Þjóðviljinn - 08.12.1990, Side 3

Þjóðviljinn - 08.12.1990, Side 3
íyrir beittir og gátu þeir hvergi fært hann, þegar sléttlendið var og eigi var forbrekkis að fara; gengu nú ífá við svo búið. Hinn þriðja dag fór prestur með þeim, og leituðu allan dag- inn, og fannst Glámur eigi. Eigi vildi prestur oftar til fara, en sauðamaður fannst, þegar prestur var eigi í ferð. Létu þeir þá fyrir vinnast að færa hann til kirkju og dysjuðu hann þar, sem var hann kominn. Litlu síðar urðu menn varir við það, að Glámur lá eigi kyrr. Varð mönnum að því mikið mein, svo að margir féllu í óvit, ef sáu hann, en sumir héldu eigi vitinu. Þegar eftir jólin þóttust menn sjá hann heima þar á bænum. Urðu menn ákaflega hræddir, - stukku þá margir menn í brott. Því næst tók Glámur að ríða húsum á næt- ur, svo að lá við brotum; gekk hann þá nálega nætur og daga. Varla þorðu menn að fara upp í dalinn, þó að ættu nóg erindi. Þótti mönnum þar í héraðinu mik- ið mein að þessu. Önnur afturgöngusaga sem gerist um jól er sögð í Eyrbyggju: í Um morguninn, er þeir Þór- oddur fóru utan af Nesi með skreiðina, týndust þeir allir út fyr- ir Eimi; rak þar upp skipið og skreiðina undir Ennið, en líkin fúndust eigi. En hið fyrsta kvöld, er menn voru að erfinu og menn voru í sæti konmnir, þá gengur Þórodd- ur bóndi í skálann og förunautar hans allir alvotir. Menn fögnuðu vel Þóroddi, þvi að þetta þótti góður fyrirburður, þvi að þá höfðu menn það fyrir satt, að þá væri mönnum vel fagnað að Rán- ar, ef sædauðir menn vitjuðu erfís síns; en þá var enn lítt af numin fomeskjan, þó að menn væm skírðir og kristnir að kalla. Þeir Þóroddur gengu eftir endilöngum setaskálanum, en hann var tvídyr- aður; þeir gengu til eldaskála og tóku einskis manns kveðju, sett- ust þeir við eldinn, en heimamenn stukku úr eldaskálanum, en þeir Þóroddur sátu þar eftir, þar til er eldurinn var fölskaður; þá hurfu þeir á brott. Fór þetta svo hvert kvöld, meðan erfið stóð, að þeir komu til eldanna; hér var margt um rætt að erfinu; gátu sumir, að þetta myndi af taka, er lokið væri erfinu. Fóra boðsmenn heim eftir veisluna, en þar vom hýbýli held- ur daufleg eftir. Það kvöld, er boðsmenn vom brottu, vom gervir máleldar að vanda; en er eldar bmnnu, kom Þóroddur inn með sveit sína, og vom allir votir; settust þeir niður við eldinn og tóku að vinda sig; og er þeir höföu niður sest, kom inn Þórir viðleggur og hans sveit- ungar sex; vom þeir allir moldug- ir; þeir skóku klæðin og hreyttu moldinni á þá Þórodd; heima- menn stukku úr eldhúsinu, sem von var að, og höfðu hvorki á því kvöldi ljós né steina og enga þá hluti, að þeir heföu neina vem af eldinum. Annað kvöld eftir var máletd- ur ger í öðm húsi; var þá ætlað, að þeir myndu síður þangað koma; en það fór eigi svo, því að allt gekk með sama hætti og hið fyrra kvöldið; komu þeir hvorirtveggja til eldanna. Hið þriðja kvöld gaf Kjartan það ráð til, að gera skyldi langeld mikinn í eldaskála, en máleld skyldi gera í öðm húsi; og svo var gert; og þá entist með því móti, að þeir Þóroddur sátu við langeld, en heimamenn við hinn litla eld, og svo fór ffam um öll jólin. I Þorfinns sögu karlsefnis er sagt frá því er Þorfinnur hefúr vet- ursetu með Eiríki rauða í Bratta- hlið á Grænlandi, en heldur hafa landkostir verið lakari á Græn- landi en hér heima, þá eins og nú, því ekkert er til hjá Eiríki til öl- gerðar fyrir jólin og gerist hann af því þunglyndur því honum er í mun að gera vel við gesti sína: En er dró að jólum, tók Eirik- ur að verða óglaðari en hann átti vanda til. Eitt sinn kom Karlsefni að máli við Eirík og mælti: „Er þér þungt, Eiríkur? Eg þykist finna, að þú ert nokkuð fálátari en verið hefúr, og þú veitir oss með mikilli rausn, og emm vér skyldir að launa þér eftir því, sem vér höfúm föng á. Nú segðu, hvað ógleði þinni veldur.