Þjóðviljinn - 05.04.1991, Side 11

Þjóðviljinn - 05.04.1991, Side 11
Danskir súrrealistar Listasafn Islands: Danskir súrrealistar, sýning frá Listasafni Suður-Jótlands I sýningarskrá Danska rikislistasafnsins um danskan súrrealisma, sem fylgir þessari sýningu í Listasafni íslands, er riíjuð upp merkileg deila sem málaramir Richard Mor- tensen og Ejler Bille áttu við danska súrrea- listann Vilhelm Bjerke-Petersen eftir út- komu bókar þess síðamefnda, Surrealismen, árið 1934. Deila þessi er merkileg vegna þess að hún hafði mótandi áhrif á þróun myndlistar á Norðurlöndum og einnig vegna þess að hún snertir kjama málsins og takmörk þessarar listastefnu, sem var i raun ekki bara lista- stefha heldur lífsstefna og heimsspeki, sem stefndi að því að frelsa manninn tilfinn- ingalega, andlega og félags- lega með því að virkja duldar hvatir og tilfínningar og yfír- vinna þannig þær takmarkan- ir og skorður sem skynsemis- trú, söguhyggja og skipulags- hyggja höfðu hneppt mann- inn f. Eða eins og Bjerke—Petersen orðaði það sjálfur: „Súrrealisminn er fyrsta hreyfíngin sem komið hefúr fram á sviði listanna sem stefnir að því að ffelsa manninn, gera hann virkan og skapandi og eyða þar með listinni sem forréttindum ein- staklingsins". Þeir Morthensen og Bille, sem báðir höfðu orðið fyrir miklum áhrifúm af hreyfingu súrrealista og stóðu ásamt með Bjerke-Petersen að út- gáfú tímaritsins Linien, gagnrýndu Bjerke-Petersen - og þar með lærimeistara hans, ffanska rithöfúndinn André Breton, fyrir þá þver- sögn að vilja frelsa manninn með því að afneita skynsem- inni. Þeir Morthensen og Bille neituðu að viðurkenna að skynsemi og hugarflug þyrftu að vera einhverjar ósættanlegar andstæður: „Við viljum ekki beijast gegn skynseminni, sem er hluti af eðli okkar. Slíkt væri einung- is þvingun. Við viljum heldur ekki beijast gegn hugarflug- inu, sem er önnur hliðin á eðli okkar. Það væri jafn mikil þvingun. Fyrir listamanninn á okkar óreiðu- tímum er skynsamleg yfírsýn og vitsmuna- leg greining hlutanna nauðsyn. En í augna- bliki sköpunarinnar viljum við ekki sundur- greina hugarflugið, það hefði í för með sér algjöra vönun“. Súrrealisminn var annars vegar sprottinn upp úr dadaismanum og metafysiska mál- verkinu á Italíu. Hins vegar var hann sprott- inn úr því þjóðfélagsástandi sem ríkti á millistríðsárunum og kreppuárunum, þar sem kapítalisminn virtist þess ekki umkom- inn að standast þær vonir sem við hann voru bundnar og fasismi var í uppsiglingu. Við þær aðstæður boðuðu súrrealistamir and- lega og þjóðfélagslega byltingu og þóttust um leið hafa fundið jákvæða leið út úr hinni neikvæðu afstöðu dadaistanna sem afheitað höföu bæði menningunni og sögunni í verk- um sínum. Með uppgötvun dulvitundarinn- ar þóttust þeir bæði geta yfirstigið stéttarleg- ar og sögulegar hindranir og lagt grundvöll- inn að nýrri stéttlausri siðmenningu sem væri jafnframt óbundin af oki sögunnar og siðmenningarinnar. Þessar hugmyndir vom sem kunnugt er tengdar sálffæðikenningum Freuds en ekki síður kenningum þýska sál- ffæðingsins Wilhelm Reich um að lykillinn að frelsun mannsins fælist í frelsun kynhvat- arinnar. Margir súrrealistar töldu sig eiga samleið með hugmyndum marxista um stéttlaust samfélag og reyndu að finna list Wilhelm Freddie: Zola og Jeanne Rozérot, 1938 sinni pólitískan farveg innan kommúnista- flokka álfúnnar, en þeim tókst illa að sam- ræma afneitun sína á skynseminni við sögu- lega efnishyggju marxismans og áttu því erfíða sambúð við vísindalega þenkjandi marxista þessa tíma. Þótt framlag súrrealismans til þróunar myndlistarinnar á miðri 20. öldinni hafí ver- ið mikið og óumdeilanlegt, þá hefúr sagan sýnt að þeir Mortensen og Bille höföu rétt fýrir sér í deilunni við Bjerke-Petersen árið 1934. Þeir nýttu sér hugmyndir súrrealist- anna á gagnrýninn hátt og lögðu þannig grundvöllinn að norrænu abstraktmálverki. Súrrealisminn átti i rauninni