Þjóðviljinn - 05.04.1991, Síða 18

Þjóðviljinn - 05.04.1991, Síða 18
Úr myndinni sem Max von Sydow leikstýrir, Við veginn: Tammi Öst ( hlutverki Katinku og Ole Emst sem Bai. Úr mynd Bille August, Busters verden: Mads Bugge Andersen er þarna ( hlutverki Busters. Háskólabíó Dönsk kvikmyndavika Fyrir stuttu var fínnsk kvikmyndavika í Háskólabíó og var þátttaka ágæt, sérstaklega á myndum Aki Kaurismaki. Og ekki þurfa kvikmyndaáhuga- menn að bíða árum saman eftir næstu sendingu frá Skandinav- íu því að á morgun, laugardag- inn 6. apríl hefst dönsk kvik- myndavika í Háskólabíói sem stendur tii 15. apríl. Danir hafa lengi átt góða kvikmyndagerðarmenn og nægir að nefna Dreyer þvi til sönnunar. En þeir stóðu lengi í skugganum af frændum sínum Svíum og heimsbyggðin hafði lítinn áhuga á þeim. Það var eiginlega þegar myndin Babettes gæstebud eftir Gabriel Axel vann Óskarsverð- laun 1988, sem Danir komust aft- ur á landakort kvikmyndanna og festu sig almennilega í sessi árið eftir þegar mynd BiIIy August Pelle Erobreren lék sama leikinn. Eg vona því að lslenskir kvik- myndagestir taki þessari dönsku viku vel og drífí sig í bíó. Hátíðin hefst á myndinni Nú- tímakona (Dagens Donna) sem Stefan Henszelman leikstýrir. Hún er gerð eftir handriti Hanne- Vibeke Holst sem ætti að vera ís- lenskum framhaldsskólanemend- um vel kunn því að bækur hennar Naltens kys og Til sommer eru notaðar í dönskukennslu. Nú- tímakona fjallar um líf ungra vin- kvenna, Donnu og Britt, starf þeirra, drauma og samband við hitt kynið. Donna vill vera fijáls og kýs skyndiástir frekar en fram- tíðarsambönd en Britt dreymir um stóru ástina og fjölskyldulíf. Birgitte Simonsen og Hanne Windfeld Lund leika vinkonumar en í hlutverkum biðla og skyndi- vina eru Ole Lemmeke, Jesper iöjmnmö o III o o o III o o III o II o o Ui o IIB0IRC í kvöld stórsýningin BLÁI HATTURINN r A morgun laugardaginn 4. apríl BRECHT Á BORGINNI Félagar úr óperusmiðjunni flytja ljóð þýska tónskáldsins Berholt Brecht við lög þeirra Kurt Weil og Eisler. HÚSIÐ OPNAR KL.19.00 fyrir matargesti MATSEÐILL í STÍL VIÐ TÓNLISTINA s.s. salöt, súpur, omilettur, steikur og kökur. SKEMTUNIN HEFST KL. 22.00 HÚSIÐ OPNAR FYRIR DANSGESTI KL. 23.00 HAUKUR MORTHENS OG HLJOMSVEIT LEIKA FYRIR DANSI. Borðapantanir og allar nánari upplýsingar daglega á Hótel Borg í síma 11440 Tökum að okkur: Árshátíðir, erfidrykkjur, _ afmælisveislur ogönnurmannamót. 3=0= O III o O: O O III O o III o o III Q III Q Christensen og Jens Arentzen. Allir aðalleikarar myndarinnar hafa verið útnefndir til dönsku Roberts verðlaunanna. (Enskur texti). Jeppi á fjalli (Jeppe pá bjer- get) er gerð eftir samnefndu leik- riti Ludvigs Holbergs um bónd- ann Jeppa. Jeppi er drykkfelldur almúgamaður á átjándu öld sem í byrjun myndarinnar liggur af- velta í vegakanti þar sem barónn- inn og menn hans finna hann og ákveða að leika á hann. Þeir bera hann inn í höllina og Jeppi vaknar í rúmi barónsins. Þjónustulið bar- ónsins er með í leiknum og hlýða öllum skipunum Jeppa uns hann er sjálfur farinn að trúa á leikinn. Það er hinn góðkunni leikari Buster Larsen sem Ieikur Jeppa og Kaspar Rostrup leikstýrir. (Ótextuð). Síðasta kvikmynd hans Dansen med Regitze var út- nefnd til Óskarsverðlauna á síð- asta ári og verður hún frumsýnd í Laugarásbíói á næstunni. Max von Sydow er einn af þekktustu Ieikurum Svíþjóðar en nú hefúr hann vent sínu kvæði í kross og er kominn í fyrsta skipti á bakvið myndavélina til að