Þjóðviljinn - 23.10.1990, Blaðsíða 11
t
Morgunbæn ( skóla í Varsjá: Margir eru hræddir við klerkavald.
Pólskt klerka-
vald sækir fram
Meðan Iífskjör halda
áfram að versna í Pól-
Iandi skerpast átök milli for-
setaefnanna Lechs Walesa og
Mazowieckis forsætisráðherra
og við þær aðstæður færir
kaþólska kirkjan sig svo mjög
upp á skaptið að menn eru
farnir að tala um hættu á að
kaþólska verði einskonar op-
inber ríkishugmyndafræði í
Póllandi.
Þingið var ekki spurt
Ekki alls íyrir löngu ákvað
stjóm Mazowieckis að taka upp
aftur trúarbragðafræðslu í skól-
um með bænahaldi á morgnana.
Margir Pólveijar hafa af þessu
áhyggjur, ekki síst vegna þess
hvemig að var staðið: trúar-
bragðaffæðslan var tekin upp án
þess að málið væri borið undir
þingið. Er þetta rakið til þess, að
Mazowiecki hafi viljað gera
biskupunum greiða til að tryggja
betur stöðu sína gegn Walesa, en
báðir stefna þeir á forsetakjör og
báðir vilja þeir hafa gott veður
hjá kirkjunni.
Margir búast við því, að næst
komi til þess að kirkjan ráði öllu
um Qölskyldulöggjöf, getnaðar-
vamir og þá fóstureyðingar. En í
þessum málum öllum hafa
pólskir biskupar verið mörgum
öðmm ósveigjanlegri: haft er
fyrir satt að þeir mundu ekki
einu sinni leyfa fóstureyðingu
þótt þungun hefði tekist með
þeim hætti að faðir nauðgaði
dóttur sinni.
Sálarháski kirkjunnar
Margir menntamenn tengdir
stjómarfiokknum Samstöðu
hafa af því áhyggjur að kirkjan
eins og komi i staðinn fyrir ríkis-
marxismann sem fyrir var sem
opinber skyldulífskoðun. Ekki
aðeins vegna þess að Pólland
millistriðsáranna hafði ekki allt-
of góða reynslu af því að blanda
saman kirkju og stjómmálum
(sú blanda ýtti m.a. dijúgum
undir fjandskap í garð gyðinga).
Heldur hafa sumir menn áhyggj-
ur af sálarheill kirkjunnar sjálfr-
ar: hún naut vinsælda og virð-
ingar sem andófsafl gegn ein-
ráðum kommúnistaflokki, en
gæti fljótlega hrapað í áliti með-
al ungra Pólveija ef hún á að fá
einskonar lögsagnarvald yfir
viðkvæmum sviðum mannlífis-
ins.
Leit að sökudólgum
Aukin áhrif pólsku kirkjunn-
ar em tengd hjaðningavígum í
Samstöðu, sem hefúr nú klofnað
eftir því hvort menn styðja held-
ur Walesa eða Mazowiecki. Og á
bak við þeirra ágreining þykjast
menn greina baráttu milli
tvennskonar viðhorfa: annars-
vegar fer kaþólsk þjóðemis-
hyggja (Walesa) og hinsvegar
evrópskt fijálslyndi. Og þessi
átök birtast ekki í formi kurteis-
legs skoðanaágreinings heldur
dragast þau mjög niður í svaðið í
heiftúðlegri leit að sökudólgum
til að kenna um bág kjör lands-
manna.
Stjóm Mazowieckis hefúr
tekist að slá niður verðbólgu og
tryggja að allt fæst í búðum. En
þar með er afrekaskránni lokið:
Þessar framfarir hafa kostað
feiknalegar verðhækkanir svo að
allur almenningur hefur alls ekki
efni á að kaupa nema það allra
nauðsynlegasta. Og hann á ekki
von á öðru en fjöldaatvinnu-
leysi: Að sönnu hafa áætlanir
um einkavæðingu og markaðs-
búskap ekki komið mjög til
framkvæmda vegna þess að fjár-
magn lætur á sér standa. En eftir
því sem sá sami markaðsbú-
skapur sækir ffam, þeim mun
meir fjölgar stórfyrirtækjum
sem lokað verður vegna þess að
það þykir ekki taka því að reyna
að fiikka upp á þau, eða vegna
þess að þau hafa misst markaði
sina í öðmm Austur-Evrópu-
löndum.
Og á meðan almenningur
herðir sultarólina gerast mjög
fyrirferðarmiklir þeir nýríku
sem hafa auðgast stórlega bæði á
vömskorti sem var og svo á hag-
stæðri milliliðastarfsemi.Þetta
fólk vílar heldur ekki fyrir sér að
vekja sára gremju hinna alls-
lausu með opinbemm sýningum
á ríkidæmi sínu, eins og þegar
giftingar eiga sér stað hjá þeim
ríku með skrautsýningum og
veislum sem kosta eins og árs-
tekjur margra tuga manna.