tvo valkosti á þessum tíma: að staðna í klisjukenndum formúlum eða þróast yfir í nýja myndlist sem leitaðist við að finna á nýjan leik jafh- vægi á milli vitsmuna og tilfinninga, á milli hins hlutlæga og hins huglæga. I Danmörku spratt abstraktlist COBRA-málaranna ann- ars vegar og Richards Mortensens hins veg- ar upp ffá súrrealismanum, og það var ekki fyrr en þessi deila var afstaðin sem Svavar Guðnason kemur til Kaupmannahafúar og tengist þeim Bille, Egil Jacobsen, Asger Jom og Carl Henning Pedersen í kringum tímaritið Helhesten. Sýningin frá Listasafni Suður-Jótlands sem nú er í Listasafni Islands er forvitnileg fyrir margra hluta sakir. Hún sýnir okkur að framúrstefnumenn í danskri myndlist vom um margt óragir í til- raunastarfsemi sinni á 4. áratugnum. Sumar þessara mynda sýna okkur líka ótrúlegan skyldleika við það sem hefur verið að gerast í málverkinu á allra síðustu ámm. Hins vegar er þetta takmarkað úrval af dönskum súrrealisma, og þar vantar því mið- ur þá menn sem sóttu hugmyndir í þessa stefnu og þróuðu síð- an yfir í nýtt abstrakt- málverk. Málara eins og Morthensen, Bille og Asger Jom, svo dæmi séu tekin. Því þýðing súrrealismans verður okkur fyrst ljós, þegar við sjáum hversu mótandi áhrif hann haföi á þessa menn og þar með á módemismann i nor- rænni myndlist. Það ánægjulegasta við þessa sýningu þótti mér að sjá þama all- mörg af verkum mál- arans Wilhelm Freddie, sem varð ein af goðsögum nor- rænnar myndlistar í lifanda lifi fyrir bein- skeytt verk sem mfu svo afdráttarlaust bannhelgi yfirdreps- skapsins, menningar- snobbsins og hinnar borgaralegu sjálfs- ánægju að hann mátti sæta lögregluofsókn- um í hinni frjálslyndu Danmörku allt ffarn á 6. áratuginn. Þegar ég dvaldi í Danmörku á 7. áratugnum vom verk hans hvergi sjáanleg þótt frægð hans væri mikil. Það er svo annað umhugsunarefni sem þessi sýning býður upp á, hvers vegna súrre- alisminn skyldi hvergi ná neinni fótfestu að ráði hér á landi fyrr en með því hliðarspori sem Alfreð Flóki markaði i islenskri lista- sögu á 6. og 7. áratugnum. Hliðarspor sem mörgum fannst vera útlenskt eða að minnsta kosti óíslenskt. Var súrrealisminn kannski stefna og lífsviðhorf sem átti ekki við jaðar- svæði eins og ísland? Ólafur Gíslason. Jónshús hefur verið lokaö að und- anförnu, enda hafa staðið yfir talsverðar endurbætur á húsinu. Mynd: gg. Endurbætt Jónshús og ný fræði- mannsíbúð Jónshús er miðstöð alls fé- lagsstarfs íslendinga í Kaup- mannahöfn og raunar í öllu Danaveldi. Nú undanfarið hafa staðið yfir endurbætur á þessu merka húsi og auk þess hefur verið keypt ný fræðimannsíbúð aðeins spölkorn frá Jónshúsi. Jón Sigurðsson haföi íbúð í húsinu við Östervoldgade 12 ffá 1852 til dauðadags. Árið 1966 gáfú hjónin Carl og Johanne Sæ- mundsen Alþingi húsið og síð- ustu tvo áratugina hefur húsið verið í notkun. Hjónin vildu raun- ar einnig gefa Islendingum húsið við Östervoldgade 14, en þeir af- þökkuðu boðið. I Jónshúsi er félagsheimili Is- lendinga, bókasafn, minningar- safú um Jón Sigurðsson, aðstaða fyrir Islendingafélögin og aðsetur sendiráðsprests, sem jafnffamt er umsjónarmaður hússins. Auk þess hafa ffæðimenn getað dvalið í húsinu í nokkra mánuði í senn. Húsið hefur lengi þarfnast endurbóta. Við og fyrir tilstilli Guðrúnar Helgadóttur og annarra forseta Alþingis fékkst myndar- leg fjárveiting til þeirra á þessu ári, svo og til kaupa á nýrri fræði- mannsíbúð í nágrenninu. Jónshús hefúr verið lokað að undanfömu vegna breytinganna, en þegar Þjóðviljinn frétti síðast var áformað að opna það að nýju í byijun apríl. Meðal annars hafa verið gerðar endurbætur á félags- heimilinu og eldhúsi þess, enda uppfyllti aðstaðan ekki heilbrigð- isló-öfúr danskra yfirvalda. yé'. v' e ;oN < Cr \V yV' V///// Flokkur meb nýjar hugmyndir V' V o' * 3 \0 xqN ALÞYÐUBANDALAGIÐ Flokkur sem getur - fólk sem þorir!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.