Þjóðviljinn - 16.01.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 16.01.1991, Blaðsíða 5
ERLENDAR FRÉTTIR Eystrasaltslönd Innflytjendur krefjast afsagnar stjórna Búist við árásum sovéthers á þinghús á hverri stundu. Lettar búast til varnar í miðborg Riga. Hert eftirlit hermanna í Vilnu. Interfront, samtök í Lett- landi sem hafa einkum stuðning rússneskra innflytj- enda þar, héldu í gær 12.000 manna fund á íþróttavelli í út- jaðri höfuðborgarinnar Riga. Var þar skorað á sovéska her- inn að taka til sinna ráða tii að hindra að „alræði borgarastétt- arinnar“ yrði innleitt í landinu á ný. Á fundinum var hvatt til alls- herjarverkfalls í þeim tilgangi að knýja stjóm landsins til afsagnar. Einn ræðumanna var Viktor Alksnis oíursti, lettneskur en þó einn helsti liðsoddur harðlínu- manna í sovéska hemum. Krafð- ist hann þess að Lettland yrði taf- arlaust sett undir beina stjóm Sovétríkjaforseta. Aðrir ræðu- menn kröfðust þess að þjóðfrels- unamefhd svonefnd, sem eins og nefnd með svipuðu nafni í Lithá- en hefur aðallega á bakvið sig rússneska innflytjendur, tæki þeg- ar við völdum. í Tallinn, höfuðborg Eist- lands, hélt Interhreyfing svoköll- uð, sem hefur einkum fylgi rúss- neskra verkamanna í iðnaðinum þarlendis, útifund i gær, þar sem hótað var verkfalli innan 24 stunda nema því aðeins að stjóm landsins segði af sér. Bæði i Eistlandi og Lettlandi, sem og í Litháen, óttast menn nú að sovéski herinn láti til skarar skriða þá og þegar til að svipta stjómir lýðveldanna völdum og leysa upp þingin. I Riga, þar sem sjálfstæðissinnar hafa viggirt sig í miðborginni, er búist við að her- inn reyni að taka þinghúsið með vopnuðum þyrlum. Óttinn við að slíkar aðgerðir stæðu fyrir dymm var í gærkvöldi mestur í Riga. I Lettlandi em Rússar fjölmennari en í hinum lýðveldunum tveimur. Anatolijs Gorbunovs, forseti Lettlands, hvatti í gær konur og böm til að halda sig frá miðborg- inni og sjálfstæðissinnar þar, margir vopnaðir bareflum og haf- andi að líkindum fátt annarra vopna, hlóðu viði og hálmi á götuvígi, efalítið með það fyrir augum að kveikja í þeim ef herinn gerði áhlaup. Herinn herti tökin á Vilnu í fyrrinótt og gær, kom upp varð- stöðvum viðsvegar um borgina og jók eftirlit að nóttu til. En stjóm Landsbergis forseta ræður enn pósti og síma, ráðuneytum, samgöngukerfi og eftirlitssveit- um innanríkisráðuneytis síns. Þær hafa einhver vopn, en að líkind- um ekki í skæðara lagi eða mikið af þeim. í löndunum öllum þremur er það áberandi að sovéski herinn beitir fyrir sig rússnesku þjóðem- isminnihlutunum þar og segist framkvæma aðgerðir sínar til vemdar samtökum, sem segjast hafa á bakvið sig mikið fylgi meðal allra þjóðema landanna, en hafa i raun litið fylgi annarra en Rússa (nema ef til vill Pólveija í Litháen). Rússar í þessum lönd- um óttast að aðstaða þeirra þar versni ef þau verði sjálfstæð. í Vilnu mddu jarðýtur í gær upp hindrunum í kringum þing- húsið, því til vamar gegn líklegri árás sovéska hersins. Reuter/-dþ. Lettneskir sjálfstæðissinnar hafa eftirföngum víggirt miðborgina í Riga gegn árás sovéska hersins, sem marg- ir þar telja yfirvofandi. Hér hefur götu við aðalsímstöð