Þjóðviljinn - 04.10.1990, Side 11
I DAG
Magnús H. Gíslason skrifar
*
A
FÖRNUM VEGI 13
í síðasta pistli mínum, „Á förn-
um vegi“, var viðmælandi minn
að rifja upp eitt og annað frá síð-
ustu borgarstjórnarkosningum.
Það kom á daginn að hann er
óflokksbundinn en þó þrælpóli-
tískur á sinn hátt, og fyllir þvi
sennilega þann fjölmenna hóp,
sem ekki gefur upp, í hinum
„heimsfrægu“ skoðana-
könnunum, hvaða flokk hann
kemur til með að kjósa eða hvort
hann kýs yfirleitt nokkuð í þeim
alþingiskosningum, sem nú nálg-
ast óðfluga.
- En ég velti þessu mikið fyrir
mér þarna í vor, sagði hann, - og
hefði lang helst kosið að and-
stöðuflokkar Reykjavíkuríhalds-
ins hefðu komið sér saman um
einn framboðslista. En það fór nú
eins og það fór og enda þótt svo
tækist til þá kaus ég Nýjan vett-
vang. Ég vissi ekki betur en að
þar væri óflokksbundin mannes-
kja í efsta sætinu, síðan ágæt
Alþýðubandalagskona og svo
krati. Listinn svo að öðru leyti
skipaður ýmsu prýðis fólki. Sumt
þekkti ég af afspurn, annað per-
sónulega. Eins og komið var
gerði ég ekki ráð fyrir að fleiri
næðu kosningu af listanum og ég
vænti þess, að þetta fólk vildi og
gæti starfað saman af fullum heil-
indum. Allir þekkja svo úrslitin
og um þau þarf ekki að fjölyrða.
Nú, jæja. Þarna voru þó tvær
ágætar konur, önnur óflokks-
bundin, hin í Alþýðubandalaginu
og hinn Nýi vettvangur var þó,
þrátt fyrir allt, sterkasta aflið
gegn borgarstjórnaríhaldinu -
miðað við höfðatölu.
En nú gerðust bráðlega illir og
óvæntir atburðir, og mikið getur
mannkindin verið óútreiknanleg.
Hvað gerir nú þessi ágæta kona,
Ólína, sem fyrir borgarstjórnar-
vosningarnar sagðist vera hrein
af öllu flokkspólitísku grómi - og
var tekin trúanleg? Að kosning-
um loknum gerir hún sér bara
lítið fyrir og gengur í Alþýðu-
flokkinn og er opinberlega tekin
inn í það samfélag með breiðum
brosum og blómskrúði. Gott ef
hún gaf það ekki auk heldur í
skyn, að hún hefði alltaf fylgt Al-
þýðuflokknum. Og ég hygg að ég
fari rétt með það að hún hafi ekki
látið sitt eftir liggja með að hvetja
óflokksbundið, vinstra sinnað
fólk til að kjósa Nýjan vettvang.
Og enginn vafi er á því, að fjöl-
margir kusu þennan lista af því að
þeir trúðu því, að þar væru þeir
að kjósa nýtt afl, sameiningarafl.
Ólína átti ekki hvað síst þessu
fólki að þakka sæti sitt á listan-
um. Hún hefði ekki náð að skipa
efsta sæti listans sem yfirlýst Al-
þýðuflokkskona. Það ætla ég að
hún viti vel sjálf. Hún er beinlínis
að koma í bakið á fólki. Það er
ekki gæfusamleg byrjun á póiit-
ískum ferli.
Og nú rifjast óneitanlega upp
þau ummæli Bjarna P. Magnús-
sonar, að fyrirfólk í Alþýðu-
flokknum hafi beinlínis hvatt Al-
þýðuflokkskjósendur til þess að
kjósa Ólínu í efsta sæti listans í
prófkjörinu. Vissi þetta fólk
kannski þá að það var að stuðla
að kosningu væntanlegs fulltrúa
Alþýðuflokksins, enda þótt hann
af hagkvæmnisástæðum sigldi um
sinn undir öðru flaggi, og fékk út
á þann fána atkvæði mitt og
margra annarra? Allir vissu að
kratar áttu mjög undir högg að
sækja með að fá nokkurn mann
kosinn í borgarstjórn af hreinum
Tilkynning frá
Ríkisbókhaldi
Vegna flutnings í nýtt húsnæði verða skrif-
stofur okkar að Laugavegi 13 lokaðar á
morgun, föstudaginn 5. október.
Opnað verður aftur að Sölvhólsgötu 7, 3.
hæð, mánudaginn 8. október kl. 9.00.
Óbreytt símanúmer: (91) 609350.
Samband við:
skrifstofu ríkisbókara,
gjaldasvið,
teknasvið,
efnahagssvið, BÁR, ráðgjöf.