“ Eiríkur svarar: „Þér þiggið vel og góðmannlega. Nú leikur mér það eigi í hug, að á yður hallist um vor viðskipti. Hitt er heldur, að mér þykir illt, ef að er spurt, að þér hafið engin jól verri haft en þessi, er nú koma i hönd.“ Karlsefni svarar: „Það mun ekki á þá leið. Vér höfúm á skip- um vorum malt og mjöl og kom, og er yður heimilt að hafa af slíkt, sem þér viljið og gerið veizlu slíka, sem stómennsku ber til.“ Og það þiggur hann. Var þá búið til jólaveizlu og varð hún svo sköraleg, að menn þóttust trautt slíka rausnarveizlu séð hafa. Siður sá að gefa gjafir á jólum mun vera nokkuð gamall, og em þess dæmi í fomsögum að gjafir væm gefnar á jólum, þótt með nokkuð öðrum hætti hafi verið en nú. I Egils sögu segir ffá því er Egill dvaldi veturlangt hjá Arin- bimi þeim sem hann síðar orti um Arinbj amarkviðu: Egill bjó þá skip sitt og réð háseta til. Önundur sjóni réðstþar til, sonur Ána ffá Ánabrekku; Ön- undur var mikill og þeirra manna sterkastur, er þá vom þar í sveit; eigi var um það einmælt, að hann væri eigi hamrammur. Önundur haföi oft verið í förum landa í milli; hann var nokkm eldri en Egill; með þeim haföi lengi verið vingott. Og er Egill var búinn, lét hann í haf, og greiddist þeirra ferð vel, - komu að miðjum Noregi. Og er þeir sáu land, stefndu þeir inn í Fjörðu; og er þeir fengu tíð- indi af landi, var þeim sagt að Ar- inbjöm var heima að búum sín- um; heldur Egill þangað skipi sínu í höfn sem næst bæ Arin- bjamar. Síðan fór Egill að finna Árinbjöm, og varð þar fagnafúnd- ur mikill með þeim; bauð Arin- bjöm Agli þangað til vistar og föruneyti hans, því er hann vildi, að þangað færi. Egill þekktist það og lét ráða skipi sínu til hlunns, en hásetar vistuðust; Egill fór til Ar- inbjamar og þeir tólf saman. Egill haföi látið gera langskips segl mjög vandað; segl það gaf hann Arinbimi og enn fleiri gjafir, þær er sendilegar vom; var Egill þar xun veturinn í góðu yfirlæti. Egill fór um veturinn suður í Sogn að landskyldum sfnum; dvaldist þar mjög lengi; síðan fór hann norður i Fjörðu. Árinbjöm haföi jólaboð mikið, bauð til sín vinum sínum og héraðsbóndum; var þar fjöl- menni mikið og veizla góð. Hann gaf Agli að jólagjöf slæður, gerv- ar af silki og gullsaumaðar mjög, settar fyrir allt gullhnöppum f gegnum niður; Arinbjöm haföi látið gera klæði það við vöxt Eg- ils. Arinbjöm gaf Agli alklæðnað, nýskorinn, að jólum; vora þar skorin í ensk klæði með mörgum litum. Arinbjöm gaf margskonar vingjafir um jólin þeim mönnum, er hann höföu heimsótt, því að Arinbjöm var allra manna örvast- ur og mestur skörungur. Þá orti Egill vísu: Sjálfráði lét slæður silki drengur of fengið gullknappaðar greppi, get ég aldrei vin betri. Arinbjöm hefur ámað eirarlaust eða meira, sið mun seggur of fœðast slíkur, oddvita ríki. 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.