Þjóðviljinn - 28.11.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Bráðabirgðalögin
Meirihlutinn
tæpur
Guðrún Helgadóttir: Ekki heimild í lögum að senda málið til
umboðsmanns
Vafi leikur á því hvort ríkis-
stjórnin hefur meirihluta í
neðri deild Alþingis til að sam-
þykkja bráðabirgðalögin frá
því í ágúst á kjarasamningana
við BSRB. Eftir að þingsálykt-
unartillögu Stefáns Valgeirs-
sonar, SJF, um álit umboðs-
manns Alþingis, var vísað frá,
lýsti hann því yfir að hann
myndi greiða atkvæði gegn lög-
unum. Geir Gunnarsson, Abl.,
hefur einnig lýst því yfir að
hann greiði atkvæði gegn lög-
unum. í gær vildi Hjörleifur
Guttormsson, Abl., ekki segja
til um hvort hann myndi greiða
atkvæði gegn lögunum eða sitja
hjá, en hann hefur lýst síerkri
andstöðu við lögin frá því áður
en þau voru sett.
Greiði allir þrir atkvæði gegn
lögunum, sem og öll stjómarand-
staðan, þá em lögin fallin á jöfn-
um atkvæðum. Kvennalistakonur
hafa lýst því yfir að þær munu
greiða atkvæði á móti en Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagðist í gær
ekki geta sagt til um hvemig
flokkurinn myndi greiða atkvæði.
„Það verður rætt þegar málið
kemur úr nefnd,“ sagði Þorsteinn,
en sú er hefðin. Snarpar umræður
urðu um frávísunartillöguna á til-
lögu Stefáns á mánudag.
„Þeir vilja vísa þessu frá
vegna þess að þeir þora ekki að fá
svona álitsgerð,“ sagði Stefán
Valgeirsson, en tillaga hans var
þess efnis að fela forsetum Al-
þingis að afla lögfræðilegs álits
umboðsmanns á bráðbirgðalög-
unum. „Það er aumingjaskapur að
láta ekki kanna þetta mál a.m.k. í
nefnd,“ sagði Stefán, en hann
hafði áður mælt fyrir tillögu sinni.
Það var Guðrún Helgadóttir,
Abl., sem lagði til að þingsálykt-
unartillögunni yrði vísað frá. Hún
benti á að umboðsmaður Alþingis
þyrfti ekki að hlíta boði Alþingis
um álitsgerð um form og efni
laga. Hún benti á að í reglum um
umboðsmann kæmi fram að
starfsvið hans næði ekki til starfa
Alþingis né til dómsstarfa. Bráð-
birgðalögin eru í meðferð þings-
ins, í nefnd, og eins hefur BHMR
höfðað mál fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur um stjómarskrár-
gildi laganna. Umboðsmaður hef-
ur lýst því yfír að hann fjalli ekki
um atriði sem lagt hefur verið fyr-
ir dómstóla. „Af þessu er ljóst að
forsetar Alþingis hafa enga heim-
ild í lögum til að fela umboðs-
manni Alþingis að semja lög-
fræðilegar álitsgerðir fýTÍr Al-
þingi," sagði Guðrún Helgadóttir,
forseti sameinaðs þings.
Friðrik Sophusson, Sjfl.,
sagðist sammála Guðrúnu í einu
og öllu varðandi þetta mál, en
málið snerist ekki um það, heldur
hvort meirihluti væri á þingi fyrir
bráðabirgðalögunum. Ami Gunn-
arsson hvatti S*efán tii að draga
sína tillögu til baka áður en
frávísunartillagan kæmi til at-
kvæða en það tók Stefán ekki í
mál og krafðist nafnakalls. Það
voru 28 þingmenn sem greiddu
frávísunartillögunni atkvæði sitt
en þrír vom á móti. Stefán, Kar-
vel Pálmason, Alfl., og Skúli AI-
exandersson, Abl., vom á móti en
þingkonur Kvennalistans greiddu
ekki atkvæði.