Telefax: (91) 626383.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur,
óskar eftir tilboðum í foreinangraðar pípur. Um er að ræða lagnir
að stærð 20-150 mm, samtals 52.000 m með greinistykkjum og
múffum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 31. október
1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
flokkslista. Var hugmyndin sú,
að með þessum miður hreinu
vinnubrögðum mætti e.t.v.
lauma tveimur fulltrúum Al-
þýðuflokksins inn í borgar-
Stjórnina? Spyr sá, sem ekki veit.
Ég býst við að Siggi Sigurjóns
myndi segja að það væri „skíta-
lykt af þessu máli“, og væri lík-
lega ekki of djúpt í árinni tekið.
f framhaldi af þessum pólitísku
fimleikum er svo Nýr vettvangur
beinlínis tekinn af lífi án dóms og
laga. Og hverjir framkvæmdu
aftökuna? Voru það ekki bara ör-
fáir forvígismenn þessara sam-
taka? Eðlilegast hefði verið að
boða til fundar með því fólki, sem
studdi listann og gefa því kost á
að taka ákvörðun um framhald-
ið. Þar gátu þeir mætt, sem áhuga
höfðu. Það kann vel að vera að
slíkur fundur hefði samþykkt að
leysa upp þessi samtök en það
gerðist þá með eðlilegum og lýð-
ræðislegum hætti. Eða hver var
tilgangurinn með Nýjum vett-
vangi? Ég leit svo á, að hann væri
tilraun til þess að sameina sem
flesta íhaldsandstæðinga um einn
framboðslista. Það mistókst. Því
olli öðrum þræði samtakaleysi og
að hinu leytinu innri meinsemdir.
Enn kom svo til, að undirbún-
ingstíminn var alltof skammur.
En kannski hafa einhverjir tal-
ið tilganginn annan? Og kannski
telja þeir að hann hafi náðst? Al-
þýðuflokkurinn kom, þrátt fyrir
allt, fulltrúa inn í borgarstjórn-
ina, þótt honum tækist ekki að
koma tveimur. En þegar ég kaus
Ólínu Þorvarðardóttur í efsta
sætið á prófkjörslistanum þá vissi
ég ekki annað en ég væri að
styðjaóháðanframbjóðanda. Að
borgarstjórnarkosningunum af-
stöðnum frétti ég svo, að ég hafi
verið að styðja Alþýðuflokks-
mann. Mér finnst þetta, hreint út
sagt, vera ófyrirleitinn blekk-
ingaleikur. Það er spauglaust að
láta plata sig svona, eða finnst þér
það ekki, lagsmaður? En það
gerist ekki aftur.
-mhg
NÝJAR
BÆKUR
Bókin um
Briemsætt
Um þessar mundir er að koma
út hjá forlaginu Sögusteini síð-
asta bók í röð ættfræðibóka. Bók-
in er um Briemsætt, niðja Val-
gerðar Árnadóttur (1779-1872)
og Gunnlaugs Guðbrandssonar
Briem(1773-1834) sýslumanns en
þau bjuggu lengst á Grund í Eyja-
firði. Áttu þau sjö börn sem upp
komust. Þrjú þeirra settust að er-
lendis, í Danmörku, Frakklandi
og Þýskalandi.
Er mikill ættbogi frá þeim
kominn og var efnt til mikils ætt-
armóts að Hótel íslandi sunnu-
daginn 30. september.
Upphafsmaður niðjatalsins var
Eggert P. Briem sem nú er látinn.
Hann byggði ritið á niðjatali sem
Eiríkur Briem prófessor og
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri
sömdu og gáfu út árið 1915. Aðrir
höfundar ritverksins eru Þor-
steinn Jónsson ættfræðingur og
Eggert Ásgeirsson sem safnað
hefur saman og ritað ásamt
fleirum efni um flestalla sem upp
komust af þrem fyrstu ættliðun-
um, nokkuð á 2. hundrað manns.
Af Briemsætt eru skráðir um
2000 niðjar og er um 5000 manns
getið í nafnaskrá.
Ritið er óvenjulega mynd-
skreytt ritverk og hefur víða verið
leitað fanga. Birtist þar fjöldi
áður óþekktra mynda.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Ös þar sem enginn ætti að
koma. 150 sóttu áfengisbækur í
gær. Myndið heimilissamtök um
að taka ekki áfengisbækur. For-
ingja brezku Munchen-mann-
anna fómað vegna sívaxandi
andúðar. Neville Chamberlain
lætur af stiómarstörfum og for-
mennsku Ihaldsflokksins. Verka-
mannaflokksforinginn Bevin
hækkandi stjama hjá brezka
auövaldinu. Bandaríkjastjóm
reynir að vingast við Sovétríkin.
4. október
fimmtudagur. 277. dagur ársins.
Fullt tungl. 25. vika sumars byrj-
ar. Sólarupprás í Reykjavík kl.
7.44 - sólariag kl. 18.47.
Viðburðir
Guðmundur Daníelsson skáld
fæddurárið 1910.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 28. sept til 5. október er f
Ingólfs Apóteki og Lyfjabengi.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fridögum). Síðamefnda apó-
tekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sarrv
hliöa hinu fyrmefnda.
