Þjóðviljinn - 21.11.1990, Page 9
NÝJAR BÆKUR
Þrætubók í
Ijóðum
Komin er út ný ljóðabók eftir
Hallberg Hallmundsson og nefn-
ist Þrætubók. Hún er 64 blaðsíður
að stærð og hefur að geyma rúm-
lega þijátiu ljóð. Þar þrætir höf-
undur við Stein, Shakespeare og
Donne - svo að ekki sé minnst á
Aðalstein Ingólfsson - skopast að
ýmsum góðskáldum íslenskum,
túlkar að nýju nokkrar vel kunnar
þjóðsögur og goðsagnir og heyr
glímu við guð almáttugan.
A kápusíðu segir að ljóð Hall-
bergs höfði til vitsmuna lesenda
jafnt og tilfmninga. En skopið er
aldrei langt undan, eins og þeir
vita, sem lesið hafa fyrri bækur
höfundar.
Hallberg hefur verið búsettur í
New York í þijátíu ár, þar sem
hann hefur stundað þýðingar, rit-
stjóm og önnur störf við alfræði-
bækur og tímarit. Síðustu tuttugu
árin hefur hann auk þess ritað um-
sagnir um nýjar íslenskar bækur í
ársfjórðungsritið World Literat-
ure Today (áður Books Abroad),
sem University of Oklahoma gef-
ur út. Hann hefur áður sent frá sér
þrjár ljóðabækur.
Útgefandi Þrætubókar er Brú.
Ljóö Kristjáns
Arnasonar
Út er komin hjá Máli og
menningu ljóðabókin Einn dag
enn eftir Kristján Ámason. í bók-
inni em 72 ljóð. Hún skiptist í
þrjá hluta, I. Undir ósonlagi, II.
Þrettán þankabrot um lífið, en sá
hluti er allur undir sonnettuhætti,
og loks em þýðingar í III. hlutan-
um. Þýðingamar spanna næstum
2700 ár bókmenntasögunnar, og
meðal tuttugu og fjögurra höf-
unda sem Kristján glímir við em
Sapfó, Goethe, Heine, Rilke og
Auden.
Kristján Amason er fæddur
1934. Hann stundaði nám i
Þýskalandi og Sviss og hefur
kennt bókmenntir við Mennta-
skólann að Laugarvatni og Há-
skóla Islands. Kristján hefiir
skrifað greinar um bókmenntir og
heimspeki og þýtt fjölda bók-
menntaverka. Einn dag enn ei
önnur ljóðabók hans.
Bókin er 97 bls.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Félagsfundur verður haldinn í kvöld, 21.
nóvember kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: , .. ...
1. Kosning kjörnefndar vegna komandi alþing-
iskosninga.
2. Tilhögun kosningaundirbúnings.
3. Önnur mál.
Félagarfjölmennið.
Stjórn ABR
Auglýsendur athugið!
Jólagjafahandbók Þjóðviljans
kemur út 11. desember í 40 þús. eintökum og
veröur dreift meö póstí á höfuðborgarsvæðinu.
Að auki til áskrifenda um land allt.
Auglýsendur, sem hafa áhuga á að koma
auglýsingu í handbókina, vinsamlegast hafi
samband við auglýsingadeild sem allra fyrst
og eigi síðar en 5. desember.
þlÓÐVILIINN
Símar 68t310 og 681331
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma
Þórdís Hulda Ólafsdóttir
lést mánudaginn 19. nóvember.
Guðmundur Norðdahl
Brynhildur Þórdísardóttir Engen
Garðar Norðdahl
Vilborg Norðdahl
María Norðdahl
Guðmundur Þór Norðdahl
tengdabörn og barnabörn.
Alþýöubandalagið I Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður haldið I Þinghóli Hamraborg 11 mánudag-
inn 26. nóvember kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálaráð
Bæjarmálaráð AB á Akranesi heldurfund í Rein mánudaginn
26. nóvember klukkan 20.30.
Dagskrá:
Bæjarmálin og önnur mál.
Stjómln
Nýr leikskóli
Starf forstöðumanns
Staða forstöðumanns við nýjan leikskóla í
Hæðahverfi í Garðabæ er hér með auglýst til
umsóknar. Framkvæmdir við skólann hófust í
aprílmánuði síðastliðnum, og er áætlað að
þeim verði að fullu lokið 1. febrúar næstkom-
andi. Leikskólinn verður rekinn í þremur al-
mennum deildum, auk sérhæfðrar þjálfunar-
deildar fyrir fötluð börn.
Ráðið verður í stöðu forstöðumanns frá 1. janú-
ar næstkomandi. Forstöðumanni er í fyrstu ætl-
að að undirbúa rekstur leikskólans, en áformað
er, að rekstur hefjist svo 1. mars 1991. Launa-
kjör verða samkvæmt kjarasamningum Garða-
bæjar og Fóstrufélags íslands eftir ósk um-
sækjanda.
Umsóknarfrestur er til 23. nóvember nk. Allar
nánari upplýsingar um starfið veitir dagvistarf-
ulltrúi Garðabæjar í sima 656622 milli kl. 9-13
virka daga.
Bæjarstjóri
Félagsfundur
um kjara- og félagsmálin
Iðja, Félag verksmiðjufólks, boðar til félags-
fundar í Sóknarsainum, Skipholti 50a.,
fimmtudaginn 22. nóvember 1990, kl. 5:00
síðdegis.
Dagskrá:
1. Kjaramálin.
Gylfi Arnbjörnsson, starfsmaður Kjararann-
sóknarnefndar.
2. Félagsmálin.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Allir Iðjufélagar eru hvattir til að mæta á
fundinn.
Stjórn IÐJU.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
AB Noröurlandi eystra
Kjördæmisráð
Framhaldsaðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins (
Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn í Skúlagaröi dagana
1. og 2. desember og hefst kl. 14. á laugardag.
Dagskrá og tilhögun nánar auglýst síöar.
Stjórnin
AB Suðurlandi
Forval
Vakin skal athygli á breyttum kjördögum I sem verða 23. og 24. nóvember. seinni umferð forvals,
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla hefst um leið og kjörseðlar hafa borist til formanna, sem sjá um seinni umferð forvalsins I sinu fé-
lagi. Uppstillingarnefnd
AB Surðurlandi
Kjördæmisráð
Aukafundur kjördæmisráðs hefst kl. 13 sunnudaginn 25. nóvember 1990. Dagskrá: f Hvoli á Hvolsvelli
Kosningaundirbúningur, talning úr forvali og röðun á lista Alþýðu- bandalagsins á Suöurlandi fyrir alþingiskosningarnar á vori kom-
anda. Stjórnln
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Félagsfundur
Félagsfundur Alþýðubandalagsins i Reykjavlk verður haldinn
miðvikudaginn 21. nóvember kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Fundarefni:
- 1. Kosning kjörnefndar vegna komandi alþingiskosninga.
2. Tilhögun kosningaundirbúnings.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnln
Miðvikudagur 21. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9