Þjóðviljinn - 13.12.1990, Blaðsíða 11
Magnús H. Gíslason skrifar
M jr A FÖRNUM VEGI 22
Alkunna er, að ekki þarf
nema eitt orð til þess að breyta
merkingu heillar málsgreinar.
Getur það þá einu gilt hvort því
er ofaukið eða að það vantar. í
síðasta pistli mínum, þar sem ég
segi ífá dvöl minni á Amgerðar-
eyri, stendur: „Hlaut ég því að
vera dag um kyrrt og var það svo
sannarlega neyðarkostur“. Þama
átti vitanlega að standa: „enginn
neyðarkostur“, enda hygg ég að
ffásögnin af dvöl minni á þessu
ágæta heimili beri það raunar
með sér. En tökum nú til þar sem
ffá var horfið.
Ketill kaupfélagsstjóri hafði
útvegað mér gistingu á Sjó-
manna- og gistiheimilinu. Það
mátti þó ekki tæpara standa. Að-
eins eitt herbergi var laust og
raunar fyrir þær sakir einar, að
maður, sem pantað hafði gist-
ingu; afboðaði komu sína.
Ég dreif mig snemma á fætur
og hafði sofið illa. Stafaði það þó
ekki af hávaða í næturgestum,
heldur rúminu. Ég mátti blátt
áfram aldrei hreyfa mig í fletinu
svo það færi ekki að ískra og
skrækja og láta öllum illum lát-
um, og vaknaði ég í hvert skipti,
sem ég bylti mér til, sem var oft,
þvi ég er mikill byltingamaður í
svefni. Kom mér jafnvel til hugar
að flytja mig niður á gólf, en féll
frá því vegna þess að ég óttaðist
að rúmfötin óhreinkuðust. En
það léttist á mér brúnin þegar ég
kom niður í veitingasalinn, því
þar beið mín hrein og bein veisla.
Kona, sem gekk um beina, kom
mér á óvart þegar hún spurði
hvort ég hefði ekki sofið illa. Ég
varð að viðurkenna að stundum
hefði ég sofið betur. Hún rengdi
það ekki, en sagði þetta herbergi
aldrei notað nema í neyð og því
hefði ekki komist í verk að skipta
um rúm - og bað mig mikillega
afsökunar. Eg kvað það óþarfa,
hinar ágæm veitingar hefðu
meira en bætt upp þessa nætur-
hljómleika og svo kvöddumst við
með mestu virktum.
Það hafði talast svo um með
okkur Katli að ég kæmi til hans í
kaupfélagið upp úr kl. 1. Þar hitti
ég fyrir fræðslunefnd kaupfé-
lagsins, auk allmargra annarra.
Ketill setti fund, kynnti mig fyrir
fundarmönnum, greindi frá er-
indi mínu við þá og gaf mér því-
næst orðið. Sannast að segja var
ég hálf kvíðinn, til að byija með.
Hvaða uppátæki var það eigin-
lega hjá Olafi Jóhannessyni að
senda mig, strák norðan úr
Skagafirði, vestur á Vestfirði til
að ræða þar um samvinnumál við
menn, sem fiestir voru eldri en ég
og margir hveijir þrautreyndir
samvinnumenn? En úr því að á
hólminn var komið þýddi ekki
annað en harka af sér og ég mun
hafa rausað þama í einar 35-40
mínútur. Eftirá fannst mér ég
hafa talað of lengi. Heppilegra
væri að eyða lengri tíma í um-
ræður, hvort sem menn kysu nú
heldur að hafa þær í ræðu- eða
rabbformi. Var líka viss um, að
sjálfur gæti ég ýmislegt lært af
því, sem menn hefðu að segja. Er
ég þagnaði hófust líka líflegar
umræður. Man ég þar sérstaklega
eftir þeim eldfjöruga hugsjóna-
manni, Kristjáni Jónssyni frá
Garðstöðum. Eftir Kristjáni er
það haft, að ef hann fengi ekki
Esso-bensín á bílinn sinn þá
mundi hann heldur aka bensín-
laus en að skipta við önnur olíu-
félög. Þetta getur maður kallað
að vera hugsjónum sínum trúr,
hvemig sem ökuferðin hefði svo
gengið.