leik- stýra myndinni Við veginn (Ved vejen) sem er gerð eftir sam- neíhdri skáldsögu Herman Bang. Við veginn er ein af þekktari skáldsögum Bang. Hún gerist í litlu sveitaþorpi á síðustu öld og fjallar um ástir, þrár og langanir íbúanna. Aðalpersónumar em stöðvarstjórinn Bai og ung kona hans Katinka. Þau lifa í ástlausu hjónabandi og þegar búfræðing- urinn Huus kemur til þorpsins verða þau Katinka ástfangin með ýmis konar afleiðingum. Kurt Ravn, Ole Emst og Tammi úst leika hinn klassíska ástarþríhym- ing. Það er rithöfúndurinn þekkti Klaus Rifbjerg sem gerði kvik- myndahandritið og kvikmynda- tökumaðurinn er ekki af verri endanum, Sven Nykvist, sem lík- lega er þekktastur fyrir samvinnu sína við Ingmar Bergman. (Ótext- uð) Isbjamadans (Lad isbjömene danse) er ný mynd eftir ungan og efnilegan leikstjóra, Birger Lar- sen, sem heiilaðist af kvikmynda- gerð þegar hann lék aðalhlutverk- ið í unglingamyndinni Sjáðu sæta naflann minn. Hann var aðstoðar- leikstjóri Sören-Kragh Jacobsen í tveimur myndum en ísbjama- dansinn er fyrsta breiðtjaldsmynd hans. Hún fjallar um strákinn Lassa sem býr með foreldrum sínum í verkamannahverfi í Kaupmannahöfn á sjötta áratugn- um. En foreldramir skilja og Lassi flytur með móður sinni til nýja mannsins sem er efnaður tannlæknir og býr í yfirstéttar- hverfi. Nýja umhverfíð er algjör andstæða þess sem Lassi er vanur og um Ieið og hann aðlagast nýja umhverfinu verða samskiptin við föður hans og gömlu leikfélagana erflð. Þrátt fyrir all alvarlegan söguþráð er myndin skemmtileg og um leið góð samfélagslýsing. Tommy Kenter, Ander Schoubye og Birthe Neumann leika aðal- hlutverkin. Myndin fékk dönsku Bodil verðlaunin sem besta myndin á þessu ári. (íslenskur texti) Árósar um nótt (Árhus by night) fjallar um ungan leikstjóra sem er að gera mynd um hvemig bemskuminningar eru uppistaða drauma okkar sem fúllorðins fólks. Myndin í myndinni gerist þannig á tveimur plönum og er ofin saman úr bemskuminningum leikstjórans og draumum hans á fullorðinsaldri. En síðan er þriðja planið þ.e. tæknilegar og sál- fræðilegar raunir leikstjórans við gerð myndarinnar og átök hans við leikara og tæknimenn. Þetta er fimmta mynd leikstjórans Nils Malmros en allar myndir hans em meira eða minna sjálfsæfisögu- legar. Hann segir sjálfur að þetta sé að hluta til mynd um bemsku sína í Árósum og einnig um erfið- leikana sem hann átti við að stríða þegar hann gerði myndina Boys sem ungur og óreyndur leikstjóri. Thomas Kristian Schindel leikur leikstjórann. (Enskur texti). Veröld Busters er gerð eftir sögu Bjame Reuters sem kom út á íslensku í þýðingu Ólafs Hauks Símonarsonar. Aðalpersóna myndarinnar er Buster, sérkenni- legur strákur með ótrúlegt ímynd- unarafl sem hressir oft upp á grá- an raunveruleikann. Aðrar aðal- persónur em pabbi hans, atvinnu- laus sjónhverfmgamaður móðir hans og systir sem er hölt. Einnig kemur við sögu Frú Larsen, eldri kona sem skilur Buster afar vel en á ekki Iangt eftir ólifað. Buster er skrítinn og skemmtilegur og uppátæki hans alveg einstök. Leikstjórinn Bille August er góð- kunnur íslendingum, hann leik- stýrði unglingamyndunum Zappa og Trú von og kærleikur og síð- asta mynd hans var stórvirkið Palli sigurvegari. Aðalleikarar em Mads Bugge Andersen, Katarina Stenbeck, Peter Schröder og Katja Miehe - Renard. God fomöjelse! Sif 18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudaqur 5. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.