Þjóðviljinn - 04.07.1991, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.07.1991, Síða 6
íf ■: Sigrún Þorsteinsdóttir, verkakona: Ég fylgist aðallega með fréttum. WBsmP' Soffía Kristinsdóttir, húsmóðir: Ég horfi alltaf á fréttir ef ég get. Les slúðurdálk- ana í blöðunum og for- síðurnar. Ég fylgist með ef eitthvað fréttnæmt er í blöðunum. Óskar Steinn Geirsson, ræstitæknir: Ég horfi á Hunter, Matlock og Tvídranga þegar sá þáttur var á Stöð 2. Ég skoða blöðin lítið en hlusta á útvarp ef það eru spiluð góð lög. m Hverju fylgist þú helst með í fjölmiðlum? Sonja Magnúsdóttir, húsmóðir: Ég horfi aðallega á bíó- myndir og sjónvarps- þætti. Ég horfi lítið á frétt- ir í sjónvarpi en les Morg- unblaðið. Hallfreður Om Eiríksson sýnir gestum forn handrit. Ovinir Gunnars skækjusynir S Arnagarði við Suðurgötu er sýning á fornum handritum. A sýningunni er úrvai hand- rita sem afhent hafa verið hingað heim frá Danmörku á undanförnum árum. Þar á með- ai er eitt merkasta handrit Snorra Eddu, Konungsbók. Einar Gunnar Pétursson, Cand. mag., sagði að sýning Ámasafns væri töluvert mikið sótt af útlend- ingum en hins vegar væri það frek- ar sjaldgæft að íslendingar kæmu á sýninguna nema þeir væru í fylgd með útlendingum. Annar aðili hvíslaði þeirri sögu að blaðamanni að tvær ráðsettar, íslenskar konur hefðu þó komið og litið inn á Amastofnun þegar þar var opið hús. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður stofnunarinnar gekk í það af eljusemi að sýna konunum handrit, myndir og ann- að það sem markverðast er að sjá á Amastofnun. Konunum hefur lík- lega þótt Jónasi farast þetta vel úr hendi því áður en þær kvöddu sneri önnur sér að Jónasi og spurði í samræðutón: „Ert þú Ámi Magn- ússon?“ Það eni fleiri merk handrit á sýningu Ámastofnunar en Kon- ungsbók. Þar er Staðarhólsbók Grágásar ffá lokum þjóðveldisald- ar. Það er mesta merkishandrit. I Islendingabók Ara fróða Þor- gilssonar er skýrt ffá því að vetur- inn 1117 - 1118 hafi lög verið skráð af Hafliða Mássonar á Breiðabólsstað í Vestur-Hópi. „var þá skrifaður Vígslóði og margt annat í lögum“ stendur þar. Sú lög- bók var síðan nefnd Hafliðaskrá. Hún er löngu týnd en líkur hafa verið leiddar að því að meginefhi hennar komi fram í varðveittum handritum þjóðveldislaganna ís- lensku sem einu nafni nefnast Grá- gás. Af öðmm handritum má nefna Jónsbók, frá upphafi 14. aldar, eitt aðalhandrit Stjómar og Oddabók Njálu sem er með merkilegustu skinnhandritum þeirrar sögu. Sé það handrit borið saman við Biblíu - og Biskupasöguhandrit má glögglega sjá að Njála hefur verið mikið meira lesin. Það vaknar óneitanlega sú spuming hvort það geti stafað af því að hún hafí verið nær því að vera trúarrit íslensku þjóðarinnar. Fyrir utan það sem hér hefúr verið upp talið em sýnd brot úr Lárentíus sögu biskups og pappírs- handrit Nikulás sögu erkibiskups, Jóns sögu helga Ogmundarsonar og Þorláks helga Þórhallssonar. Um Oddabók Njáls sögu segir meðal annars í bæklingi sýningar- Veggmynd I Árnasafni. - Myndir: Kristinn. innar: „Njáls saga hefúr notið ( meiri vinsælda en nokkur önnur ís- , lendingasaga og ber margt til þess. í Efnið er stórfenglegt, persónumar 1 lifandi og sögusviðið vel þekkt. f Sagan stendur á mörkum milli hinna eldri og raunsærri sagna og i yngri ýkjusagna og er líklega sam- i in um og eflir 1280... f ...Bókin (þ.e. handritið) er s skrifúð á 15. öld og hefur skrifar- 1 inn bætt við athugasemdum um i söguhetjumar á nokkrum stöðum. s óvinir Gunnars em t.d. nefndir „skækjusynir“ á 24. blaði og eftir að Valgarður grái hefúr verið heygður, bætir skrifarinn við: “ok fari bannsettr“ Ámi Magnússon, sá sem stofn- unin er nefnd eftir, var uppi á árun- um: 1663 - 1730. Hann var pró- fessor við Kaupmannahafnarhá- skóla sem þá var reyndar háskóli fyrir Danmörku, Noreg og ísland. Ami er frægastur fyrir elju við söftiun merkra handrita. -kj Það sama og alltaf: Samningar eru á næsta leiti. 1 'IIK'lTH, iirtffitol 'iHHíl’ ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. júlíl 991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.