Þjóðviljinn - 23.10.1990, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR
Líbanon
Hræðsla eftir morð
á kristnum leiðtoga
Margir gruna Sýrlendinga, enda var Chamoun einn helstu
stuðningsmanna Aouns
ikii
um
hræðsla hefur gripið
sig meðal kristinna
manna í Líbanon eftir morðin á
Dany Chamoun, einum af
helstu leiðtogum þeirra, og
konu hans og tveimur börnum
þeirra á sunnudagsmorgun.
Telja margir að Sýrlendingar
eða her Líbanonsstjórnar hafi
staðið á bakvið morðin og hafi
þessir aðilar í hyggju að ryðja
úr vegi öllum þeim forustu-
mönnum kristinna Líbana, sem
eitthvað kveður að. Liðsmenn í
her Líbanonsstjórnar, sem er
höll undir Sýrlendinga, eru
flestir múslímar.
Morðingjamir voru grimu-
klæddir og í einkennisbúningum
líbanska stjómarhersins. Dany
Chamoun var 56 ára, sonur Ca-
mille Chamoun, fyrrum forseta
Líbanons. Fjölskyldan er af trú-
flokki Maroníta, þeim stærsta
meðal kristinna manna í landinu.
Hraðlækkandi olíuverð
Olíuverð á heimsmarkaði
(verðspá fyrir des.) var í gær komið
niður í 27,45 dollara á tunnu, hafði
þá fallið um 3,60 dollara frá því á
föstudegi og var lægra en nokkru
sinni fyrr í sex vikur. Þetta stafar af
því að nú liggur i loftinu að mesta
hættan á striði við Persaflóa sé að
líða hjá. Er í því sambandi stuðst
við loforð Saddams Iraksforseta að
láta lausa fleiri eða færri vestræna
gísla, ummæli vamarmálaráðherra
Saúdi-Arabíu að til greina ætti að
geta komið að Kúvæt léti af hönd-
um við írak eyjar og landspildur og
fregnir um að viðskiptabannið gegn
írak sé farið að hafa veruleg áhrif.
Camille Chamoun var því ein-
dregið mótfallinn að kristnir
menn gæfu eftir nokkuð af hlut-
deild sinni í völdum og sonur
hans var leiðtogi bandalags
stjómmálaflokka, sem studdi
Michel Aoun, herstjóra þann
kristinn er hafði að meginmark-
miði að losa landið við sýrlenska
hemámsliðið en var gersigraður
af Sýrlendingum og líbönskum
bandamönnum þeirra, þar á með-
al líbanska stjómarhemum, fyrir
rúmri viku.
Dany Chamoun var og einn
þeirra leiðtoga líbanskra, sem
mestan áhuga höfðu á einhvers-
konar bandalagi við Israel. Eftir
innrás Israela í Líbanon 1982 fór
hann til Jerúsalem og ræddi við
ísraelska ráðamenn. Brást Israels-
stjóm reið við fréttinni af morð-
unum, kvaðst telja víst að Sýr-
lendingar eða líbanskir handlang-
arar þeirra hefðu unnið ódæðis-
verkin, enda hefði sá jafnan verið
háttur Sýrlendinga að myrða þá
forustumenn líbanska er sköruðu
fram úr. ísraelar saka einnig Sýr-
lendinga og líbanska bandamenn
þeirra um að hafa farið um austur-
borgina í Beirút, borgarhluta
kristinna manna, með morðum,
ránum og nauðgunum eftir að
hafa náð borgarhlutanum af her-
sveitum Aouns. Israelum mun
ekki hafa líkað vel að Aoun var
sigraður, þar eð það þýðir stór-
aukin völd Sýrlendinga í Liban-
on, en þeir munu ekki hafa vogað
að skerast í leikinn með hliðsjón
af spennuástandi því er ríkir í
Austurlöndum nær vegna Persa-
flóadeilu.
