Þjóðviljinn - 20.02.1991, Síða 9

Þjóðviljinn - 20.02.1991, Síða 9
FRA LESENDUM ALÞYÐUBANDALAGIÐ Svavar Bjartmar Úr Rocky Horror Alþýðubandalagið I Reykjavík Þorrablót - Árshátíð Þorrablót-Árshátlð Alþýðubandalagsins I Reykjavlk verður haldin ( Risinu, Hverfisgötu 105, laugardaginn 23. febrúar. Húsið opnað kl. 19, borðhald hefst kl. 19.30. Veislustjóri: Auður Sveinsdóttir. Hátíðarræða: Guðrún Helgadóttir. Svavar Gestsson segir frá skoplegum hliðum í fjögurra flokka rfkisstjórn. Söngvar úr Rocky Horror Picture Show fluttir af nemend- um MH. Gunnar Guttormsson tekur lagið við undirteik Sigrúnar Jó- hannesdóttur. Bjartmar Guðlaugsson leikur og syngur. Fjöldasöngur. Hljómsveitin Léttir sprettir leikur fyrir dansi. Miðaverð kr. 2.800. Pantanir hjá Guðmundi Helga f sfma 622084 allan daginn, Dagnýju ( sfma 652633 e. kl. 19 og f flokksmiöstöðinni á skrifstofutfma f slma 17500. Miða- pantanir þurfa aö berast eigi slöar en kl. 22 á fimmtudag. Tekið á móti pöntunum f sfma 17500 á fimmtudag til kl. 22. Við geymum ávfsanir fram að mánaðamótum og tökum greiðslukortin VISA og Euro, svo nú geta allir komið. Stjórnin Alþýðubandalagið Suðudandi Auður Guðrún Gunnar og Sigrún Kosningaráðstefna Laugardaginn 23. febrúar kl. 13 f Alþýðu- . bandalagshúsinu við Kirkjuveg Selfossi. Dagskrá: 1. Staða Alþýðubandalagsins. Margrét Frímannsdóttir. 2. Undirbúningur kosninga. 3. Myndataka. Margrét 4. Málefnavinna. Laugardagskvöld: Skemmtun kl. 20 f Iragerði 12 Stokkseyri. Sunnudagur kl. 10.30: Dagskrá: 1. Niðurstöður hópa og umræður. 2. Áherslur f kosningabaráttunni. Allir félagar I Alþýðubandalaginu á Suðuriandi hvattir til að mæta. Kosningastjórnin Bergþóra Ríkarð AB Borgamesi og nærsveitum Félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn f Röðli fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: Undirbúningur kosninga. Á fundinn koma Jóhann Ársælsson, Bergþóra Gísladóttir og Rfkarö Brynjólfsson. Stjórnin Alþýðubandalagið Isafirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsfélagsins á ísafirði verður hald- inn föstudaginn 22. febrúar kl. 20.30 f fundarsal á efstu hæð- inni í gamla Útvegsbankahúsinu (gengið inn bakdyramegin). Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. Hulda Leifsdóttir. 2. Fréttir af bæjarmálum. Bryndís Friðgeirsdóttir. 3. Kosning formanns, stjórnar og endurskoöenda. 4. Undirbúningur kosninga. 5. Gestur fundarins Kristinn H. Gunnarsson. 6. Önnur mál. Umræður verða I lok hvers dagskrárliðar. - Fjölmennið. Stjórnin AB Suðurlandi Kosningaskrifstofan Kosningaskrifstofan opin föstudaga kl. 17 til 19 f Alþýðu- bandalagshúsinu, Kirkjuvegi, Selfossi. Allt stuðningsfólk velkomið til skrafs og ráðageröa. Heitt á könnunni. Kosningastjórnin Upp á líf og dauða Starri í Garði skrifar Fátt er nú meira rætt meðal sveitafólks í dag en skýrsla hinnar svokölluðu sjömannanefndar, sem virðist eiga að verða stefnumark- andi um okkar lífshagsmuni hin næstu ár. Hér ríkir nú svipað and- rúmsloft meðal bændafólks og á sér stað meðal striðsþjóða, andrúmsloft spennu og kvíða eins og þar sem menn óttast vopnaða árás á hverri nóttu. Og þetta er ekki að ástæðu- lausu, fari svo hrapallega að land- búnaðarráðherra byggi nýjan bú- vörusamning á ráðleggingum þess- arar dæmalausu nefndar. Hér er ekki staður né stund til að benda á háskann og heimskulegar ráðlegg- ingar sem blasa við á hverri blað- síðu þessarar áfangaskýrslu, sem væri auðvelt en þarf langt mál til. Fullyrðing Gunnars Sæmunds- sonar, bónda í Hrútatungu og for- manns Búnaðarsambands Vestur- Húnvetninga, sem hann viðhafði í útvarpi í gærkvöldi (17. þ.m.) verð- ur ekki hrakin. Hans dómur var sá, að yrði farið að þessum ráðum þýddi það algert