borgarinnar verið lokað með þvl að leggja strætisvögn- um og vörubllum þvert á hana. Morð í Karþagó Þrír helstu manna Arafats myrtir Abu Nidal líklegastur sökudólgur, en ísraelar ekki lausir við grun rir helstu forustumanna Frelsissamtaka Palestínu (PLO) voru skotnir til bana á mánudagskvöld á heimili eins þeirra í Karþagó, en svo heitir nú ein útborga Túnisborgar. Einn maður, arabi, varð þeim að bana og er líklegast talið að hann sé útsendari Abu Nidals, eins þess illræmdasta af foringj- um Palestínumanna sem lengi hefur átt í illdeilum við forustu PLO. Mennimir þrír voru allir nánir samstarfsmenn Jassers Arafat PLO- leiðtoga og eins og hann í Fatah, áhrifamestu samtökunum í PLO. Þeir vom Abu Iyad (réttu nafni Salah Khalaf), sagður helsti ráðamaður í Fatah næst Arafat, Hael Abdel-Hamid, einskonar innanríkisráðherra PLO og Fakhri al-Omari, helsti aðstoðarmaður Iyads um stjómun njósnaþjónustu Fatah. Af þeim þremur er Abu Iyad langþekktastur. Hann varð 57 ára og hefur verið góðkunningi og náinn samstarfsmaður Arafats frá því að þeir námu báðir við Kaíró- háskóla snemma á sjötta áratug. Þeir stofnuðu Fatah saman og höfðu fomstu um að vekja sér- þjóðemishyggju með Palestínu- mönnum. Abu Iyad er talinn hafa verið skipuleggjandinn á bakvið morð- in á 11 ísraelskum íþróttamönn- um í Munchen 1972, og hann mun hafa átt hlut að fleiri álíka at- höfnum á áttunda áratug. Á síð- ustu ámm hefiir hann hinsvegar verið meðal hófsamari manna í PLO-fomstunni, þannig stuðlaði hann að þvi að viðræður vom teknar upp með Bandaríkjunum og PLO. Þeir Abu Nidal, sem hefur að- setur í Bagdað og nýtur að líkind- um einnig stuðnings Gaddafis Lí- býuleiðtoga, hafa lengi verið svamir óvinir. Abu Iyad átti hlut af því að hinn var reldnn úr Fatah 1974, eftir að hafa verið borinn sökum um nokkur morð í inn- byrðis eijum í samtökunum. Abu Nidal stofnaði þá eigin flokk, sem nefnist Byltingarráð Fatah (ensk skammstöfun FRC). Þegar eftir brottrekstur hans úr Fatah dæmdi FRC Abu Iyad til dauða og Fatah sömuleiðis Abu Nidal. Talsmenn Fatah bera bæði Abu Nidal og ísraela sökum um morðin í Karþagó á mánudags- kvöld. I yfirlýsingu ffá Iraksstjóm em „síonistar og heimsvaldasinn- ar“ hafðir fyrir sökinni. Israelar segjast vera blásaklausir af þessu, en athygli vekur að flestir þeirra, sem talið er að átt hafi hlutdeild að hryðjuverkinu í Miinchen 1972 hafa síðan dáið voveiflega. Að sögn túnískrar lögreglu kom morðinginn fyrir nokkm til Túnis ffá Líbýu og sagðist vera stroku- maður úr FRC. Hann mun hafa verið einn af lífvörðum þeirra sem hann drap og gafst fljótlega eftir morðin upp fyrir lögreglunni. Aðalstöðvar PLO hafa verið í Túnis frá því að ísraelar sundmðu liði samtakanna með innrás í Líb- anon 1982. Sovétríkin Vesturlandavinur utanríkisráðherra Með útnefningu Pavlovs í embœtti forsætisráðherra reynir Gorbatsjov að styrkja stöðu sína gagnvart hernum Aleksandr Bessmertnykh, ambassador Sovétríkjanna í Washington, hlaut í gær sam- þykki æðstaráðs (þings) Sovét- ríkjanna sem eftirmaður Edu- ards Shevardnadze í embætti utanríkisráðherra. Daginn áð- ur hafði æðstaráðið samþykkt Valentín Pavlov, fjármálaráð- herra, í