Þjóðviljinn - 29.05.1991, Page 5
Kaþólskur
erkibiskup af
Moskvu
í gær var Tadeus Kon-
drusevítsj, fyrrum æðsti
maður kaþólsku kirkjunnar i
Hvíta-Rússlandi, vígður
erkibiskup af Moskvu. Er
hann fyrsti erkibiskup kaþ-
ólikka í þeim stað síðan á
fjórða áratugnum. Erkibisk-
upsdæmi hans nær yfir allt
rússneska sambandslýðveld-
ið vestan Úralfjalla.
Litið er á útnefningu
Kondrusevítsj á þennan
erkistól sem merki um bat-
andi sambönd sovésku
stjómarinnar og Páfagarðs,
en í þeim efnum urðu þátta-
skil er Míkhail Gorbatsjov,
Sovétríkjaforseti, sótti Jó-
hannes Pál páfa annan heim
1989.
Óvíst hvað olli
sprengingu í
Lauda-þotu
Niki Lauda, fyrrum
kappaksturskappi og nú að-
aleigandi austurriska flugfé-
lagsins Lauda- Air, sagði í
gær að farþegaþota félagsins
af gerðinni Boeing 767, sem
fórst í Taílandi á sunnudags-
nótt, hefði sprungið í smát-
ætlur í lofti. Sagðist Lauda
ekki vita dæmi annars eins,
t.d. hefði PanAm-þotan sem
sprengja grandaði yfir Loc-
kerbie í Skotlandi 1988 ekki
sundrast svo gersamlega.
Vitað er nú að 83 af
þeim 223 mönnum, sem
með Lauda-vélinni fómst,
vom Austurríkismenn, þar
af níu af tíu áhafnarmeðlim-
um. 52 vom ffá Hongkong
og 39 Taílendingar. Hinir
vom Italir, Svisslendingar,
Kínveijar, Þjóðveijar, Júgó-
slavar, Portúgalar, Taívanar,
Bandaríkjamenn, Bretar,
Ungverjar, Filippseyingar,
Pólveijar, Tyrkir, Brasilíu-
menn og Astralíumenn.
Flugstjórinn var Bandaríkja-
maður.
Enn er ekki vitað hvað
orsakaði sprenginguna.
EHLENDAR rnf FIETHM
A, Umsjón: Dagur Þorleifsson
Þýskir herflugmenn, sendir til Tyrklands fyrir Persaflóastríð. Sá ófriður og endalok kalda stríðsins stuðluðu að þeim breytingum, sem nú stendur til að gera á her-
skipulagi Nató.
Róttækar breytingar
á herskipan Nató
Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalags-
ins samþykktu í gær breytingar á herskipulagi þess, þær
róttækustu frá því að það var stofnað fyrir rúmlega fjór-
um áratugum. Fækkað verður stórlega í liði bandalagsins
á austurmörkum þess og nýjum herstyrk, sem ætlað er að
í snarheitum megi senda þangað sem bandalagið telur nauðsyn bera
til undir ákveðnum kringumstæðum, skal komið á fót.
Breyting þessi verður gerð með
hliðsjón af því, að Varsjárbanda-
lagið er úr sögunni og telur Nató
því öllu minni ástæðu til að óttast
Sovétríkin en var meðan kalda
stríðið stóð. Hinsvegar telur
bandalagið að hugsanlegt sé að
það verði að snúast við hættu ann-
arsstaðar ffá og mun Persaflóastríð
mjög hafa ýtt undir bollaleggingar
um það innan bandalagsins. En
sagt er að óstöðugleiki í Austur-
Evrópu og Sovétríkjunum sé einn-
ig hafður í huga í þessu sambandi.
I hinum nýja viðbragðssnögga
herstyrk eiga að vera um 60.000
manns undir breskri stjóm, og er
fyrirhugað að hann geti verið tilbú-
inn hvar sem er á svæðinu ffá
Norður-íshafi til Miðjarðarhafs á
nokkrum vikum. Aðalstöðvar hers
þessa verða í Þýskalandi og skal
hann skiptast í fjórar herdeildir.
Tvær þeirra verða breskar, önnur
búin þungum brynvörðum her-
gögnum. 1 þeirri þriðju verður her-
lið ffá Þýskalandi, Belgíu, Hol-
landi og Bretlandi og verður hún
loflflutt. Sú fjórða verður að lík-
indum undir italskri stjóm og í
henni herlið ffá Miðjarðarhafsríkj-
um Nató. Bandariskt fluglið verður
að líkindum her þessum til stuðn-
ings. Nató hefur þegar á að skipa
5000 manna fjölþjóðlegu stórfylki.
