaliforníu Bráðum er ekkert eftir síst að leysa heima fyrir Reynum ekki vandkvæði ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.