Selim Hoss, forsætisráðherra
Líbanons sem er súnnamúslími,
gaf í skyn í gær að morðingjar
Chamouns væru stuðningsmenn
hans sjálfs, sem hefðu reiðst hon-
um vegna þess að hann hafði látið
í ljós að hann vildi sættir við Líb-
anonsstjóm. Walid Jumblatt,
leiðtogi Drúsa, sem sagður er
hafa verið vinur Chamouns, sak-
aði Samir Geagea, foringja hins
kristna Libanonsliðsafla, um að
hafa fýrirskipað morðin í þeim
tilgangi að spilla friðarumleitun-
um. Geagea var að vísu óvinur
Aouns og studdi Sýrlendinga í
bardögum gegn honum, en hefur
hinsvegar lengst af verið andvíg-
ur afskiptum þeirra af Líbanon.
Reuter/-dþ.
12 ára telpa meö litlusystur slna á fanginu kemur upp úr neðanjarðar-
byrgi I Austur-Beirút, er á enda var lokaorrusta Aouns gegn ofurefli Sýr-
lendinga og bandamanna þeirra. Sýrlendingar beittu lofther sínum
óspart I viðureign þessari, en gegn honum hafði lið Aouns litlar varnir.
Hlupu hljóðandi til móður sinnar
Frásögn þjónustufólks Chamouns af morðunum á honum og fjölskyldu
hans - næsta dœmigerðu athæfi á líbanskan mælikvarða
Menn kunnugir ógnaröld-
inni í Libanon scgja að
morðin á Dany Chamoun, ein-
um af helstu leiðtogum krist-
inna Líbana og fjölskyldu hans
á sunnudagsmorgun, hafi verið
keimlík hefndarmorðum sem
hafa verið fastur liður stríðsins
þarlendis. Ásetningur morð-
ingjanna, sem vopnaðir voru
skammbyssum og í einkennis-
búningum líbanska hersins,
hafi greinilega verið að ráða
ekki einungis Chamoun sjálfan
af dögum, heldur og alla sem til
næðist af fjölskyldu hans. Þeir
myrtu auk Chamouns konu
hans Ingrid, sem var þýsk, og
syni þeirra tvo á barnsaldri.
Eins og margir aðrir háttsettir
Líbanar hafði Chamoun haft
einkalífverði, en líbanska stjómin
svipti hann þeim eftir ósigur Ao-
uns bandamanns hans.
Morðingjamir, þrír talsins,
kvöddu dyra snemma morguns á
heimili Chamounfjölskyldunnar í
Baabda, kristnu úthverfi í Austur-
Beirút. Þeir sögðust vilja tala við
Chamoun, en er hann kom til
móts við þá skaut einn þeirra
hann til bana. Drengir Chamoun-
hjónanna, sjö og sex ára, hljóð-
uðu af skelfingu og hlupu til móð-
ur sinnar, sem í þeirri svipan kom
út úr svefhherberbergi sínu. Einn
komumanna skaut þá einnig hana
til bana. Annar drengjanna, sex
ára, stóð yfir henni hljóðandi,
þangað til morðinginn skaut hann
tíu kúlum í höfúðið. Eldri dreng-
urinn flýði inn í svefnherbergi og
í rúmið sitt, en einn morðingjanna
fylgdi honum eftir, greip í hann
annarri hendi og skaut hann
tveimur skotum. Tíu mánaða
systir drengjanna lifði þetta af,
þar eð morðingjamir fúndu hana
ekki.
Frásögn þessa hafa frétta-
menn eftir þjónustufólki Chamo-
uns, sem varð vitni að hryðju-
verkunum. Atburðir sem þessi og
þaðan af viðurstyggilegri hafa
verið næsta tíðir í stríðinu í Líb-
anon, sem staðið hefúr í rúm 15
ár. Reuter/-dþ.
Kenva
FRA
BÍLASTÆÐASJÓÐI
Opnaö hefur verið nýtt bílastæöi á Alþingisreit
meö aökomu frá Tjarnargötu.