Um herinn i Mið-Evrópu, þar
sem helsta lína Nató var í kalda
stríðinu, ákváðu vamarmálaráð-
herramir að i honum skyldi fækkað
um helming. I þeim heijum er m.a.
yfir 250.000 manna bandarískt lið.
Þær hereiningar, sem eftir verða í
Mið-Evrópu, verða endurskipu-
lagðar í sex fjölþjóðlegar stórdeild-
ir undir þýskri, bandarískri, hol-
lenskri og belgískri stjóm. Ein
þýsk stórdeild verður og þar sem
áður var Austur-Þýskaland.
Haft er eftir embættismönnum
í aðalstöðvum Nató í Belgiu að
viðkvæmt mál i viðræðum um
þetta væri hvemig skyldi efla her-
styrk evrópskra Natórikja hlutfalls-
lega, á kostnað hlutdeildar Banda-
rikjanna i herskipan bandalagsins í
Evrópu, án þess að Bandaríkja-
mönnum sámaði.
Æðstu menn Natóríkja eiga eft-
ir að staðfesta þessa samþykkt
vamarmálaráðherra sinna, en búist
er við að þeir geri það síðar á ár-
inu.
Helen Shannan fer um borð I Sojús- geimferju ásamt sovéskum félögum sln-
um, Anatolíj Artsebarskíj og Sergej Krlkaljov.
Bresk kona í sovésku geimskipi
Nhafa Bretar eignast sinn fyrsta geimfara og er hann kona, Helen
Sharman að nafni. Hún tekur þátt í sovéskri rannsóknaáætlun
um borð í geimrannsóknastofunni Mír, ásamt tveim Rússum.
Lagt var af stað með Sojús-12 geimferju frá geimferðamiðstöðinni í Bæ-
konúr þann átjánda maí.
Helen Sharman varð hlutskörp-
ust í hörðum samanburði á þrettán
þúsund umsækjenda sem vildu allir
verða fyrsti Bretinn í geimnum. Hún
er efnafræðingur að mennt og hefúr
verið í þjálfun í tvö ár til undirbún-
ings geimferðinni.
Bretar eru 24ða þjóðin í röðinni
sem eignast sinn geimferðalang. En
Sovétmenn höfðu áður - af pólitísk-
um ástæðum - tekið með í sínar ferð-
ir fúlltrúa allra rikja sem þeim voru
nátengdust. Ferðalag Helan Sharman
er svo vitanlega annar pólitískur
vitnisburður: um að austur og vestur
geti átt samstarf um hvaðeina.
Rannsóknaáætlunin sem konan
breska tekur þátt í heitir „Júnó“ og
hefúr veið gagnrýnd fyrir að vera
heldur rýr í roðinu. Aðalverkefnið er
að fylgjast með því hvemig gróður
plumar sig í þyngdarleysi geimsins.
Þar fyrir utan vasast Helen
Sharman í ýmsu sem kemur vísind-
um lítið við eins og gengur. Hún
hafði mynd af drottningunni með-
ferðis eins og vænta mátti. Hún átti
að veita viðtöl úr geimnum við níu
breska skóla (líklega er það hugsað
til að ýta undir áhuga á raunvísind-
um). Þar að auki átti hún að panta
blóm utan úr geimnum og mun það í
fyrsta sinn sem Interflora fær slík til-
mæli. Ekki vissu breskir blaðamenn
hveijum blómvöndurinn var ætlaður
þegar geimferðin hófst.
Geimferðir eru annars „gömul
síld“ eins og sagt er og vekja hvergi
nærri lengur þá hrifhingu sem eitt
sinn fylgdi þeim. Geimferðaþjóðim-
ar em reyndar í hálfgerðum vand-
ræðum með verkefni handa sínu
fólki, þeas verkefni sem gætu réttlætt
með einhveijum hætti þann mikla
kostnað sem geimferðum fylgir. En
það er haldið áfram: Bretar hafa
t.a.m. þjálfað þijá menn til þátttöku í
geimferðaáætlun Evrópurikja sem nú
er í bígerð.
áb tók saman
Ástkær systir mín og móðursystir
Geirþrúður J. Ásgeirsdóttir Kúld
hjúkrunarkona
Aflagranda 40,
áður Litlagerði 5, Reykjavík
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. maí
kl. 13:30.
Þeim sem vilja minnast hennar, er bent á líknarfélög.
Margrét Ásgeirsdóttir
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. mal 1991