Þjóðviljinn - 24.10.1990, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 24.10.1990, Qupperneq 12
þjófnnuiN Miðvikudagur 24. október 1990 200. tölublaö 55. árgangur VESTMANNA- ' EYJAR a\la daga ARNARFLUG INNANLANDS hf. Reykjavíkurflugvelli - Sími 29577 ■ SPURNINGIN ■ Fylgdist þú með eld- húsdagsumræðunum? Ulf Gustafsson sendibílstjóri: Nei, þetta er svo leiðinlegt. Alexander Alexandersson lögregluþjónn: Nei, ég gerði það ekki vegna þess að ég var að vinna. Axel Kaaber á eftirlaunum: Já, og mér fannst þær ósköþ lít- ilfjörlegar, satt best að segja. Hjalti Helgason prentari: Nei, ég losnaði alveg við það, sem betur fer. RAFRÚN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafverktakaþjónusta Símí641012 Þeir sem komust af Talið að 500-1000fuglar hafi orðið olíu að bráð í lok september. Sjö varð bjargað ogþeir búa nú við hestaheilsu í húsdýragarðinum Sjö æðarfuglar búa nú í góðu yfirlæti í húsdýragarðinum í Laugardal I. Reykjavík og hrósa happi yfir því að hafa komist lifandi af úr olíuslysinu við Laugarnes í lok september. Ævar Petersen fuglafræðingur telur að 500-1000 fuglar hafi drepist í kjölfar slyssins. Olíufuglamir í húsdýragarð- inum voru upphaflega þrettán. Engin skipuleg tilraun var gerð til þess að bjarga olíublautum fugli, enda var erfitt að ná til hans. Sex þeirra sem komu i húsdýragarð- inn varð ekki bjargað, enda höfðu þeir fengið olíu oní sig. - Við viljum íylgjast með því hvemig þessum sjö reiðir af og ætlum ekki að sleppa þeim fyrr en í vor. En þeir virðast vera búnir að ná sér, segir Kristján Ámason, starfsmaður Reykjavíkurborgar, í samtali við Þjóðviljann. Hungur og kuldi Þjóðviljinn heilsaði upp á þessa lífsreyndu fugla í húsdýra- garðinum í gær og þóttist sjá að þeir væm við góða heilsu. Þeir búa þama innan girðingar með fúglum af ýmsum öðmm tegund- um. Hundmð annarra fugla hrepptu önnur og verri örlög í kjölfar olíuslyssins. Slysið varð þegar verið var að dæla svartolíu úr sovésku skipi í tanka Olís við Laugames mánudaginn 24. sept- ember síðast liðinn. Þúsundir lítra af olíu Iáku í sjóinn áður en menn áttuðu sig á hvað var að gerast og næstu daga komu afleiðingamar í ljós. Þegar fúgl lendir í olíubrák eyðileggst vöm hans gegn kulda. Það gerir það að verkum að fæðu- leit hans verður erfiðari og flestir fúglanna munu hafa drepist úr hungri og kulda. Nær víst er að fugl sem lendir í olíu drepst ef ekki verður að gert. Ekki er vitað fyrir víst hve margir fuglar drápust, en sem fyrr segir áætlar Ævar Petersen að þeir hafi verið á bilinu 500-1000. Líklega hefur lífríkið þó ekki enn sopið seyðið af slysinu. Volg mjólk og bað Eins og komið hefur fram í umfjöllun í kjölfar slyssins em yfirvöld og olíufélögin óviðbúin alvarlegum olíuslysum. Ævar bendir jafnframt á að ekki er til Kristján Árnason með kollu sem bjargaðist þrátt fyrir það að hún væri illa haldin þegar hún fannst. Myndir: Kristinn. nein áætlun um hvemig bregðast á við áhrifúm olíu á líffíkið. - Eg er að vona að þetta slys verði til þess að menn taki við sér og komi sér upp áætlun um hvemig bregðast skal við, segir Ævar við Þjóðviljann. Engin skipuleg tilraun var gerð til þess að bjarga fúglunum sem lentu í olíunni. Áhugamenn gerðu þó tilraunir og árangur þeirra varð sem sagt sá að þrettán fuglar komust í húsdýragarðinn. Sjö lifðu af. Þeir sjö sem nú vappa þar um, áhyggjulausar að sjá, vom gegn- umkaldir, rennandi blautir af olíu og grindhoraðir. Þeir gengu í gegnum ýmsa meðferð. Þeim var gefin spenvolg mjólk til þess að vinna gegn ertingu af völdum olíu sem hafði komist niður í melting- arfærin. Svo var þeim þvegið. - Við renndum blint í sjóinn með þetta í upphafi, en þessi að- ferð gafst vel. Við hefðum ráðið við að aðstoða hundmð fúgla með þessum hætti, segir Kristján Ámason og strýkur kollu sem fannst illa haldin við Laugames. - Það vom systkin sem komu með þessa kollu til okkar og við ætlum að bjóða þeim að vera við- stödd þegar við sleppum henni úti í Viðey í vor, segir hann. -gg r Oli Kr. Sigurðsson Eftirlit hefði aftrað slysinu Þetta slys hefur kennt okkur að við verðum að auka eftir- Iitið með þessum leiðslum neð- ansjávar. Við höfum ákveðið að láta skoða leiðslurnar tvisvar á ári. Með slíku eftirliti hefði ver- ið hægt að koma í veg fyrir slys- ið sem varð hjá okkur í lok sept- ember, segir OIi Kr. Sigurðsson, forstjóri Olís, í samtali við Þjóð- viljann. Iðntæknistofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að rekja megi orsök olíuslyssins við Laugames- tanga til lélegs frágangs af hálfú verktaka. Tæringarvöm var ófúll- Óli Kr. Sigurðsson: Nú ætlum við að gera þetta sjálfir. nægjandi og málun við samskeyti röranna og á skemmdum í máln- ingunni var misheppnuð. Ljóst er að rörin í leiðsluna höfðu orðið fyrir skemmdum þegar þau komu til landsins. - Það er ný leiðsla á leiðinni til landsins, og nú ætlum við að gera þetta sjálfir. Þá verður ekki öðmm um að kenna en okkur sjálfúm, segir Óli Kr. Sigurðsson við Þjóðviljann. Hann segir að aðrar leiðslur fyrirtækisins hafi verið skoðaðar og reynst í lagi. -gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.