Þjóðviljinn - 20.02.1991, Page 3
FRETTIR
Bvggðamál
Blásið til nýrrar sóknar
Valddreifing og aukin ábyrgð heimamanna. Byggðastofnun verði efld. RARIK
og Landsvirkjun sameinaðar
Valddreifing, aukin ábyrgð
heimamanna á eigin mál-
um og jafnvægi í byggð, ásamt
því að Byggðastofnun verði fal-
ið að hafa meira frumkvæði í
stefnumótun til eflingar byggð-
ar og atvinnulífl á landsbyggð-
inni, er meðal þess sem byggða-
nefnd forsætisráðherra og
nefnd sem fjallaði um skipuiag
Byggðastofnunar og fyrstu að-
gerðir í byggðamáium leggja til.
Þær leggja til að tafarlaust
verði gerðar þær ráðstafanir sem
tryggi að raforkuverð verði eitt og
hið sama til allra dreifiveitna og
að raforkuverð í smásölu verði
jafnað til sambærilegrar notkunar.
Rafmagnsveitur ríkisins og
Landsvirkjun verði sameinaðar í
eitt orkuöflunar- og dreifingarfyr-
irtæki þar sem ríkið eigi meiri-
hluta.
Byggðanefnd leggur áherslu á
í sínum tillögum að byggðaáætlun
verði lögð fyrir Alþingi þegar á
næsta hausti. I tengslum við vænt-
anlegar breytingar á deildaskipt-
ingu Alþingis telur nefndin nauð-
synlegt að sérstök nefnd fjalli um
byggðamálin. Á þann hátt yrði
færð inn á Alþingi sú vinna að
stefnumótun í byggðamálum sem
fram hefur farið í nefndum utan
Alþingis á undanfömum árum.
Tillögur nefndanna voru
kynntar i gær en byggðanefnd
forsætisráðherra var skipuð i
janúar í fyrra eftir tilnefningu
allra stjómmálaflokkanna sem þá
áttu fulltrúa á Alþingi. I nefndinni
sem gerir tillögur um skipulag
Byggðastofhunar og fyrstu að-
gerðir í byggðamálum áttu sæti
fulltrúar ríkisstjómarflokkanna.
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði að hann
mundi leggja ffam fmmvarp á Al-
þingi á næstu dögum um breyt-
ingar á lögum um Byggðastofnun
og félagsmálaráðherra er að
skoða fhxmvarp um breytingar á
sveitarstjómarlögum sem jafnvel
verður lagt fram á þessu þingi.
I tillögum byggðanefndar er
jafnframt lagt til að Byggðastofh-
un geri byggðaáætlun til fjögurra
ára sem forsætisráðherra leggi
fyrir Alþingi til samþykktar.
Þannig myndi Alþingi a.m.k. ann-
að hvert ár fjalla um byggðamál
og þau áhrif, sem ákvarðanir og
aðgerðir - eða aðgerðaleysi -
stjómvalda hafa á þróun byggðar
og ætti sú umfjöllun að stuðla að
málefnalegri umræðu um
byggðamálin í þjóðfélaginu. Lagt
er til að í hveiju kjördæmi verði
starfandi atvinnuráðgjafi og eitt
eða fleiri atvinnuþróunarfélög
sem Byggðastofhun veiti stuðn-
ing við atvinnuráðgjöf og þróun-
arstarf. Einnig leggi stofhunin
ffam áhættufjármagn til þeirra
verkefna sem álitleg þykja. -grh
Kvikmyndir
Ráðist í fjögur stór verkefni
Handrit Kristínar Jóhannesdóttur, „Svo á jörðu sem á himni valið sem íslenskt verkefni
Norræna kvikmyndasjóðsins 1991
Islensk dómnefnd hefur valið
handrit Kristínar Jóhannes-
dóttur, „Svo á jörðu sem á
himni“, sem íslenskt verkefni
Norræna kvikmyndasjóðsins
1991, en það felur í sér að
myndin verður að mestu leyti
ijármögnuð af opinberu fram-
lagi frá Norðurlöndunum
fimm.
