Þjóðviljinn - 24.10.1990, Page 1

Þjóðviljinn - 24.10.1990, Page 1
Miðvikudagur 24. október 1990 — 200. tölublað 55. árgangur Grunnskólakerfið Hundruð nemenda týnast Árlega týnast 148-235 nemendur í grunnskólakerflnu. Arthur Morthens: Fá úrræði fyrir þá sem detta út. Neyðarathvarf hefur skilað árangri, en fœr ekki fjárveitingu Arlega hverfur fjöldi ung- menna úr skyldunámi í grunnskólum landsins án þess að yfirvöld viti nokkuð um af- drif þeirra. Ekkert skipulagt kerfi er til sem fylgist með því að unglingur sem hverfur frá einum skóla skiii sér í annan. Ólafur Ólafsson landlæknir vinnur nú að því í samvinnu við nokkra aðila að kanna ma. hvaðan þessir unglingar koma og hvert þeir fara og er niður- staðna að vænta á næstunni að sögn Iandlæknis. Hagstofan heldur svo kallaða nemendaskrá þar sem allir ung- lingar í lokabekk skyldunáms grunnskólans eru skráðir, sam- kvæmt upplýsingum frá grunn- skólum landsins. Haraldur Finns- son deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu sagði Þjóðviljanum, að þegar þessi nemendaskrá væri borin saman við þjóðskrá, kæmi í Ijós að upp- lýsingar skorti um 150 til rúmlega 230 nemendur í hverjum árgangi. Skrá Hagstofunnar nær til 9. bekkjar nemenda, nú 10. bekkjar nemenda eftir að sex ára bekkur- inn varð að skyldunámi. Haraldur sagði að samkvæmt skrám Hag- stofunnar væri ekki vitað um af- drif 148 ungmenna úr árgangi 1985, 173 úrárgangi 1986, 235 úr árgangi 1987 og 172 úr árgangi 1988. Aður en farið er að alhæfa nokkuð út frá þessum tölum, sagði Haraldur nauðsynlegt að taka tillit til þess að hluti þessara ungmenna væri í svo kölluðum „hæfni- og þjálfunarskólum". Þetta væru um 20-30 ungmenni úr hveijum árgangi. Þá kæmu fleiri skekkjuvaldar við sögu eins og brottflutningur úr landi, seink- un á flutningi nemenda á milli bekkja og sérstakar undanþágur. Samanlagt sagðist Haraldur ekki telja þessa þætti valda mikilli skekkju. það alvarlega í málinu væri, að yfirvöld vissu ekki hvaða skýringar lægju að baki þvi að þessa nemendur vantaði í skól- ana. Eina handbæra skýringin væri að þessi böm hefðu týnst í kerfinu. Haraldur sagði því ljóst að eftirlitið með þessum bömum væri ekki nógu mikið. í raun ætti að haga því þannig til, að fræðslu- skrifstoftir landsins sæju um það. Þá er nokkuð víst að innan þessa hóps væri hin svo kölluðu „vega- lausu böm“ sem ættu í ekkert hús að venda og lentu í afbrotum og neyslu alls kyns vímuefha. Arthúr Morthens sérkennslu- fulltrúi í Reykjavík sagði að í fyrra hefði verið sett upp neyðar- athvarf við Réttarholtsskóla. Þangað hefðu komið unglingar sem annað hvort vom dottnir eða nánast dottnir út úr skóla, nem- endur sem átt hefðu við félags- lega örðugleika að stríða og for- eldrar sáu ekki um að stunduðu skóla, ásamt nemendum sem hreinlega hefðu verið reknir. I þessu neyðarathvarfi vom fimm til sjö nemendur, að sögn Arthúrs. „Þetta var hugsað sem tima- bundið úrræði á meðan annarra lausna var leitað, þó þær reyndust fáar við núverandi aðstæður,“ Island er orðið að hringtorgi kjarnorkukafbáta og á hverjum mánuði fara 6-8 kjarnorkukafbátar um svæði nálægt íslandi. Samkvæmt lík- indareikningi hafa menn í Greenpeacesamtökunum reikn- að út að mögulegt sé að kjarn- orkukafbátur farist nálægt ströndum íslands innan tíu ára. Þetta kom fram i máli for- svarsmanna Greenpeace, en MV-Greenpeace, flaggskip samtakanna á Atlantshafi liggur nú við Sundahöfn. Skipið er ný- komið fra mótmælasiglingu til sagði Arthúr. Neyðarathvarfið hefði gagnast þessum unglingum mjög vel. Óskað hafi verið eftir fjárvcitingu fyrir þennan hóp, en hún