-gpm
Nvbúgreinar
Krókódíllinn
heillar
r r
Astralíumenn svara jyrirspurnum Islendinga
um krókódílarækt
að verður déskoti erfitt, en
spennandi, segir Harry
A Iþvðubandalagið
Deilan ekki málefnaleg
Þorbjörn Broddason: Komi menn sér ekki saman í Reykjavík er
flokkurinn illa klofinn
á um það hvemig stuðningsmenn
skyldu skilgreindir. Við lögðum
til að það yrði stofnaður 15 manna
starfshópur. Þama töldum við að
við væmm í fyrsta Iagi að gefa
mönnum færi á að hittast og koma
sér saman um það hvemig þátt-
taka skyldi skilgreind og ýmislegt
annað sem þyrfti að ræða. Þetta
kusu ABR-menn að skilja sem
svo að þama væri verið að opna
allar gáttir og þegar þau skilaboð
koma til Birtingar kjósa þeir að
skilja það sem svo að ABR-menn
séu óalandi og ófeijandi. Þannig
að í báðar áttir leyfa menn sér
túlkanir sem manni virðist gefa til
kynna að það sé takmarkaður vilji
til að vinna saman.“ Hvert félag á
að skipa fimm menn í nefndina.
Þorbjöm vildi leggja sérstaka
áherslu á lokamálsgrein hug-
myndar starfsháttanefhdar þar
sem fram kemur að stjómir félag-
anna skuldbindi sig til þess að
niðurstöður 15 manna hópsins
verði lagðar til grundvallar við
röðun á lista.
„Það er alls ekki ætlunin að
Komi menn sér ekki saman
um aðferð til að koma sam-
an lista í Reykjavík þá er AI-
þýðubandalagið illa klofið án
þess að séð verði að það sé á
málefnalegum forsendum,
sagði Þorbjörn Broddason, for-
maður starfsháttanefndar AI-
þýðubandalagsins, varðandi
ágreining Alþýðubandalagsins í
Reykjavík og Birtingar um
hvernig eigi að standa að forvali
í Reykjavík, en þessi tvö félög
starfa í borginni auk Æskulýðs-
fylkingarinnar.
„Starfsháttanefnd lagði fram
ákveðna hugmynd um að efnt
yrði til skoðanakönnunar þar sem
stuðningsmönnum Alþýðubanda-
lagsins væri boðið að taka þátt,“
sagði Þorbjöm. Eftir það ályktaði
ABR að efnt skyldi til forvals fyr-
ir flokksmenn og skipaði í kjör-
nefnd. Birting ályktaði um sam-
eiginlegan vettvang og tilnefndi
fimm menn í nefnd starfshátta-
nefndar.
„í þessari hugmynd okkar,“
sagði Þorbjöm, „ er hvergi kveðið
nokkurt þessara félaga afsali sér
endanlegum rétti til að samþykkja
eða hafha þeim lista sem kæmi út.
Ég taldi að þama væru góðir og
gildir fyrirvarar og menn væm
þess vegna ekki að taka áhættu
með því að leggja út á þessa
braut,“ sagði Þorbjöm og bætti
við að hann væri ekki úrkula von-
ar um að það tækist að koma sam-
an þessum 15 manna hópi og að
hópurinn kæmi sér saman um for-
val þar sem allir gætu sæmilega
við unað.
„Það er klofningur í flokkn-
um, það þýðir ekki deila um það,
og ef menn vilja að klofningnum
linni, þá verða menn líka að bijóta
aðeins odd af oflæti sínu til að
geta talað saman og í rauninni
gekk okkar tillaga í starfshátta-
nefnd út á það að menn fyndu
vettvang til þess að tala saman á
ábyrgan hátt. Birting er búin að
tilnefna á þennan vettvang og ég
er bjartsýnn á það að ABR og
Æskulýðsfylkingin séu fús til
þess að gera það líka,“ sagði Þor-
bjöm. -gpm
Wessel, einn fremsti sérfræð-
ingur heims um krókódíla og
eldi þeirra, um þá hugmynd Is-
lendinga sem hafa leitað ráð-
gjafar hjá honum, að hefja
krókódílaeldi hérlendis.
Þessi orð lét Wessel falla i
fyrradag á umfangsmikilli al-
þjóðaráðstefnu um friðun dýra,
sem nú er haldin í Perth í Ástralíu.
Wessel, sem er prófessor við
Sydney-háskóla, er hins vegar
mjög hrifinn af málaleitan íslend-
inga, þar eð hann er ákafúr tals-
maður þess að friða krókódila í
hinu náttúrulega vistkerfi þeirra
og taka fremur upp eldi þeirra til
framleiðslu á skinnum. Wessel er
líkt við k vikmyndahetj una
Krókódíla-Dundee og leggur
áherslu á að krókódila eigi að ala í
einskonar vatnsbeit, fremur en í
eldisbúrum. Egg og ungar krókó-
díla em þá tekin og alin í tjömum
og kerjum.
