Þjóðviljinn - 21.11.1990, Page 7

Þjóðviljinn - 21.11.1990, Page 7
MENNING Blindflug Súldar Hljómsveitin Súld lék fyrir 50 þúsund manns á Montreal-hátíðinni, gefur nú út geisladisk og flytur verk með Sinfóníuhljómsveitinni á næsta ári Hljómsveitin Suld hefur nú lokið upptökum á tónlist sem birt- ist innan skamms á geisladiskn- um Blindflugi. Steingrimur Guð- mundsson trommuleikari: - Þetta eru tíu ný, frumsamin lög eftir hljómsveitarmeðlimi sjálfa, en Lárus Grímsson er nú aðallagasmiðurinn. Efnið er létt- ara en bandið er þekkt fyrir, að- gengilegra býst ég við. Þetta er svona blanda úr mörgu, djass, rokk, heimstónlist. - Heimstónlist? - Já, því sem kallað er „world music“ á ensku. - Hafið þið leikið þessa nýju blöndu opinberlega? - Já, til dæmis á djassdögum Ríkisútvarpsins og á Montreal- djasshátíðinni sl. sumar fyrir 50 þúsund manns, en þar vorum við að spila í þriðja sinn. - Nafnið Blindflug? - I hljómsveitinni Súld þurfa menn að fljúga ákveðið blindflug, þetta er ekki hefðbundin dægur- lagahljómsveit. Nafnið hljómar ekki síður á ensku, Flying on Instruments, en geisladiskurinn kemur líka út fyrir erlendan markað. - Fleira stórt á döfinni? - Já, við munum væntanlega leika með Sinfóníuhljómsveitinni í júní á næsta ári, flytja þar verk eftir fyrrum liðsmann Súldar, Símon Kúran. Og hugsanlega for- um við í stóra Kanadaferð á næsta ári, til tíu borga. - Spilar þú með öðrum en Súldarmönnum? - Ég er nú í KGB-djasstríóinu og helgarhljómsveitinni Ola blaðasala. Kráargestir þekkja okkur. - Hverjir standa að gerð disksins? - Upptökur fóru fram í Hljóð- rita og Sýrlandi, útgefandi er Geimsteinn en Skífan sér um dreiflngu. Útgáfutónleikar verða i Púlsinum við Vitastíg 4. og 9. des., en síðan á Akureyri 12. des. og í Keflavík 13. des. ÓHT Hljómsveitina Súld skipa, frá vinstri: Steingrímur Guðmundsson, Páll Pálsson, Tryggvi Hiibner, Marten van der Valk og Lárus Grlmsson. Mynd: RAX. Saga um lítinn prins Kaþarsis-leiksmiðjan sýnir verkfyrir 3-7 ára börn, byggt á sögu Saint-Exupéry A mánudaginn frumsýndi Ka- þarsis- leiksmiðjan leikritið „Saga um lítinn prins“, sem er 40 minútna leikgerð eftir hugmynd- inni í heimsfrœgri sögu franska rithöfundarins Saint-Exupéry, „ Litli prinsinn Kaþarsis-leiksmiðjan sýnir verkið í Norræna húsinu við Sæ- mundargötu og býður áhorfend- um í ævintýralegt ferðalag. Meðal persóna er kóngurinn sem ríkir einn á sinni stjömu, montni mað- urinn sem þráir aðdáun og eftir- tekt, kaupnmaðurinn sem telur stjömur til að leggja inn í banka, refurinn sem langar að vera tam- inn og fjöldamargt annarra fyrir- bæra, dýra og blóma. Sagan „Litli prinsinn" var fyrst gefm út á íslensku fyrir 30 ámm i þýðingu Þórarins Bjöms- sonar skólameistara. I henni er létt gaman og djúp alvara og sag- an á erindi við unga jafht sem aldna. Leikendur em Ásta Amar- dóttir, Erling Jóhannesson, Sigur- Bömin komast f tæri við óllklegasta fólk og fyrirbæri I „Sögu um lítinn prins" sem verður sýnd I sal Norræna hússins fram f desember og hent- ar jafnt ungum sem öldnum, þótt markhópurinn sé 3-7 ára. Mynd: Jim Smart. Lokabindi Tryggvasögu Lykill að kafla í athafna- og hagsögu þjóðarinnar. Heimsborgarinn og gleðimaðurinn Tryggvi Gunnarsson bankastjóri kom víða við Með því að segja sögu Tryggva Gunnarssonar er brugð- ið Ijósi á drjúga þœtti úr hagsögu íslendinga. Tryggvi var einn þeirra manna sem áttu mestan þátt í að gera verslunina inn- lenda og mótaði stefnu Lands- bankans á viðburðaríku og ör- lagaríku skeiði í athafnasögu þjóðarinnar. Með sögu hans er beint Ijósi að athafnalífi samtim- ans, þar sem Tryggvi gegndi oft stœrstu hlutverkunum. Um þessar mundir em 155 ár liðin frá fæðingu Tryggva Gunn- arsson bankastjóra og nú kemur út að tilhlutan Seðlabanka íslands og Landsbanka íslands fjórða og síðasta bindið í ævisögu hans undir heitinu „Tryggvi Gunnars- son, athafhamaður og banka- stjóri", eftir Bergstein Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Islands. Tryggvi Gunnarsson var afar atorkumikill, starfaði við búskap, smíðar, garðyrkju, verktakastöif, verslunarstjóm, ljósmyndun, út- gáfustörf og ritstörf, var formaður í fjölda félaga, sat á Alþingi 1875- 1885, bæjarfulltrúi í Reykjavík lengst af frá 1897 og bankastjóri Landsbankans 1893- 1909. Meðal þekktustu verkefna Á kynningarfundi