Kvikmyndasjóður Islands til-
kynnti einnig um úthlutanir ársins
1991, sem nema 57,5 miljónum
og fara til 13 aðila. Þar af fara
stærstu styrkimir til Óskars Jóns-
sonar (15 miljónir kr. fyrir hand-
ritið Sódóma, Reykjavík), kvik-
myndafélagsins Gjólu hf. (Ásdís
Thoroddsen o.fl.), sem fær 14,3
miljónir fyrir handritið „Ingaló á
grænum sjó“, og Þumals, sem fær
7,2 miljónir til að kvikmynda
handritið „Helgi og folaldið".
Aðrir styrkir Kvikmyndasjóðs
renna til stuttra heimildarmynda,
handritsgerðar, undirbúnings-
vinnu, stuttmynda og teikni-
mynda.
Svo á himni...
Kristín Jóhannesdóttir sagði
handrit sitt vera ástar- og örlaga-
sögu, er byggði meðal annars á
þeim sannsögulega atburði er
ffanska rannsóknaskipið Po-
urquoi Pas? fórst á Breiðafirði
1936. Sagan er sögð út ffá sjónar-
hóli ungrar stúlku og er fijálslega
farið með heimildir, auk þess sem
skyggnst er aftur til atburða er
gerðust á sama stað á 14. öld.
Kristín sagði myndina fjalla
öðrum þræði um átrúnað, örlaga-
trú og hindurvitni og um það að
hve miklu leyti maðurinn réði ör-
lögum sinum sjálfur.
Myndin gerist á þeim tíma
þegar borgarastyijöldin geisaði á
Spáni og gyðingaofsóknir voru
vaxandi í álfunni og heimsstyij-
öldin í aðsigi. Með tilvísuninni til
14. aldar eru raktir atburðir er
gerðust á sama stað á þeim tíma
og leiddu til þess að staðurinn var
fordæmdur af konu. Þá geisaði
pestin í Evrópu og einnig þá voru
gyðingar ofsóttir og sagðir upp-
hafsmenn af þeim sjúkdómi.
Þannig eru vissar hliðstæður rakt-
ar í tíma og rúmi er vekja upp
spuminguna um það hvort sagan
sé endurtek q eða í hvaða mæli
maðurinn ráði sínum eigin örlög-
um, sagði Kristín.
Óskar Jónsson, Ásdís Thoroddsen og Kristín Jóhannesdóttir hrósuðu happi ( húsnæði Kvikmyndasjóðs (gær.
Mynd: Kristinn.
Kristín hóf heimildasöfnun
fyrir handritsgerðina 1984 og hef-
ur margskrifað handritið síðan, en
kvikmyndataka hefst i sumar og
mun hún sjálf leikstýra verkinu.
Sódóma...
Handrit Oskars Jónssonar,
„Sódóma, Reykjavik“, fjallar um
Reykjavík samtímans, að sögn
höfundar, og lýsir því hvemig
unglingar í höfuðborginni upplifa
ýmsar skuggahliðar mannlífsins,
landabrugg, smygl og mafíustarf-
semi. Þetta verður leikin mynd í
fullri lengd og hefjast tökur í
sumar. Áætlað er að myndin kosti
um 50 miljónir króna, en sfyrkur-
inn nemur 15 miljónum. Óskar
Jónsson leikstýrir, og er þetta
önnur mynd hans í fullri lengd. Sú
fyrri hét „Sjúgðu mig Nína“ ffá
1983 á 8 mm filmu. Þá hefur Ósk-
ar einnig gert stuttmyndir.
Ásdís Thoroddsen verður
leikstjóri kvikmyndarinnar „Inga-
ló á grænum sjó“, sem hlutafélag-
ið Gjóla fékk 14,3 miljóna króna
styrk til að gera. Ásdís sagði
myndina fjalla um skapstóra
‘stúlku ffá Ströndum og samskipti
hennar við skipsfélaga á mótor-
bátnum Gvendi, þar sem hún
starfar sem kokkur. Myndin verð-
ur tekin í sumar, m.a. á Drangs-
nesi og Suðureyri.
Ásdís lauk námi ffá Kvik-
myndaakademíunni í Berlín 1989
með leikstjóm sem sérfag, og
verður þetta fyrsta langa kvik-
myndin hennar. Framleiðandi
myndarinnar fyrir Gjólu hf. verð-
ur Martin Schluter, Anna The-
ódóra Gunnlaugsdóttir gerir leik-
mynd og þau Halldóra Thorodd-
sen og Eggert Þorleifsson koma
einnig við sögu.
