Þjóðviljinn - 20.02.1991, Síða 11

Þjóðviljinn - 20.02.1991, Síða 11
í DAG Æskulvðsfvlking A Iþvðubandalagsins Alyktanir Landsþings ÆF Ályktun um umhverfismál: Landsþing ÆFAB minnir á mikilvægi hreinnar og óspilltrar náttúru fyrir Islendinga. I landi þar sem afkoma þjóðarinnar treystir eingöngu á notkun og nýt- ingu náttúrunnar, verða umhverf- issjónarmið að vera ráðandi þáttur í allri ákvarðanatöku. Nóg er komið af innantómum orðum í þessum eíhum. Nú verður að móta afgerandi steíhu í umhverf- ismálum sem tekur á þeim vanda sem að steðjar í samræmi við þá steíhu sem mótuð var í svonefndri Brundtland-skýrslu 1987 og kennd hefur verið við sjálfbæra þróun. Laufið Allt frá upphafi landnáms hafa Islendingar tekið af landsins gæðum eins og þau væru óþijót- andi og umgengist landið með þeim hætti að það er nú aðeins svipur hjá sjón. Tími er kominn til að Islendingar fari að endurgreiða landinu 1100 ára skuld sína. * Gegndarlausa ofbeit víða á afréttum landsins verður að stöðva þegar í stað, m.a. með bráðnauðsynlegum niðurskurði á offramleiðslu í sauðíjárbúskap og heQa þess í stað markvissa upp- byggingu gróðurs og skógræktar í samvinnu við bændur. * Áburðamotkun í landbúnaði verði minnkuð og virkt eftirlit verði tekið upp með framræslu lands. * Hið opinbera hætti að greiða fyrir eyðingu villtra rándýra. * Tryggja þarf að náttúruperl- um landsins verði ekki steíht í hættu með virkjanaframkvæmd- um eða iðnaði. Kísiliðjunni við Mývatn verði t.a.m. lokað. Hafið íslendingar eru nær algerlega háðir sjónum um sínar þjóðartekj- ur. Því er vemdun hans lífsspurs- mál fyrir íslensku þjóðina. Þáttur í slíku þarf að vera: * Skynsamleg fiskveiðistefna, þar sem þessi sameiginlega auð- lind landsmanna er nýtt á hag- kvæman hátt með auðlindaskatti eða veiðileyfasölu. Jafnffamt verði tekið tillit til byggðasjónar- miða við fiskveiðistýringu. Nú- verandi kvótakerfi, þar sem ein- stökum útgerðarfyrirtækjum er gefirin þjóðarauður landsmanna er bæði óréttlátt, orkufrekt og um- hverfisfjandsamlegt. * Bann við umferð kjamorku- knúinna skipa og kafbáta í auð- lindalögsögu landsins. * Hertar reglur um losun úr- gangs í sjó. * Hertar reglur er komi í veg fyrir olíuleka í sjó eða önnur slík mengunarslys. Orkan Orkulindir íslendinga em ein mikilvæasta þjóðarauðlind okkar. Orku fallvatna og jarðvarma þarf að nýta á skynsamlega hátt, þann- ig að slíkt skili þjóðinni bættum lífskjörum, án þeirrar mengunar eða umhverfísspjalla sem hafa íylgt iðnvæðingu nágrannaland- anna. í þeim efnum verði hugað að nýjum leiðum í orku- og iðnað- armálum s.s. vetnisframleiðslu. Neyslusamfélagið Islendingar lifa í einu mesta neyslu- og umbúðaþjóðfélagi í heimi. Jafnffamt því sem við stærum okkur af hreinni og fag- urri náttúru, hendum við 16% meira rusli á dag en hinar Norður- landaþjóðimar. Bílaeign hérlendis er einhver sú mesta í heiminum og fleiri dæmi mætti nefna. Landsþing ÆFAB leggur til að: * Skattkerfinu verði beitt á markvissan hátt i þágu umhverfis- mála. * Hætt verði notkun á ónauð- synlegum og umhverfisfjandsam- legum umbúðum s.s. plastumbúð- um í drykkjariðnaði. Skilagjald verði tekið upp á aðrar einnota umbúðir og seljendur þeirra skyldaðir til að taka við þeim aft- ur. * Átak verði gert í flokkun sorps og eyðingu og endur- vinnslu. * Takmörkuð verði notkun umhverfisspillandi efha, bæði hjá hinum almenna neytanda og í iðn- aði. * Almenningssamgöngur verði gerðar að raunhæfúm kosti í samgöngumálum. * Skipulag þéttbýlis taki í stórauknum mæli tillit til samspils manns og umhverfis. Maðurinn fái forgang umffam bílinn. Alþjóðlegt samstarf og stjóm- un umhverfismála Landsþing ÆFAB krefst þess að Islendingar samþykki þegar í stað þá alþjóðlegu sáttmála sem kenndir em við Washington, Bergen og Bonn og taki virkan þátt í mótun umhverfisstefhu ffamtíðarinnar á alþjóðavett- vangi. Landsþingið lýsir jafnffamt yfir undmn sinni á dugleysi ný- stofnaðs umhverfisráðuneytis og spyr hver sé raunvemlegur til- gangur þess. Ályktun samþykkt á landsþingi ÆFAB 16.02.91 ÆFAB skorar á Alþýðu- bandalagið að endurvekja verka- lýðsmálaráð flokksins svo fljótt