Um kvöldið hafði ég boðað
til fundar á Suðureyri. Þangað
átti að heita sæmilega bílfært og
var mér útvegaður jeppi til farar-
innar. Kaupfélagsstjóri á Suður-
eyri var Jóhannes Þ. Jónsson.
Honum hafði ég kynnst í Sam-
vinnuskólanum. Fór ég strax til
fundar við hann. Fundurinn hófst
svo kl. 8.30. Mikill meirihluti
karlmanna á Suðureyri stundaði
sjóinn. Og nú viðraði þannig, að
allir vom á sjó. Almættið virtist
þannig vera hlynntara sjómönn-
unum á Suðureyri en mér, og
kom mér það ekki svo mjög á
óvart. Jóhannes kaupfélagsstjóri
var þvi fremur svartsýnn á fund-
arsóknina. Sá ótti reyndist þó
ástæðulaus. Fundurinn var vel
sóttur og mjög ánægjulegur. Fór
hann fram með sama hætti og á
Isafirði. Er honum lauk, um 12-
leytið, fór ég, ásamt kaupfélags-
stjóminni, heim til Jóhannesar
kaupfélagsstjóra, þar sem spjalli
var haldið áfram fram eftir nótt-
inni.
Það lá við að Kristján B. Ei-
ríksson, formaður kaupfélags-
stjómarinnar, næði okkur Jó-
hannesi í rúminu morguninn eft-
ir. Það var sunnudagur svo að Jó-
hannes þurfti svo sem ekki að
flýta sér í fotin, en ég þurfti hins
vegar að komast til Flateyrar ein-
hvemtíma fyrir kvöldið. Kristján
stakk upp á því að við fengjum
okkur göngutúr um þorpið. Mér
leist vel á þá tillögu. Það verður
að segjast eins og er, að ástæðan
til þess að ég tók boði Ólafs Jó-
hannessonar um þessa Vest-
fjarðaíor var að því leyti blönduð
eigingimi, að með því gafst mér
færi á að kynnast verulegum
hluta Vestfjarðakjálkans og ýmsu
góðu fólki þar. Óg upphafið lof-
aði svo sannarlega góðu.
—mhg
LESENDABRÉF
Um verksmiðjulandbúnað og hokur
Ég las það nú um daginn í
sigrihrósandi fréttablaði að rúss-
nesku samyrkjubúin ætti að leysa
upp, einingamar bæru sig ekki.
Fólk væri hvatt til þess að fara út
í fjölskyldubúskap, en sá hængur
væri á að sérhæfingin hefur verið
það mikil hingað til, að þeir sem
hafa stússast í kringum belju-
rassa kynnu fátt annað.
Á sama tíma í Þýskalandi
vestanverðu er það almenn vitn-
eskja til sveita, að sá sem vill lifa
af, verður að stækka við sig. Sá
sem hafði dútlað við 40 kýr, ger-
ir sér og sinni fjölskyldu áætlun
upp á 200 kýr í fjósi. Oft er ekki
lengur um íjölskyldubúskap að
ræða; búin em orðin að verk-
smiðjum og þá sérstaklega í
hænsna- og svínarækt.
Landbúnaðarvömr em held-
ur ódýrari hjá þeim í EBE en hjá
okkur. Það gera líklega stóm ein-
ingamar. En hin og þessi vand-
ræði fylgja þeim þó. Til dæmis
svinasaurinn. Einn pínlegasti út-
og innflutningur innan Efnahags-
bandalagsrikjanna er svínasaur.
Já, hvað á að gera við hann?
Grunnvatnsmengun í Hollandi er
orðin töluverð, þeir taka ekki við
meiru. Útsendarar svínaræktenda
em á ferð, þvers og kruss með
tankana fulla að leita sér að stað
til þess að létta á sér. Nú er ofl
bmgðið á það ráð, að kaupa upp
akurlendi þeirra bænda, sem ekki
gátu stækkað við sig, sem ekki
höfðu bolmagn til þess. Svo er
akurinn grafinn niður, plast sett í
botninn og látið gussa. Ábúend-
umir hafa nú flórinn upp að hús-
inu og lifa á styrkjum fyrir að
rækta ekki neitt.
Öllu þessu er stýrt með kvóta
og styrkjum og niðurgreiðslum
ffá Brnssel og skyldi enginn
segja að áætlunarbúskapur sé
niður lagður. (Margir sitja um
mjólkurkvótann í EBE og verða
líklega enn fleiri þegar Túrbó-
kýrin fer að fylla básana. Hinir
duglegu vísindamenn Vestur-
Evrópu hafa nú á timum offram-
leiðslu mjólkur fundið upp þessa
merku kú, sem mjólkar enn meir
en þær sem fyrir em. Því miður
hef ég ekki tölur handbærar.) En
hvað um það, með áætlanagerð-
inni hjá EBE tekst þeim að fram-
leiða miklu billegri landbúnaðar-
vömr en okkur með okkar fjöl-
skyldubúskap. Og þá eruin við
komin að kjama málsins.
Ef hillur íslenskra verslana
fyllast af landbúnaðarafurðum,
sem em segjum hundrað og
fimmtíu krónum ódýrari en þær
sem fengnar em úr íslenskuin
sveitum, segir það sig sjálft, að
við kaupum þær, jafnvel þótt
bragðið sé síðra og vitneskjan
um heilsuspillandi hormóna sé
fyrir hendi. (Euro-svín er tegund-
in kölluð. Ríkisstjóm Þýskalands
varar þegna sína eindregið við að
neyta lifrar úr dýrinu oftar en
einu sinni í mánuði vegna upp-
safnaðra eiturefna. Skepnumar á
leið til slátrunar drepast oft úr
hræðslu. Slík er taugaveiklunin
orðin, vafalaust af völdum þaul-
ræktunar.)
Ekki veit ég hvemig á að
spoma við auknum kröfum um
innflutning á ódýrari landbúnað-
arvörum nema með því að gera
okkar eigin landbúnaðarfram-
leiðslu hagkvæmari. Þá á ég við
að fækka býlum og stækka þau,
sem og mjólkurbúum (sbr. ný-
lega skýrslu sérffæðinga). Gera
kvóta framseljanlegan. Hann
myndi fljótt safnast í hendur
mektarbænda og fabríkanta, sem
kæmu með ódýra vöm á markað.
Öllu væri þessu stýrt frá Reykja-
vík.
Væri það mjög í stíl við þann
anda miðstýringar, sem nú blæs
frá Evrópu og þykir nútímalegur.
En til þess að halda í búskapar-
hætti, sem falla mörgum mönn-
um betur í geð og eru náttúrlegri,
svo maður tali nú ekki um mann-
úðlegri, skyldi þeim leyft að
hokra sem það vilja. Eins og nú
er í pottinn búið, leyfist það ekki.
Fjölskylda hefur ekki í sig og á
undir vissri stærð býlis. Til þess
að aftra því að sveitimar tæmist
meir en orðið er, ef mektarbænd-
ur fæm að breiða úr sér, þyrfli
ríkið að leyfa visst stjómleysi.
Hokurstefnan hefði þetta í for
með sér. Á sveitabýlum undir
vissri stærð væri leyfð slátmn
heima við, hlunnindi væm ekki
skattlögð né heimafengnar afurð-
ir. Ein kýr í fjósi væri skattfrí.
Fólk sem svo vildi búa væri upp
á guð og lukkuna komið... og sig
sjálft. Sem mörgum þætti lífvæn-
legur kostur.
Ásdís Thoroddsen
í DAG
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Það er óheimilt að verzla við
brezku hermennina. Þeir sem
það gera mega búast við kæru
og refsingu. Venjulega er varn-
ingur sá sem boðinn er til sölu
stolinn. Togarinn Hafsteinn
bjargar brezku skipi. Bretar
vinna stórsigra I Egyptalandi og
taka 2000 fanga. Herinn sem
var innikróaður I Sldi el Barrani
hefur gefizt upp. Smuts bjart-
sýnn á sigurhorfur Breta.
13. desember
fimmtudagur. Lúcíumessa. 347.
dagur ársins. Magnúsmessa hin
síðari. Sólarupprás (Reykjavík
kl. 11.12-sólarlag kl. 15.31.
Viðburðir
Jón Þoriáksson á Bægisá fædd-
ur 1744.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 7. til 13. desember er í
Rykjavíkur Apóteki og Borgar Apóteki
Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frldögum).
Siðarnefnda apótekiö er opiö á
kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrmefnda.
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firöi: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
LÖGGAN
Reykjavlk.....................« 1 11 66
Kópavogur.....................« 4 12 00
Seltjamames...................« 1 84 55
Hafnarfjörður.................« 5 11 66
Garðabær......................« 5 11 66
Akureyri.....................tr 2 32 22
Slökkviið og sjúkrabílar
Reykjavik....................« 1 11 00
Kópavogur....................« 1 11 00
Seltjamames..................« 1 11 00
Hafnarfjörður................« 5 11 00
Garðabær.....................« 5 11 00
Akureyri.....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuverndar-
stöö Reykjavlkur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir,
símaráöleggingar og tfmapantanir i
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu ern gefnar I slmsvara
18888. Borgarspitallnn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspftalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadelld Borgarspit-
alans eropin allan sólarhringinn,
® 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
« 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt,
* 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á
Læknamiöstööinni,« 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsími).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar i
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
« 11966.
SJUKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spítalans: Alla daga kl. 15 til 16. feöra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavikur v/Eiriksgötu: Al-
mennur tlmi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspítal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
Rauða kross húsið: Neyöarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opiö allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svaraö er ( upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum
tímum.« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf i sálfræöi-
legum efnum, « 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt i slma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Alandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrír krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra (Skóg-
arhliö 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmls-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aöstandendur þeirra i« 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræöing á miövikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aöstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, slmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
simsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem oröið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræösla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsvelta: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
12. desember 1990 Sala
Bandaríkjadollar............54,63000
Steriingspund..............106,11900
Kanadadollar................47,09700
Dönsk króna..................9,62220
Norsk króna..................9,43280
Sænsk króna..................9,80790
Finnskt mark................15,34340
Franskur franki.............10,89770
Belgískurfranki............. 1,78620
Svissneskur franki..........43,29700
Hollenskt gyllini...........32,80590
Vesturþýskt mark............37,00340
Itölsk llra..................0,04915
Austurriskur sch..............5,25620
Portúgalskur escudo.......... 0,41860
Spánskur peseti...............0,57920
Japanskt jen.................0,41401
Irskt puna..................98,55000
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 bás 4 tegund
6 borða 7 hviða 9 vot
12 kul 14 leiði 15 upp-
haf 16 hæð 19 her-
maður 20 ilmi 21 eftir-
sjá.
Lóðrétt: 2 vitlausa 3
ganga 4 frost 5 sefi 7
plndi 8 spjald 10 frið-
samur 11 varkárir 13
þreyta 17 svardaga 18
þvottur.
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 ótrú 4 gögn 6
lár 7 sköp 9 ósum 12
rammt 14 jól 15 yls 16
álkur 19 leti 20 rjóð 21
Ló§rétt: 2 tik 3 úlpa 4
gróm 5 góu 7 skjall 8
óriáta 10 styrja 11 más-
aði 13 mók 17 lin 18
urr
Fimmtudagur 13. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11