hrun í sveitum landsins. Það er einfalt mál að sauð- fjárbændur geta ekki tekið á sig meiri skerðingu en orðin er, annars blasir við algert hrun heilla byggð- arlaga. Og er þess heldur nokkur þörf? Hinn virki fullvirðisréttur framleiðir nú aðeins 900 tonn um- fram það sem selst á innlendum markaði. Hinn ónýtti fullvirðisréttur er óráðin gáta, hvað eigendur hans kunna að kalla eftir á næstunni. Eins og horfumar em í dag er ekki líklegt að marga fýsi að hefja bú- skap að nýju. Þessum 900 tonna vanda er auðveldast að mæta með því að lækka verð búvöm til neyt- enda verulega, segjum 20-30%, beint á kostnað þeirra sem mynda nú 75% af búvöruverðinu, það er þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem sjá um vörudreifmgu, markaðsmál, úr- vinnslu og ýmsa þjónustu við þess- ar hefðbundnu búgreinar. Ríkið er í þeim hópi. Þá mundu þessi 900 tonn hverfa eins og dögg fyrir sólu. Fyrir landbúnaðarráðherra er ekki um annað að gera en leggja ffam drög að búvörusamningi er byggðist upp á þessum staðreynd- um. Komi hann ekki slíkum samn- ingi ffam innan ríkisstjómar, ber honum tafarlaust að ganga út úr rík- isstjóm. Ráðherrann hlýtur að vera búinn að fmna fyrir því, að ekkert getur valdsmann verra hent en fá yfir sig illa og fláráða ráðgjafa. Einnig hitt að gjalda varúð við þeim vinum er fagurt mæla en flátt hyggja, og gjalda lausung við lygi. Þeim Hauki Halldórssyni og Hákoni Sigurgrímssyni ber tafar- laust að segja sínum trúnaðarstörf- um lausum. Með undirskrift sinni að þessari skýrslu hafa þeir sannað að þeir em ekki færir um að gæta hagsmuna bænda í samningum við ríkisvald. Og skyldi það verða útgjalda- minna fyrir þjóðarbúið að veita við- töku á Suðumes þeim þúsundum er koma þangað án atvinnu og hús- næðis, eignalaus eftir að hafa verið rekin ffá staðfestu sinni og óðulum, sem ekkert verð fæst fyrir? Það er þetta sem koma mun ef við látum þau fim yfir okkur ganga sem þessi áfangaskýrsla ólánsmanna boðar. Eg skora á bændur og búalið að snúa bökum saman sem einn maður nú þegar og reka slikt fár sem þetta af höndum sér. Timinn er naumur, bregðumst strax við. Hér er um líf eða dauða að tefla. 18. febrúar 1991 Starri í Garði Prófkjör hæpin aðferð Jóhanna Aðalsteinsdóttir skrifar Ég vil byija á því að fagna þeirri farsælu niðurstöðu sem varð hér í kjördæminu, þegar Alþýðu- bandalaginu tókst að koma saman framboðslista með svo góðum ffambjóðendum, sem raun ber vitni, án þess að efna til þeirra óeirða sem próíkjör eða forvöl hafa í för með sér. Ég tel að prófkjörin séu mjög hæpin aðferð til að sam- eina fólk til starfa fyrir kosningar. Það hefur sýnt sig í flestum tilfell- um, þar sem þau hafa verið við- höfö, að þau hafa skapað sundr- ungu meðal samheija og starfs- kraftar manna því næst farið í það að eijast hver við annan, ffekar en að sinna þeim málefnum sem menn eru þó sammála um. Hér í kjör- dæminu er brýnasta verkefni ráða- manna að efla og auka atvinnu, svo að hver maður hafi nægilega mikið að gera. Það er grundvallar atriði, til að hægt sé að halda byggð í jafn- vægi, tryggja aíkomu byggðarlag- anna, og að fólkið hafi reisn til að búa vel og vera sjálfu sér nóg á sín- um stað. Við íslendingar erum mikil sjálfsvirðingar þjóð og sjálfstæð, eða hvað?? Við tökum eðlilega þátt í að styðja aðrar smáþjóðir til sjálfstæð- is. Hins vegar tel ég að við höfum farið offari í framgangi í því máli, hvað vrðar smáþjóðir við Eystra- salt. Þar gengur utanríkisráðherra, Jón Baldvin, í broddi fylkingar, reistur og djarfur, formaður stóra jafhaðarmannaflokksins, sem við eigum að vaða inní á rauðu ljósi. Hann telur okkur geta flutt öðrum þjóðum boðskap sjálfstæðis og kennt þeim sjálfsvirðingu. En hvemig