Þjóðviljinn - 28.11.1990, Qupperneq 12
J
þjómnuiNN
Miðvikudagur 28. nóvember 1990 225. tölublað 55. árgangur
■ SPURNINGIN ■
Heldur þú að krókó-
dílarækt eigi framtíð
fyrir sér á íslandi?
Halldóra S. Sveinsdóttir
bankastarfsmaður:
Nei. Því það er alltof kalt hérna.
Steinn Árni Ásgeirsson
vélvirki:
Nei, ég held nú ekki. Ja, mér
finnst það fjarstæða, ég held að
þeir geti ekki lifað hér.
Nanna Guðbergsdóttir
kassamær:
Nei, ég held að það sé bókað
mál. Það er algjör fjarstæða.
Gísli Sigurðsson
nemi:
Nei. Ætli það sé ekki veðráttan
sem hamlar.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Tíföldun
íBláa
lóninu
Ferðamál
Hvergi í heiminum er hægt að bjóða upp á sambærilega aðstöðu til lækninga. Mynd: Jim Smart
Reuter-fréttastofan
lýsir feiknarlegum
möguleikum hérlendis
í ferðamennsku og
heilsubótariðnaði
ið þurfum að tífalda aðstöð-
una við Bláa lónið, ef við
eigum að geta annað eftirspurn
næsta ár, segir Hinrik Grétars-
son, forstjóri heilsubaðanna í
Svartsengi, við fréttamann
Reuter- fréttastofunnar sem
ritaði fréttaskýringu um stað-
inn og uppgang hans fyrir
heimspressuna í gær.
Um 80 þúsund manns hafa
difið sér í Bláa lónið í ár og mest
komu um 1400 manns á einum
degi. Aðstaða í búningsherbergj-
um er þar fyrir 172 í einu og 24
geta gist í hótelinu. Hinrik telur
að Bláa lónið, sem var opnað
1981, og svipaðir staðir laði ílesta
erlenda ferðamenn til Islands inn-
an fárra ára og að hvergi í heimi
sé unnt að bjóða upp á sambæri-
lega aðstöðu til lækninga m.a á
psoriasis, exemi og öðrum húð-
sjúkdómum. Víðar á landinu sé
hægt að koma upp „bláum lón-
um“, en auk þess benda menn á
að heilsubótarferðir til Dauða-
hafsins hafi lagst af vegna
ástandsins við Persaflóa og ferða-
skrifstofur leiti að nýjum stöðum
fyrir þá sem vilja leita bóta meina
sinna með áhrifamiklum böðum.
Lögð hafa verið drög að nýrri að-
stöðu á svæðinu, með stærra hót-
eli, veitingastað í glerpíramída og
allsheijar heilsuræktarstöð.
Franskir og japanskir aðilar hafa
lýst áhuga sínum á að fjárfesta í
fyrirtækinu, en auk þess að hefja
snyrtivöruffamleiðslu úr jarðefti-
um eins og kísli.
Reuter/ÓHT
Ný Bítilsplata
Makka hnífur
Paul McCartney, einn Bítl-
an:,a gamalkunnu, sendi í
gær frá sér plötu af tilefni í
hönd farandi jóla og eru söng-
textarnir þar hörð gagnrýni á
11 ára stjórnartíð Margaretar
Thatcher, að sögn breska blaðs-
ins Daily Mirror. Er þar sér-
staklega fjallað um meðferð
Thatcherstjórnar á sjúku fólki
og heimilislausu.
Fyrirsögn fréttarinnar í Daily
Mirror um þetta er Macca the kni-
fe (Makka hnífur), og mun sú
sneið ætluð fráfarandi forsætis-
ráðherra Breta. Er svo að sjá að
með þessu sé verið að tengja hana
við Makka hníf, þekkta persónu í
Túskildingsóperu Bertolts
Brechts.
í fréttinni, sem er á forsíðu,
segir að í texta við All My Trials
(Allar mínar raunir), eitt laganna
á plötunni, sé athyglinni beint að
þjáningum Breta þeirra, sem
neyðst hafa til að gera sér götum-
ar að heimili og hið ríkisljár-
magnaða heilsugæslukerfi hefur
vísað frá undanfarin ár. Daily
Mirror nefnir sem dæmi um af-
leiðingar thatcherismans fyrir
heilsugæslukerfið að á stjómartíð
Thatcher hafi um 300 breskum
sjúkrahúsum verið lokað.
í viðtali við blaðið sagði
McCartney, sem nú er 47 ára,
að meðal þeirra rauna, sem
átt væri við í textanum og
leitt hefðu neyð yfir miljónir
manna, væm atvinnuleysi,
heimilisleysi og hmn heilsu-
gæslukerfisins. Hann sagðist
ekki taka neinn þeirra
þriggja, sem keppa um að
taka við forsætisráðherra-
stólnum afThatcher, fram yf-
ir hina. „Það sem ég vil um-
fram allt annað er að
umhyggjulausa
renni skeið sitt á enda
fljótt og mögulegt er,“
McCartney. Reuter/-dþ
Hörð ádeila á
meðferð Thatch-
erstjómar á
sjúku fólki og
heimilislausu
McCartney
beinir athyglinni að
þjáningum þeirra Breta, sem
neyðast til að gera sér
götumar að heimili
Stmi 641012