Þjóðviljinn - 29.05.1991, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.05.1991, Blaðsíða 2
Náttúruvemd og lífsstdl Samtök um náttúruvernd oa umhverfisvernd yfir- leitt eru mikil nauðsyn á okkar tímum. Það er því mjög miður, að í verndarpólitík samtaka eins og Grænfriðunga eru þær gloppur, sem aætu eins vel magnað upp hér á landi skaðlegan fjanaskap í garð nattúruverndarsinna. En hér er átt við það, að Grænfriðungar og sumir fleiri blanda saman tveim ólíkum hlutum. Annarsvegar því, að nauðsyn bertil að vernda dýrategundir sem eru í hættu og gera reyndar betur: tryggja viðgang þeirra umfram lágmark. Llndir slík markmið hljóta allir að skrifa fyrirvaralaust. Hitt er svo, að hamast er á því að ekki megi drepa viss dýr (hvali, seli t.d.), vegna þess að þau séu öðrum fremur gáfuð eða höfði meir til mennskra tilfinninga: sá sem fer inn á þessa braut er fyrr en varir kominn í verstu mál (sbr. örlög selveiðisamfélaga á norðurhjaranum) og flækist í margháttaðar mótsagnir. En sem fyrr segir: Enginn skyldi vanmeta framlag Grænfirðunga og annarra til verndar tegundum sem eru í útrýmingarnáska. Og einna best er, að slíkt starf tengist öðru sem er jafnvel enn brýnna fyrir skikkan- lega sambúð manna við sitt „geimskip", jörðina. En það er baráttan fyrir breyttum lífsstíl, hvorki meira né minna. World Wiídlife Fund, samtök sem hafa að mestu helgað sig vernd dýra í útrýmingarhættu, þau lafa einmítt ákveðið að halda inn á þessa braut. Einn iður í þeirri viðleitni er að senda (með aðstoð út- íreiddra blaða og tímarita) út spurningalista til fólks, Dar sem menn eru minntir á það, að í hverri viku geta Deir og eru þeir að taka ákvarðanir sem varða „álag á umhverfið“. Og að úr öllum þeim ákvörðunum skapast þeaar á heildina er litið þróun sem annaðhvort stefnir til aframhaldandi sóunar eða til sparsamrar umgengni við auðlindir og hráefni jarðar. Fólk er spurt að því, hvort það hafi í næstliðinni viku stillt sig um að nota bílinn, sparað vatn og raf- magn, brúkað endurunninn pappír og hætt vio að nota einnota vörur. Menn eru líka spurðir að því hvort þeir hafi munað að skrifa fyrirtæki sem þeir skipta við til að minna það á, að það taki ekki nóg tillit til umverfis í sinni framleiðslu- og umbúðastefnu. Þarna eru og spurningar sem vísa mjög beint á þann vanda sem uppi er i ríkum samfélögum: spurt er hvort menn hafi stillt sig um að kaupa óþarfa varning í vikunni leið og ivort þeir hafi horfið frá því að kaupa varning sem er í lottum og óþörfum umbúðum. En hér er komið að Deirri þversögn sem alltof margir vísa frá sér: við erum dví vön að aííur „hagvöxtur" sé góður og því sé það allt að því tilræði við framfarirnar að reyna að skera niður hjá sér óþarfa í neyslu. Eru menn þá ekki að draga ur veltunni og atvinnumöguleikunum með því að stilla sig um að kaupa óþarfa - í óþörfum umbúð- um? Hér er nú áþetta minnst, að í umræðu um um- hverfisvernd her á landi hefur um of verið einblínt á tvennt: mengun sem stafar af því að úrgangi og skað- legum efnum er sleppt lausum, og svo friðunarað- geröir. Hvorutveggja er mikil nauðsyn, en skilar tak- mörkuðum árangri nema tengt sé við þá vitundarvakn- ingu, að menn geri sér grein fyrir því, að þeir eru að taka margar ákvarðanir í umhverfismálum á degi hverjum. Og að það er hægt að skapa breyttar neysluvenjur - það hefur áður verið gert, þegar fjölda- framleiðsla og auglýsingastreymið breyttu sparneytn- um sveitamönnum nér og annarsstaðar í sísóandi neysluæðikolla. í þessu dæmi munar um hvern og einn: bera bý bagga skoplítinn, segir skáldið. ÁB. Þ.iqðviliinn Málgagn sóslalisma þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guðmundsson Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Rltstjóm, skrífstofa, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 37, Rvlk. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð f lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. Ofbeldi og unglingar í Lesbók Morgunblaðsins sl. laugardag skrifar Þórður Helgason grein sem hann nefnir „Rambó í Reykjavík“. Greinin fjallar um ofbeldisöldu í Reykjavík og skýringar á því, hvers vegna það samfélag sem borgin er hefur „snúist svo gegn sjálfu sér“. Þórður telur að hér sé einna helst um að ræða skaðvæn- leg utanaðkomandi áhrif „í formi kvikmynda og myndbanda sem nú hafa lagt undir sig stóran hluta af frítíma bama og unglinga“. Þessar afþreyingarafurðir séu svo stútfull- ar af ofbeldi að ekki fari hjá því að ofbeldi verði hvunndagslegur og sjálfsagður hlutur í huga þeirra sem á þessum fdmum nærast. Þórður Helgason þorfir yfir sviðið og gerir í stuttu máli grein fyrir því hvaða fólk er á ferli í obb- anum af þeim myndum sem böm og unglingar sjá hvað mest af. Lanstærsti hópurinn em bófar og morðingjar, þá koma löggur og prí- vatlöggur, sem em oftar en ekki álíka mddar og glæponamir sjálfir. Þriðji hópurinn sem mest ber á em svo fómarlömbin, sem „sætir sí- fellt hroðalegra ofbeldi“. Það em þeir sem eru „barðir, skornir, stungnir, brenndir, sagaðir og ég veit ekki hvað“. Vitrir menn og góðgjarnir Síðan segir greinarhöfundur: „Niðurstaða mín er þessi: Sú heimsmynd sem haldið er að ungu fólki er svo svakaleg að henni verður vart með orðum lýst. Gmndvöllur hennar er gegndar- laust ofbeldi í ótrúlega fjölbreytt- um myndum. Varla sést það sem mestu máli skiptir i lífinu; góð- gjamt fólk, viturt og víðsýnt - nema þá helst sem hráefni íyrir morðingja". Aður en lengra er haldið; greinarhöfundur kemur hér inn á efni sem flestum þykir mikið feimnismál; hann segir að það vanti góðgjama menn og vitra í heildarmyndina. Kannski finnst einhverjum slík athugasemd „her- kerlingarleg" en það er misskiln- ingur. Satt best að segja er það miklu erfíðara verkefni að sýna á bók eða í kvikmynd það það sjald- gæfa kraftaverk sem góðmenni virðist vera orðið á okkar tímum. Og þar eftir fáir sem treysta sér til að reyna að segja frá slíku fólki. Það fær að vera með í bókum og myndum fyrir smáböm, en þegar þeim „markhópi" sleppir, hverfa vitrir menn og góðgjamir, og sjást ekki meir, nema mikið sé leitað. Raunverulegur háski? Þórður Helgason er vissulega að ræða efni sem margir hafa áhyggjur af um þessar mundir. Of- beldi er feiknalegt og vaxandi, ekki síst í höfuðborgum. Og það er ekki nema eðlilegt að menn leiti skýringa á því meðal annars, í þeirri skemmtan sem gerir pynt- ingar og margskonar skepnuskap annan að hvunndagslegum og sjálfsögðum hlut. Um þetta efni stendur að sönnu mikil deila, sem ekki er lokið. Til eru þeir sem benda á það, að of- beldi sé stórmál, hvort sem við- komandi unglingar hafa legið mik- ið yfír hrollvekjum eða ekki. Aðrir segja