Af öllu saman hleðst upp
gremja mikil og leit að söku-
dólgum. Búið er að taka völdin
af kommúnistunum svo ekki er
hægt að hamast að gagni gegn
þeim mikið lengur. Þeirra í stað
koma þá „menntamenn“ eins og
Mazowiecki og samstarfsmenn
hans, sem eru grunaðir um allt
mögulegt - þeir séu laumu-
vinstrisinnar, óhollir kirkjunni,
óþjóðhollir, enda í bland við
gyðinga! Eitt dapurlegasta ein-
kenni Póllands samtímans er
reyndar það, að í þessu landi þar
sem búið var að drepa langfiesta
gyðinga og fiæma þá fáu sem
eftir voru úr landi, þar er það enn
áhrifarík röksemd i pólitík að
klessa því á andstæðing að hann
sé eiginlega júði. Ef ekki ekta,
þá að minnsta kosti í anda!
áb tók saman.
Rfkra manna brúðkaup (Varsjá: Vaxandi bil milli r(kra og fátækra.
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM.
Endalok Esjuferðalagsins.
Brezka hervaldið flytur þrjá ís-
lendinga nauðuga af landi
burt. Þrem öðrum sleppt gegn
gífurlegum tryggingum. Und-
arlegur úrskurður. Höjgaard &
Schultz sýknaðir af verkfalls-
brotum í Oskjuhlíð og við jarð-
símahúsið. Taka Bandaríkin
frönsku nýlenduna Mart-
inique?
í DAG
23. október
þriðjudagur. 296. dagur árs-
ins. Sólarupprás í Reykjavík
kl. 8.41 - sólariag kl. 17.42.
Viðburðir
Kristmann Guðmundsson
skáld fæddur 1901. Hásetafé-
lag Reykjavíkur stofnað 1915.
Uppreisnin i Ungverjalandi
1956.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 19. til 25. október er I
Borgar Apóteki og Reykjavikur Apóteki.
Fyrmefnda apótekið eropið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frldögum). Siðarnefnda
apótekiö er opið á kvöldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliöa hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavlk...................« 1 11 66
Kópavogur...................« 4 12 00
Seitjamarnes................« 1 84 55
Hafnarfjörður...............« 5 11 66
Garðabær....................* 5 11 66
Akureyri....................« 2 32 22
Slökkvflið og sjúkrabíiar
Reykjavík.....................« 1 11 00
Kópavogur....................* 1 11 00
Seltjarnarnes................« 1 11 00
Hafnarfjörður.................« 5 11 00
Garðabær.....................« 5 11 00
Akureyri......................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
slmaráðleggingar og tímapantanir í
* 21230. Upplýsingar um lækna-og
lyfjaþjónustu eru gefnar í símsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
* 696600.
Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
* 51100.
Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstööinni,« 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farslmi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
«11966.
SJÚKRAHUS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæöingardeild Land-
spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimill Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al-
mennur tlmi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatlmi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspital-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstööin við Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
sóknír annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spftali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir ungiinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opiö allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Simsvari á öðrum
timum. « 91-28539.
Sálfræöistööin: Ráðgjöf (sálfræöi-
legum efnum, « 91-687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt ( síma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra í Skóg-
arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra í « 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráógjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
simsvari.
Vinnuhópur um slfjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólartiringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafvelta Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
22. október 1990 Sala
Bandarikjadollar...........54,8/000
Steriingspund.............106,83300
Kanadadollar...............46,79600
Dönsk króna..................9,54460
Norsk króna................. 9,37560
Sænsk króna.................9,81120
Finnskt mark................15,33790
Franskurfranki..............10,87010
Belgiskurfranki............. 1,76720
Svissneskur franki..........43,02030
Hollenskt gyllini...........32,28960
Vesturþýskt mark............36,40050
Itölsk llra..................0,04858
Austurriskur sch.............5,17490
Portúgalskur escudo......... 0,41260
Spánskur peseti..............0,57890
Japanskt jen.................0,43416
Irskt pund..................97,65200
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 þjáning 4
sveigur 6 vökva 7 klett-
ur 9 óm 12 nískupúki
14 loga 15 varkámi 16
sáðlönd 19 algengu 20
orka 21 súrefniö
Lóörétt: 2 vogur 3
blunda 4 vandræði 5
horfi 7 hungri 8 lauk 10
ráfaö 11 fundarsókn 13
hópur 17 kaldi 18 leiði
Lausn á síöustu
krossgátu
Lárétt: 1 ósár 4 form 6
ósi 7 gosi 9 tölt 12
knall 14 rýr 15 fúl 16
ætinu 19 sýki 20 ýsur
21 andrá
Lóörétt: 2 svo 3 róin 4
fitl 5 ról 7 gerist 8
skrækja 10 Ölfusá 11
tildra 13 agi 17 tin 18
nýr
Þriðjudagur 23. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11