Næst Alþingi eru 16 stæöi sérmerkt Alþingi,
en annars eru um 100 bílastæði sem nýtast
bæöi fyrir alþingismenn, starfsmenn Alþingis
og til almennra nota á vegum Reykjavíkurborgar.
Gjaldskylda er frá kl.7:3o til kl. 18:3o
Jafnframt hefur veriö leyföur akstur í báöar áttir
milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis.
BORGARVERKFRÆÐINGUR
Slítur stjórnmálasambandi við Noreg
Moi Kenýuforseti sakar norsku stjórnina um stuðning við aðila er
steypa ætli stjórn hans með vopnaðri uppreisn
Kenýa sleit í gær stjórnmála-
sambandi við Noreg og fyr-
irskipaði norska ambassadorn-
um í Nairobi, höfuðborg Ke-
nýu, að verða á brott úr landi
innan sjö daga. Sakar Kenýu-
stjórn Norðmenn um stuðning
við keníska stjórnarandstæð-
inga, er leitist við að steypa
stjórn lands síns með ofbeldi.
Sú er saga til þessa að undan-
farið hafa margir Kenýumenn
krafist þess að í landi þeirra verði
tekið upp fjölflokkakerfi og lýð-
ræði að vestrænni og nú austur-
evrópskri fyrirmynd, og er það
sama sagan og frá mörgum öðrum
Afríkulöndum. En Daniel arap
Norska krónan
tengd mynt-
bandalagi
Norska stjómin ákvað um
helgina að tengja norsku krónuna
evrópska myntbandalaginu frá og
með deginum í gær. Vonar stjóm-
in að þetta tryggi stöðugleika í
efnahagslífi og vemdi það gegn
sveiflum á verði Norðursjávarol-
íunnar í dollumm. Olían er helsta
útflutningsvara Noregs.
Moi, forseti Kenýu sem ráðið hef-
ur þar ríkjum í krafti einsflokks-
kerfis í 12 ár, hefúr bmgðist hinn
versti við, bannað fúndi stjómar-
andstæðinga og látið fangelsa
margra fomstumenn þeirra.
Norðurlandaríki, sem hafa
mikil sambönd við Kenýu, hafa
undanfarið látið í ljós áhyggjur af
vaxandi harðstjóm þar og brotum
gegn mannréttindum og hið sama
hafa mannréttindasamtök á Norð-
urlöndum gert. Alvarlega kastað-
ist í kekki með stjómum Noregs
og Kenýu eftir að Koigi wa Wam-
were, kenískur stjómarandstöðu-
leiðtogi sem dvalist hefúr í Nor-
egi síðan 1986 sem pólitískur
flóttamaður undan stjóm Mois,
hvarf skyndilega til ættlandsins
og var handtekinn þar fyrr í mán-
uðinum. Hafa hann og fleiri for-
ustumenn stjómarandstæðinga
verið ákærðir um að undirbúa
vopnaða uppreisn. Norska stjóm-
in mótmælti handtöku Wamwere,
sem keniskir flóttamenn í Svíþjóð
segja útsendara stjómar Mois
hafa rænt, og bað mannréttinda-
nefhd Sameinuðu þjóðanna að
rannsaka málið.
Áður en Wamwere var hand-
tekinn hafði norska stjómin
stungið upp á að efnahagshjálp
sem Noregur veitir Kenýu yrði
minnkuð um fimmtung næsta ár,
og nefndi sem ástæðu áhyggjur út
af brotum gegn mannréttindum í
Kenýu og hömlur á lýðræðisþró-
un þar. Moi sakar Norðurlönd og
önnur vestræn riki, sem lagt hafa
að honum að leyfa lýðræði, um
afskipti af kenískum innanríkis-
málum og kallar stjómarandstæð-
inga leppa þeirra.
Reuter/-dþ.
Faðir okkar
Ragnar Kristjánsson
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
24. október kl. 15.00.
Sigurður Ragnarsson
Jóhanna Ragnarsdóttir
Unnur Ragnarsdóttir
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN