Þjóðviljinn - 06.11.1990, Side 3
FRETTIR
Kvennalistinn
Máhækka
vextina
Á landsfundi Kvennalistans
um helgina var samþykkt að
hverfa frá útskiptareglu flokks-
ins. Hingað til hafa konur skipt
út á miðju kjörtímabili á Al-
þingi og í sveitarstjórnum.
Áfram verður sú regla í gildi að
konur sitji ekki á þingi eða í
sveitarstjórnum lengur en í átta
ár.
Einnig var samþykkt að
Kvennalistinn gæti ekki greitt at-
kvæði gegn vaxtahækkun hjá
Byggingarsjóðum ríkisins og
verkamanna ef tryggt væri að
vaxtabætur virkuðu þannig að
þær nýttust láglaunafólki mest,
kom fram hjá Ónnu Ólafsdóttur
Bjömsson, varaþingflokksfor-
manni Kvennalistans í samtali við
Þjóðviljann, en hún telur að eitt-
hvað verði að gera til að forða
sjóðunum ffá gjaldþroti.
„Vaxtahækkun er a.m.k. ein
af þeim leiðum sem má fara til að
bjarga fjárhag sjóðanna," sagði
Anna. „Það er ekkert ósanngjamt
í sjálfu sér að fólk sem búið er að
borga lága vexti af sínum lánum
fram til þessa borgi hærri vexti frá
kannski næstu áramótum. Þetta er
ekki ósanngjamt, svo ffamarlega
sem vaxtabætumar virka, en það
er það sem við höfúm verið að
spyija um. En það er ekki hægt að
slíta þessi mál í sundur. Virki
vaxtabætumar ekki kæmi þetta
mjög illa út fyrir láglaunafólk,“
sagði Anna og bætti við að á
miðju ári 1984 hefði verið leyft
að hafa breytilega vexti á þessum
lánum þannig að ekki yrði breytt
vöxtum á lánum sem fólk tók fýr-
ir 1984.
Mörg önnur mál vom rædd á
landsfundinum og voru t.d. land-
búnaðarmálin rædd ítarlega án
þess að niðurstaða fengist. En
Anna sagði að einsog venjulega
hefðu launamál kvenna verið
númer eitt, tvö og þijú og að kon-
um sviði sárt að eldd skuli hafa
gengið betur i þeim málum en
raun ber vitni. Einnig var rætt
hvemig Kvennalistinn gæti haft
mest áhrif og var rikisstjómar-
þátttaka rædd í því sambandi.
Kvennalistinn er tilbúinn að taka
þátt i ríkisstjóm en þó með því
fororði að flokkurinn haldi virð-
ingu sinn gagnvart kjósendum
sínum og láti ekki af grundvallar-
stefnumiðum til þess eins að taka
þátt í rikisstjóm.
-gpm
Framsókn
Enn
óbreytt
forysta
Ólafúr Þ. Þórðarson alþingis-
maður vann um helgina ótvíræð-
an sigur í skoðanakönnun félaga í
Framsóknarflokknum á Vest-
fjörðum um uppröðun á lista. I
öðru sæti lenti Pétur Bjamason og
Katrin Marísdóttir hafnaði í því
þriðja.
Bæði Steingrímur Her-
mannsson og Jóhann Einvarðs-
son hafa gefið kost á sér á lista
flokksins á Reykjanesi, en
framhaldsþing kjördæmisráðs
verður haldið 24. nóvember og
þar verður tekin endanleg
ákvörðun um uppröðun á lista.
Aðrir sem nefndir hafa verið í
sambandi við listann á Reykja-
nesi eru Siv Friðleifsdóttir, Ní-
els Árni Lund og Helgi Péturs-
son.
-gpm
Stefnir í verkfall hjá flotanum
Af niðurstöðum úr allsherj-
aratkvæðagreiðslu yfir-
manna á fiskiskipaflotanum að
dæma, þar sem nýgerður kjara-
samningur stjórnar Farmanna-
og fiskimannasambandsins og
útvegsmanna var feildur og við-
brögðum deiluaðila, virðist fátt
geta komið í veg fyrir að boðað
verkfall á flotanum komi til
framkvæmda þann 20. nóvem-
ber næstkomandi. Ef af því
verður mun allur fiskiskipaflot-
inn stöðvast því Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Bylgjan á
Vestfjörðum hefur einnig boðað
til verkfalls á sama tíma. Afleið-
ingar verkfallsins yrðu geysileg-
ar því svo til allar fiskveiðar
myndu leggjast af og fisk-
vinnslufólk yrði atvinnulaust.
Sáttafúndur milli deiluaðila
hefúr ekki enn verið boðaður, en
þó er búist við fúndi í lok vikunn-
ar.
Olíuverðstenging
skiptahlutar
Eins og kunnugt er stendur
deilan um kostnaðarhlutdeild sjó-
manna í olíukostnaði útgerða sem
þeir vilja að verði endurskoðuð.
En samningar yfirmanna við út-
vegsmenn hafa verið lausir frá því
um síðustu áramót. Við síðustu ol-
íuverðshækkun rýmuðu kjör sjó-
manna um 8% og er skiptahlutfall
þeirra komið niður í 70%, en var í
76% fyrir hækkun. Hinsvegar
greinir deiluaðila ekki á um
hækkun kaupliða hjá sjómönnum
sem aðilar eru sammála um að
hækki í samræmi við þjóðarsátt.
