Þjóðviljinn - 21.11.1990, Page 2

Þjóðviljinn - 21.11.1990, Page 2
FRETTIR Húsbréf Ruddaskapur eða rangtúlkanir Jóhanna Sigurðardóttir: Það er ekki offramboð á húsbréfum, afföllin hafa verið rangtúlkuð. Geir H. Haarde: Breytileg afföll ruddaskapur gagnvart fólki Það er ekki annað að sjá en húsnæðismálin séu í algjöru uppnámi í ríkisstjórninni og ekki samstaða um neinn hlut, sagði Geir H. Haarde, Sjfl., um ástandið síðustu daga í hús- bréfakerfinu í utandagskrár- umræðu í sameinuðu þingi á mánudag. Forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson tók undir með Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra í síðustu viku að það bæri að loka húsnæðiskerfmu frá 1986. Hinsvegar ályktaði flokks- þing Framsóknarflokksins um helgina að þingið teldi rétt að láta kerfið frá 1986 standa enn fyrirþá sem eru að byggja í fyrsta sinn. I síðustu viku hættu Lands- bréf að kaupa húsbréf, en fóru síðan aftur að kaupa þau degi seinna á breytilegu verði frá degi til dags. Geir sagði að það væri r Olvmpíuskákmótið Sigur gegn Spánverjum íslenska skáksveitin vann góðan sigur á sveit Spánverja á Olympíuskákmótinu í Júgóslav- íu í gær með tveimur og hálfum vinningi gegn einum og hálfum. Margeir Pétursson og Björgvin Jónsson unnu báðir sínar skákir, jafntefli varð í skák Héðins Stein- grímssonar, en Helgi Olafsson tap- aði sinni. Eftir þessa ljórðu umferð er íslenska sveitin komin með níu og hálfan vinning og er ekki langt á eftir efstu þjóðum. -grh Trésmiðafélagið mót- mælir vaxtahækkun Stjóm og trúnaðarmannaráð Trésmiðafélags Reykjavíkur hef- ur samþykkt ályktun þar sem von- brigðum er lýst vegna vaxtahækk- unar íslandsbanka. „Fundurinn telur að Islands- banki eigi að vera í fararbroddi íyrir lækkun raunvaxta og tryggja að ýmiss konar þjónustugjöld séu í lágmarki, en þau geta skipt veru- legu máli fyrir þá sem eru með lánafyrirgreiðslu til skamms tíma. Fundurinn áréttar þá skoðun sína að bankar og sparisjóðir lækki raunvexti enda styðja fréttir um afkomu þeirra þá skoðun enn frekar“, segir í ályktuninni. Umferðaifiing í fyrsta sinn Umferðarþing hefst í Reykja- vík á morgun og er það hið fyrsta í röðinni. Þingið verður sett á morgun en því lýkur á íostudag- inn. Þar verður gefin mynd af um- ferðarmálunum í dag og íjallað almennt um umferðarmál. Þá verður rætt um hveiju þurfi að breyta og loks um framtíðarsýn manna, en þar má finna ýmis ný- mæli. Landsfundur um slysavam- ir fellur að þessu sinni inn í Um- ferðarþing, en landlæknisembætt- ið og fleiri aðilar hafa staðið að landsfundi um slysavamir. Þingið er öllum opið. mddaskapur gagnvart fólki í fast- eignaviðskiptum að bjóða þeim uppá breytileg aftoll innan dags- ins á húsbréfum. Jóhanna sagði að ákvörðun Landsbréfa hefði verið klaufaleg og samrýmdist ekki hlutverki þeirra sem viðskiptavaka. Hún gagnrýndi suma þingmenn án þess að nefna nöfn fyrir makalaus ummæli sem bæm vott um að þeir skildu ekki um hvað t.d. afíollin snemst. Eins gagnrýndi Jóhanna það sem hún kallaði æsifrétta- mennsku sumra íjölmiðla. Hún sagði að það væri ekki offramboð á húsbréfum þar sem færri hefðu farið á markað en reiknað var með. Hún sagði líka að kaupend- ur fasteigna bæm ekki affollin, fasteignir hefðu ekki hækkað í verði og seljendur fengju í hús- bréfakerfinu eignimar nánast staðgreiddar. Hún nefndi