LOGGAN
Reykjavík...................■Tr 1 11 66
Kópavogur.....................« 4 12 00
Seltjamames...................« 1 84 55
Hafnarfjöröur.................w 5 11 66
Garöabær.....................* 511 66
Akureyri.....................2 32 22
StökkvOið og sjúkrabílar
Reykjavlk...................1 11 00
Kópavogur....................« 1 11 00
Seltjamames..................« 1 11 00
Hafnarfjörður....;..........« 511 00
Garðabær.....................« 5 11 00
Akureyri.....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöö
Reykjavíkur alla virka daga ffá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Viljanabeiðnir, simaráölegg-
ingar og tímapantanir I" 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu ern
gefnar i simsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspltalans eropin allan sólarhring-
inn, tr 696600.
Hafnarflörður Dagvakt, Heilsugæslan,
tr 53722. Næturvakt lækna,« 51100.
Garðabær. Heilsugæslan Garöaflöt,
” 656066, upplýsingar um vaktiæk
n 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna-
miöstööinni,« 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis ffá kl 17 ti 8 985-23221
(farslmi).
Kefiavík: Dagvakt, upplýsingar i
« 14000.
Vestmannaeyjar Neyöarvakt lækna,
® 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar Landspitalinn: Alla
daga Id. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 ti 19:30,
um helgar kl. 15 tl 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspltalans: Alla
daga kl. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 tl
20:30. Fæðingarheimili Reykjavíkur
v/Eiriksgötu: Almennur tími H. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatlmi kl. 20-21 alla
daga. Öldrunariækningadeild Land-
spítalans, Hátúni 10B: Alla daga W. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdelld
Borgarspítala: Vitka daga kl. 16 tl 19, um
helgar kl. 14 tl 19:30. Heilsuvemdar-
stööin við Barónsstíg: Alla daga ki. 15 tl
16 og 18:30 tl 19:30. Landakotsspitali:
Alla daga kl. 15 tl 16 og 18:30 tl 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra k). 16 tl 17 alla daga. St Jósefs-
spítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 tl 16
og 19 ttl 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 tl 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga k! 15 til
16 og 19 tl 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 ttl 16 og 19 tl 19:30.
Sjúkranúsiö Húsavfk: Alla daga kl. 15 tl
16og 19:30 tl 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamangötu 35, 91-622266,
opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbla og homma á
mánudags- og tmmtudagskvöldum kl. 21
tl 23. Simsvari á öðrnm tlmum.
* 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráögjöf I sálffæöilegum
efnum,« 91-687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I síma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opio viika daga
frá kl. 8 tl 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúklinga
og aðstanderidur þeirra [ Skógariílíð 8 á
tmmtudögum kl. 17 ttl 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aöstandendur þeirra I« 91-22400 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni:91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræð-
ing á miðvikudögum ki. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf:» 91-
21205, húsaskjól og aöstoö við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfín Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga ki. 20 tl 22,
tmmtudaga kl. 13:30 tl 15:30 og kl. 20 ti
22,« 91-21500, sfmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa
fyrir sifjaspellum:« 91-21500, símsvari.
Vinnuhópur um sífjaspellsmál:
« 91-21260 alla virkadaga kl. 13 tl 17.
Stigamót, miðstöð fýrir konur og böm
sem oröið hafa fyrir kynferöislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vestungötu
3, = 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
■a 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
* 686230.
Rafveita Hafnarfjaröar. Bilanavakt
n 652936.
GENGHD
3. október 1990 Sala
Bandarikjadollar.............56,330
Sterlingspund...............106,467
Kanadadollar.................48,845
Dönsk króna...................9,5072
Nonsk króna...................9,3517
Sænsk knóna...................9,8445
Finnskt mark................. 15,2614
Franskur franki...............10,8332
Belgiskurfranki............... 1,7622
Svissneskur franki...........43,6092
Hollenskt gyllini.............32,1969
Vesturþýskt mark..............36,3010
Itölsk líra...................0,04849
Austumskur sch................5,1572
Portúgalskur escudo.......... 0,4092
Spánskur pesef................0,5787
Japanskt jen..................0,41203
Irsktpund.....................97,3860
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 muldra4toga
6magur7löngun9
kvenmannsnafn12
þrefi14svip15væn16
fuglar19báru20heiti
21 eyddur
Lóðrótt: 2 stúlka 3
nabbi 4 holdfúi 5 loga 7
gengur8grétu 10
feitan 11 haginn13flet
17 hræðist 18 elskar
Lausnásíðustu
krossgátu
Lárótt: 1 spor4gró(6
eir7masi9óhóf 12um-
tal 14 tón 15 aur 16
dauns 19 sælu 20 Asta
21 amaði
Lóðrétt: 2 púa 3 reim 4
gróa5óró7matast8
sundla10hlassi11
forkar13t(u 17aum 18
náð
Fimmtudagur4. október 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA11