Þjóðviljinn - 03.01.1991, Qupperneq 2
FRETTIR
Náungakœrleikur
Safnanir gengu vel
Safnanir Mœðrastyrksnefndar og Hjálparstofnunar kirkjunnar
gengu betur en fyrir ári
Þeir sem stóðu að söfnunum
til hjálparstarfs fyrir hátíð-
arnar eru mjög ánægðir með
þau viðbrögð sem almenningur
sýndi.
„Þetta gekk dásamlega vel,“
sagði Guðlaug Runólfsdóttir hjá
Mæðrastyrksnefnd. „Söfnunin nú
gekk mun betur en fyrir ári. Við
höfum ekki enn gert upp dæmið
en það söfnuðust bæði föt, pen-
ingar og matur. Við gátum t.d. út-
hlutað verulega góðum jólamat til
24 fjölskyldna og hefðum getað
gert mun meira, því mest kom inn
á síðustu tveimur dögum söfnun-
arinnar."
Guðlaug sagði að Mæðra-
styrksnefnd vildi þakka af alhug
öllu þessu góða fólki sem veitti
nefndinni ómetanlegan stuðning i
jólasöfnuninni.
„Söfhunin gekk framar öllum
vonum og eru þó ekki öll kurl
komin til grafar enn, því söfnun
Hjálparstofhunar kirkjunnar
stendur út janúar,“ sagði Jónas
Þórisson, framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Jónas sagði að þegar hefðu
safnast um 15,5 miljónir króna,
sem er tæpum 2 miljónum meira
en safnaðist í fyrra. Miðað við
reynslu undanfarinna ára má bú-
ast við að um 16 til 17 miljónir
safnist. Þar fyrir utan er þriggja
miljóna króna gjöf frá ríkisstjóm-
inni, en það er í fyrsta skipti sem
Hjálparstofnuninni berst slík gjöf
frá stjómvöldum.
„Almenningur hefur tekið
okkur mjög vel og lýst ánægju yf-
ir þeim verkefnum sem við störf-
um að. Eg vil koma þakklæti til
þeirra fjölmörgu sem hafa stutt
okkur," sagði Jónas.
-Sáf
Kvóti
Uthlutað
til handhafa
r
Olokið er kvótaúthlutun til báta undir tíu
tonnum
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur úthlutað veiðiheimildum
til útgerða báta og skipa fyrir
fiskveiðiárið, nema til báta und-
ir tíu tonnum. Reiknað er með
að kvótaúthlutun til þeirra
verði ekki lokið fyrr en seinni-
partinn í mánuðinum.
Jón B. Jónasson, skrifstofu-
RUV
Steingrímur
maður ársins
Forsætisráðherra fékk flestar
tilnefningar sem maður árs-
ins hjá Dægurmálaútvarpinu á
Rás tvö. í öðru sæti var Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra.
Alls vom um 250 manns til-
nefndir af hlustendum. í þriðja
sæti var Bubbi Morthens söngvari,
í fjórða sæti Sigurður Pétur Harð-
arson útvarpsmaður og í fimmta
sæti Davíð Oddsson, sem var kjör-
inn maður ársins 1990.
-Sáf
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
segir að mikill fjöldi smábátaeig-
enda, sem eiga báta undir tiu
tonnum, hafi gert athugasemdir
við tilraunaúthlutun ráðuneytis-
ins, en kærufrestur rann út þann
14. desember síðastliðnum. Jón
B. segir að það þurfi að fjalla um
hveija athugasemd fyrir sig og
því muni trúlega ekki verða lokið
að fullu fyrr en líða taki á mánuð-
inn.
Engu að síður mega þeir bátar
heíja veiðar, sem eru með haffær-
isskírteinið í lagi, þó svo að end-
anlegri kvótaúthlutun til þeirra sé
ekki lokið. Þetta nær þó ekki til
báta á banndagakerfí því þeir
mega ekki hefja veiðar fyrr en 1.
febrúar næstkomandi.
Að þessu sinni er fiskveiðiár-
ið að nokkru breytt frá því sem
verið hefur þvi það er aðeins til
31. ágúst í sumar, samkvæmt nýju
kvótalögunum sem tóku gildi um
áramótin. Eftir það mun fisk-
veiðiárið miðast við 1. september
ár hvert. -grh
Reykjavíkurmót
ísveitakeppni 1991
Reykjavíkurmótið i sveita-
keppni í bridge hefst í dag. Spilað
er um Reykjavíkurmeistaratitilinn
í sveitakeppni auk þess sem spil-
að er um Í2 sæti í undankeppni
íslandsmótsins í sveitakeppni.
Núverandi Reykjavíkurmeistari
er sveit Tryggingamiðstöðvarinn-
ar. Spilað verður í húsnæði
Bridgesambands Islands Sigtúni
9 og hefst keppnin í dag kl. 19.30.
Fjórar efstu sveitimar mætast á
Hótel Loftleiðum helgina 26. og
27. janúar.
SÍNE mótmælir
niðurskurði
Á jólafundi Sambands is-
lenskra námsmanna erlendis, sem
haldinn var í Stúdentakjallaranum
29. desember, var einróma sam-
þykkt ályktun þar sem 200 milj-
óna króna niðurskurði á fjárveit-
ingu til LÍN í nýsamþykktum fjár-
lögum er mótmælt harðlega. Jafn-
framt benti fúndurinn á þá hættu
sem er í því fólgin að draga úr rik-
isframlagi og auka fjármagns-
byrði sjóðsins með auknum lán-
tökum.
Félagsvist eldri
borgara
Þriggja kvölda keppni í fé-
lagsvist Félags eldri borgara ís
Kópavogi, hefst að nýju í húsi
Lionsklúbba Kópavogs, Auð-
brekku 25, föstudaginn 4. janúar
kl. 20.30. Dans á eflir. Jón Ingi og
félagar sjá um fjörið. Allir vel-
komnir 60 ára og eldri. Verð að-
göngumiða kr. 400. Kaffi og/eða
gosdrykkir, ásamt meðlæti inni-
falið.
Námskeið í
náttúruvernd
Náttúruvemdarráð hefur á
undanfomum ámm-haldið nokkur
námskeið í náttúmvemd sem
gjaman hafa verið kölluð land-
varðanámskeið, enda er nú gert að
skilyrði að þeir sem ráðast til
landvörslustarfa á vegum Nátt-
úruvemdarráðs hafi slíkt nám-
skeið að baki. Á námskeiðinu er
gefin innsýn í náttúm landsins,
jarðfræði, gróður og dýralíf.
Kynnt em lög og reglur um nátt-
úmvemd og m.a. farið all ýtarlega
í almannarétt, það er rétt almenn-
ings til umferðar um landið. Hlut-
verki og störfum Náttúmvemdar-
ráðs em gerð sérstök skil svo og
friðlýsingarmálum, flokkun frið-
lýstra svæða og hlutverki land-
varða. Námskeiðið er það stutt að
þátttakendur verða að leggja á sig
Pálmi Jónsson tekur við viðurkenningarskjali af Magnúsi Hreggviössyni.
Pálmi Jónsson maður ársins
Tímaritið Frjáls verslun og Stöð 2 völdu Pálma Jónsson í Hagkaup-
um mann ársins í viðskiptalífinu á íslandi í þriðja sinn.
Tuttugu og átta Islendingar létust af völdum umferðarslysa árið 1990.
Full ástæða er þvl til að sýna aðgát I umferðinni einkum þó þegar
aðstæður eru slæmar. - Mynd: Jim Smart
Slvsavarnafélagið
Banaslysum
fjölgar
Alls létust 57 manns í banaslysum á síðasta ári
á móti 49 árið 1989
II nýliðnu ári Íétust alls fimm-
A tíu og sjö íslendingar í
banaslysum og þar af sjö er-
Iendis. Þetta er fjölgun frá ár-
inu þar á undan en þá létust alls
fjörutíu og níu og þar af þrír er-
Iendis.
Langflestir létust af völdum
umferðarslysa á síðasta ári eða
tuttugu og átta sem er tveimur
færri en 1989. Alls létust tíu
manns við árekstur biffeiða, fimm
við útafakstur og fimm létust í
umferðarslysum erlendis.
Þá létust alls þrettán manns af
völdum ýmissa slysa sem er einn-
ig fækkun um tvo ffá árinu þar á
nokkurt sjálfsnám heimafyrir.
Síðari hluti námskeiðsins er verk-
legur, nemendum hefur áður verið
skipt í hópa, sem hver um sig hef-
ur fengið verkefni til undirbún-
ings og úrvinnslu. Dvalið er í 5
daga til dæmis í þjóðgarðinum í
Skaftafelli og þátttakendur þjálf-
aðir í því að fara með fólk í
gönguferðir og ffæða um það sem
fyrir augu ber, líffíki, jarðmynd-
anir og söguminjar. Leiðbeinend-
ur á námskeiðinu eru starfsmenn
Náttúruvemdarráðs auk sérfræð-
inga t.d. í lögum um almannarétt
og landvarða. í vetur verður nám-
skeiðið haldið í Reykjavík og
vænta’nlega einnig á Akureyri eða
á Egilsstöðum en það fer eftir
þátttöku þar. Nánari upplýsingar
em veittar á skrifstofu Náttúm-
vemdarráðs.
Fálkaorðan
veitt
Forseti Islands sæmdi eftir-
talda Islendinga heiðursmerkjum
hinnar íslensku fálkaorðu á nýárs-
dag: Aðalestein Vígmundsson
bifreiðastjóra, Reykjavík, ridd-
arakrossi fyrir störf að verkalýðs-
málum, Egil R. Friðleifsson, kór-
stjóra, Hafharfirði, riddarakrossi
fyrir störf að söngmálum, Eiríku
Friðriksdóttur, hagfræðing,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
rannsóknir í þágu bama, Finn
Kristjánsson, fv. kaupfélagsstjóra,
undan. Af þessum létust flestir
eða Ijórir af völdum vinnuslysa á
landi, í skipi eða við bryggju. Að-
eins einn lést á árinu 1990 vegna
líkamsárásar.
Tólf manns létust í sjóslysum
og af völdum dmkknunar og er
það fjölgun um fimm ffá árinu þar
á undan. Með skipum sem fómst
létust íjórir og jafnmargir dóu eft-
ir að hafa fallið útbyrðis. í flug-
slysum létust fjórir á síðasta ári á
móti aðeins einum árið 1989.
Af einstökum mánuðum síð-
asta árs létust flestir í maí eða tíu
manns og þar af sjö í umferðar-
slysum. -grh
Húsavík, riddarakrossi fyrir störf
að safnamálum, Geir Amesen yf-
irverkfræðing, Reykjavik, ridd-
arakrossi fyrir vísindastörf í þágu
sjávarútvegsins, Guðrúnu Helga-
dóttur, forseta sameinaðs Alþing-
is, stórriddarakrossi fyrir embætt-
isstörf, ffú Helgu Veturliðadóttur,
Kópavogi, riddarakrossi fyrir
uppeldisstörf í þágu þroskaheftra,
Ingþór Sigurbjömsson málara-
meistara, Reykjavík, riddara-
krossi fýrir hjálparstörf í þágu
bágstaddra, Séra Jón A. Baldvins-
son, sendiráðsprest London, ridd-
arakrossi ,fyrir líknarstörf,ffú
Kristrúnu Ólafsdóttur, Akranesi,
riddarakrossi fyrir æskulýðsstörf,
Ólaf Bjöm Guðmundsson, yfir-
lyfjafræðing Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf að garðyrkjumál-
um, Pálma Jónsson forstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að málefhum verslunarinnar,
dr. Sigmund Guðbjamason há-
skólarektor, Kópavogi, stórridd-
arakrossi fýrir vísindastörf, Sig-
ríði Schiöth söngstjóra, Akureyri,
riddarakrossi fyrir störf að söng-
málum, Sigurð Bjömsson, bónda
Kvískerjum, A-Skaftafellssýslu,
riddarakrossi fyrir fræðistörf, Sig-
urð Bjömsson óperusöngvara,
Garðabæ, riddarakrossi fyrir störf
að tónlistarmálum, dr. Sigurð
Helgason prófessor, Boston, stór-
riddarakrossi fyrir vísindastörf og
Örlyg Hálfdánarson bókaútgef-
anda, Seltjamamesi, riddara-
krossi fyrir útgáfústarfsemi.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. janúar 1991