Þjóðviljinn - 28.11.1990, Blaðsíða 11
LESANDI VIKUNNAR
I DAG
Guömundur Davíösson vélsmiöur
Varið í landið
Hvað ertu að gera núna?
Eg rek eigin vélsmiðju hér í
Mosfellsbæ, þar sem við smíðum
mikið íyrir byggingaverktaka.
Hér fer fram alls konar stálsmíði,
hitaveitulagnir til dæmis. Ég hef
haft töluverð afskipti af bæjar-
málum í Mosfellsbæ undanfarin
tvö kjörtímabil, er formaður
Veitunefndar og 1. varamaður í
bæjarstjóm. Mest af frítíma mín-
um fer þó í að sinna Leikfélagi
Mosfellssveitar, en ég er formað-
ur þess. Nafninu hefur ekki verið
breytt þó svo byggðin heiti nú
Mosfellssbær. Mosfellssveit er
svo fallegt orð og við viljum ekki
þurrka það út úr sögunni. Eins og
er sýnir Leikfélagið Elsku Míó
minn eftir Astrid Lindgren, en
þetta er frumsýning á þessu leik-
riti á íslandi. Það er þýtt af Jóni
Sævari Baldvinssyni og hann
vann leikgerðina ásamt Andrési
Sigurvinssyni sem leikstýrir.
Búninga og sviðsmynd gerir þús-
undþjalasmiðurinn Rósberg hatt-
ari Snædal og eru búningamir
sérlega fallegir. í apríl s.l. frum-
sýndum við Þið munið hann Jör-
und og sýndum fyrir fullu húsi
fram á sumar. Siðan vomm við
með dagskrá 17. júní, tríóið okk-
ar frá Jömndi tók þátt í Listahát-
ið, við vorum með atriði á lands-
móti UMFÍ í sumar og í ágústlok
hófust æfingar á Míó. Það er
hefð hjá okkur að dansa út jólin á
þrettándanum, sem er líka ljár-
mögnunarball, en í þetta sinn
verður það tólftadagsball, það
hittist þannig á dögum. Við tök-
um einnig þátt í árvissri jólavöku
sem Láms Sveinsson trompet-
leikari og stjómandi Karlakórs-
ins Stefnis ásamt Sigríði Þor-
valdsdóttur leikkonu vom fmm-
kvöðlar að fyrir fimmtán ámm
og haldin hefur verið ár hvert.
Þar er leikfélagið með ljóðalestur
og fleira.
Og svona prívat þá er ég að
bíða eftir fæðingu fyrsta bama-
bams okkar hjónanna, það er
óneitanlega spennandi.
Hvernig fjármagnið þið
leikstarfsemina?
Við höfúm sjálf lagt út mik-
ið, svo em kökubasarar, fisksala,
fiskflökun, kartöflurækt, dans-
leikir o.fl. Við lögðum mikla
vinnu í breytingar á Hlégarði
núna, t.d. vom lagðir 9 kílómetr-
ar af nýjum raflögnum. Þetta er
allt gert í sjálfboðavinnu, einnig
það sem unnið er af fagmönnum,
sem em félagar í leikfélaginu.
Ekkert af þessu væri mögulegt ef
ekki væri fyrir liðsfyrk alls þessa
fómfúsa fólks.
Ganga ijármálin þá upp?
Varla. Við forum af stað með
Jömnd aftur milli jóla og nýárs
til að afla fjár. Aðkeypt vinna í
Míó er komin upp fýrir eina og
hálfa milljón, en kostnaður í allt
er áætlaður u.þ.b. tvær og hálf
milljón. Við fáum 160 þúsund
króna styrk ffá bænum, en enn
sem komið er höfum við aðeins
fengið helminginn af honum.
Skilningur embættismanna á
svona menningarstarfsemi er
ekki mikill.
Hvað varstu að gera fyrir
tíu árum?
Við vomm að byggja húsið
okkar hér í Bjargartanganum og
fluttum inn rétt fyrir jól ári
seinna. Sama ár fór Leikfélagið á
vinabæjamót til Svíðþjóðar með
Saumastofuna eftir Kjartan
Ragnarsson. Þetta var 40 manna
hópur og svakalega vel heppnuð
ferð.
Hvaða bók ertu að lesa
núna?
Ég var rétt að klára Grasið
syngur eRir Doris Lessing, en
hún var ein af bókunum í síðasta
pakka sem ég fékk hjá hinum
ágæta Ugluklúbbi. Þetta er góð
bók sem fær mann til að velta
fyrir sér ýmsu í sambandi við
hvítu fmmbyggjana í Suður-Afr-
íku.
Hvers minnistu helst úr
Biblíunni?
Það er nú ekkert sérstakt. Ég
hef allt gott um þá bók að segja,
hún hefur a.m.k. ekki skaðað
mig, eða það sem ég hef gripið í
hana.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin þín?
Palli var einn í heiminum.
Alveg rosalega skemmtileg bók
sem ég hef lesið óhemju oft t.d.
fyrir elstu dóttur mina. Ég kunni
hana orðið utan að, en hún þó
enn betur, a.m.k. leiðrétti hún
mig ef ég fór rangt með.
Áttu þér uppáhaldsmat?
Já, það er svo margt sem mér
fmnst gott. Indverskur og annar
austurlenskur matur finnst mér
alveg sérlega spennandi.
Hvað hefurðu séð í leikhúsi
í haust?
Undirbúningur að Míó hefur
tekið mestallan fritíma minn, en
þó er ég búinn að sjá Hættur, far-
inn í Borgarleikhúsinu. Það var
mjög sérstök sýning og skemmti-
leg.
En í kvikmyndahúsunum?