vegna Tryggvasögu, frá vinstri Landsbankamennimir Björgvin Vilmundarson bankastjóri og Jóhann Ágústsson aðstoðar- bankastjóri, Bergsteinn Jónsson prófessor, höfundur slðustu bindanna, Einar Laxness, framkvæmdastjóri Menningarsjóðs, og Björn Tryggva- son, aöstoðarbankastjóri I Seðlabanka Islands. Mynd:Jim Smart. sem Tryggvi sá um eða kom ná- lægt í verklegum greinum má nefna kirkjuna í Laufási við Eyja- fjörð, á fæðingarstað hans, Fnjó- skárbrúna, gömlu Ölfusárbrúna og Alþingishúsið, en ekki síst garðinn bak við það sem var tóm- stundagaman hans í ellinni og þar er hann grafinn. í hópi fjölda félaga sem hann beitti sér óspart fyrir em Hið ís- lenska þjóðvinafélag, Fiskifélag- þór Albert Heimisson og Skúli Gautason. Leikstjóri er Kári Hall- dór en Ámi Harðarson sér um tónlist. Sýningar verða fram í desem- ber i sal Norræna hússins mánu- daga, þriðjudaga, flmmtudaga og fostudaga, bæði fýrir og eftir há- degi. Stærri hópar geta pantað sýningar eftir samkomulagi. Allar upplýsingar em veittar i símum 91-16252 og 17030. ÓHT ið og önnur samtök útvegsmanna, Dýravemdunarfélagið, Skógrækt- arfélagið, Slippfélagið og Ishús- félagið. Um litið upplag er að ræða af 4. bindi ævisögunnar, fyrir utan 650 stök eintök fara 350 í gjafa- öskjur með fyrri bindunum þrem- ur. Bókaútgáfa Menningarsjóðs sér um afgreiðslu og dreifmgu. ÓHT Miðvikudagur 21 nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Skáldakvöld í Nýhöfn Skáldakvöld verður í listasal Nýhafnar, Hafnarstræti 18, annað kvöld kl. 20:30. Steinunn Ásmundsdóttir er kynnir og heldur skáldakvöldið í samvinnu við listasalinn. Fram koma Berglind Gunnarsdóttir, Bjami Bjamason, Gunnhildur Siguijónsdóttir, Kristján Hreinsson og Ólafur Gunnarsson, en einnig verður lesið úr verkum Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur og Rúnars Helga Vignissonar. Til að forðast röskun á upplestri er fólk beðið að mæta tímanlega. Vonlausa tríóið Fjórir nýir söngvar em á fyrstu plötu „Vonlausa tríósins“ og er ætlað að verma hjörtu allra tónelskandi manna og hleypa nýju lifi í íslenska tón- listarmenningu, ekki síður en þjóðleg tónlist sú sem hefur sameinað þjóð- ina á erfiðum tímum, að sögn höfundanna. Tríóið skipa Keflvíkingamir Þröstur Jóhannesson gítarleikari, Magn- ús Sigurðsson banjóleikari og Sverrir Ásmundsson kontrabassaleikari. Sérstakur gestur á plötunni er Helgi Óskar Víkingsson trommuleikari. Hörður í Norræna Trúbadúrinn Hörður Torfason flytur tónlist sína og spjallar um hana í kvöld i beinni útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar Kanal 2 í Kaupmanna- höfn, en kemur síðan hingað til að skemmta á árshátíð SÁA og verður með tónleika í Norræna húsinu á sunnudagskvöldið kl. 21. Flytur hann þar m.a. lög af nýjustu plötu sinni „Lavmælt“, sem hefur hlotið góðar viðtökur í Danmörku, en einnig af fyrstu plötunni, sem út kom fyrir réttum 20 ámm. Héðan fer Hörður Torfason til að spila og syngja í Finnlandi. Ritun kristnisögunnar Laugardaginn 24. nóvember kl. 10-17 verður málþing í Borgartúni 6 í tilefhi af því að Alþingi samþykkti í mars að standa fyrir samningu rit- verks um lcristni á Islandi og áhrif hennar á þjóðlíf og menningu i þúsund ár. í ritstjóm verksins em sr. Siguijón Einarsson, prófastur á Kirkjubæj- arklaustri, formaður, Helgi Skúli Kjartansson sagnffæðingur og sr. Jónas Gíslason vígslubiskup og fyrrv. prófessor. Dr. Hjalti Hugason lektor hefur verið ráðinn ritstjóri verksins og ger- ir hann á málþinginu grein fyrir meginlínum í ritstjómarstefhunni. Auk almennra fyrirspuma svarar svo dr. Gunnar Karlsson prófessor spuming- unni „Hvers telur sagnfræðingur að gæta þurfi við samningu kristni- sögu?“, en dr. Þórir Kr. Þórðarson spumingunni „Hvers telur guðffæðing- ur að gæta þurfl við samningu kristnisögu?“. Spurt er einnig „Um hvað á að fjalla i kristnisögu?“ og því svara sr. Hanna Maria Pétursdóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir listffæðingur, dr. Sverrir Kristjánsson miðaldafræðingur, Frosti F. Jóhannsson þjóðhátta- ffæðingur, Gunnar F. Guðmundsson sagnffæðingur og Kristín Björgvinsdóttir bókasafnsfræðingur. Ámi Bergmann ritstjóri ræðir um „hugarfarsmenningu“ og Helgi Skúli Kjartansson um meginlínur málþingsins og hugmyndir að útfærslu. ÓHT

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.