Af öðrum styrkjum má nefna
8,5 miljóna ffamlag til Nýja bíós
fyrir heimildarkvikmynd um Jón
Leifs, miljón kr. til Halldórs Þor-
geirssonar fyrir undirbúning að
„Jörundi hundadagakonungi",
aðra miljón til Hákonar Oddsson-
ar og Siguijóns B. Sigurðssonar
fyrir undirbúning að „BINGÓ“ og
sömuleiðis til Baldurs Hrafnkels
Jónssonar fyrir „Krossgötur“,
tvær milj. kr. til Ólafs Jónssonar
til gerðar heimildarmyndar um
Ragnar í Smára og aðrar tvær
milj. til Sigurbjöms Aðalsteins-
sonar til að gera stuttmyndina
„Ókunn dufl“. Þá vom einnig
veittir tveir sfyrkir til teiknimynda
og miljón kr. til Kvikmynda-
klúbbs Islands.
Úthlutunamefndina skipuðu
Róbert Amfinnsson, Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir og Sig-
urður Valgeirsson og hlutu 13
verkefni einhveija úrlausn af 85
umsóknum. -ólg.
Gervihnattasiónvarp
Næiri helmingur
horf ir aldrei
Svavar Gestsson: Vildum
vita hver vœru viðhorf
þjóðarinnar í grófum
dráttum
Fjörutíu prósent lands-
manna hafa aldrei horft á út-
sendingar Sky eða CNN sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Fé-
lagsvísindastofnun vann fyrir
menntamálaráðuneytið dagana
8.-12. febrúar. Af þeim sem hafa
horft hafði tæpur helmingur
ekkert horft vikuna fyrir könn-
unina.
Menntamálaráðherra Svavar
Gestsson sagði að þegar þessar út-
sendingar hefðu verið leyfðar með
reglugerðarbreytingu 17. janúar
s.l. hefði ráðuneytið viljað kanna
viðhorf þjóðarinnar til þessa. I
henni kemur ffam að 41 prósent
telja sig skilja svo til allt óþýtt
efni. Um 16 prósent telja að
óvenju mikill vandi steðji að ís-
lenskri tungu um þessar mundir
vegna erlendra áhrifa. Athyglis-
vert er að árið 1986 var þetta hlut-
fall 21,1 prósent. Konur hafa meiri
áhyggjur af þessu en karlar. Af
þeim sem tóku afstöðu töldu 79
prósent að ákvörðun ráðherra um
að breyta reglugerðinni hefði verið
rétt en rúm 80 prósent telja þó að
stjómvöld eigi að setja reglur um
þýðingar sjónvarpsefnis og það
eru aðeins tæp 16 prósent sem
vilja það vald í höndum sjónvarps-
stöðvanna. Þó telja rúm 65 prósent
aðspurðra að heimila megi unda-
þágur ffá meginreglu um þýðingar.
Skoðanakönnun
Stjómin með meirihluta
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
46,2% fylgi ef gengið væri
til kosninga nú samkvæmt
skoðanakönnun sem Félagsvís-
indastofnun gerði fyrir Morg-
unblaðið og hefur fylgi Sjálf-
stæðisflokksins minnkað um
rúmt prósentustig frá því að Fé-
lagsvísindastofnun gerði síðast
könnun á viðhorfum kjósenda, í
nóvember í haust.
Einnig var spurt um afstöðu
til ríkisstjómarinnar og sögðust
40,2% styðja ríkisstjómina en
36,9% vom henni andvígir. 23%
vom hlutlausir í afstöðu sinni.
Alþýðuflokkurinn fengi
14,7%, Framsóknarflokkurinn
20,9%, Alþýðubandalagið 8,9%
og Kvennalistinn 7,8%. Aðrir
flokkar náðu ekki einu prósenti í
könnuninni.
í Reykjavík fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 54,8%, Alþýðuflokk-
urinn 13,4%, Framsóknarflokkur-
inn 9%, Alþýðubandalagið 10,7%
og Kvennalistinn 11%.
I Reykjanesi fengi Sjálfstæð-
isflokkurinn 50,5%, Alþýðu-
flokkurinn 19,9%, Framsóknar-
flokkurinn 13,9%, Alþýðubanda-
lagið 6,9% og Kvennalistinn
8,3%.
Könnunin var unnin 8.-12.
febrúar og var leitað til 1500
manns og var svarhlutfall 72,9%.
-Sáf
Miðvikudagur 20. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3