sem auðið er til að endurvekja störf fiokksins innan verkalýðs- hreyfingarinnar, og umræðu um stöðu flokksins innan verkalýðs- hreyfingarinnar. FRÁ LESENDUM Ið greiðasta skeið til að skrílmenna þjóð er skemmdir á túngunni að vinna. (Stephan G.) Eitt það verk, sem þarfast og ágætast hefúr verið unnið í sjálf- stæðismálum þjóðarinnar á síðari tímum, var þegar kanasjónvarp- inu var lokað í ráðherratíð Magn- úsar Torfa hér á árum áður. Pistla- höfúndi er það minnisstætt hvem- ig sumt fólk lét, það bókstaflega ffoðufelldi af vonsku yfir því að fá ekki að horfa á Kanann, og vandaði ekki stjóminni kveðjum- ar. Aftur á móti vom aðrir spakari og sögðu sem svo: Þetta kemur, því að vera banna þetta? Það em svo ótal margir sem em orðnir stautfærir í ensku. En stjómin stóð við sitt, og upp úr þessum látum var ríkissjónvarpið stofnað, og þrátt fyrir ýmsa vankanta og byijunarörðugleika var þessi stofnun komin til að vera, og sýndi brátt að þama var rétt að verki staðið. Þótt ýmsir aftur- haldskurfar bæðu því bölbæna varð sjónvarpið eitt vinsælasta af- þreyingartæki almennings i land- inu. En nú hefúr heldur betur skipt um stað og stund í þessu máli. Nú hefúr fjölmiðlafárið hafið innreið sína með slíkum gauragangi og fýrirferð að annað eins hefur ekki skeð í vom landi. Styijöldin við Persaflóa eða Flóabardagi eins og farið er að kalla þetta strið, er háð með öllum hættulegustu hemað- artólum nútímans í lofti, á láði og legi, og ekki vantar gervihnettina til að koma svínaríinu til skila. Margir skeleggir menn hafa ritað í dagblöðin hvassar greinar um þá óhæfu menntamálaráðherra að bijóta reglugerð er hann var búinn að setja sjálfur þar sem hann leyf- ir sjónvarpshnöttunum C. Cannel og Sky að láta enskuna flæða ótextaða á ástkæra ylhýra málið yfir landslýðinn dag og nótt öllu sönnu fólki er ann þjóðtungunni sinni til hrellingar og leiðinda. Síðan er það haft í flimtingum um þá er ekki vilja una þessu að þeir séu einhverskonar einangr- unarsinnar er vilji setja regnhlíf yfir þjóðtunguna. (Hvað finnst Svavari um svona kjaftæði?) En þama er komið að viðkvæmum punkti í þessu leiðindamáli. Auð- vitað vita allir á gervitunglaöld að þessir gervihnettir em spangó- landi allan sólarhringinn, hjá því verður trauðla komist. En málið snýst einfaldlega um það hvort við eigum að líða, að enskan fái að flæða ótextuð inn i okkar málkerfi. Ef við sinnum þessu ekkert gerist það að ótíndur fjármálaskrill stendur að baki henni og skákar heiðarlegum og samviskusömum málvöndunar- mönnum sem em útverðir menn- ingar í landinu. Að endingu þetta: Stjómvöld eiga strax að skipa sjónvarps- hnöttum að hafa íslenskan texta í þessari síbylju, annars á að banna þessar útsendingar, svo þjóðin verði ekki fyrir þeirri skrílmenn- ingu, ef hún stendur ekki vörð um sitt tungumál. Með kveðju Páll Hildiþórs ÞJÓÐVIUINN FYRIR 50 ÁRUM Styrjöld talin yfirvofandi I Aust- ur-Asiu milli Breta og Japana. Fjölmennur ástralskur her fluttur til Singapore. Japanirflytja her til Franska Indó-Kina og senda flotadeild til Síamsflóa. Banda- rlkjastjórn gerir ráðstafanir vegna styrjaldarhættunar við Kyrrahaf. Alvarlegt ástand í starfsstúlknadeilunni. Atvinnu- rekendur skipuleggja harða sókn til að sundra samtökum stúlknanna. Sterkustu verka- lýðsfélögin verða að hjálpa. 20. febrúar miövikudagur. Imbrudagar. 51. dagur ársins. Sólarupprás I Reykjavík kl. 9.08 - sólariag kl. 19.06. Viðburðir Kaupfélag Þingeyinga, fyrsta kaupfélagið, stofnað 1882. Samband íslenskra samvinnufé- laga stofnað 1902. Fiskifélag (s- lands stofnað 1911. DAGBÓK APOTEK Reykjavlk: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna15. til 21. febr. er I Breiöholts Apóteki og Austurb. Apoteki Fyrmefnda apótekiö er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frídögum). Síöamefnda apótekiö er opiö á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu fyrrnefnda. LÖGGAN Reykjavík...............w 1 11 66 Kópavogur...............® 4 12 00 Seltjarnarnes...........« 1 84 55 Hafnarfjörður...........n 5 11 66 Garöabær................« 5 11 66 Akureyri................n 2 32 22 Slökkviið og sjúkrabíkir Reykjavík...............