ekki fengist og því verið teft- ið fjármagn af sérkennslukvótan- Novaja Zemlja í Barentshafi, en Sovétmenn hyggjast stunda þar kjarorkuvopnatilraunir. Fjórir meðlimir Greenpeace voru hand- teknir af Sovétmönnum eftir að þeir höfðu komist í land. Tilgangur heimsóknarinnar hingað er að kynna baráttu Green- peace fyrir kjamorkuvopnaffíum höfum og banni gegn kjamorku- knúnum skipum. Að sögn Green- peacemanna hefúr vígbúnaðar á höfúnum síst af öllu minnkað og segja, að við það að afvopnun eigi sér stað á landi, fjölgi kjamorku- vopnum á sjó. starfsdeild i Breiðholtsskóla sem sett var á stofn fyrir unglinga með mikla félagslega örðugleika, að sögn Arthúrs. Sú deild hefði aug- ljóslega haldið allstómm hópi innan skólakerfisins, en þar væm á bilinu 10-11 nemendur sem annars væm utan kerfisins. „Við Eldsneyti í einum kjamorku- kafbáti samsvarar 1/10 af elds- neyti kjamorkuvers, og það er því hægt að hugsa sér afleiðingar slíks slyss. Einar Valur Ingimund- arson umhverfisverkfræðingur segir að ef kjamorkukafbátur far- ist nálægt ströndum íslands, muni það hafa áhrif á líffíkið í 10.000 ár á eftir. I dag munu Greenpeacemenn hitta Steingrím Hermannsson for- sætisráðherra að máli og MV Greenpeace verður til sýnis fyrir almenning ffá kl. 13 til 18. ns. emm alveg sannfærð um að skólakerfið verði að koma til móts við þennan hóp unglinga, sem einfaldlega líkar ekki þetta bóklega nám,“ sagði Arthúr. Byggt hefði verið upp verklegt nám í Breiðholti fyrir þessa ung- linga og þá blómstmðu þeir. Að sögn Arthúrs em flestir þessara unglinga strákar. Þegar þeir fengju að vinna með vélar og annað slíkt og gætu jafnvel unnið með skólanum, mættu þeir mjög vel í skólann. Þá sagðist hann sannfærður um að þessi hópur væri mun fjölmennari en náðst hefði til í gegnum þessa viðleitni. Vitað væri um unglinga sem vart hefðu verið í skóla á þessum vetri, bæði vegna þess að þeir hefðu gefist upp á skólanum og skólinn á þeim. Arthúr sagði koma fyrir að nemendur væm reknir úr gmnnskóla og síðan ekkert fylgst með afdrifúm þeirra. Slíkt ætti að hans mati alls ekki að geta átt sér stað. -hmp r Alversmengun Áhyggjur af þung- málmum Júlíus Sólnes: Ohrein- um rafskautum fylgir mikil þungmálma- mengun. Æ erflðara verður að fá hrein skaut Júlíus Sólnes umhverfismálaráð- herra óttast að þungmálmurinn vanadium berist út í lífríki sjávar ef vothreinsibúnaður verður not- aður við nýtt álver. Þungmálm- urinn vanadíum er í nokkru magni í rafskautum sem notuð eru við álframleiðslu, en magn þess í útblæstri hefur lítið verið kannað að sögn sérfræðinga. Júlíus lét þessar áhyggjur sínar af vanadíum í ljós í eldhúsdagsum- ræðum á Alþingi í fyrrakvöld. Hann sagði að æ erfiðara væri að fá rafskaut með lágu brennisteinsinni- haldi, en vanadíummagn í skautun- um eykst nokkuð í samræmi við aukið magn brennisteins í þeim. Mjög erfitt reyndist í gær að fá upplýsingar um vanadíummengun firá álverum. Hollustuvemd rikisins hefur ekki gefið þessum þung- málmi gaum og þar var 1 gær ekki hægt að fá upplýsingar um hvort vanadíum berst út í andrúmsloftið frá álverum. Þó er talið að vanadíum í raf- skautum valdi fyrst og fremst erfið- leikum í framleiðslunni og því er það hagur álframleiðenda að nota skaut sem innihalda lítið vanadíum. Slík skaut innihalda yfirleitt lítinn brennistein. -gg um. Þá er einnig rekin sérstök MV Greenpeace, flaggskip samtakanna á Atlantshafi liggur við Sundahöfn og verðurtil sýnis almenningi 1 dag milli kl. 13 og 18. Mynd: Jim Smart. Greenpeace ísland hringtorg kjarnorkukafbáta

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.