Þjóðviljinn - 05.04.1991, Side 24
ÍSLENSKA AL'CIÝSINCASTOFAN HF.
''WB BS N'ÝTT jmm mm
mmarblað
plÓÐVIUINN Föstudagur 5. apríl 1991 - 64. tölublað 56. árgangur
Síþreyta
leikur sam-
tímamenn
grátt
C júkdómur okkar áratugar
leggst helst á miðaldra fólk
í velmegunarþjóðfélögum.
Hann lýsir sér í stöðugri þreytu
sem hvíld ekki bætir úr, í alls-
konar smákvillum og ónotum
sem duga samt ekki til að lækn-
ar geti bent á eitthvað sérstakt
sem amar að hinum síslöppu.
Það fólk sem fyrir síþreytu
verður lýsir líðan sinni einatt á
þennan hátt hér:
Æ ég er alltaf svo þreyttur. Ég
kem engu í verk. Og mér líður
illa, ég er með vöðvaverki, höfuð-
verk og aldrei losna ég við kvefið.
Það er langt síðan mér hefur liðið
vel. Og samt segir læknirinn méí,
að það sé ekkert að mér.
Hvað er á seyði? Er hér um að
ræða nýjan faraldur, sem ræðst á
alla þá sem eru á sífelldu spani í
gegnum lífið? Eru þetta mótmæli
líkamans gegn því sundurtætta
lífi sem við lifum flest?
Svo virðist vera. Það er til
orðinn sjúkdómur sem farið er að
kenna við tíunda áratug aldarinn-
ar. Og hann einkennist fyrst og
fremst af langvinnri þreytu, sem
ekki víkur íyir rækilegri hvíld.
Þreytan er þama, hún vill ekki
fara. Amrikanar, sem þekkja
þennan krankleika vel, tala ulm
„cronic fatigue syndrome“ eða
viðvarandi þreytu.
Skýrsla frá stofnun sem nefn-
ist Center for Disease Control í
Bandaríkjunum telur upp ýmis
einkenni. Fyrir utan langvinna
þreytu er einatt um verki ýmis
konar að ræða, magakvilla, slæm-
an svefn, þunglyndi, hálsríg, höf-
uðverki og fleira. Hér með fylgir
oft vægur hiti, kannski ofnæmi
fyrir birtu, gleymska, erfiðleikar á
einbeitingu og margt fleira miður
skemmtilegt.
Sjúkleiki þessi einkennist af
því, að menn ganga með fleiri eða
færri einkenni hans samtímis, án
þess að læknar sem taka menn í
skoðun finni neitt athugavert við
þær rannsóknir sem gerðar em.
Það er eins og þar segir: læknam-
ir „finna ekki neitt“. En samt er
ótalmargt að.
Einnig helst hafa læknar fest
athygli við að þreytusjúkir ganga
margir með svonefnda Epstein-
Barr veim. Þetta er veira af ætt
herpesveira, en flestir sem með
hana ganga komast hjá því að
verða veikir svo heitið geti. Aðrar
kenningar em uppi. Einn sérffóð-
ur talar um „tæknistreitu“, sem
þýðir þá væntanlega of mikið og
hratt áreiti af ýmsu tagi í þræl-
tæknivæddu umferðarsamfélagi.
Aðrir tala um sálrænar orakir: Til
dæmis hefur sænskur læknir, Jan
Libeck að nafhi haldið því fram
að síþreytan stafi af skorti á
trausti milli manna.
I framhaldi af kaupuin Landsbankans á Samvinnu-
bankanum hefur útibúi Samvinnubankans í
Hafnarfiröi veiið breytt í útibú Landsbanka íslands
sem opnar formlega þann 8. apríL Landsbankinn
býður viðskiptavini velkomna í hið nýja útíbú og
óskar starfefólki velfemaðar undir nýju merki.
Afgreióslutími útibúsins að Strandgötu 33 er alla
virka daga firá kL 9:15-16:00. Síminn er 5 39 33.
" • StOKKK \ Df*i n 4 $ mjd
ffi Landsbanki
Mi íslands
fHK Jm Bankl allra landsmanna
gengur Landsbankinn til
samvinnu vió Hafnfirðinga.
og meú 8. apríi er
buulsfxmki íslands
ímiðbæHaíharfiaröar.