Guðjón A. Kristjánsson for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins segir úrslit atkvæða-
greiðslunnar, 526 á móti, en 413
með, endurspegla vilja yfirmanna
til samningsins og að það hefði
ekki breytt neinu um úrslitin þó
svo að fleiri hefðu tekið þátt í at-
kvæðagreiðslunni. En alls greiddu
947 atkvæði og þar af vom 8 at-
kvæði auð og ógild, en á kjörskrá
vom 2.557 og því var þátttakan
um 37%. Guðjón A. segir að yfir-
menn á fiskiskipaflotanum séu til-
búnir til viðræðna við útvegs-
menn um nýjan samning eins
fljótt og auðið er og telur að næg-
ur tími sé til stefnu til að afstýra
verkfalli, sé vilji til þess af hálfú
útvegsmanna. Hann segir að sam-
kvæmt endurskoðaðri skýrslu
Þjóðhagsstofnunar um afkomu
botnfiskveiða sé ljóst, að útgerðin
sé rekin með „bullandi hagnaði“ á
sama tíma og yfirmenn hafi þurft
að taka á sig 8% kjaraskerðingu
vegna áhrifa olíuverðshækkana á
skiptaverð. Hann vísar jafnframt
þeim ummælum Kristjáns Ragn-
arssonar formanns LÍÚ á bug þess
efhis að stjóm FFSÍ hafi ekki
mælt með eigin samningi. „Ef
Kristján vill endilega fá sjó-
mannastéttina á móti sér eins og
hún leggur sig, þá er það hans
mál. Öll hans rökræða snýst um
það að gera lítið úr mönnum i stað
þess að ræða efnislega um málið,“
sagði Guðjón A.
Reynir Traustason formaður
Skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins Bylgjunnar á Vestfjörðum
segir að ef til verkfalls komi geti
það leitt til kröfugerðar þess efnis
að menn vilji olíuverðsviðmiðun-
ina alfarið í burt og þá sé fjandinn
laus. Félagið hefúr boðað verkfall
á sama tíma og stjóm Farmanna-
og fiskimannasambandsins eða
þann 20. nóvember næstkomandi.
Brigður hafa þó verið bomar á
réttmæti verkfallsboðunar hjá
Bylgjunni af ritara stjómar, Guð-
bjarti Ásgeirssyni á Guðbjörginni
ÍS 46. Reynir sagðist fyrir fúndinn
ekki búast við neinum breytingum
á áðurnefndri verkfallsboðun. „Ég
Svo virðist sem deila yfirmanna á fiskiskipum og útvegsmanna sé komin f hnút eftir að þeir fyrrnefndu felldu ný-
gerðan kjarasamning stjórnar Farmanna- og fiskimannasambandsins og Landssambands Islenskra útvegs-
manna. Mynd: ÓMJ
mun standa og falla með þessari
verkfallsboðun og mun fylgja
henni eftir á íúndinum,“ sagði
Reynir Traustason.
Bylgjan hefúr ávallt samið sér
heima í héraði og mun svo verða
áfram, enda hefúr félagið einatt
náð fram hagstæðari samningum
en Farmanna- og fiskimannasam-
bandið. Til að mynda hefur Bylgj-
an haft hærri skiptaprósentu og
sömuleiðis hærri kauptryggingu.
Kröfúr Bylgjunnar varðandi olíu-
verðstenginguna eru í aðalatrið-
um þær að henni verði breytt að
minnsta kosti um 12-15 dollara,
en í samningnum sem var felldur
var henni hnikað til um 8 dollara.
Samkvæmt því átti skiptahlutur
að byija að skerðast vegna olíu-
verðs í 165 dollurum í stað 157
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru ekki allir útgerðar-
menn vestra jafn einhuga í því að
halda til strejtu boðskapnum frá
skrifstofú LIÚ um að gefa ekkert
eftir. Heimildir að vestan herma
að einstaka útgerðarmaður hafi
hafl uppi óformlega tilburði til að
koma til móts við kröfúr sjó-
manna.
í BRENNIDEPLI
Eftil verkfalls kemur
hjá yfirmönnum á
fiskiskipaflotanum
mun það hafa í för
með sér stöðvun
veiða og atvinnuleysi
meðal fiskvinnslu-
fólks.
Úrslitin mikil
vonbrigði
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna segir að niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar valdi sér
miklum vonbrigðum og sé hið
óvæntasta sem hent hefúr hann á
áratuga lögnum ferli hans hjá út-
vegsmönnum. Kristján segir jafh-
framt að komi til verkfalls verði
það hið ósanngjamasta sem háð
hefúr verið hérlendis um langan
tíma. Sérstaklega í ljósi þess, að
samkvæmt mati Þjóðhagsstofnun-
ar hafi laun sjómanna hækkað um
17% á liðnum misserum, en hefðu
hækkað allt að 28% ef ekki hefði
komið til hækkana á olíuverði. „í
þessu sambandi verður að hafa
það í huga að umtalsvert meira
hefúr komið í hlut yfirmanna sem
em á hærri skiptahlut en undir-
mennimir,“ segir Kristján Ragn-
arsson.
Hann sagði einnig að ef fram
kæmi krafa um að taka olíuverð-
sviðmiðunina alfarið í burt, yrði
það til þess að yfirmenn fengju
langa hvild fiá störfúm.
-grh
(«.
vinningar, vídeóupptökuvél-
ar, heimilistæki, videótæki,
grafíkmyndir og bókaúttektir.
------------—----------------MI.IWHII.
Leggið vinstri málstað og
málfresli lið með því að
kaupa happdrættismiða
Þjóðviljans
Vl
II
v < XV •
«
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3