Ég fer afar sjaldan á bíó, það
er örugglega heilt ár síðan ég fór
síðast.
Hvert langar þig helst til
að ferðast?
Meginland Evrópu finnst
mér alltaf ákaflega gaman að
ferðast um. Skoða gamlar borgir,
söfn og haliir. Evrópa er spenn-
andi með allar sínar miðalda-
byggingar.
Hvaða ferðamáti á best við
Þ'g?
Að vera sjálfs míns herra, ég
þoli helst ekki skipulagðar ferðir.
Flug og bíll er mitt uppáhald.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Að þurfa alltaf að vera að
taka þátt í öllu.
Hvaða eiginleika þinn
finnst þér skrítnast að aðrir
kunni ekki að meta?
Hvað ég er ofsalega fyndinn.
Er landið okkar varið land
eða hernumið?
Það er mikið varið í það, það
veit ég.
Hverjir eru helstu kostir
landa þinna?
Þeir eru duglegir, vinnusam-
ir og fremur jákvæðir.
En helstu brestir þeirra
eða gallar?
Við erum algjörlega galla-
laus þjóð.
Hvað á ég að spyrja þig um
að lokum?
Spurðu hundinn minn hvort
það sé eitthvert hundalíf í Mos-
fellsbæ. Guðrún
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Flugvélasmlöi I Stálhúsgögn.
Þeir Björn Olsen og Gunnar
Jónasson byrjuöu 1932 að
smlða flugvél I kjallara á Lauga-
vegi og hafa nú lokið smiðinni.
Breskir hermenn særa Islending
með skoti upp á Brúarlandi. Til-
kynning frá Máli og menningu:
Mál og menning heldur kvöld-
skemmtun (Oddfellowhúsinu
föstudaginn 29. nóvember kl.
8.30. Skemmtiatriði: Þórbergur
Þórðarson les upp úr Ofvitan-
um, næstu bók sinni. Einsöngur:
Pétur Jónsson óperusöngvari.
Við hljóðfærið Páll Isólfsson.
Halldór Kiljan Laxness ies upp
28. nóvember
miðvikudagur. 332. dagur árs-
ins. Sólarupprás ( Reykjavlk kl.
10.36-sólariag kl. 15.55.
úr Skipum heiðríkjunnar eftir
Gunnar Gunnarsson, og Kveðju
til vopnanna eftir Hemingway.
Einsöngur: Guðrún Þorsteins-
dóttir. Við hljóðfærið Páll Isólfs-
son. Dans.
Viðburðir
Þjóðhátiðardagur Mauritanlu.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfiabúða vikuna 23. til 29. nóvember er
I Árbæjar Apóteki og Laugamess
Apóteki
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á fridögum).
Siðarnefnda apótekið er opið á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavik...................« 1 11 66
Kópavogur.................. « 4 12 00
Seltjamames.................» 1 84 55
Hafnarfjörður............. « 5 11 66
Garðabær....................« 5 11 66
Akureyri....................» 2 32 22
Slökkvðið og sjúkrabðar
Reykjavik.....................» 1 11 00
Kópavogur.....................» 1 11 00
Seltjamames...................« 1 11 00
Hafnarfjöröur.................« 5 11 00
Garðabær......................rr 5 u 00
Akureyri......................» 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er i Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á íaugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
slmaráöleggingar og timapantanir i
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar í slmsvara
18888. Borgarspitalinn: Vaktvirka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
o 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, tr 53722. Næturvakt lækna,
w 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
»51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni,» 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, » 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsími).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
» 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
» 11966.
SJUKRAHUS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæöingardeild Land-
spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavikur v/Eiriksgötu: Al-
mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldi’unariækningadeild Landspltal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstlg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsiö: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
» 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svaraö er I upplýsinga-
og ráögjafarslma félags lesbia og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
timum. » 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráögjöf i sálfræöi-
legum efnum, » 91-687075.
Logfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt i sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Alandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þelrra i Skóg-
arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aöstandendur þeirra i« 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýslngar um eyðni: » 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum ki. 18 til 19,
annars slmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aöstoö við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráögjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, slmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: » 91-21500,
sfmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miöstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, » 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
» 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
27. nóvember 1990 Sala
Bandarikjadollar...........54,53000
Sterlingspund..............107,50900
Kanadadollar................46,88500
Dönsk króna..................9,55580
Norsk króna..................9,38470
Sænsk króna..................9,79170
Finnskt mark.................15,31530
Franskur franki..............10,86090
Belgiskurfranki.............. 1,77420
Svissneskur franki..........43,14250
Hollenskt gyllini............32,47090
Vesturþýskt mark.............36,61820
Itölsk lira..................0,04881
Austurrlskur sch..............5,20570
Portúgalskur escudo.......... 0,41740
Spánskur peseti...............0,57810
Japanskt jen.................0,42436
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 áfall 4 harmur
6 orka 7 kött 9 úr-
gangsefni 12 gust 14
vex 15 blóm 16fiskur
19 drupu 20 þjálfaöl 21
gramri
Lóörétt: 2 fljóti 3 nagll
4 léleg 5 rispa 7 kjúkur
8 vaxa 10 riti 11 annir
13 málmur 17 leðja 18
öðlast
Lausn á siöustu
krossgátu
Lárétt: 1 glóp 4 gróp 6
úir 7 vist 9 óvit 12 tarfi
14 nái 15 nói 16látún
19 kall 20 rusl 21 tifi
Lóðrétt: 2 lúi 3 púta 4
gróf 5 óri 7 vonska 8
stillt 10 vinnur 11 trilla
13 rót 17 áli 18 úri
Miðvikudagur 28. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11