er þessu varið hjá okkur? Á meðan þessu fer fram liggur flokks- bróðir hans, þingmaður Suðumesja, á hnjánum, betlandi við Banda- ríkjamenn um að láta herinn vera á Miðnesheiði, og það sem flesta dáta. Þetta finnst mér lágkúra. Með- an við höfum ekki hærri hugsjónir heimafyrir, finnst mér að við ættum að taka hóflega á því að flytja út sjálfstæði í stórum stíl. Ég held að Islendingar ættu að huga betur að sínu en gert er. Það er vælt yfir vandræðum í sjávarútvegi og landbúnaði. Fjölmiðlar iðnir við ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 kolann, enda er stétt fréttamanna í þessu landi orðin allt of fjölmenn, þeir sem þar starfa em alla daga að leita sér að æti, eins og hungraðir umrenningar i móðuharðindum og gleypa hvaða óþverra sem er. Þá er ekki að sökum að spyija, hvað varðar gætni eða vandvirkni. Að ég tali ekki um málfarið, svo sem „Hvers manns óðs“. Við höfum yfir miklum auð- lindum að ráða. Meðan við eigum ómengað land og ómengaðan sjó, þá búum við kannske yfir eins miklum auðlindum borið saman við fólksfjölda og þær þjóðir sem nú er verið að herja á vegna olíulinda. Það er ekki hugsað nægilega um að gera verðmæti úr því sem við höf- um, það vilja allir fá fljóttekinn gróða, með sem minnstri fyrirhöfn. Við eigum að hirða allt sem uppúr sjónum kemur og vinna úr því verð- mæti. Það er svo mörgu fleygt, sem eflaust mætti nýta og væri verðugt verkefni fyrir sprenglærða efha- fræðinga og fleiri langskólagengna menn að koma í framkvæmd, og selja svo vöruna. Það kostar auðvit- að tíma og peninga að framkvæma þetta, en þetta gæti orðið ótrúlega mikil verðmætasköpun og við þetta gætu skapast störf handa jafh mörg- um mönnum og vinna í meðal ál- veri. Auk þess yrði kvótinn e.t.v. helmingi verðmætari, sama magn. Um landbúnað er nú sjaldan tal- að öðruvísi en sem einhverskonar ómegð á þjóðinni, sem helst ætti að losa sig við. Þetta er svo mikið ranglæti, að það minnir helst á með- ferð á fólki hjá réttvísinni hér á landi á 18. öldinni. Það væri mikið glapræði ef dregið yrði úr landbún- aði og lagt af að framleiða hér ómengaðan mat, en flytja kannske inn eitthvert drasl handa fólki til að borða, sem við vitum ekkert hvað hefir inni að halda. Hér er ekkert eftirlit með innfluttum matvælum, eins og er í flestum öðrum löndum í Evrópu. Enda er þessi innflutningur ekki hugsaður til hagsbóta fyrir fólkið, heldur umboðsmennina með umboðslaunin. Það á að stórauka landbúnað og framleiðslu á landbúnaðarafurðum og vinna úr öllu ómengaðan og hollan mat og selja til þeirra landa sem hafa súrt regn og mengun. Þá er í þvi sambandi stórt verkefni fyr- ir matvælaverkfræðinga og lyfja- fræðinga (sem eru að spyija hvað þeir eigi að gera, þegar frumvarið hans Guðmundar Bjamasonar er orðið að lögum, öllu heilli). Síðan eiga viðskiptafræðingar og hag- fræðingar að koma þessu á markað. Við þetta gætu fleiri Islendingar haft vinnu en þeir sem nú vinna á Miðnesheiði, þó að herinn færi all- ur heim til sín. Húsavík 10. febrúar 1991, Jóhanna Aðalsteinsdóttir ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Reykjanesi Aðalkosningaskrifstofan Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins f Reykjaneskjör- dæmi er f Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Fyrst um sinn er opiö daglega frá kl. 14 til 19. Kosningasfmar: 642087 og 642097. - Sjálfboðaliðar látið skrá ykkur sem fyrst. - Alltaf heitt á könnunni! Kosningastjórnin Alþýðubandalagið Kópavogi Bæjarmálaráð Fundur verður f Þinghóli fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: 1. Tillögur til breytinga á fjárhagsáætlun bæjarins. 2. Önnur mál. Stjórn bæjarmátaráðs

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.