Þjóðviljinn - 23.03.1991, Síða 1
Svavar Gestsson menntamálaráðherra í sal Þjóðleikhússins. Mynd Jim Smart.
Nýtt og endurbætt Þjóðleikhús
en samt ennþá gamla Þjóðleikhúsið
En nú er tími til að gleðjast. Mitt er að þakka fyrir að hafa
fengið tækifæri til þess að láta vinna að þessu verki. Þjóðin
á þakkir skilið fyrir þá fjármuni sem hún hefur lagt fram
til verksins. Sumir þættir í menningarlífí okkar eru vissu-
lega undirstaða og til sannindamerkis um það að hér býr
sjáifstæð þjóð. Þannig er Þjóðleikhúsið; það er tákn um
menningarlegt sjálfstæði okkar - aðalmusteri leikJistar á íslandi.
Megi allir vel njóta og lengi.
A þessum orðum lauk Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
ávarpi sínu við opnun Þjóðleik-
hússins á fimmtudagskvöld.
Vígsluhátíðin á fimmtudag
hófst á því að Lúðrasveit Reykja-
víkur tók á móti gestum á tröppum
Þjóðleikhússins. Áður en gengið
var til salar söng Háskólakórinn í
Kristalsalnum, sem hefur verið
endumýjaður. Athöfnin í salnum
hófst á upplestri Róberts Amfínns-
sonar leikara á „Öll veröldin er
leiksvið" eftir Shakespeare í þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar. Svavar
Gestsson flutti þá ávarp sitt og á
eftir honum söng Kristján Jóhanns-
son þijú lög við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar á píanó, m.a.
Hamraborgina. Gerðu gestir góðan
róm að glæsilegum söng Kristjáns.
Ámi Johnsen formaður bygg-
ingarnefndar ávarpaði því næst
gesti og síðan las Herdis Þorvalds-
dóttir leikkona ljóð Böðvars Guð-
mundssonar „í vor“. Þessum hluta
hátíðardagskrárinnar lauk svo á
ávarpi Gísla Alfreðssonar þjóð-
leikhússtjóra, sem þakkaði öllum
er gert höfðu þennan draum að
vemleika. „I dag hefur draumurinn
ræst, en ffamtíðardraumurinn er að
viðgerðum á húsinu öllu ljúki á
allra næstu ámm og að hér innan
þessara veggja megi leiklistin
blómstra um langt árabil,“ sagði
Gísli m.a.
Gestum var svo boðið upp á
viðhafnarsýningu á Pétri Gaut cft-
ir Ibsen í leikstjóm Þórhildar Þor-
leifsdóttur, en sjálf frumsýning
verksins er í kvöld. Laust upp úr
miðnætti lauk svo þessari glæsi-
legu opnunarhátíð og var leikumm
og öðmm aðstandendum sýningar-
innar klappað lof í lófa.
Endurbygging þess áfanga
Þjóðleikhússins, sem vígður var á
fimmtudag, hefur tekið mjög
skamman tíma, en rúmt ár er síðan
verklegar framkvæmdir hófiist.
Svavar Gestsson stofnaði
byggingamefnd fljótlega eftir að
hann tók við embætti menntamála-
ráðherra. Þrátt fyrir ýmsan mótbyr
og háværar mótmælaraddir, um að
með framkvæmdum þessum væri
verið að eyðileggja menningar-
söguleg verðmæti, tókst Svavari að
knýja verkið áfram og var ekki
annað að heyra á gestum Þjóðleik-
hússins á fimmtudag, en að svo vel
hefði tekist til, að þrátt fyrir allar
endurbæturnar og breytingamar
hafi gestir hússins samt stöðugt á
tilfinningunni að þeir séu staddir í
gamla Þjóðleikhúsinu. Það má því
með sanni segja að allir vildu Lilju
kveðið hafa.
Stærstu breytingarnar sem
gerðar vom í þessum áfanga em að
svölunum var fækkað um einar og
að gólfinu í sal hússins var lyft
upp. Þá vom gerðar endurbætur á
Kristalssal. Ný sviðslyfta er í hús-
inu og ný hljómsveitargryfja. Þá
var ljósabúnaður hússins endumýj-
aður.
Mikið verk er þó enn óunnið,
einkum í aðstöðu leikara og er
óvíst hvenær ráðist verður í þær.
Sjá miðopnu. -Sáf