Þjóðviljinn - 04.07.1991, Qupperneq 1
Þj óðar-
atkvæðis
krafist
um EES
bandalagsins, EB, um Evrópskt
efnahagssvæði EES. Framganga
íslenskra stjórnvalda í þessu
máli og umræða um það og um
samskipti íslands við Evrópu-
bandalagið, hefur að undan-
förnu verið með þeim hætti, að
ástæða er til að hafa áhyggjur af
að verið sé að fórna hagsmunum
íslensku þjóðarinnar og rétti
hennar til að ráða málum sínum
sjálf.“ Þannig hljóðar texti sem
er grundvöllur samtaka gegn að-
ild Islands að EES, en undirbún-
ingsstofnfundur þeirra var hald-
inn í Norræna húsinu kl 17.00 í
gær. Fullt var út úr dyrum á
fundinum, en þar kom fram að í
einu byggðarlagi, Ljósavatns-
hreppi, hefðu yfir 80% atkvæðis-
bærra manna þegar undirritað
áskorunina.
Framsögumenn voru Bjami
Einarsson hjá Byggðastofnun,
Hannes Jónsson fyrrverandi sendi-
herra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
alþingismaður, Jakob Jakobsson
forstjóri Haffannsóknastofnunar og
Ami Bergmann ritstjóri. Fundar-
stjórar vom Jón Þórðarson lög-
maður og Markús Á. Einarsson
veðurffæðingur.
I máli ræðumanna á fundinum
komu ffam miklar áhyggjur af
þeirri skerðingu á sjálfstæði þjóð-
arinnar sem fælist i þeim samning-
um um EES sem nú virðast vera að
komast á lokastig. Bjami Einars-
son sagði meðal annars að sjálf-
stæði þjóðarinnar væri í senn mik-
ilvægasta mál hennar og um leið
mesta hagsmunamál. Því væri af
mörgum haldið ffam að við ættiun
ekki annarra kosta völ en að sogast
inn í Evrópubandalagið. Það væri á
hinn bóginn algerlega ástæðulaust,
því íslendingar ættu margra ann-
arra kosta völ. Hann taldi þá kyn-
slóð sem nú lifir ekki hafa rétt til
að afsala þjóðinni þeim réttindum
sem fyrri kynslóðir hefðu barist
fyrir til sigurs. Hann gat þess að
mikill meirihluti mannícyns byggi
Fjærst á myndinni er Hannes Jónsson, þá Bjarni Einarsson (I ræðustól), Jón Þórðarson, Ingibjörg Solrún Glsladóttir og
Árni Bergmann.
á norðurhveli jarðar og 97% þeirra
peninga sem í umferð væm í heim-
inum væm þar. í þeim skilningi
vær Island afar vel sett, með greið-
ar samgöngur í allar áttir.
Hannes Jónsson, fyrrverandi
sendiherra, rakti gang samninga-
viðræðnanna og minnti á þau orð
utanríkisráðherra að nú þegar væri
búið að semja um 98% af þeim at-
riðum sem semja ætti um. Hann
gagnrýndi ríkisstjómina og einkum
Jón Baldvin Hannibalsson harð-
lega fyrir að stuðla ekki að upplýs-
andi umræðu um málið. ,JLengst af
hefur upplýsingaflæðið einkennst
af því viðhorfi að efnahagslega
samvinnuþróunin í Evrópu eigi sér
stað og okkur sé nauðugur einn
kostur að verða hluti af henni. Það
þarf ekki að kafa djúpt til að sjá að
svona málflutningur byggist ekki á
sannsýni, heldur einhliða efnistúlk-
un. Hann tekur ekki tillit til allra
efnisþátta málsins og sniðgengur
með öllu raunhæft mat á hagsmun-
um Islands gagnvart meginatriðum
samninganna um EES,“ sagði
Hannes m.a.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, greindi frá
nokkrum dæmum um falsanir Evr-
ópubandalagsins á aflatölum.
Bandalagið hefði vissulega komið
sér saman um fiskveiðistefnu sem í
fælist ýmislegt skynsamlegt, en
þegar á reyndi kæmi annað í ljós.
Nefndi hann meðal annars að
dæmi um síldveiðar í sunnanverð-
um Norðursjó, en árið 1989 lagði
Alþjóða hafrannsóknaráðið til að
veidd yrðu 30 þúsund tonn af síld
og var sú tillaga samþykkt í Bruss-
el, og aflaskýrslumar sýndu líka 30
þúsund tonna veiði eftir árið. En
þegar fiskiffæðingar fóru að kanna
málið kom í ljós að skýrslumar
vom falsaðar og höfðu þá verið
veiddar 48 þúsund lestir til viðbót-
ar. Taldi Jakob reynsluna sýna að
EB væri alls ekki treystandi að því
er varðar fiskveiðistjómun og ís-
lendingar myndu missa stjóm á
auðlindum sínum með inngöngu í
EB eða með aðild að Evrópska
efnahagssvæðinu.
Ámi Bergmann fjallaði í sinni
ræðu um þá nauðhyggju sem fælist
í endalausum fullyrðingum um að
við Islendingar ættum ekki annarra
kosta völ en að taka þátt í Evrópu-
dansinum og það undir formerkj-
um frelsis og benti á að í þessu fæ-
list hið gagnstæða.
Ræða Ingibjargar Sólrúnar er
birt jítið eitt stytt á 3. síðu.
I fundarlok var kjörin 10
manna bráðabirgðastjóm sem hef-
ur það verkefni að undirbúa form-
legan stofnfund samtakanna sem
haldinn verður innan tíðar.
hágé.
Við undirrituð skorum á
ríkisstjórn íslands að
hverfa nú þegar frá við-
ræðum um aðild íslands
að Evrópsku efnahagssvæði.
Verði viðræðunum samt haldið
áfram og samkomulag undirrit-
að munum við krefjast þess, að
samningurinn verði borinn und-
ir þjóðaratkvæði áður en hann
verður tekinn til endanlegrar af-
greiðslu. — Um þessar mundir fer
fram lokaþáttur viðræðna milli
aðildarríkja Fríverslunarsam-
taka Evrópu, EFTA og Evrópu-
Umhverfis-
nefnd Alþingis
ekki treyst
Umhverfisnefhd Alþingis er
ekki treyst fyrir starfsleyfi fyrir
álver á Keilisnesi sem umhverf-
isráðherra hyggst leggja fyrir
ríkisstjómina í dag.
Umhverfisnefnd kom saman
í gær til þess að ræða starfsleyf-
ið. Eiður Guðnason umhverfis-
ráðherra mætti á fundinn, en
neitaði að láta nefhdina fá drög-
in að starfsleyfinu fyrir álverið,
þegar farið var ífam á það.
Hann sagði að starfsleyfið væri
ekki útbært fyrr en það væri
fullfrágengið og náttúruvemdar-
ráð og heilbrigðisnefhd Suður-
nesja hefði haft það til skoðunar
og innsagnar.
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður, sem sæti á í
nefndinni, mótmælti þessu og
sagði það óeðlilegt að þing-
nefnd væri ekki treyst fyrir
þessu plaggi. Að sögn Hjörleifs
tóku fleiri þingmenn undir mót-
mæli hans, þar á meðal stjómar-
liðar. -Sáf
Óvinir
Gunnars
Viðurkenning
á Króatíu
og Slóveníu
til athugunar