umburðarlyndir, að hroll- vekju einhverja hafi menn alltaf þurft að hafa. Kannski skýtur upp í kolli minning á borð við þá, að jafnvel í sakleysislegri strákasögu eins og Percival Keene (sem kom út aftur í fyrra), þar er því lýst hvemig strokuþrælar sem gerst hafa sjóræningjar steikja lifandi kaupmenn og skipstjómarmenn á þrælaskipum sem þeir handsama. Og svo framvegis. En; eitt er bók, annað er filma. Og í öðm lagi: Rannsóknir virðast benda til þess, að þótt furðu margir geti horft á hrollvekjur sér og öðr- um að meinalausu, þá lækka þær þegar á heildina er litið „þröskuld- inn“ sem fyrirvarar gegn ofbeldi setja. Ekki síst ef um er að ræða böm og unglinga, sem hafa með einum hætti eða öðmm lent út í homi í tilvemnni, þau virðast eiga erfíðast með að gera greinamun á vemleikanum og þeim ósköpum sem sjá má á fiimum. Þau beinlínis læra hrottaskap, nauðganir og fleira þesslegt af því sem fýrir þeim er haft.(Sbr. nýlega firásögn hér í blaðinu um þýskar rannsóknir á þessu sviði). Kvótakerfi á ofbeldið Jæja. Undir lokin fer Þórður Helgason svo að velta því fyrir sér, hvort ekki sé hægt að gera neitt í málinu. Ekki megum við gefast upp, segir hann, það er það versta: „Það var hægt að setja kvóta á físk. Hví þá ekki á óhroðann sem böm okkar em alin á - þótt ljóst sé að fiskur er miklu dýrmætari en böm. Það var hægt að búa til þjóðar- sátt til að bjarga ríkissjóði. Væri þá ekki eins hægt að stofiia til þjóðar- sáttar gegn ofbeldismyndum - þótt allir viti að afkoma ríkissjóðs er miklu alvarlegra mál en velferð bama. Svo var hægt að setja bráða- birgðalög til að koma í veg fyrir að fólk fengi umsamin laun greidd. Hvemig væri að setja bráðabirgða- lög til að bjarga bömum úr klóm siðspillandi afla...“ Það er nú svo. Hér er mælt með hertu eftirliti, með boði og bönnum. Menn em svo sem ekkert gefnir fyrir slíkt fyrirfram, En ann- að mál hvað þeir gætu mælt með ef brýna nauðsyn ber til. Markaðurinn ræður Hitt er svo ljóst, að þegar hér er komið sögu talar Þórður Helga- son fyrir daufum eymm. Við emm svo rækilega innstillt á það, að ekkert megi banna, varla einu sinni smábömum, að allt tal í þessa vem er stimplað með miklum háðsglós- um sem „forsjárhyggja“ og jafnvel gikksháttur „menntavita sem alltaf þykjast þurfa að hafa vit fýrir fólki“. Við lifum á þeim tíma sem vill hvergi viðurkenna neinn viðnáms- gmndvöll í málum sem þessum. Það er vísað á ábyrgð einstaklings- ins, að hver beri ábyrgð á sjálfum sér og foreldrar á því sem böm þeirra taka sér fyrir hendur og þar fram eftir götum. Sem er rétt - svo langt sem það nær. Og það nær hvergi nærri alla leið. Og síðast en ekki síst; við lif- um á markaðstímum. Sem em svo svæsnir, að menn láta alls ekki nægja að nota markaðslögmál til að tryggja skilvirkni í framleiðslu. Þau eiga að ríkja ofar öllu öðm, þau má ekki tmfla með neinu móti. Og afleiðingin er sú, að allt snýst í andstæðu sína. Líka frelsið. Út- gáfufrelsi og filmufrelsi undir markaðsfánum hefur í Austur-Evr- ópu enn sem komið er haft þau áhrif helst, að menningarlífi hefur hrakað. Gæðaviðleitni hopar hratt undan þeim gróða sem hafa má af grófu ofbeldi og klámi - og sæmi- lega meinandi menn vita ekki leng- ur sitt ijúkandi ráð. ÁB. ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. maí 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.