einnig að sumir fasteignasalar hefðu ekki hvatt fólk nægilega að setja húsbréfin uppí eign sem verið væri að kaupa. Alexander Stefánsson, Frfl., fyrmrn félagsmálaráðherra, sagði að húsbréfin leystu engan vanda og það yrði að stöðva þann óróa og þá óvissu sem ríkti í þessum efnum. Geir H. Haarde sagði að húsbréfin ættu rétt á sér, en hann gagnrýndi Jóhönnu fyrir að kenna öðmm um einsog hann orðaði það. Hann sagði að það þyrfti að eyða óvissunni og ófremdar- ástandi sem hefði skapast vegna þess að of geyst hefði verið farið í kerfið. Og hann klikkti út á því að ábyrg stjómmálaöfl yrðu að afstýra ffekara tjóni á húsbréfamarkaðnum og finna ffambúðarlausn á þessum málum. “Um þessi mál þarf að myndast breið samstaða til þess að almenningur hafi fast land undir fótum,” sagði Geir. -gpm Verðlag Matvæli hafa lækkað Meðalverð vörutegunda hef- ur Iækkað í flmm matvöru- verslunum á höfuðborgarsvæð- inu frá því í aprfl til loka októ- ber. Mest er lækkunin hjá Fjarð- arkaupum í Hafnarfirði, um 3,3%, þá kemur 2,1% lækkun hjá Lögbergi á Bræðraborgar- stíg, 1,8% lækkun hjá Bónus Skútuvogi og 0,7% lækkun hjá Bónus Faxafeni og Nóatúni í Kópavogi. Þetta kemur fram í verðkönn- un á 50 algengum vörutegundum sem Verðlagsstofnun hefur gert í 49 matvöruverslunum á höfuð- borgarsvæðinu. Verðlagsstofnun gerði slíka könnun fyrst í apríl, síð- an í júlí og nú í október. A þriggja mánaða tímabili, ffá júlí til október lækkaði meðalverð- ið á þeim vörum sem kannaðar voru um rúmlega 1% en ffá apríl til október hefur orðið að meðaltali 2,1% hækkun á matvörum sam- kvæmt þessari könnun. -Sáf Launamenn munar um hvern þann eyri sem kann að sparast ( hag- stæðum vöruinnkaupum. Það hlýtur því að vera öllum fagnaðarefni þegar Ijóst er, að verð á matvælum hefur lækkað I fimm matvælaversl- unum á undanfömum mánuðum. Mynd: Jim Smart. Alls kyns vörur verða á boðstólum á jólabasar Sólheima. Sólheimabasarinn um helgina Sólheimar í Grímsnesi og Foreldra- og vinafélag Sólheima verða með sinn árlega jólabasar í Templarahöllinni við Eiríksgötu í Reykja- vík næst komandi sunnudag klukkan 14.00. Þama verða seldar fram- leiðsluvörur heimilisins en á meðal þeirra eru lífrænt ræktað grænmeti, handsteypt bývaxkerti, tréleikföng og handofnar mottur og dúkar. Einnig verða á boðstólum jólakransar, lífrænt ræktað te og krydd og mjólkursýrt grænmeti. Piparkökuhús verður aðalvinningur hlutavelt- unnar. Auk þess verður hefðbundinn kökubasar og fatasala, en basar þessi er og hefur verið helsta tekjulind félagsins. Aðalfundur SAGA Suður-Afríkusamtökin gegn Apartheid halda aðalfund sinn í kvöld klukkan 20.00 í húsakynn- um Iðnnemasambands Islands við Skólavörðustíg 19. Á dagskrá fúndarins eru erindi um undanlið- ið starfstímabil SAGA, verkefnin framundan og fjármál. Þá verður ný forysta kosin á fundinum. Boðið verður upp á kaffi og kökur og em allir velkomnir. Fundur Geðhjálpar Fundur verður haldinn á veg- um Geðhjálpar, samtaka fólks með geðræn vandamál, aðstand- enda þeirra og velunnara, annað kvöld klukkan 20.30 í kennslu- stofu á þriðju hæð Geðdeildar Landspítalans. Dóra S. Bjamason heldur fyrirlestur sem hún nefnir Aðstandendur og fagfólk. Að- gangur er ókeypis og allir em vel- komnir. Innflutningur búvara Neytendafélög Selfoss og stéttarfélög á Suðurlandi boða til umræðufúndar