Hingað til hefur krókódílaeldi
einkum verið stundað undir
kvótakerfi í Afríkulöndum eins
og Mósambík og Sambíu. Fyrir-
spumir hafa borist til Ástralíu-
manna víðs vegar úr heiminum
varðandi tilhögun slíks eldis. Áð-
ur fyrr tók það 6-7 ár að ala
krókódíl i 4-5 feta lengd, en með
tilkomu sérstaks fóðurs hefúr tím-
inn styst niður í 18-24 mánuði.
Og Wessel lætur þess getið að ís-
lendingamir telji sig geta fóðrað
krókódíla á fiskúrgangi.
ÓHT
Tónlistarslökun
Síðasta námskeiðið i tónlist-
arslökun fyrir jól verður haldið
um næstu helgi, 30. nóvember og
1. desember.
Aðaláherslan verður lögð á að
Ieiðbeina fólki við að nota tónlist-
ina á meðvitaðan hátt til að takast
jafnóðum á við þær tilfinningar
og streitu sem upp koma í daglega
lífinu.
Ámi Áskelsson slagverksleik-
ari mun koma í heimsókn og spila
fyrir þátttakendur og e.t.v. fleiri
gestir. Leiðbeinendur eru tónlist-
arkennaramir Helga Björk Grétu-
dóttir og Minerva M. Haralds-
dóttir. Skráning og allar frekari
upplýsingar em í símum 91-
19871 og 92-27943.
Klarinett
á Háskólatónleikum
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson
klarinettuleikari mun koma fram
á háskólatónleikum í Norræna
húsinu í dag kl. 12.30. Á efnis-
skránni em verkin Blik eftir
Áskel Másson, Aubade eftir John
A. Speight, Abime des Oiseaux,
þriðji þáttur úr Quatour pour la
Fin du Temps eftir Olivier Mess-
iaen og að lokum þijú sólóstykki
fyrir klarineft eftir Igor Stravin-
sky.
Vímulaus vellíðan
Dr. Harvey Milkman heldur
fyrirlestur um vímufíkn og alls-
gáða vímu á Hótel Holiday Inn
fostudaginn 30. nóvember kl. 14.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina
„Natural High“ og fjallar um fikn
mannsins i vímu og það sem kalla
mætti „allsgáða vímu“ eða
„vímulausa vellíðan".
Með þessu er átt við það al-
gleymisástand sem fólk getur náð
við mikla líkamlega áreynslu og
fleiri aðstæður, og hvemig þetta
má nýta í baráttunni við vímu-
efnavandann.
Fyrirlesturinn er fluttur á
ensku og er hann haldinn í tilefni
opnunar meðferðarheimilisins
Tinda í Iandi Móa á Kjalamesi.
Öllum er heimill ókeypis aðgang-
ur á fyrirlesturinn
Þróunaraðstoð
íslendinga
Brú, félag áhugamanna um
þróunarlöndin, Hjálparstoihun
kirkjunnar, Jarðhitaskóli Samein-
uðu þjóðanna, Samband íslenskra
kristniboðsfélaga, Rauði kross ís-
lands, Styrktarfélag Stofhunar
Jónasar Jónssonar frá Hriflu og
Þróunarsamvinnustofhun íslands,
boða til fúndar um Þróunaraðstoð
íslendinga í Borgartúni 6 í kvöld
kl. 20.30. Framsögumenn verða
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Ámi Gunnars-
son alþingismaður. Pallborðsum-
ræður með þátttöku stjómmála-
manna er svara munu fyrirspum-
um fúndarmanna. Aðgangur öll-
um heimill.
Kolaportið opið
ásunnudögum
Borgarstjóm hefúr heimilað
að Kolaportið verði opið á sunnu-
dögum ffarn að jólum. Þorláks-
messa er þó undanskilin. Fram til
þessa hefur Kolaportið verið opið
á laugardögum en mikill áhugi
hefúr verið á því að hafa það einn-
ig opið á sunnudögum. Næsta
sunnudag verður því Kolaportið í
fyrsta skipti opið.
Vélskóli fslands hélt upp á 75 ára afmæli sitt 3. nóvember sl. Margar
góðar gjafir bárust skólanum I tilefni afmælisins, m.a. peningagjafir til
kaupa á viðbótarbúnaði við vélarúmshermi skólans, tækjagjafir, bóka-
gjafir o.fl. Forseti íslands, frú Vigdls Finnbogadóttir, var meðal gesta á
hátíöarfundi skólans og Svavar Gestsson menntamálaráðherra var
meðal ræðumanna.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. nóvember 1990