« 1 11 00 Kópavogur...............o 1 11 00 Seltjarnarnes...........« 1 11 00 Hafnarfjörður...........® 5 11 00 Garðabær................« 5 11 00 Akureyri................w 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- ames og Kópavog er í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, simaráöleggingar og tlmapantanir I w 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar (símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarsplt- alans er opin allan sólarhringinn, ® 696600. Neyðarvak Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og stórhátiðir. Simsvari 681041. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an, v 53722. Næturvakt lækna, tr 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt, n 656066, upplýsingar um vaktlækni n 51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiöstööinni,« 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsimi). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar i « 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, tr 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spitalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tlmi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar- heimill Reykjavikur v/Eiriksgötu: Al- mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla daga. Oldrunarlækningadeild Landspltal- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kieppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjamargötu 35, » 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svaraö er i upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbia og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öðrum tímum.« 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráögjöf I sálfræði- legum efnum, ® 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt I slma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagiö, Álandi 13: Opiö virka daga frá kl. 8 til 17, « 91-688620. „Opið hús" fyrir krabbameinssiúk- linga og aðstandendur þeirra t Skóg- arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í ® 91- 22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: rt 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars simsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91- 21205, húsaskjól og aðstoö við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráögjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, " 91-21500, simsvari. Sjálfshjáiparhópar þeirra sem oröiö hafa fyrir sifjaspellum: * 91-21500, sfmsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmát: tr 91-626868 og 626878 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, » 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: tr 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt ( tr 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, tr 652936. GENGIÐ 19. febrúar 1991 Sala Bandarfkjadollar............54,71000 Steriingspund..............107,02600 Kanadadollar................46,42800 Dönsk króna..................9,56050 Norsk króna..................9,39630 Sænsk króna..................9,83640 Finnskt mark................15,15300 Franskur franki.............10,79680 Belgiskurfranki............. 1,78420 Svissneskur franki..........42,79900 Hollenskt gyllini...........32,60530 Vesturþýskt mark............36,72310 Itölsk llra..................0,04894 Austumiskur sch...............5,22020 Portúgalskur escudo......... 0,41830 Spánskur peseti..............0,58920 Japanskt jen.................0,41816 Irskt pund..................97,80200 KROSSGÁTA Lárétt: 1 glingur 4 fyrr- um 6 glöð 7 tré 9 áflog 12 Ijúkum 14 fugl 15 dæld 16 hesta 19 frjáls 20 þýtur21 hundur Lóðrétt: 2 lausung 3 birta 4 spil 5 svei 7 vera 8 lagvopn 10 muldraöi 11 spritt 13 blett 17 hæðir 18 ávana Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 þras 4 ærin 6 ess 7 örvi 9 tólg 12 angur 14 lár 15 em 16 kerfi 19 gráð 20 eðja 21 rakna Lóðrétt: 2 rýr 3 sein 4 æstu 5 ill 7 oflugt 8 var- kár 10 óreiða 11 Gunn- ar 13 ger 17 eða 18fen Miðvikudagur 20. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.