Þjóðviljinn - 08.12.1990, Qupperneq 12
Reykjavíkurskáldið Megas og sagn-
fræðingurinn Þórunn Valdimarsdóttir
lagt bemskuminningar sínar, drauma og
fmyndunarafl að veði í ævintýralega og
töfrandi bók um litla písl sem ólst upp i
Norðurmýri í Reykjavík rétt eftir síðari
heimsstyrjöld. í sögunni kannast margir
við sjálfa sig, þvi hún er sannferðug
úttekt á lifi íslenskra bama. Þetta er
ekki ævisaga, heldur rabbsódía um
Reykjavik -umhverfi og atvik - í lífi
litillar píslar.
Ein frægasta skáldsaga Doris Lessing og
fyrsta bókin í sagnabálki hennar um
Mörtu, uppreinargjama sveitastúlku af
breskum ættum i Afríku. Hún tvístígur
á mörkum bemsku og þroska og á sér
drauma um réttlátara samfélag og frelsi
hinnar fullorðnu konu. Mögnuð þroska-
saga sem byggð er að mikiu leyti á lifi
skáldkonunnar - saga nútímakonu i átökum
við samvisku sína og samtið.
Sigurðsson rithöfundur þýddi.
Spennandi og tilfinningaþrungið listaverk
um ungan dreng - óvelkomið líf sem
kviknar í kviði þrettán ára móður. Fyrstu
ár ævinnar er hann geymdur uppi á háa-
lofti svo ekki falli blettur á heiður fjöl-
skyldunnar. Síðan hefst hraksaga hans
um heiminn - saga um baráttu gegn fá-
fræði og fordómum. Blóðbrúðkaup
hefur verið lesin i Rikisútvarpið og
hlotið frægustu bókmenntaverðlaun
Frakka, Goncourt-verðlaunin.
Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
Sigurður Pálsson er ótvírætt í fremstu
röð íslenskra ljóðskálda og hver ný
ljóðabók frá hans hendi er bókmennta-
viðburður. Þetta er þriðja bókin í flokki
ljóðnámubókanna og hér lokar hann ljóð-
námuhringnum. Lifskraftur, innsæi og
óvæntar samlíkingar einkenna ljóðin. Hér
sýnir sig margt í senn; ísmeygileiki, ofsa-
fenginn galsi eða sár alvara. I endumýjun
islensks ljóðmáls standa fáir Sigurði á sporði.
Hér sýnir Ólafur Gunnarsson nýja og óvænta
hlið á Iist sinni. Og hann þekkir svo sannar-
lega Skuggahverfið í Reykjavík. Rússneska
vetrarstríðið geisar á Frakkastíg. Við
Vatnsstiginn kúrir Stjáni grobb yfir skræð-
unum en i garði bamakennarans kúra lífs-
þreyttar pútur. Sögumar em fullar af ærsl-
um og angurværð en undir niðri lúrir
háskinn, þvi skuggar mannsins - óttinn,
hégóminn og þráhyggjan - leynast líka í
Skuggahverfínu.
Rokkið tekur stöðugt á sig nýjar myndir
þar sem æskan veitir tilfinningum sínum
og draumum útrás. Hér er fjallað um
stefhur og strauma i íslenslari rokktón-
list.hljómsveitir og tónlistarmenn,
söngtexta, skemmtanalíf og hljóm-
plötugerð. í bókinni era um 300 Ijós-
myndir og ítarlegar skrár yfir hljóm-
sveitir og plötuútgáfu. Fjörlega
skrifuð og tvímælalaust besta hand-
bæra heimild um sögu rokktónlistar
og æskumenningar á íslandi.
Aldrei hefiir innsæi og stílgáfa Friðu Á.
Sigurðardóttur risið hærra en f þessari
afburðasnjöllu sögu. Söguhetjan er Nína,
húri situr við rúm deyjandi móður, hún
er glæsileg, öragg nútímakona. Að
maður skyldi halda. En meðan nóttin
líður vakna efasemdir, fortiðin sýnir sig
1 svipmyndum og öðlast mál. Þetta er
áleitinn og miskunnarlaus skáldskapur
um fólk nútímans - harm þess og
eftirsjá, vit þess og vonir.
Bjöm Pálsson á Löngumýri metur
engan eiginleika meira en gamansemi
og frelsi. Hann lætur engan kúga sig
eða kúska, hvorki bankastjóra, sýslu-
menn né ráðherra. Kímnin situr jafhan
i fyrirrúmi og ffásagnargleðin er ó-
svikin, hvort sem Bjöm segir frá
bemsku sinni og búskap, málaferlum eða
störfum á alþingi. Saga hans er i senn
tæpitungulaus, ögrandi og ekki síst gagn-
merk heimild.
Gylfi Gröndal ritaði sögu Bjöms.
Egill Grimsson, dreifbýlisdrengur,
skólaður i Reykjavík, tvístígandi í
Kaupmannahöfn, á ffamabraut í Banda-
rikjunum. Glanni og rola í senn. í
bölvuðu basli við þann veraleika sem
nútíminn leggur karlmönnum á herðar.
Og ekki er ástin honum beinlinis auðveld
hvað þá gimdin. Þessi snjalla skáldsaga
Rúnars Helga Vignissonar er í senn tákn-
ræn og sértæk, nautnaleg og hrollvekjandi,
ærslafull og sorgleg. Sannkallaður
nautnafundur.
0
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI18, SÍMI91-25188
Auglýsingadeikl Þjóðviijans