embætti forsætisráð- herra. Báðir voru þeir tilnefnd- ir af Gorbatsjov forseta. Með þessu er líklegt að Ní- kolaj Ryzhkov, sem varð forsætis- ráðherra skömmu eftir að Gorbat- sjov kom til valda og hefur verið einn nánustu samstarfsmanna hans, sé á fomm úr innsta hring sovéskra stjómmála. Ryzhkov, sem er rúmlega sextugur, er heilsuveill og hefur lengi verið harðlega gagnrýndur af róttækum stjómmálamönnum, auk þess sem þeir íhaldssömu hafa ekki verið ýkja hrifnir af honum heldur. Pavlov er 53 ára hagfræðingur og nýtur góðs álits sem slíkur, en ekki er hann rótttækur talinn frek- ar en Ryzhkov. Bessmertnykh, sem er 57 ára, hefur að baki langan feril í utan- ríkisþjónustunni, m.a. úr afvopn- unarviðræðum og er þekktur sem ákafur talsmaður vinsamlegra samskipta við Vesturlönd. í ræðu í æðstaráði í gær lagði hann áherslu á fullan stuðning Sovétríkjanna áffarn við samþykktir Öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna í Persa- flóadeilu. Hann lét í ljós áhyggjur af að atburðimir í Litháen síðustu daga gætu haft í för með sér vand- ræði í samskiptum við Vestur- lönd. Slíka atburði yrði að forð- ast, með það í huga m.a. að þeir hefðu sinar afleiðingar á utanrík- isvettvangi einnig. Stjómarerind- rekar í Moskvu segja að þessi um- mæli bendi til þess, sem fyrir lék gmnur á, að sovéska utanríkis- ráðuneytið hefði þungar áhyggjur af atburðunum undanfarið í Eystrasaltslýðveldunum og að al- varlegur ágreiningur væri milli þess og vamarmálaráðuneytisins um þau mál. Talið er að með útnefhingu þessara tveggja manna í mikilvæg ráðherraembætti sé Gorbatsjov annarsvegar að leggja áherslu á að hann hyggist hvergi hvika frá stefnu sinni um góð sambönd við Vesturlönd og hinsvegar að reyna að styrkja stöðu sina gagnvart hemum. Pavlov er fyrsti sovéski forsætisráðherrann í áratugi sem er hagffæðingur, hinir vom ffam- ámenn úr iðnaðinum og margir þeirra, þ.á m. Ryzhkov, mjög tengdir vopnaiðnaðinum. Pavlov verður valdaminni en Ryzhkov, þar eð samkvæmt stjómarskrárviðbót samþykktri í des. heyrir forsætisráðherra nú beint undir forseta. Reuter/-dþ. Ryzhkov - einn enn af helstu mönnum fyrstu fimm Gorbatsjov- áranna hverfur úr innsta hring. Miðvikudagur 16. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Reuter/-dþ. Sovétríkin Gorbatsjov ævareiður Jeltsín Gorbatsjov Sovétríkjaforseti veittist harðlega að aðalkeppinaut sínum Borís Jeltsín, Rússlandsfor- seta, f ræðu í æðstaráði í gær. Þótt- ust menn varla hafa séð Gorbatsjov svo reiðan fyrr og sagði hann m.a. að engu væri líkara en Jeltsín væri genginn af göflunum. Gorbatsjov fordæmdi Jeltsín einkum fyrir tvennt: eindreginn stuðning hans við Eystrasaltslýð- veldin þijú í yfirstandandi deilu þeirra við sovésku stjómina og þá hugmynd Rússlandsforseta að stofha sérstakan rússneskan her til vamar rússneska sambandslýðveld- inu gegn sovéska hemum. Á sunnu- dag undirrituðu Jeltsín, forsetar Eistlands og Lettlands og fulltrúi forseta Litháens vamarsáttmála lýð- velda sinna í Tallinn. Rússar í Tallinn og Riga kölluðu Jeltsín í gær svikara við landa sína í Eistlandi og Lettlandi. Reuter/-dþ.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.