á Hótel Selfossi í kvöld klukkan 20.30 undir yfir- skriftinni „Á að leyfa innflutning búvara?" Fmmmælendur verða Steingrímur J. Sigfússon Iand- búnaðarráðherra, Páll Lýðsson bóndi í Litlu-Sandvík og stjómar- formaður Sláturfélags Suður- lands, Guðmundur Gylfi Guð- mundsson, hagfræðingur hjá ASI, María E. Yngvadóttir varafor- maður Neytendasamtakanna og Ögmundur Jónasson, forseti BSRB. Þróunarstyrkir til leikskóla Uthlutað hefur verið úr Þró- unarsjóði leikskóla fyrir þetta ár, en með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og ný- breytni í uppeldisstarfi. Tíu leik- skólar sóttu um styrk ffá sjóðnum í ár, en úthlutað var sjö styrkjum til jafúmargra leikskóla. Alls var 3,4 miljónum króna úthlutað, en hæsta styrkinn, eina miljón, fékk Hálsaborg í Reykjavík. Verkefnið í Hálsaborg beinist einkum að elstu bömunum í leikskólanum. RÖSE-ræða Steingríms VIII eftirlit með vfgbúnaði á höfunum Steingrimur Hermannsson, for- sætisráðherra íslands, flutti ræðu í gær á Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í París og hvatti til eftirlits með vígbúnaði á höfúnum. Hann fagnaði nýundir- skrifúðum samningi Nató og Var- sjárbandalags um niðurskurð víg- búnaðar og eftirlit með vígbúnaði á landi, en bætti við: „Við viljum það sama fyrir okkar umhverfi. Evrópa er ekki einungis land, hún er líka sjór.“ Steingrimur sagði ennffemur við þetta tækifæri að ísland vildi að ferðir kjamorkuknúinna kafbáta yrðu takmarkaðar, með hliðsjón af slysum sem þá hefúr hent, og að hætt yrði að henda úrgangi og þá sérstaklega efnaúrgangi í sjóinn. Sovéskur kafbátur sökk skammt ffá Bjamarey í apríl í fyrra og liggur þar enn á sjávarbotni. Um slík flök sagði Steingrímur: „Þau munu innan skamms dreifa eitri sínu út um höfin. Og í mínu landi em menn algerlega komnir upp á það, sem sjórinn gefur.“ í Reuterffétt um þetta segir, að Island hafi undanfarið reynt að fá stuðning annarra Natórikja til að koma á eftirliti með vígbúnaði á höfúnum, en í þessu máli sé banda- lagið klofið og sá klofhingur hafi nú enn á ný komið á daginn með ræðu Steingrims. Á móti íslandi í þeirri deilu séu Bretland og Banda- ríkin, flotaveldi mikil sem em al- gerlega á móti vígbúnaðareftirliti á höfunum og gefa í skyn að slíkt myndi hafa í for með sér skerðingu umferðarffelsis á sjó. Sum Nató- ríkja, segir Reuter, hafa ekki tekið afstöðu í málinu. Það hefúr einnig vakið athygli fréttastofúnnar að í þessu máli er ísland samferða Sovétríkjunum. í RÖSE-ræðu sinni á mánudag end- urtók Gorbatsjov Sovétríkjaforseti fyrri hvatningar sínar til Nató um að ganga til samningaviðræðna um takmarkanir á stærð og vopnabún- aði sjóherja. Reuter/-dþ. Smásögur Jakobínu Sigurðardóttur Mál og menning hefúr gefið út smásagnasafnið Vegurinn upp á fjallið eftir Jakobínu Sigurðar- dóttur. I safninu em átta nýjar smásögur, en liðinn er hartnær áratugur ffá því Jakobína sendi síðast ffá sér bók. í fféttatilkynn- ingu frá Máli og menningu segir að nýju sögumar sveiji sig í ætt við fVrri sögur Jakobínu, stíllinn sé tær og frásögn öll ljós, og hvort sem fjallað sé um eilífðarvanda eða dægurmál fléttist saman í sögunum höfuðþættir listarinnar að segja ffá: Að vekja lesandann til umhugsunar og skemmta hon- um. Sigurborg Stefánsdóttir hannaði bókarkápu. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.