Þjóðviljinn - 04.07.1991, Page 4

Þjóðviljinn - 04.07.1991, Page 4
KOMUM III II MI IM „Sjáðu pabbi! Þarna stökk einn stór. Við hefðum átt að týna orma eins og éa sagði.“ Já karlinn minn. Hér er nóg af fiski. En svartur Toby dugar best, sannaðu til.“ „Hvað sagði ég. VAAAAARAÐU ÞIG!“ Já í veiðiferðum verður maður að vera viðbúinn öllu. „Jæja kariinn. Núna finnst mér gott að vera í flotvestinu. Manstu hvað þér fannst það asnalegt áðan.“ VIÐ VÖTN ER VARÚÐ EINA VITIÐ! KOMUM HEIL HEIM ER UNNIÐ í SAMVINNU VIÐ' Lögreglu, slökkvilið Umferðarráð, Vinnueftirlit ríkisins og Áfengisvarnarráð. Erlendar FRETTIR írakar hindra eftirlitsmenn S.þ. í starfi — Oryggisráðið fundar um málið Ákveðið hefur verið að Ör- yggisráð Sameinuðu þjóð- anna komi saman til að ráða ráðum sínum um hvernig írak skuli knúið til að heimila eftiriitsmðnnum frá S.þ. ótak- markaðan aðgang að kjarnorku- verum sínum og útbúnaði þeim tilheyrandi. írakar hafa undan- farið hindrað eftirlitsmenn þessa í starfi, enda þótt íraksstjórn hafi marglofað því að þeir skuli fá að skoða allt sem þeir vilja. Umræddu efiirliti S.þ. í írak hefur verið hætt til bráðabirgða, þar eð Javier Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri S.þ., telur að það þjóni engum tilgangi meðan Irakar halda áfram að þvælast fyrir eftirlitsmönnum samtakanna. Þeir eru í tveimur nefndum, annarri á vegum Alþjóðlegu kjamorkumála- stofnunarinnar (IAEA) og hinni frá Öryggisráði. Hafa þær báðar verið kvaddar frá írak og mun ætlunin að þær bíði átekta þangað til Ör- yggisráð hefur fjallað um málið. Nefndimar gruna íraka um að reyna að skjóta undan tækjum, sem hægt er að nota til að auðga úran, sem er mikilvægt við fram- leiðslu á kjamasprengjum. Samkvæmt vopnahléssamn- ingnum eftir Persaflóastríð, sem undirritaður var 3. apríl, em írakar skuldbundnir til afhenda eftirlits- nefndum frá S.þ. allan útbúnað og öll efhi í eigu sinni, sem nota má til að framleiða kjamasprengjur. Hið sama, gildir um langdrægar eldflaugar Iraka og efna- og sýlda- vopn þeirra. Verður viðskiptabann- inu á Irak ekki aflétt fyrr en vopna- búnaður þessi allur er úr sögunni. Bandaríkin hafa gefið í skyn, að þau muni gripa til vopna gegn írökum á ný, ef þeir haldi álfam að þvælast fyrir eftirlitsnefndunum, en ólíklegt er talið að Öryggisráð heimili slíkt fyrir sitt leyti á í hönd farandi fúndi. Saddam íraksforseti (hér á bæn) - eftirlitsmenn S.þ. saka menn hans um að fela útbúnað til framleiðslu á kjamavopnum. Gorbatsjov: Hætta ber dýrkun á Marx og Lenín Lenín á llkbörum - Gorbatsjov segir ekki ná nokkurri átt að „dýrka bók- staflega allt“ sem þeir Marx hafi sagt og skrifað. Míkhaíl Gorbatsjov, Sov- étríkjaforseti, sagði í ræðu, sem í gær var birt í Pravda, helsta blaði sov- éska kommúnistaflokksins, að flokkurinn væri dauðadæmdur ef íhaldsmenn (af fréttamönn- um gjarnan kallaðir harðlínu- menn og stundum hægrimenn) þar létu ekki af árásum á stjórn hans. „Haldi þetta áfram, ef flokkur- inn breytist ekki, er hann dæmdur til ósigurs í öllum pólitískum átökum og kosningum ffamtíðar- innar,“ sagði forsetinn. Undanfarið hefúr færst harka í leikinn milli Gorbatsjovs og íhaldsmanna, eftir að forsetinn um hríð hafði virst halla sér að þeim. Saka íhaldsmenn Gorbat- sjov nú um svik við hugsjónir kommúnismans og að hann standi og horfi aðgerðalaus á Sovétríkin leysast upp. Sumir þeirra krefjast þess að hann segi af sér stöðu að- alritara (framkvæmdastjóra) flokksins. Gorbatsjov er nú farinn að færa sig nær fijálslyndum flokks- mönnum (sem fréttamenn stund- um kalla vinstrimenn) og þótti það koma skýrt í ljós á þriðjudag er hann fagnaði stofnun nýrrar stjómmálahreyfingar, sem Eduard Shevardnadze, fyrrum utanríkis- ráðherra og Aleksandr Jakovlev, einn helstu ráðgjafa Gorbatsjovs, standa fyrir meðal annarra. Þeir og fleiri stofnendur hreyfingar þessarar eru í frjálslyndari armi sovéska kommúnistaflokksins og sæta hörðu aðkasti íhaldsmanna. „Við verðum að ræða undan- bragðalaust þá nauðsyn að láta af trúardýrkun á stofnendunum (Marx og Lenín),“ hefúr Pravda ennfremur eftir Gorbatsjov. Kvað hann ekki ná nokkurri átt að „dýrka bókstaflega allt sem þeir hafa sagt og skrifað.“ Sumir sovéskir fréttaskýrend- ur segja að vera kunni að hin ný- stofnaða stjómmálahreyfing, sem nefnist Lýðræðislega umbóta- hreyfingin, sé komin á kreik til að gefa Gorbatsjov færi á að snúa baki við íhaldsmönnum í flokkn- um og sameina fijálslynda flokks- menn í nýjum samtökum undir siimi forustu. Alúðarþakkir fyrir vinsemd og samúð við lát Gunnars Sigurmundssonar prentara Vilborg Sigurðardóttir Gylfi Gunnarsson Debra Gunnarsson Gerður Gunnarsdóttir Grétar Br. Kristjánsson Gauti Gunnarsson Sigrún Arthúrsdóttir Sigurður Ó. Gunnarsson Judie Gunnarsson og barnaböm ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur4. júlí 1991 Síða 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.